Morgunblaðið - 25.01.1962, Side 9
Fimmtudagur 25. jan. 1962
MORGVlSBLAÐtÐ
9
Sigurjón
skipstjóri
í E>AG er 65 ára Sigurjón Einars-
son, skipstjóri frá Hafnarfirði.
Það er raunar óþarft að kynna
Sigurjón fvrir landsmönnum, svo
vel þekktur sem hann er í ís-
lenzkri sjomannastétt, sem einn
af helztu fiamámönnum þeirrar
stéttar.
Þegar Sigurjón var aðeins 12
ára gama'il hóf hann sjómanns-
íeril sinn fyrir alvöru og réði
sig á færaskútu. Stundaði hann
handfæraveiðar á þeim skipum,
þar til hann var 16 ára.
En hugunnn stefndi hærra, þeg
ar nann leit hin hraðskreiðu og
afkastamiklu veiðiskip, togar-
anna sem þá fjölgaði óðum á ís-
landsmiðum. Svo mikill var
ákafi þessa unga veiðimanns til
að komast á togara, að hann varð
að taka til láns 2 ár til viðbótar
við aldur smn, en á þeim skipum
var þá lagmarksaldur skipverja
18 ára.
Svo miklu ástfóstri tók Sig-
urjón við þessa tegund veiðiskipa,
að nann stundaði á þeim veiðar
næstum óslitið, þar til hann var
60 ára gamull og hætti sinni sjó-
mennsku.
Sigurjón var togaraskipstjóri
yfir 30 ár á ýfnsum togurum, en
frægastur aflakóngur varð hann
þegar hann var með togarann
Garðar frá Hafnarfirði, en það
skip var smíðað undir hann, eft-
ir hinn glæsilega skipstjórnar-
feril á togaranum Surprise frá
sama félagi.
Hinn 29. okt. 1934 varð Sigur-
jón sá gæfumaður að bjarga heilli
togaraáhöfn af brezka togaran-
um Macleay, sem strandað hafði
r.orðan M]óafjarðar í miklum
stórhríðarbil með tilheyrandi
ölduróti. Hann var þá skipstjóri
á togaranum Garðari. Þegar kom-
ið var á strandstaðinn reyndist
ógjörlegt að veita aðstoð frá skip
um og sneri þá Sigurjón innar í
fjörðinn til landgöngu ásamt
nokkrum af harðskeyttustu skip-
verjum sinum.
Á leið þeirri er björgunarmenn
irnir þurftu að fara voru margar
illar torfærur, svo sem brattar
klakabungur og fannfergi, enmeð
óþreyttri elju og látlausum hvatn
ingarorðum skipstjórans tókst
þeim að komast á strandstaðinn
og bjarga áhöfninni í land af hinu
strandaða skipi, sem þá var að
liðast í sundur.
Björgun þessi mun talin af öll-
um er cii þekkja einhver meðal
hmna frækilegustu, sem um get-
ur í björgunarafrekum hér á
landi, enda var Sigurjón sæmd-
ur fögrum áletruðum silfurbikar
af brezku ríkisstjórninni fyrir
afrekið og skipverjar hans, sem
að björguninni stóðu voru sæmd
ir stórum áletruðum silfurveskj-
um með þakkarávörpum.
Eg get pessa einstæða atburðar
úr lífi Sigurjóns vegna þess, að
hann gefur nokkra hugmynd um
hina sönnu karlmennsku hans,
áræði og viljaþrek, sem í gegn-
um allt hans sjómannsstarf hefir
auðkennzt af því „að snúa aldrei
við og gefast upp“.
Ég minrust þess oft með að-
dáun, þegar ég eitt sinn spurði
Sigurjón, fyrsta árið eftir að hann
hætti skipstjórn, þá sextugur að
aldri, hvort honum líkaði ekki vel
að vera kominn í land eftir alla
þessa baráttu „Ó jú, að sumu
leyti,“ en bætir síðan við. „En
ég hætti Of snemma".
Þessi orð meðal annars sýna
hvað Sigurjón í raun og veru
hefir ætíð verið ósvikinn, sann-
ur sjómaður. Á ég þá ósk bezta
til íslenzku sjómannastéttarinn-
ar, að hún verði jafnan vel skip-
uð slíkum afreksmönnum.
Sigurjón hefir lengst af verið
virkur þátttakandi í öllum sam-
tökum sjómannastéttarinnar, svo
sem Farmanna- og fiskimanna-
sambandi íslands, skipstjóra- og
stýrimannafélögum og siðast en
ekki sizt í öllu því er að slysa-
vörnum lýtur.
Þegar Dvalarheimili aldraðra
Einarsson
65 ára
sjómanna var stofnað réðist Sig-
urjón þangað, sem framkvæmda-
stjóri og hefir hann starfað þar
síðan. Það hljóta að hafa orðið
mikil viðbrigði fyrir Sigurjón að
taka við jafn fjarskyldu starfi frá
því sem hans fyrra starf var.
En það mun viðurkennt af öll-
um, er til þekkja að þrátt fyrir
margvíslega farartálma, sem
hljóta að verða á veginum við
slíkt uppbyggingarstarf, þá hafi
Sigurjóni tekizt vel með sinni
góðu greind að sigla í gegnum
vandrataða leið.
Mestan þann tíma, sem Sigur-
jóc nefir veitt Hrafnistu forstöðu
hefir hin dugrmkla og framtaks-
scma eigmkona hans frá Rann-
veig Viglúsdóttir staðið við hlið
manns síns í hinu margþætta
uppbyggingarstarfi og lagt hon-
um lið.
Þeim hjonum hefir orðið 5
barna auðið, sem öll eru nú upp-
komin. Um leið Og ég færi Sig-
urjóni mínar innilegustu afmæl-
isóskir, þá veit ég, að ég mæli
þar fyrir munn íslenzku sjó-
mannastéttarinnar og raunar fyr-
ir munn allra þeirra landsmanna,
sem kunna að meta og virða þau
störf þjóðfélagsborgaranna, sem
lögð eru fram af sönnum dreng-
skap og karlmennsku.
Sigurjón var sæmdur riddara-
krossi fálxaorðunnar árið 1961 og
sýnir það meðal annars hvert
mat forseti íslands og ráðgjafar
hans hafa lagt á hin mörgu störf
þessa góða drengs í þágu þjóð-
arbúsins.
Lifðu heill gamli vinur.
(Sigurjón dvelst nú utanbæj-
ar).
Guðm. Jörundsson
Mb. Akurey S.F.-52
er til sölu. Báturinn er 56 tonn, byggður úr eik í
Fáborg 1956. Bátur og vél í mjög góðu standi. —
Upplýsingar gefur
ÁRNI HALLDÓRSSON, hdl.
Laugavegi 22 — Sími 17478.
Stúlka óskast
til umsjónar og vinnu við sniðningu og frágang í
saumaverksmiðju. — Tilboð þar, sem greint er frá
aldri og fyrri störfum, óskast sent á afgr. Mbl.
merkt: „Traust — 7160“.
Atvínna
Stúlka, sem hefir nokkra æfingu í vélritun getur
fengið atvinnu við vélritun og simavörzlu. — Tilboð
er tilgreíni aldur og menntun. leggist inn á afgr.
Mbl. fyrir 29. jan. merkt: „220“.
VANTAR
matsvein, háseta og
beitingamann
Upplýsingar á herbergi nr. 6,
Hótel Skjalóbreið.
TILKYNIMING
frá Ludvig Storr & Co.
Það tilkynnist hér með heiðruðum við-
skiptavinum, að símanúmer í verzluninni
er sem áður 1-3333, en skrifstofusími fyrst
um sinn 2-4030.
Ludvig Storr
Að^lfundur E4DR.
verður haldinn mánudaginn 29. þ.m. kl. 8,30 í
Oddfellowhúsinu, uppi.
Fundarefni: — Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið!
STJÓRNIN
Atvinna
Höfum atvinnu fyrir reglusama stúlku eða konu,
sem getur tenið að sér tilsögn í nandavinnu á barna-
heimili í nágrenni Reykjavikur.
Vinnumiðlunin
Laugavegi 58 — Sími 23627
Handfœrtrveiðar
Vanan háseta vantar strax.
Upplýsingar í síma 34580.
REGNKAPUR
KAPUR
FRA
05
oc.
BEZTU TIZKUHUSUM
í SVISS & HOLLAIMM