Morgunblaðið - 01.02.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.02.1962, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐth Fímmtudagur 1. febr. 1962 ptínrpiitMaMli Ctgefandi: H.f Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. ' Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: ÍVðalstræti 6. Augiýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. á ,'vriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. EINS OG HRELLDUR ....~ *1 • **■ ~**. ~ —--------- —----r FUGL F'ramsóknarflokkurinn er um -*■ þessar mundir eins og hrelldur fugl. Það sézt greini lega af málflutningi aðalmál- gagns hans. Það, sem einkum veldur Framsóknarmönnum angri er undirbúningur nú- verandi ríkisstjómar að fjöl- þættri framkvæmdaáætlun um hagnýtingu auðlinda landsins og uppbyggingu ís- lenzkra bjargræðisvega. Öll þjóðin veit, að ríkis- stjórnin hefur um langt skeið unnið að þessari fram- kvæmdaáætlun með aðstoð færustu erlendra sérfræð- inga. Er hér um að ræða mjög þýðingarmikið starf, sem hafa mun stórkostlega þýðingu fyrir alla framtíð þjóðarinnar. Tíminn er nú daglega tek- inn að ráðast á þetta undir- búningsstarf. Hann er orðinn lafhræddur við það, aðnæstu kosningar muni snúast um það, hvort það eigi aðverða hlutskipti íslenzku þjóðar- innar að sækja fram til upp- byggingar og framfara eða koðna niður í efnahagsöng- þveiti og kyrrstöðu. Vitan- lega hlýtur mikill meirihluti íslendinga að velja fyrri kostinn. En því aðeins eiga þeir völ á honum, að þeir efli þá stefnu, sem núver- andi ríkisstjóm hefur mark- að, þ.e.a.s. viðreisnarstefn- una, sem miðar að því að framleiðsla landsmanna sé rekin á heilbrigðum grund- velli og auðlindir landsins hagnýttar af framsýni og manndómi. Framsóknarflokkurinn hef- ur haslað sjálfum sér völl í skugganum, með umboðs- mönnum hins alþjóðlega kommúnisma. Það var hann, sem rauf stjórnarsamstarfið við Sjálfstæðisflokkinn vor- ið 1956 með fáheyrðum svik- um og ábyrgðarleysi, til þess síðan að taka höndum sam- an við kommúnista. Síðan hef ur flokkurinn stöðugt gerzt kommúnistum háðari. Síðast í gær bergmálar forystugrein Tímans öruggan stuðning við kommúnista innan verkalýðs hreyfingarinnar. Það er vissulega ekki að furða, þótt Framsóknarmenn séu eins og hrelldir fuglar, þegar þannig er komið for- ystu þeirra. Þeir finna að núverandi ríkisstjórn nýtur vaxandi trausts meðal al- mennings fyrir það mikla við reisnarstarf, sem hún hefur unnið, eftir stjórnleysi og öngþveiti vinstri stjórnarinn- ar. Þeir sjá, að undirbúningi hinnar miklu framkvæmda- áætlunar um uppbyggingu íslenzkra bjargræðisvega mið ar stöðugt áfram og áhugi landsmanna á henni verður sífellt almennari. Framsóknarflokkurinn sér því sína sæng upp reidda. Hann hefur valið sér það hlutskipti að berjast við hlið ina á kommúnistum í niður- rifsbandalagi, sem beint er gegn Heilbrigðu efnahagslífi og þróun og framför í hinu íslenzka þjóðfélagi. Sjálfstæð isflokkurinn og samstarfs- menn hans hafa hins vegar tekið forystuna í hinni miklu sókn íslendinga til betri lífs- kjara og bjartari framtíðar. FRELSI ANGOLA k llsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í fyrradag með 90 atkvæðum gegn tveimur ályktun, þar sem því var lýst yfir, að Angola hafi skýlausan rétt til sjálfstæðis. Hins vegar var felld tillaga frá tveimur kommúnistaríkjum um refsi- aðgerðir gegn Portúgölum. Þessi ályktun um frelsi til handa Angolabúum er í fullu samræmi við fyrri stefnu Sameinuðu þjóðanna í ný- lendumálunum. Vitanlega hlýtur Angola að fá frelsi eins og aðrar nýlendur í Af- ríku. Portúgalar geta ekki gert sér von um það, að þeir geti haldið hinu úrelta ný- lenduskipulagi við, eftir að önnur nýlenduveldi hafahorf ið frá því og vinna núrfötul- lega að því að hjálpa til við uppbyggingu hinna gömlu nýlendna sinna. En það er margsögð saga, að á sama tíma sem hin gömlu nýlenduveldi hafagef- ið nýlendum sínum frelsi, hafa Rússar tekið upp nýja nýlendustefnu, hálfu verri en hina fyrri. Þeir hafa und- irokað fjölda þjóða oghundr- uð milljóna manna oghneppt þá í fjötra nýs kúgunarskipu lags. Sú stund hlýtur að renna upp, að Sameinuðu þjóðirnar lýsi því yfir, að hið nýja nýlenduskipulag hins alþjóðlega kommúnisma beri að afnema og því fólki beri frelsi, sem stynur undir oki þess. FLUGAF- GREIÐSLUSTÖÐ U4ns og kunnugt er hafa hin íslenzku flugfélög, Flug- félag íslanas og Loftleiðir, haft hvort sína flugaf- Rústusamt líf - róstur við utförina Lucky á heimili sínu í Napoli. , Á MÁNUDAGINN fór fram í lítilli sóknarkirkju í Napoli, út för afbrotamannsin alræmda, Charles Luciano, sem tíöast g-ekk undir nafninu „Lucky“ Luciano. Útförin var hin hátíðlegasta — biskupinn í Napoli hafði leyift að abhöfnin færi fram í þakkarskyni fyrir að Luciano hafði gefið fé til byggingar sjúkrahúss, sem kaþólska kirkjan rekur í borginni. Við staddir voru um 150 bl'aða- menn, ljósmyndarar og lög- reglumenn og 30 ættingjar og vinir, þar á meðal 2^ ára göm ul fegurðardás, Adriana Risso, sem staðhæfði, að hún væri unnusta Lucky. Hvað eem því líður, þótti sorg hennar mdkil, því að hún flóði í tárum með- an á athöfninni stóð. Ekki fór þó hjá því að til tíðinda drægi ytfir lfki Luci- anos — gamli lífvörðurinn, hans, Guiseppe, stökk á einn ljósmyndaranna, sem var að reyna að mynda bróður Luekys, Bartolo. Bartolo hélit hattinum fyrir andlitinu með an lögreglumenn aðskildu ljós myndarann og lífvörðinn, sem slógust hressilega. Jarðneskar leifar Lucianos — sem menn segja sín í milJi, að haifi tekið of nærri sér við lífsstarfið oig því fallið frá fyr ir aldur fram — voru fluttar frá kirkjunni í iburðarimesita líkvagninum sem fyrirfannst í Napoli. Vagninn var allur skreyttur útskornum englum Og svörtum trékrossum en á hestunum blöktu fjaðrabúsk- ar. Kistan hans verður nú flutt til New York og grafin þar. Ekki var vagninn fyrr úr augsýn en ljósmyndarar tókú að mynda ungu konuna. Það olli handalögmálum, svo að lögreglan varð enn að skerast í leikinn. • Stytti sér leið. „Lucky“ Luciano var í engu frábrugðinn venjulegum ítölskum smlákaupmanni, þeg- ar hann gekk um göturnar í Napoli. Menn beiisuðu honum kurteislega en stundium bar svo við að ferðamenn báðu hann um eiginhandaráritun. Luciano kom átta ára gam- all til Bandaríkjanna. Það var árið 1906. Faðir hans var fá- tækur trésmiður, lifði fá- breyttu og tiibreytingarlausu lífi og mártti ekiki vamm sitt vita í neinum hlut. Þegar strák ur var 16 ára ákvað hann að bregða sér úr fótsporum föð- urins og stytta sér leiðina til auðs og áhrifa. Það tókst von- um betur. Áður en hann hafði náð 25 ára aldri, hafði hann haslað sér stórann völl í heimi afbrotamanna í Ameríku. — Hann var gæddur góðri greina og algerlega laus við allar sið ferðilegar hugmyndir, enda árangurinn eftir þvL Hann valdi eiturlyfjasölu og rekst- ur vændiskvennahúsa að sér- grein, var um tíma vinnuveit- andi þúsund stúlkna í New York og áður en varði var hann farinn að reka stofnun leigumorðingja. Hann notaði óspart fé til að múta lögreglu mönnum og slungnum og ó- Framhald á bls. 17. Frá útföpinni á mánudag. greiðslustöðina á Reykjavík- urflugvelli. En oft hefurver- ið um það rætt að æskilegt væri að ein fullkomin flug- afgreiðslustöð yrði byggð á flugvellinum. Með slíkri framkvæmd væri tvímæla- laust stefnt í rétta átt. Það mundi verða bæði innan- lands- og utanlandsfluginu til mjög aukins hagræðis, ef ein fullkomin og nýtízku flug afgreiðslustöð risi á Reykja- víkurflugvelli. Þar hefur nú þegar verið byggður mynd- arlegur flugstjómarturn í stað hins gamla, sem reistur var á styrjaldarárunum. Vegna hins mikla elds- voða, sem varð hjá Loftleið- um fyrir skömmu, verður bygging flugafgreiðslustöðv- ar meira aðkallandi. Verður að vænta þess að forvígis- menn íslenzkra flugmála vindi nú bráðan bug að slíkri framkvæmd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.