Morgunblaðið - 01.02.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.02.1962, Blaðsíða 24
Fret tasimar Mbl. — eftir lokon — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 Lambakjöt Sjá bls 13. 26. tbl. — Fimmtudagur 1. febrúar 1962 VERIÐ er aff Ieggja síðustu hönd að verki í nýja verka- mannaskýlinu við höfnina. I»að verður rúmgott og vist- legt. — Mynd þessi er tekin úr aðalsal skýlisins, J*ar sem sér yfir höfnina. Ljósm. M'bl.: Ól. K. M. ( Eldur í Þor- katli Mána KL. 20,40 í gærkvöldi var slökkvi liðið kvatt að togaranum Þor- katli Mána, þar sem hann liggur við hafnargarð. Hafði eldur kom- ið upp í togaranum frá olíukynd- ingu í hásetaklefa fram í. Eld- urinn var fljótlega slökktur og urðu engar teljandi skemmdir af völdum hans. Gjaldþrotaskipti ísafirði, 31. janúar. — EINS og skýrt heifur verið frá í blöðunum, fór fram nauðungar- uppboð á eignum ísfirðings h.f. 29. jan. s.l. í fyrradag hélt svo stjóm félagsins fund. Á fund- 'innm ákvað félagsstjórnin a@ láta fara fram gjaldþrotaskipti, vegna breyttra viðhorfa, sem Skapast hafa við það, að megin hluti af eignum félagsins hafi verið seldur á uppboði. — Frétta- ritari. Færð þyngist sunnanlands Hellisheiði orðin ófær NOKKUR snjókoma hefur verið hér sunnan lands sl. sólarhring, svo vegir tepptust til Reykja- víkur í gærdag — eða voru um það bil að teppast. T. d. var Hellisheiði svo til ófær stórum bílum síðdegis í gær — og al- gjörlega minni bílum. Mbl. hafði í gær samband við Vegamálaskrifstofuna, og tjáði Kristján Guðmundsson birgða- vörður, blaðinu, að Hellisheiði væri þá að lokast stærri bílum, én hefði um morguninn verið orðin ófær öllum minni bílum. Þó myndu mjólkurbílar reyría að brjótast yfir hana og hefðu lagt á heiðina einhvern tíma um daginn, enn ékkert hefði frétzt af því, hvernig þeim gengi. ★ Krísuvíkurleiðin var hreinsuð snemma 1 gærmorgun, aðallega brekkur og slakkar, og tókst að halda henni opinni fyrir bif- reiðir, sem voru á leiðinni að austan. Eftir hádegi var svo bíll með tönn sendur af stað — en hann hafði verið lítils háttar í ólagi fyrr um morguninn — til Keflavíkurflugvöllur lokaðist í gær 50 manna rutubíll fauk út af veginum Keflavík, 31. jan. Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI hefur verið SV-éljagangur og skafhríð í allan dag og vindur komtzt í éljaganginum allt upp í 10—12 vindstig. Tvær flotaflugvélar, sem lentu um eftirmiðdaginn, hafa tafizt úti á flugbrautum vegna hálku og veðurhæðar. Er ekki talið fært að aka þeim inn á flugvéla- stæði fyrr en veðrinu slotar. Áætlunarflugvél Loftleiða frá Noregi sneri til Prestwick eftir um hálfrar stundar flug til Keflavíkurflugvallar. Áætlunar- flugvél Pan American beið hins vegar í Prestwick. Flugvöllurinn hefur alveg lok azt í éljunum, en verið sæmi- lega bjart á milli. Keflavíkurút- Framh. á bls. 23 þess að fylgjast með Krisuvík- urleiðinni og bifreiðum, sem voru á ferð. Hvalfjarðarleiðin hafði lítið spillzt og var fær öllum bifreið- um. Lítilsháttar hafði snjóað í Mosfellssveit, en þó ekki svo að vegir spilltust. Nokkur snjór var einnig á Hafnarfjarðarvegi og talsverð hálka sums staðar, en verið var að hreinsa hann eftir hádegi í gær. Talsvert snjóaði á Snæfells- nesi sl. sólarhring og má búast við að vegir teppist þar eitthvað í bráð, en Vegamálaskrifstof- unni höfðu ekki borizt fregnir þaðan, er blaðið hafði samband við hana. En fregnir höfðu bor- izt um það, að Bröttubrekku- vegur, vegurinn í Dalasýslu úr Borgarfirði, væri að lokast. Askja hvít og köld BJÖRN PÁLSSON, flugmað- ur, flaug norður til Þórshafn- ar í gær, og vegna frétta um að Askja kynni að vera farin að hreyfa sig aftur, fór dr. Sigurður Þórarinsson með ’ honum. Flugu þeir yfir Öskju, en þar var allt dautt að sjá. Sigurður sagði að veður hefði verið heldur leiðinlegt, en þó hefðu þeir getað séð nægilega vel niður að gígun- um. Þeir voru hvítir af snjó og alveg kaldir, og ekki vottur af neinni gufu. Taldi Sigurður að það sem sást úr Mývatns- sveitinni hefði líklega verið uppstreymi sem myndaði hnoðraský. Hætt verði við ríkis- rekstur d Ýmsuin sviðum V arðarfunduir í gærkveldi „RÍKISREKSTUR og einka sölur“ voru til umræðu á al- menmun félagsfundi, er Landsmálafélagið VÖRÐUR efndi til í Sjálfstæðishúsinu £ gærkvöldi. Þar hafði Þor- varður Jón Júlíusson hagfræð ingur framsögu, en fjörugar umræður urðu að ræðu hans lokinni og stóðu þær enn yfir, er blaðið fór í prentun í gær- kvöldi. í upphafi ræðu sinnar vék Þorvarður að þvá, að í lýðræðis- rlkjum væri mjög d,eilt utm, hve langt slkuli farið í ríkisrekstri, iþótt menn almennt séu sammála um, að það fari betur á sumum sviðuim, svo sem þeim, sem beyra til löggæsliu, menningarmiála og heiibrigðismlála, fyrirtækja eins og póstis og síma o.s.frv. Hins vegar sé auðlséð, að til mikilla hagsbóta yrði, ef hætt yrði við ríkisrékstur á ýmisum sviðum öðrum og nefndi hann þar sér- staiklega til Lanidsismiðjuna, Við- tælkjaverzlun ríkisinis, ö.fl. og leiddi hann rök að því, að þau fyrirtæki yrðu betur komin í höndum einstaklinga. Aðrir ræðumenn tóku mjög I sama streng, fanmst þeim öllum, að of miikið væri hér um ríkis- rekstur og einkasölur, þótt ekkl hafi þeir allir vilja ganga jafn langt í þeim efnium. — Er blaðið fór í prentun í gærkvöldi höfðlu þessir menn tekið til máls auk framsögúmannis: Lúðvig Hjálm- týsson framfcvst., Vilihjálmur H, Vilhjáimsson stórkaupm., Birgir Einarsson apótekari og Jón Hjör- leifssön viðskiptafræðingur. Nánar verður sagt fiá. fundin- um síðar. í Unglingar óskast til að hera blaðið til kaupenda í eftir- talin hverfi: Grenimel og Hvassaleiti. Hafið samband við af- greiðsluna, sími 2-24-80. Sjötug kona lá mjaömar- brotin í fimmtíu tíma eín á bæ, matarlaus og í kulda fsafirði, 31. janúar —- UM tíuleytið sl. sunnudag varð Jóhanna Þórðardóttir á Arngerð- areyri í ísafjarðardjúpi fyrir því slysi að detta á stofugólfi með þeim afleiðingum, að hún mjað- marbrotnaði. Á Lítið um mannaferðir. Jóhanna, sem er nær sjöftug að aldri, hefur búið eiin á Arngerðar- eyri í tæp tvö ár. Enginn sími er á bænum og engar mannaferðir nema í sambandi við Djúpbátinn, sem kernur þar við á þriðjudög um' og föstudö'gum, og þá sjald- an er þangað kornu menn af næstu bæjum, sem eru Lauga- ból og bæir í Langadal. Á Beið í 50 tíma. Eins og fyrr sagir, mjaðmar- brotnaði Jóhanna á sunnudags- morgun sl. og gart hún sig ekki hreyft fyrst í stað, en skreidd- ist síðan að dívani og gat náð þar í sængurfatnað til að hlúa að sér. Þannig lá hún matarlaiuB og í kulda þar til á þriðjudaig, er Sigurður Þórðarson bóndi að Laugarbóli, bróðir hennar, kom að henni. Þá var hún búin að liggja þama svona á sig komin | fimmtíu tíma. Á Jóhanna hress. Svo vel stóð á að Djúpbáturinm kom um lfkit leyti og Sigurður, og var Jóharxna flutt með honum til ísafjarðar, þar sem hún var, lögð inn í f jórðUngssjúikraihúsið, Jóhönnu líður vel eftir atvik- um og er hin hressasta. — AKS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.