Morgunblaðið - 09.02.1962, Blaðsíða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
Fostudagur 9. febr. 1965
Hermann
Þórðarson
kennari
HERMANTí Þórðarson var fædd-
ur að Harrastöðum í Miðdala-
hreppi 19. febr. 1881. en þar
bjuggu foreldrar hans, Þórður
bóndi Þorsteinsson og kona hans,
Guðrún Hermannsdóttir. þar til
þau fluttu að Glitstöðum í Borg-
arfirði.
Hermann lauk kennaraprófi
við Flenaborgarskólann í Hafn-
arfirði 1904, en hafði áður verið
kennari í Norðurárdal og Staf-
holtstungum í Borgarfirði. Arin
1904—1906 er hann heimiliskenn
ari í Hafnarfirði og stundakenn-
ari við Flensborgarskólann. 1908
—1913 var hann skólastjóri á
Patreksfirði. Þegar hann kom
þangað, var hann einhleypur
maður og var þá að öllu leyti til
heimilis hjá foreldrum minum.
Arið 1911 kvæntist hann Ragn-
heiði Gísladóttur, prófasts frá
Stafholti, og stofnuðu þau heim-
ili á Patreksfirði. Dvalarár þeirra
hjóna á Patreksfirði voru
bernskuár mín og er mér
það tvennt í minni frá dvöl
þeirra þai, að ég sat í heim-
boði hjá þeim hjónum, og svo
umstangið allt er þau voru að
flytja frá Patreksfirði. en þá var
ég 7 ára. Mikið var rætt um það
á Patreksfirði, hvílíkur skaði
það hefði verið að missa Her-
mann Þórðarson frá skólanum.
Oft heyrði ég á hann minnzt síð-
ar og ávallt á sama veg. A seinni
árum hafa mér orðið alltíðar
ferðir til Patreksfjarðar, og
ávallt hef ég hitt gamla nemend-
ur Hermanns, sem hafa leitað
fregna af honum og spurt um
hann. af miklum hlýhug. For-
eldra mína heyrði ég oft tala
um þau hjón af mikilli virðingu.
Að áeggjan Þórðar, föður Her-
manns, tóku þau hjón við bú-
stað á Glitstöðum, er þau fluttu
frá Patreksfirði. Næstu ár bjuggu
þau að Glitstöðum og síðar að
Sigmundarstöðum í Þverárhlíð,
en oftast eða alltaf mun Her-
Afgreiðslustúlka
rösk og ábyggileg með góða framkomu óskast nú
þegar til starfa í kjörbúð. — Upplýsingar á skrif-
stofunni, Vesturgötu 2.
Austurver h f.
Öllum þeim mörgu, sem gert hafa sitt bezta til að bæta
okkar það tjón, er við urðum fyrir þegar íbúðarhús og
innbú okkar brann 21. janúar 1962, færum við okkar
innilegustu þakkir. — Biðjum algóðan guð að launa
ykkur, þegar honum þykir bezt henta.
Heimilisfólkið Tröð, Fróðárhreppi, Snæfellsnessýslu
Móðir mín
KKISTÍN BJARNADÓTTIR
andaðist 7. þ.m. að St. Jósefsspítala
Hulda Runólfsdóttir
Litli drengurinn minn
H K A F N
andaðist 1. febrúar. — Jarðarförin hefur farið fram.
Þakka auðsýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sveinbjörn Hafliðason
Dóttir mín og fósturmóðir,
GUÐRfJN sigrídur sigurjónsdóttir
Urðarstíg 5,
er andaðist föstudaginn 2. febrúar, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju, laugardaginn 10. þ.m. kl. 10,30.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Kristín Ásgeirsdóttir, Kolbrún Eirlksdóttir
Útför bróður okkar
SIGURÐAR JÓNSSONAR frá Hópi,
Vallargötu 24, Keflavík,
fer fram frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 10. febr.
n.k. kl. 1,30 e.h. — Blóm vinsamlegast afþökkuð. —
Ferð vei’ður frá Bifreiðastöð íslands kl. 11,30 f.h. og
Bifreiðastöð Keflavíkur kl. 12,45.
Systurnar
Innilegar þakkír fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og iarðarför
ÍVARS MAGNÚSSONAR
Steinaborg, Grindavík
Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför
ÁSGEIRS ÞORVALDSSONAR
frá Blönduósi
Börn, barnabörn og tengdabörn
mann hafa stundað kennslu með
búskapnum.
Arin 1913—1921 er hann kenn-
ari við alþýðuskólann að Hvít-
árbakka. Þau hjónin flytja svo
til Reykjavíkur 1937, og þá ger-
ist Hermann kennari við Laug-
arnesskólann. Eg hafði komið
þangað ári fyrr. Nú lágu leiðir
okkar saman þar í 14 ár, og tókst
með okkur náin vinátta, sem óx
með ári hverju og hefur haldizt
óslitin í 24 ár. Hermann á stór-
an nemendahóp að baki og
óvenjustóran vinahóp. Hann var
afburða góður kennari. framúr-
skarandi greindur, minnið frá-
bært. Það var því ekki fátítt, að
ég og aðrir leituðu til hans, ef
upplýsingar vantaði og aíltaf
var leyst úr fljótt og vel. Svo
fróður var Hermann, að stund-
um sögðum við félagar hans í
gamni, að varla þyrfti alfræði-
orðabók, ef hann var nærstadd-
ur.
Hermann var snyrtimenni og
prúðmenni. Hann var fremur
hlédrægur og gaf sig lítt að öðru
en sínu starfi, nema til hans væri
leitað. Hann var kennari af lífi
og sál og skylduræknin var fram-
úrskarandi
Er Hermann var á Patreksfirði,
stofnaði hann söngfélagið Hörpu,
sem starfaði í nokkur ár. Sjálfur
hafði hann góða söngrödd og
yndi af söng. Þegar Hermann
flutti frá Patreksfirði, gáfu
Hörpu-félagar honum fagra vegg
klukku með áletruðu þakkar-
ávarpi. Tónar klukkunnar áttu að
minna á þann samstillta hljóm,
sem Hermanni tókst að fá í sinni
Hörpu. A meðan Hermann, var
á Patreksfirði stjórnaði hann
kirkjukórnum og lék sjálfur á
orgelið.
Hermann og frú Ragnheiður
munu aldrei hafa verið rík af
þessa heims fjármunum, enda
öllum veitt ríkulega, sem að •
garði bar, og mun þar hvorugt
hafa annað latt. Þótt fjárráð hafi
oftast verið af mjög skornum
skammti, munu fáir hafa ávaxt-
að pund sitt betur en þau hjón.
Að dagsverki Hermanns loknu
skila þau samfélaginu 8 vel
menntuðum börnum og hafa í
ríkum mæli stuðlað að menntun
barnabarna.
Börn Hermanns og frú Ragn-
heiðar eru þessi:
Unnur, kennari, Svavar efna.
verkfræðingur, Gísli, vélaverk-
fræðingur, Guðrún, kennari,
Vigdís, kennari, Ragnar verk-
fræðingur, Valborg Elísabet,
lyfjafræðingur, og Ragnheiður,
bankafulltrúi.
Hermann starfaði að kennslu
til sjötugs aldurs og síðan á
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur,
meðan heilsa leyfði. Síðustu 5
árin var hann vanheill, en hafði
oftast fótavist.
Er ég frétti andlát hans, settl
mig hljóðan. Kina hans og börn
sáu hann ganga með venjulegum
hætti út, en fréttu stundarkorni
síðar, að hann hefði hnigið örend
ur niður.
Vinir Hermanns hafa mikið
misst, en mest þeir, sem næstir
mig hljóðan. Kona hans og börn
eiga á bak að sjá einstökum heim
ilisföður og öll höfum við misst
förunaut, sem við munum sakna,
Vinur minn Hermann. Að lok.
um vil ég þakka þér tryggð þína,
: vináttu og alla fræðslima. Eg
bið konu þinni, börnum og barna
börnum blessunar og vona, að þú
verðir nærstaddur, er ég kanna
framtíðar heimkynnin.
Magnús Sigurðsson.
Utsölunni lýkur á lauprdag
Enn fæst smávegis af barnafatnaði, barnagöllum. drengjablúss-
um, stökum drengjabuxum, drengjasokkum, herraskyrtum, herra
sokkum, herraskyrtum, kvenkápum, kvenpeysum, og mörgu fl.
Allt selst með 50% afslætti.
ísframleiðsluvelar
Útvegum nýjustu gerðir ísframleiðslu- og kælivéla frá Ítalíu.
ísframleiðsluvélarnar eru
sjálfvirkar og framleiða allt
að 4 tonn af ís á sólarhring
Sérstaklega hentugar fyrir öll
sjávarþorp og hagkvæmiMÍ
fyrir fiskibáta til bættrar
fiskgeymslu
Leitið upplýsinga hjá oss.
SKIPHOLT H.F.
Skipholti 1 — Sími 2-37-37
Ny kápusending
SVISSNESKU KÁPURNR ERU KOMNAR
Við höfum fengið ljómandi
fallegt úrval af svissneskum
kápum.
Einnig tökum við upp í dag
Hálskliíta og Hanzka, bæði
skinn og gerviskinn.
o
d
©
5Ö
>
50
tö
©
Hálsklútar - Regnkápur - Hanzkar - Ullarkápur 5
65.
KLAPPARSTÍG 27