Morgunblaðið - 09.02.1962, Page 17

Morgunblaðið - 09.02.1962, Page 17
Föstudagur 9. febr. 1962 MORCVNBLAÐ1Ð 17 AF VETTV STlJDEIMTA - Rætt við HÖrð Sigurgestsson, formann Stúdentaráðs, um lánamál, norrænt sam- starf, félagsheimili o. fL A MORGUN verður kos- ið nýtt Stúdentaráð Háskóla Islands, sem taka mun til starfa hinn 1. marz nk. Er þá jafnframt á enda runnið skeið þess stúdentaráðs, sem nú situr, en það hefur þegar starfað lengur en nokkurt annað eða síðan í októher- mánuði 1960 — bráðum 16 mánuði. Ástseðan til þessa óvenjulanga Starfstíma var breyting sú, er gerð var á lögum um SHÍ vor- ið 1960, en þá var m. a. ákveðið að stúdentaráðskosningar skyldu framvegis fara fram 1.—15. febr. ór hvert. \ * ' Formaður þess ráðs, sem nú læiar senn af störfum, er Hörð- ur Sigurgestsson, stud. Oecon. Margt hefur borið við í félags- og hagsmunamálum stúdenta, meðan hann hefur gegnt for- mennsku. Þótti því fýsilegt að fá hann til að geta hér á síð- unni nokkurra þeirra mála, sem verið hafa eða eru ofarlega á baugi. Varð hann við þeim til- mælum. Kemur Willy Brandt til íslands? — Eg er að byrja að hreinsa til á skrifborðinu, sagði Hörður, iþegar tíðindamaður síðunnar hitti hann svo að máli á dög- unum. — Annars erum við að athuga möguleikana á því að fá Willy Brandt. borgarstjóra Vest- ur-Berlínar, hingað til landsins í vor. Sænskir stúdentar hafa staðið í sambandi við hann á vegum norrænu stúdentasam- bandanna jneð það fyrir augum að fá Brandt til þess að heim- sækja Norðurlönd og flytja þar fyrirlestra um framtíð Berlínar. ÍEru allmiklar líkur á að úr för- inni verði, en enn er þó óvíst, Ihvort fsland verður með í ferða- áætluninri. Þetta er eitt af mörgum mál- um, sem ncirænir stúdentar hafa tekið sig sarnan um að hrinda í framkvæmd. Annað, sem nefna mætti, er útgáfa nOrræns frétta- tbréfs stúdenta, „Nordic Student News“, sem dreift verður víðs- vegar um heím og er ætlað það hlutverk að kynna starfsemi og (kjör stúdenta á Norðurlöndum. ÍÞað er prentað í Stokkhólmi og kemur út í fyrsta skiptd nú í þessum mánuði en síðan annan hvorn mánuð. Efling lánasjóðsins — Svo að við víkjum að brýn- um hagsmunamálum háskóla- etúdenta, hvað vildir þú þá helzt nefna af því sem áunnist hefur upp á síðkastið? — Aukið fjármagn til aðstoðar etúdentum, sem fékkst með end- urskipulagningunni á lánamálum etúdenta á Alþingi í fyrra, er tvímælalaust merkasta mál, sem komið hefur til kasta þessa stú- dentaráðs. Eins og kunnugt er hefur það sífellt farið í vöxt, að Stúdentar vinni jafnframt námi einu einnig yfir vetrartímann, svo að þeir geta ekki sinnt nám- inu óskiptir. Eru dæmi til þess «ð námið ’nefur orðið meira og minna aukaatriði og um síðir ijafnvel alveg verið lagt á hill- una. Með umræddri breytingu hafa skapazt skilyrði til að venda þessaid þróun. Aukninguna á lán unum má sjá af því, að árið 1960 úthlutar lánasjóðurinn 1,4 millj. kr. en á sl. ári 2,2 millj. kr. Á þessu ári munu lánin enn aukast verulega og verður þá í fyrsta skipti kleift að veita lán öllum stúdentum á 4. misseri, sem uppfylla sett skilyrðL — Hvernig er stúdentaráð sjálft á vegi statt í fjárhagsefn- um? — Fjárhagur þess hefur aldrei verið betri Auk framlaga frá opinberum aðilum hefur um ára- bil verið farm sú leið að selja stúdentaskírteini, en gegn fram- vísun þeirra hafa háskólastú- dentar svo aftur fengið nokkurn afslátt af aðgöngumiðum á tón- leika, leiksýningar o. þ. h. Þessi fríðindi hcfur nú tekizt að auka, þar sem nokkur fyrirtæki hafa sýnt stúdentum þaim velvilja að veita þeim afslátt af ýmsum vör- um gegn framvísun stúdentaskír- teinis, m. a. bókum, fatnaði, rit- vélum, hljómplötum o. fl. Hefur þetta aukið sölu stúdenta- skírteina allverulega. Kaffistofa og félagsherbergi — Aðstaða stúdénta til félags- starfsemi hefur batnað nokkuð á sl. ári. — Jú, þó að hún sé að vísu enn mjög ófullkomin, rættist veru lega úr, þegar stúdentar fengu suðurkjallara Háskólans til simja nota. Þar er nú starfrækt lítil kaffistofa, sem rúmar um 30 manns. Var hún útbúin af rausn arskap af yfirvöldum háskólans, FRÁ formannaráðstefnu Norrænu stúdentasambandanna í Reykjavík í októberbyrjun s. L (talið frá vinstri); Grétar Br. Kristjánsson, Styrmir Gunnarsson, Claus Cornelieus Han- sen, (D), Ernst Olof Holm (S), Nils Hermansson (S), Hörður Sigurgestsson, Olavi Ankk- urinemi (F), Joyti Singh, aðalfrantkvæmdastjóri alþjóðlegu stúdentasamtakanna ISC- COSEC, Richard Rettig, fyrrum form. bandaríska stúdentasambandsins, sem átti leið hér um, meðan ráðstefnan stóð yfir, Hilmar Björgvinsson, Hávard Alstadheim (N) og Börje Thilman (F). en hjá þeim ríkir velvild og hinn bezti skilningur á högum stú- denta. Er hún oft þéttsetin og má þar tíðum sjá stúdenta og prófessora á spjalli saman. Auk þess fengu tvö af elztu deildarfé- lögunum sitt hvort herbergið fyrir starfsemi sína og geta hald- ið þar fámennari fundi stjórna og nefnda. Hin deildafélögin eiga svo innskot þarna, þegar þau þurfa. Stúdentablað í nýjum búningi — Þið hafið breytt útliti Stúdentablaðsins. — Okkur þótti búningur blaðs- ins vera nokkuð þungur og gamaldags, svo að ráðist var í að stækka brotið og skapa þaimig fjölbreyttari möguleika. Stefnt _ farið vaxandi á undanförnum ár- er að því, að blaðið beri meiri svip fréttablaðs, sé færri blað- síður en komi oftar út, efnið verði meira samanþjappað Og háskólastúdentar skrifi blaðið nær eingöngu. Þetta hefur að nokkru leyti tekizt og er unnið að breytingunni áfram, en smár fjárhagur veldur erfiðleikum. Ritstjóri Stúdentablaðs er nú Kristján Torfason, stud. jur. Auk þess gefur stúdentaráð svo út „Vettvang stúdentaráðs", sem kemur út þegar sérstyk ástæða þykir til. Samstarf norrænna stúdenta Þú ræddir áðan um samvinnu norrænna stúdenta. Hún hefur æskanjib ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISM *> H\FLJA.M.T RITSTJÓRAR; BIRCIR ÍSU GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON ■ F Y R S T A kvöldráðstefna Heimdallar, FUS var haldin í Sjálfstæðishúsinu 30 janúar s. I. — Ráðstefnan hófst kl. 6 síðd. og stóð langt fram eftir kvöldi. Ráðstefnan var vel sótt og urðu þar fjörleg- ar umræður. Form. Heimdallar, Birgir ísl. Gunnarsson, setti ráð- stefnuna, en umræuðefnið var: Er það hlutverk ríkis- valdsins að jafna þjóðartekj- unum? Framsögumenn voru þeir Jóhann Ragnarsson, hdl. og dr. Gunnar Schram, rit- stjóri. Að lokinni ræðu fyrri frummælanda, var setzt að kvöldverði. Um kl. 20.30 var fundi fram haldið og flutti þá síð- ari frummælandi ræðu sína. Er hann hafði lokið máli sínu hófust almennar umræð- nr. — Þessir tóku til máls: Pétur Sigurðsson, alþingis- maður, Ellert Schram, stud. jur., Othar Hansson, fisk- vinnslufræðingur, Halldór Blöndal, blaðamaður, Þór Vilhjálmsson, borgardómari, Eyjólfur K. Jónsson, ritstjóri, Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafræðingur, Styrmir Gunnarsson, stud. jur. og Jakob R. Möller, stud. jur. Töluðu sunr.ir oftar en einu sinni. — Að síðustu tóku Fjöímenni og miklar umrœður á fyrsfu kvöldráðstefnu Heimdallar frummælendur aftur til máls. Umræðuefni það, sem tekið var til meðferðar á þessari fyrstu kvöldráðstefnu Heim- dallar var allvíðtækt, enda komu menn víða við í ræð- um sínum. Var það mál manna að ráðstefna þessi hefði tekizt vel og spáð góðu um áframhald þessarar starf- semi. — Er fyrirhugað að fjölrita ræður frummælenda og úrdrátt úr ræðum manna fyrir þá er ráðstefnuna sátu. Fyrirhugað er að á kvöld- Jóhann Gunnar vallaratriði þjóðmálanna og þá ekki sízt þau, sem bú- ast má við að skiptar skoð- ráðstefnum Heimdallar verði anir verði um meðal ungra tekin til umræðu ýmis grund Sjálfstæðismanna. — Já. Forystumenn stúdenta á Norðurlöndum hittast nú reglu- lega 1—2 á ári. Nefnast þeir fundir norrænar formannaráð- stefnur Og eru þar rædd öll áhuga- og hagsmunamál norrænna stúdenta, skipzt á reynslu og skoðunum og efnt til ýmissa framkvæmda. Við höf- um tekið þátt í ráðstefnum þess- um síðan 1955 og hafa þær tvisv- ar verið haldnar hér á landi. Var síðasta ráðstefnan einmitt hald- in í Reykjavík í byrjun október sl. Þá var m a ákveðið að kom- ið skyldi á fót norrænni bókaút- gáfu og bóksölu, BOKNORDEN, sem hafi það hlutverk með hönd- •um að gefa út ýmiskonar kennslu Cg handbæltur einkum ætlaðar stúdentum. Einnig er ætlunin, ef vel rætist úr. að leggja sérstaka áherzlu á að þýða íslenzkar og finnskar bækur á norsku, dönsku eða sænsku. og rjúfa þannig ný’ skörð í þann múr, sem skapast af sérstöðu þessara tveggja tungu- mála. Væn okkur vissulega mik- il fengur í slíkri kynningarstarf- semi. Aðsetur þessa fyrirtækis verður væntaniega í Osló. Mörg fleiri nytjamál, sem ráðið hefur verið til lykta á norrænu for- mannaráðstefnunum væri ástæða til að geta um, en þetta verður að nægja að sinni. í sambandi við norrænu sam- vinnuna er þó rétt að bæta því við, að nú er ráðgerð í fyrsta skipti hópferð erlendra stúdenta til íslands á vegum Ferðaþjón- ustu stúdenta hér heima Og norrænu stúdentaferðaskrifstof- unnar SSTS, sem stúdentaráð hef ur frá ánnu 1957 haft vaxandi samstarf við. Eru ferðir SSTS með allra ódýrustu ferðum, sem völ er á, og hafa margir ís- lenzkir stúdentar notfært sér þá þjónustu, enda má nú orðið velja úr meira en 700 sumarferðum víða um heim. Framhald á bls. 23. Frá kvöldráðstefnunni í Sjálfstæðishúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.