Morgunblaðið - 01.02.1962, Síða 10

Morgunblaðið - 01.02.1962, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIO Fimmtudagur 1. febr. 1962 AUSTIN bifreiðaumboðið, Garð- %r Gíslason hf., hefur nú flutt inn fyrstu landbúnaðarbifreið- ina frá Austin-verksmiðjunum og telur, að bifreiðin muni fljótt ná útbreiðslu hér, þar sem margt bendi til, að þessi nýja gerð haefi vel okkar erfiðu skil- yrðum. — Á þriðjudag sýndi Sigurjón Rist, vatnamælinga- maður, blaðamönnum bifreiðina og skýrði frá reynslu sinni af henni. Fjöðrun hjólanna Það, sem fyrst vekur sérstaka athygli, er fjöðrun hjólanna, ef svo má segja, því hvert hjól er sjálfstætt. Hin eiginlega fjöðr- un er stórkostleg nýjung, sem búið er að þrautreyna, og bygg- ist á gúmmí og stáli, sem er soðið saman og er undir þrýst- ingi. Þessi aðferð hefur gefið svo góða raun, vegna þess, að talið er, að svo til ekkert slit komi til greina, þoli allt veður- far, sand, grjót og ís. Auk þess verður allur hjólaútbúnaður miklu léttari. og þess vegna Sigurjón Rist stendur hjá Áustin-jeppa sínum. AITCTTII. I ný landbúnaöarbifreið þýðari en áður hefur þekkzt á þyngra byggðum bifreiðum. Hef- tu’ bifreiðin einnig mjög góða eiginleika hvað velting snertir Og er því góð í beygjum. Eng- inn vagn hefur gefið eins góða raun eftir erfiðustu tilraunir hjá hinni frægu tilraunastöð Motor Industry Reserach Associ ation. Drifkúlurnar eru eins að fram an og aftan, fastar á grindinni og liggja í gúmmífóðringum. Út frá þeim eru svo mjóir öxlar, sem knýja hjólin og þannig minnkar öll mótstaða í slæmri færð til hins ítrasta. Bretti og umgjörð eru úr sterku stáli, sem er sérstaklega ryðvarið og eru ytri frambrettin boltuð þannig, að auðvelt sé að skipta um þau. Drifgírar eru 4 fram og 1 aft- ur á bak, og þegar lága drifið er notað, má segja að um 10 gírhlutföll sé að ræða. Bílnum má aka á framdrif- inu einu og fara má á honum upp og niður 75° halla. Fá má með honum ýms tæki og áhöld, stýri má hafa hvort sem er hægra eða vinstra megin og má auðveldlega skipta um, hvenær sem er. Auk þess er hægt að fá hann með bensín- eða diesel- hreyfli, eftir því sem hver kýs. RÝIVIINGAR8ALA VEGNA BREYTINGA Á VERZLUN OKKAR VERÐA EFTIRTALDAR VÖRUR SELDAR Á NIÐURSETTU VERÐI í DAG OG NÆSTU DAGA. Prjónasilkiundirkjólar á kr. 98.00 Nælonundirkjólar á kr. 135.00 Prjónasilkinátf.kjólar á kr. 150.00 Nælonnáttkjólar á kr. 220.00 Herra- og drengjaskyrtur, gallabuxur, úlpur á drengi og telpur og margt fleira. Allt á mjög góðu verði. — ENNFREMUR SELJUM VIÐ VEGNA SMÁVÆGILEGRA VERKSMIDJUGALLA, LÍTILSHÁTTAR AF Peysum á börn og fulloröna á kostnaðarverði -FRAMTÍÐ- Ullarvöruverzlun Laugavegi 45 Sími 13061 Ódýr í rekstri Sigurjón Rist kvað stærstu kosti bílsins dieselvélina og hina sérstöku fjöðrun hans. — Haust ið 1960, er hann var á ferð yfir Vatnajökul í farkosti með diesel vél, kvaðst hann fyrst hafa feng ið „blod pá tanden", eins og danskurinn segir, er hann sá hvílíkur reginmunur er á eyðslu bensínhreyfils og dieselhreyfils. Dieselhreyfillinn hefði eytt fyrir 130 kr. í stað 2000 kr. En það væri nauðsynlegt í svo miklum akstri að hafa það í huga. „Síð- an, er ég fór að athuga, hvar ég gæti fengið lítið farartæki til að komast á jafnt „vegi sem ó- vegi“ leizt mér bezt á þennan bíl. Ég vissi að dieselvélin mundi örugglega vera þýðgeng, þar sem hún er mikið notuð í leigubifreiðar, enda kom það á daginn, að eini gallinn við hana er sá, að ég verð að fá mér út- varp í bílinn. Mér hafði verið sagt, að dieselvél væri svo gróf, að það væri ekki til neins, en það er öðru nær. Hún gengur sem bensínhreyfill“. Þá kvað Sigurjón bílinn svo þýðan vegna hinnar sérstöku fjöðrtmar, að hann sagðist efast um, að merin hans Vellygna- Bjarna hefði verið þýðari, kæmi þetta ekki sízt í ljós á hinum svonefndu höggholum, sem alla bíla ætlar að hrista í sundur, ekki sízt í frosti, þar liði þessi bíll yfir eins og ekkert væri. Ekki fyrir vonbrigðum Þá kvaðst Sigurjón ekki geta séð annað, en að þessir bílar væru érstaklega góðir í snjó eða annarri ófærð. Engin hætta væri t. d. á því, þegar ekið er í vatni, að feitin af drifinu fari í hemlana, en það er mjög al- gengt, að olían af drifkúlunum eyðileggi bremsuborðann. Þá er hægt að hafa bílinn annað hvort eingöngu í framdrifi eða aftur- drifi eða hvoru tveggja, eftir því sem henta þykir, og er hægt að skipta þeim á ferð. Sigurjón sagði, að þetta kæmi sér mjög vel, er fljúgandi hálka væri á vegunum, hefði hann t. d. um daginn haft hann í framdrifinu, þegar farið var upp brekkur, en í afturdrifinu er farið var niður þær. Annar kostur við þetta er, að með þessu móti er hægt að slíta dekkjunum jafnt, en ann- ars vill myndast átak milli drif- anna. — Þá er spil framan á bíl Sigurjóns, sem tengt er við sveif arásinn, og er hægt að draga bílinn upp á því, ef hann fest- ist. En til þess hefur þó ekki komið, sagði Sigurjón, og hef ég þó farið á honum yfir 50—60 cm djúpan snjó, enda er búið að losna við hinn hvimleiða fjaðraútbúnað, sem bílarnir hafa gjarnan viljað setjast á, með því að setja hann inn I grindabitann. Að lokum sagði Sigurjón, að hann hefði síður en svo orðið fyrir vonbrigðum með bílinn, hann væri hvorutveggja í senn, ódýr í rekstri, olíukostnaðurinn á 100 km væri um 12 kr. Kvaðst hann vona, að þegar menn fengju svona góð áhöld i hendur, þá yrði það þeim hvatning til að fara vel með þau. — Sigurjón Rist og Guðmundur Valdimarsson við opið vélarhúsið Somþykktir bæjorstjórnar Akroness um mnrgvísleg mólefni AKRANESI, 24. jan. — Bæjar- stjórnarfundur var haldinn hér 18. þ.m. og gerðar þar samþykkt ir um ýmis mál, sem í stuttu máli eru þessi: Ao stækka húsnæði lögreglunn ar, endurbæta hegningarhúsið og fjölga lögregluþjónum. Að afhenda byggðasafninu fyrstu slökkvitækin á Akranesi. Að boða til allsherjarfundar um íþróttahúsnæði með öllum þeim aðilum sem þetta mál snertir. Að vinna að þvi að steypt verði slitlag á sumri komanda á Silfur torg, Suðurgötu, Skagabraut, og Kirkjubraut inn fyrir póstlhús. Að láta rannsaka ítarlega á hvern hátt unnt sé að auka og bæta vatnsmagnið handa bæn- um. Að sköra á virðulegt Alþingi að samþyikkja tillögu til þings- ályiktunar, sem nú liggur fyrir þinginu, um að ríkið láti fram- kvæma borun eftir heitu vatni að Leirá í Leirársveit með það fyr ir augum að byggð verði hita- veita fyrir Akraneskaupstað. Að skora á ríkisstjórnina að kvika í engu frá núgildandi regl um um togveiðar í landhelgi. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.