Morgunblaðið - 13.01.1962, Side 23

Morgunblaðið - 13.01.1962, Side 23
Laugardagur 13. jan. 1962 MORGTJNBLAB1Ð 23 Styrkur til náms í meðferö handrita BLA.ÐINU hefur borizt eftirfar- andi frá Kvenstúdentafélagi ís- lands: Þar sem nú hyllir undir far- sæla lausn handritamálsins, og von er á þjóðardýrgripum okk- ar heim úr útlegðinni í Árna- safni, vill Kvenstúdentafélag ís- lands fyrir sitt leyti fagna end- urheimt handritanna með því að að veita þennan styrk. Jafn- framt því sem þetta verður við- leitni til að búa í haginn fyr- ir heimkomu handritanna úr Arnasafni, hefur félagið einnig og ekki síður í huga öll þau handrit, sem skipta þúsundum í okkar eigin söfnúm, sem þarfn ast meðhöndlunar og viðgerðar sérfróðrar manneskju. Stjóm félagsins hefur haft samráð við Finn Sigmundsson landsbókavörð, notið ágætrar fyrirgreiðslu hans og hollráða viðvíkjandi væntanlega námstil- högun og dvalarstað styrkþega. Fyrirhugað er, að námið verði stundað í áföngum eftir því sem henta þykir og í samræmi við nármsárangur. Samkvæmt því mun styrk- þegi fyrst starfa nokkra mán- uði á Landsbókasafninu til að aðlagast og kynnast starfshátt- um þar. Að því loknu hefur tek- izt að útvega tilsögn í London hjá vel hæfum manni, sem sér- fróður er um meðhöndlun og viðgerð handrita. Reynsaln mun skera úr um, hve lengi verður dvalið þar í einu. Stjórn Kvenstúdentafélags Is- lands telur æskilegt, að um- sækjandi sé kvenstúdent, setur það þó engan veginn sem skil- yrði fyrir styrkveitingunni, svo aðrar stúlkur með staðgóða al- mennt menntun koma mjög til greina, enda eru handlagni, natni og áhugi á viðfangsefninu atriði, sem tekið verður tillit til við úthlutun styrksins. Umsóknir um styrkinn ber að stíla til stjórnar Kvenstúdenta- félags tslands í pósthólf félags- ins nr. 326, Reykj-vík. Umsóknarfrestur er til 1. marz n. k. Eyðublöð til umsóknar fást í skrifstofu Háskóla IslandS. Það er von félagsins, að ef vel tekst til um val styrkþega, megi vænta góðs árangurs af starfi hans við söfn hér í fram- tíðinni, jafnframt því sem við- komandi stúlka tryggir sér ör- ugga og góða atvinnu að námi loknu. (Frétt frá Kvenstúdentafél.) Neptune könnunarflugvél af sömu gerð og flugvélin frá Keflavík. B yl tingartilraun ir athjúpaSar Seoul, 12. jan. — (NTB) — I DAG tilkynnti stjóm Suð- ur-Kóreu, að hún hefði af- hjúpað tvær tilraunir til að ráða formann hyltingarráðs- ins, Park Chung Hee, hers- höfðingja, af dögum og steypa herstjórninni í land- inu af stóli. -— * — Lee Moon Kyu, formaður þjóðlega sjálfstæðisflokksins í Kóreu, sem leystur hefur verið upp, stóð fyrir öðru samsær- inu. Hann hefur verið tekinn fastur og er sakaður lun að hafa ætiað að ráða Park, hers- höfðingja og Song Yo Chang, forsætisráðherra, af dögum. Til þess að geta komið þessari fyr- irætlun sinni í framkvæmd, hafði hann leigt 30 leyniskytt- ur. — Hitt samsærið var undirbúið af Choo Hyones, öðrum féiaga sama flokks. — Hafa 11 menn verið handteknir fyrir að hafa tekið þátt í undirbúningi sam- særisins með Hyons. Menn Hy- ons höfðu myndað „skuggaráðu- neyti“, sem átti að vera reiðu- búið til að taka völdin í sínar hendur. Kim Changisook, 80 ára sjálfstæðishetja, hafði verið út- nefndur forsætisráðherra ráðu- neytisinsr Bæjarbíó I Hafnarfirði hefir sýnt myndina Presturinn og lamaða stúlkan síðan á jólum, en nú fer sýningum að fækka. Myndin, sem er þýzk og í lit- um, hefir hlotið góða dóma. Hún verður sýnd í bíóinu núna um helgina. — Viðræður ASÍ Framhald af bls. 2. atvinnulíf í heild risið af eigin rammleik. Ráðsteifnan telur þvi rétt, að kaupgjaldsákvæðuan samninga verði strax sagt upp, og að leit- að verði eftir leiðréttingu á þeim með það fyrir augum, að kaup- máttur launanna verði eigi lægri en hann var 1. júlí s.l. og ákvæði sett í samningana, er tryggi var anleiik kaupmáttarins. Ef annað dugir ekki, telur ráðstefnan ó- hjákvæimi'Iegt, að afli samtak- anna verði þegar beitt til að knýja fram þessa leiðréttingu. Svo og að beita áhrifum verka- lýðssamtakanna til þess, að Al- þingi og ríkisstjórn verði við kröfuim félaganna til að tryggja varanleik kjarabótanna. Ráðstefnan felur miðstjóm ASÍ undirbúning þessarar bar- áttu í saimráði við forystumenn í verkalýðsfélögunum, sem hún kveður sér til ráðuneytis“. Síðan þessi ráðstefna var hald hi, hefir miðstjóm Alþýðusam- bandsins unnið það verk, sem henni var falið. Vegna ákvæðisins um aö beita álhrifum verkalýðssamtakanna tii þess, að Alþingi og ríkisstjórn verði við kröfum félaganna um *ð tryiggja varanleik kjarabót- anna, samþykkir miðstjórnin, að eftirfarandi kröfur verði nú born ar fram og ræddar við ríkisstjórn ina. 1. Vaxtalækkun. Allir útlánsvextir lækki a.m.k. í það, sem þeir vom í árslok 1959, og verði tryggt, að vaxtalækkun til atvinnuveganna komi öll fram í hækkuSum launum. 2. Söluskattar og tollar verði felldir niður á öllum nauðsynja- vörum, og ríkinu í staðinn tryggð ar auknar tekjur með fullkomn- ara skattaeftirliti. Skattar og útsvör verði inn- heimt hjá launþegum jafnóðum og tekjur falla tiL 3. Niðurgreiðslur á aðalneyzlu vörum almennings verði eigi rýrðar frá því sem nú er. 4. Aðflutningsgjöld og vátrygg ingagjöld verði lækkuð og tryggt að sú lækkun komi öll fram í lækkuðu vöruverði. 5. Numið verði úr gildi hann við greiðslu verðlagsbóta á laun og tryggt, að samningafrelsi og sjálfsákvörðunarréttur verka- lýðsfélaganna verði ekki skert. 6. Átta stunda vinnutími verði lögifestur sem hámarks vinniu tími í þeim atvinnugreinum, sem fært þykir og yfirvinna takmörk uð sem allra mest að öðru leyti allt án skerðingar heildarlauna. Jafnframt verði yfirvinna barna og unglinga innan 16 ára umfram 8 stundir á dag bönnuð með öllu. 7. Að lokum var sú krafa borin fram við ríkisstjórnina, að hún tryggi varanleik þeirra kjara- bóta, sem samkomulag kynni þannig að nást um. Ennfremur var það fram tekið af Alþýðusamlbandsins hendi, að þessar kröfur, ef framkvæmdar yrðu, væru metnar til jafns við beinar kauphækkanir, og tekið yrði til gaumgæfilegrar athugun ar hvort ekki væri hægt, að kröf unum fullnægðum, að falla frá kauphækkunum fram til 1. júní 1962, er 4% kauphækkun á að koma til framkvæmda. Samkomulag varð um að ræð ast við aftur mjög fljótlega. Gagnrýna de Gaulle PARÍS, 12. jan. (NTB) — Þing- menn franska íhaldsflokksins og aðrir fulltrúar hans, samþykktu í dag með yfirgnæfandi meiri- hluta orðsendingu, sem felur í sér gagnrýni á stefnu de Gaulle í Alsírmálum og kröfu um, að Alsír verði áfram franskt Lítið um sil- ung í Mývutni Veiðar niður um /s hefjasf um mánaðamótin GRÍMSSTÖÐUM, Mývatns- sveit, 12. jan. — Hér hefur verið leiðinlegt tíðarfar að undanfömu, allmikill snjór og þykkur ís á vatninu, sem hefur verið lagt síðan í nó- vember. Engin silungsveiði er í Mý- vatni núna, enda er það frið- að fyrir veiði þar til um mánaðamótin janúar-febrúar. Fremur lítið virðist vera um sUung í vatninu, en þó hefur orðið. vart við uppvaxandi silung. Búast má við að sii ungurinn hafi minnkað i vatninu vegna óhemju mik- illar veiði á undanfömum ár- um. — Gera má ráð fyrir að veiði hefjist niður um ís um næstu mánaðamót en óvíst er hvort afli verður að ráði. — Jóhannes. — Þróttur Frh. af bls. 1. verkalýðsfélög sömdu og skyldu Þrótt eftir einan, sem endaði með því að Þróttur varð að ganga að verri samningum en félagið hafði haft fyrir verkfallið. Einar og félagar höfðu í þessu. sambandi sérstaklega treyst á skoðana- bræður sína f Dagsbrún, en þeir virtu Einar ekki einu sinni við- lits. _ _____ Á framboðsfundi er haldinn var í félaginu i fyrradag var svo af Einari dregið, að hann treysti sér ekki til að gefa nein frekari loforð um það hvernig ætti að leysa úr þeim vanda sem hann sjálfur hefur komið félaginu í Og getur af áfram heldur sem horfir riðið þessu gamla Og áður trausta verkalýðsíélagi að fullu. Þróttarfélagar þaS er í ykkar valdi nú í kosningunum um helg ina aS hefja merki félags ykkar aS nýju meS því aS veita B-list- anuin þann stuSning sem nægir til þess aS ná kosningu. Á þeim lista eru menn sem hafa vilja og möguleika til þess aS hef ja starf- semi Þróttar upp úr þeirri niSur- lægingu sem kommúnistar hafa komiS félaginu í. Þróttarfélagar kjósið snemma og veitið lista ykkar, — B-list- anum — sigur. — Flugvélin Frh. af bls. 1. beint að Grænlandshafi, en þar var flugvélin stödd, er síðast var vitað af henni. Hafrót og slæmt veður hamla leit úr lofti og af sjó, Og hafa íslenzkir togar ar og önnur skip leitað til hafnar vegna veðurs. HafSs þékur þrjá fjórðu hluta hafsins milli íslands og Grænlands, og verður leitinni beint að ísbreiðunni og nágrenni hennar þær klukkustundir, sem dagsljósið endist. — Síðusbu frétt ir af þessum slóðum herma að skýjahæð sé þar aðeins 200 fet, skyggni um 300 m, og vindur um 11 vindstig. BenzíniS búiS. Neptune flugvélin hafði benzíti til flugs þar til kl. 21:56 . gær- kvöldd, eftir íslenzikum tíma, og eftir þann tíma gat hún ekki ver ið lengur á flugi. — Sjómannafél. Frh. af bls. 1. formaður félagsins, Jón Sigurðs* son, sem hafði verið ritari félags- ins í 10 ár, er hann var kjörinn formaður við síðustu kosningar. Hilmar Jónsson er í varafor- mannssætinu. Hann var á sjó frá 1926 til 1954, er hann gerðist starfsmaður Sjómannfél. Reykja víkur. Pétur Sigurðsson, stýrimað ur, sem nú á sæti á Alþingi, er í ritarasæti. í gjaldkerasæti er Sigfús Bjarnason, sem var á sjó fram til ársins 1948, þegar hann hóf störf fyrir félagið. Óli Bárð- dal er í sæti varagjaldkera. Hann var um 10 ára skeið á kaupskip- um, en hafði áður stundað sjó á bátum og togurum frá barnsaldri. Nú fæst hann við seglasaum og gúmmíbátaviðgerðir, eins og kunnugt er. Ólafur Sigurðsson er í sæti meðstjórnanda. Hann fór ungur til sjós og var árum sam- an háseti og bátsmaður. Síðan 1959 hefur hann unnið hjá Tog- araafgreiðslunni. Karl E. Karls- son er einnig í sæti meðstjórn- anda. Hann er á togaranum Fylki Varamer.n á listanum eru Jón Helgason, háseti á Esju, Sigurð- ur Siguxðsson, vélamaður á Sel- fossi, og Þorbjöm D. Þorbjöms- son, bátsmaður á Agli Skalla- grímssyni. BELGRAD, 12. jan. (NTB) — Á föstudagsnóttina voru skráðir 9 jarðskjálftakippir i Júgóslavfu. Fjórir hafa látið lífið í jarðskjálft unum. LONDON, 12. jan. (AP) — Mik ill stormur geisaði á Bretlands- eyjum í gær og í dag. 9 manns hafa látið lífi® í ofviðri þessu, nokikrir smábátar sokkið í höfn- um og eignatjón af völdum veð- ursins er talið nema þúsuindum sterlingspunda. bbbbbbbbbbbbbfcbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb INiVKOIHIÐ FRA STAHLWILLE Stakir lyklar í tommu- og millímetramáli Stakir toppar í tommu- og millimetramáli Slml 35697 Laugoveg 178 millimetramáli ■ •pyggingavörur h.f. b b b b b b b .b

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.