Morgunblaðið - 09.02.1962, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 09.02.1962, Qupperneq 24
Frettasímar Mbl — eftir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 1 SUS-síða Sjá bls. 17 Vopnfirðingar draga smá- þorsk upp um ís úr Lónunum Vopnafiröi, 8. febrúar. FYRIR svo sem hálfum mán. hófust nástárlegar fiskveiðar hér á Vopnafirði, eða nánar tiltekið í Lónunum norðan við kauptúnið. Ekki var þó fisktegundin neitt sjaldgæf, því hér var um þorsk að ræða, þótt ekki væri hann stór, eða 25—50 cm. á lengd. Á þessum tíma árs eru Lón- in ísi lögð. Var J>ví veiðiaðferðin sú, að menn fóru með öxi eða annað höggjárn ásamt færi hjuggu gat á ísinn og renndu síðan feerum sínum niður um vökina. Ekki var sá guli alltaf við frekar en hans er venja. Þó er vitað um menn, sem HOfuðkUpubrotinn AKUREYRI 8. febr. Laust eft ir hádegi ðsíðastliðinn mið- vikudag voru nokkrir menn að vinna á 2. hæð í hinu nýja húsi Byggingarvöruverzlunar Akureyrar á Gleráreyrum. Stigagat var uppi yfir verzlun inni og hafði ekki verið geng- ið frá því endanlega en lagt yfir það þunn plata. Verka mönnuum var þó kunnugt um þennan umbúnað. E inn þeirra var Ingólfur Þorvaldss. Lundargötu 9 hér í bæ. Hon- unt. varð á að ganga yfir plöt- una yfir gatinu og við það brast hún og féll Ingólfur nið ur á gólf verzlunarinnar. Var hann þegar fluttur í sjúkrahús og var þá meðvitundarlaus, en komst til einhverrar meðvit- undar á leið þangað. Ingólfur er nú hér i sjúkrahúsinu. Er hann höfuðkúpubrotinn og sömuleiðis viðbeinsbrotinn. Líðan hans í dag var talin eft- ir atvikum sæmileg. St. E. Sig. Æskulýðsráð fær Tjarnarhíó Stofnar þar listaklúbba fyrir æskulýðinn Á FCNDI sinum i fyrradag sam- þykkti borgarráð að kaupa tæki og annað innanstokks í Tjarnar- biói af Háskólanum, en húsið sjálft er eign Reykjavíkurborgar. Var um það rætt og gert ráð fyr- ir að bíóið yrði afhent Æsku- lýðsráði Reykjavíkur til afnota fyrir hluta af starfsemi sinni. Mbl. spurði sr. Braga Friðriks- son, framkvæmdastjóra ráðsins, hvað Æskulýðsráð hefði á prjón- unum varðandi Tjarnarbíó. Hann sagði, að unnið væri að því að koma á fót starfsemi, einkum í fjórum listgreínum, leiklist, tón- list, kvikmyndalist og bókmennt um í samráði við fjóra lista- klúbba, sem hafa á stefnuskrá sinni þessar listgreinar. Er meg- inhugmyndin að þarna verði mið stöð eða heimili fyrir ungt fólk, sem hefur áhuga á þessum fjór- um listgreinum. Hugmyndin er að listaklúbb- arnir fjórir, sem eru Gríma, Musica Nova, kvikmyndaklúbb- ur og bókmenntaklúbbur, fái inni í bíóinu fyrir starfsemi sína, og hafi samvinnu við Frh. á bls. 23. fengu allt upp í 200 pund yfir daginn af hvítum, nýgengnum fiski. Þetta þótti mikið sport, enda mátti sjá menn dorgandi út um öll lón, frá Marbakka og út að Straumseyri, því segja miátti að nú væru allir, sem vettlingi gátu valdið, á sjó, því ekki þurfti að óttast sjóveikina. Þegar skoðað var innan í fisk- inn kom í Ijós að í maga hans var síld, smásíld karfaseiði og áll, en mönnum er það löngu kunnugt að margskonar ungfiski heldur sig í Lónunum. Vegna ó- kunnugra er rétt að geta þess að ósinn inn í Lónin er mjög þröng- ur og svo grunnur að mestu var- fæmi þarf til að komast um hann á trillubát. — Sigurjón. Nýtt heims- met New York-Reykja- vík á tœpum 8 klst. Cloudmaster-vél Loftleiða, Snorri Sturluson, setti nýtt hraðamet á flugleiðinni New York—Reykjavik í fyrrinótt. Flaug vélin á 7 klst. 41 min., var um tveimur stundum skemur á leiðinni en undir venjulegum kringumstæðum — vegna mikils meðvinds. — Flugstjóri var Dagfinnur Stefánsson. Flugvélin lenti í Reykjavik þar eð Keflavíkurflugvöllur var lokaður og um sama leyti kom önnur Loftleiðavél á leið til New York. Sneri félagið sér til Flugfélags íslands, far- þegum var ekið yfir flugvöll- inn og veittur beinj í matsal Flugfélagsins — og þar var einnig útbúinn matur í flug- vélarnar. Þessi mynd er tekin af full- trúum á fiskiþingi við setn- ingu þess í gær. — Frétt á bls. 23. — Ljóstm. Ól. K. M. Gaf á bátinn AKRANESI 8. febr. Langróið var hjá línuibátunum í gær, því þeir sóttu alla leið út og vestur á Jökultungur. 10 bátar voru á sjó og fiskuðu flestir frá 3,5 lest- um upp í 6 tonn. Aflahæstir voru þessir tveir; Skipaskagi með 9,6 og Ólafur Magnússon með 9,1 lest. Megnið af aflanum var sæmi lega vænn þorskur. Á landleið- inni áttu þeir á móti landsynn- ingi að sækja og var ekki laust við að gæfi á bátinn hjá sumum. — Oddur. Góður afli SANDGERÐI 8. febr. 15 bátar komu hingað í gær með 188,7 lestir af ágætum línufiski. Afla- hæstur vai Smári með 23,3 lest- ir, Stefán Þór með 21,3 og Guð- mundur Þórðarson G. K. með 18,3 lestir. — PálL 4 togarar selja I GÆR seidu fjórir togarar á er- lendum markaði. — Sléttbakur seldi í Hull 139 lestir fyrir 11.548 sterlingspund, Apríl í Grimsby 138 lestir fyrir 9.371 pund, Marz í Hamborg um 130 lestir fyrir 78.330 DM og Fylkir í Bremer- haven 144,7 lestir fyrir 88.000 DM. — Aldrei jafnmikil sparifjáraukning E IN S og skýrt hefur ver- ið frá hér í blaðinu jókst sparifé sl. ár um hvorki meira né minna en 550 millj. kr. Er þetta mesta sparifjáraukning, sem nokkurn tíma hefur orðið á einu ári. Næstu fimm ár á undan varð sparifjár- aukningin sem hér segir: 1956 ....... 136 millj. 1957 ....... 162 — 1958 ....... 182 — 1959 ....... 250 — 1960 ....... 353 — Ef veltiinnlán væru tal- in með, er munurinn þó enn meiri, því að þau voru síðasta ár 235 millj., en höfðu hæst komizt í 144 millj. áður. En það er ekki eingöngu sparifjáraukningin, sem hefur orðið meiri síðasta ár en áður. Gjaldeyrisstað an hefur líka batnað stór- lega og vöruskiptajöfnuð- urinn var þá hagstæðari en nokkurn tíma áður síð- an á styrjaldarárunum. Allt sýnir þetta, að við- reisnarráðstafanirnar hafa náð tilgangi sínum. Efna- hagur landsins er að kom- ast á traustan grundvöll, og þess vegna er hægt að hefja stórsókn til að treysta atvinnuvegi þjóð- arinnar. Auðvitað hefur þessi mikli árangur ekki náðst, án þess að þjóðin í heild legði nokkuð að sér, en hið ánægjulega er þó, að þrátt fyrir þennan sparnað hefur afkoman yfirleitt verið góð oghvar vetna full atvinna. Komst heill á húfi inn á Bjarnarf iörð í G Æ R var saknað báts frá Hólmavík sem ber nafnið Hafdís og er 8—9 lestir að stærð. Ábátnum voru 3 menn, Andrés Guðmundsson form., Sigurður Vilhjálmsson véla- maður og Zophanías Magnús son háseti. Allt eru þetta ungir menn og tveir hinir fyrrnefndu fjölskyldumenn. • Einn vantaffi Alls reru fjórir bátar frá Hólmavík í fyrrakvöld og komu 3 þeirra að um kl. 3 í gær- dag. Hafdís var minnstur þess- ara báta og er hann var ekki kominn að í gærkvöldi var aug- lýst eftir honum í útvarpi. — Talið var að talstöð bátsins væri ekki í lagi og ekki hafði heyrzt til hans frá því um há- degi í gær, að minnista koeti var fullvíst að báturinn gæti ekki sent frá sér skeyti. Að sögn fréttaritara blaðsins, séra Andrésar Ólafssonar á Hólmavík, var veður þolanlegt fram eftir degi þar nyrðra, en er á kvöldið leið var komið þar ofsaveður. ★ í gærkvöldi hringdi fréttaritarinn til blaðsins og sagði að kl. rúmlcga 22 hefði Hafdís komiðheil á húfi inn á Bjarnarfjörð og var tilkynnt frá Kald- rananesi að allir skipverj- ar væru hressir. Vél báts. ins hafði bilað f dag, en skipverjum tókst að koma henni í lag. Bátar voru farnir að leita í gærkvöldú

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.