Morgunblaðið - 18.02.1962, Side 23
„ Sunnudagur 18. febr. 1962
MOnGTJNBLÁÐlÐ ^
23
— Jón Gunnarsson
Framhald af bls. 10.
, — Er Sölumiðstöðin rétti
aðilinn?
— Ég tel uppbyggingu SH
(þá einu heilbrigðu skipan.
Sölufyrirtaekið er eign fram-
leiðendra sjálfra.
— Er endilega víst að fram-
leiðendur séu heppilegustu
mennirnir til að selja vöruna
á erlendum mörkuðum?
j — Það þarf auðvitað að hafa
góða stjórn og til sölustarfsins
þurfa að veljast hsefir ménn.
— Gæti ekki verið eins
Iheppilegt að sterkt hlutafélag
annaðist söluna fyrir fram-
leiðendur ?
— Það tel ég alls ekki vera,
því að hlutafélagið mundi
vilja hafa fiskinn undir sínum
eigin vörumerkjum, en ekki
vörumerkjum islenzkra fram-
leiðenda.
— En fyrirtækið væri samt
íslenzkt.
— Jú, en hlutabréf ganga
kaupum og sölum, jafnvel til
útlendinga.
— En væri þá ekki heppi-
legra, að SH væri opnara og
gæfi almenningi meiri upp-
lýsingar um störf sín ?
k — Ég geri ráð fyrir þvi.
f — Má vænta meiri upplýs-
lnga frá fyrirtækinu í fram-
tíðinni ?
i — Það veit ég ekki. Aftur á
móti er ég andvígur því, að
tilkynningar um sölu afurða
á erlendum mörkuðum séu
birtar í blöðunum. Það á alls
ekki að fara hejm.
Ádeilurnar og skammirnar
tilheyra hversdagsvinnu
__Er SH ekki í vandræðum
með sölumenn eftir að tveim
sölustjórum hefur verið vikið
úr starfi.
t — í þeirra stað voru engir
teknir, heldur vinna að söl-
unni fyrrverandi aðstoðar-
menn þeirra, þrír ungir, efni-
legir Bandaríkjamenn og einn
Hollendingur, sem allir eru
eefðir menn.
— Hver er heildarvelta
Coldwater ?
*
Ur ýmsum áttum
Framh. af bls. 12.
bryggju. En enginn hafði
áhuga á að veiða hana nema
fuglamir, sena höfðu þarna
nóg að éta.
Julianeháb er skemmtileg-
ur bær að mínu áliti. Það er
mikill munur að vera hér eða
í Nanortalik. Hér eru ýmis
þægindi, sem ekki þekkjast
þar. Svo heyríst hér til ís-
lenzka útvarpsins, sem var
ómögulegt f Nanortalik
vegna truflana.
Hinn 1. júni í vor er svo
ætlunin, ef Guð lofar, að
opna nýju kristniboðsstöðina
í Narssaq, sem verður önnur
íslenzka kristniboðsstöðin í
heiðnu landi. Þetta verður
landi voru og þjóð til heið-
urs og ég tel að við getum
öll innilega stutt það máL
Þórarinn Magnússon,
Julianeháb, Grænlandi.
Samkomur
Boðuin fagnaðarerindisins
í dag, sunnudag, Austurg. 6,
Hafnarf. kl. 10 f.h. Hörgshlíð 12
ítvík kl. 4 e.h. Barnasamkoma lit-
Bkuggamyndir. Kl. 8 e.h. Almenn
Samkomuhúsið Zion, Óðinsg. 6A
H í krvöld kl. 20:30 og öld krvöld
þessa viku á sama tíma, verður
j prédikað og vitnað. Verið vel-
| kncminn. Heimatrúboð leikmanna
Fíladelfía
Vi Sunnudagaskóli kl. 10:30. Á
sama tíma að Herjólfögötu 8, —
Hafnarfirði. — Almenn sam-
bama kl. 8:30 í nýju Fíladelfíu
©ð Hötfðatúni 2. Stígið af stræt
isvagini hjá verzl. Ási, Lauga-
vegi 160.
Bræðraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1.30. Sam-
Iboma í kvöld kL 8;^0. Allir vel
bomnir. w
— 1960 voru yfirfærðar til
Landsbankans 8,6 millj. doll-
ara. Það ár var heildarveltan
um 14 millj. dollara og var
eitthvað svipuð síðasta ár. Og
alltaf er sala matreidds fisks
að aukast.
— Segið mér, Jón. Hvernig
var nú að hefja sölustörf
vestra? .
— Ég hóf sölustörf fyrir SH
í ársbyrjun 1945 og var það
upphaf að sölu samtakanna
þar. Ég hafði þá aðeins að-
stoð einnar stúlku, og það var
erfitt að komast inn á mark-
aðinn. Óhætt er að segja, að
þetta hefur verið mikið og erf
itt starf, en þetta hefur nú
tekizt og SH er stór aðili á
markaðnum. Þetta er í fyrsta
skipti sem verulegt magn af
framleiðsluvöru íslendinga er
selt á erlendum neytenda-
markaði undir vörumerki ís-
lenzkra framleiðenda sjálfra.
— Og hvemig hefur svo
verið að standa í öllu þessu
þrasi?
— Hjá Coldwater vinna um
350 manns fyrir utan vöru- •
miðlara út um allt land og
starfsfólk þeirra og aðra, sem
vinna að sölu og dreifingu á
fiskinum. Þeir skipta þúsund-
um.
íslendingar verða að hafa
það hugfast, að það er erfitt
og mikið starf að byggja upp
markaði, en auðveldara að
eyðileggja þá.
— Þér sjáið ekki eftir að
hafa staðið í storminum?
— Starfið hefur verið
skemmtilegt og ádeilurnar og
skammirnar tilheyra allar
hversdagsvinnu.
— Ég fletti upp í síma-
skránni, áður en þér komuð,
til að athuga hvernig þér titl-
uðu yður. Þar stóð aðeins:
Jón Gunnarsson, Hrauni,
Garðahreppi.
— Ég nota helzt engan titil.
— Ég þarf að láta taka
mynd af yður til að hafa með
viðtalinu.
— Ég læt aldrei birta af
mér myndir.
— Hver var hlutur
Framhald af bls. 2.
þeir fimim. Auk þess hefur A.S.B.
4 launaflokka fyrir stúlkur undir
18 ára aldri, svo að launaflokk-
arnir verða samtals 10, en em
8 hjá Iðju. Það tekur því konur
allt að 10 ár að komast í hæstu
lágmarkslaun, ef miðað er við
samninga A S.B., en aðeins 8 ár
hjá Iðju.
Þá er því haldið fram að byrj-
unarlaun hjá A.S.B. séu hærri en
hjá Iðju. Þefcta er alrangt. Eins
og áður segir eru byrjunarlaim
kvenna, heildagsstúlkna undir 18
ára aldri, kr. 2182.33 en byrjunar-
laun kvenna yngri en 17 ára, sam
kvæmt samningi Iðju kr. 2585.00
á mánuði. Byrjunarlaun sam-
kvæmt A.S.B. samningnum eru
því kr. 402.67 lægri á mánuði en
byrjunarlaun hjá Iðjukönum.
Þegar um byrjunarlaun er að
ræða í verksmiðjum og brauð-
búðum , þá skiftir það mjög
xniklu máli hver byrjunarlaun
eru innan við 17 eða 18 ára aldur,
þar sem langflestar stúlikur hefja
vinnu á þeim aldri.
Um hæsta samningshundið
kaup kvenna í Iðju og A.S.B. er
það að segja, að hæsta kaup
samkvæmt Iðjuscimningi er kr.
4026.00 eftir 4ra ára sfcarf. en
hæsta kaup A.S.B. kvenna er
4172.83 eftir 5 ára starf Og er
þá ekki tekið tillit til þess að
verksmiðjueigendur greiða 6%
ofan á kaup þeirra kvenna, sem
eru í lífeyrissjóði Iðju og miðað
við þau fríðindi og öryggi sem
lífeyrissjóöir veita launþegum þá
er óhætt að fullyrða að hæsta
samningsbundið kaup Iðju-
Ikvenna er mun hagkvæmara en
hæsta kaup sem A.S.B. semur
um.
Það verður að teljast bjarnar-
greiði við Birgittu, formann
A.S.B., að staUsystir hennar
skyldi verða til þess að draga
fram í dagsljósið hve samningar
A.S.B. eru miklu verri í alla
staði, en samningar Iðju um
Birgitta Guðmundsdóttir.
kvennakaup, og skiptir þar engu,
hvort um er að ræða fjölda launa
flokka, byrjunarlaun eða hæsta
samningsbundið kaup, allsstaðar
hallar á A.S.B.
Að lokum vil ég leyfa mér að
spyrja frú Margréti í tilefni
þess, að hún spyr „hvort við höf-
um ekki viljað ganga á þá braut,
sem búið var að ryðja, eða hvort
ökkur hafi ekki verið skammtað
meira“?
Hvar er sú braut, sem þú hefur
rutt í kjaramálum kvenna, eí
þú telur pólitísk verkföll hina
einu braut? Þú hefur aldrei farið
I verkfall með þitt félag, en alltaf
tínt upp úr slóð þeirra, sem bar-
izt hafa fyrir kjarabótum ann-
arra verkakvenna og mótað nýj-
ar leiðir.
Hvar er „hin rudda braut“
A.S.B., til dæmis frá 1955, ef
miðað er við sömu röksemd, þá
einu sem -þú þekkir a.m.k. þegar
þú ert teymd fram á ritvöll
kommúnistablaðsins.
Eða getiu- verið að einhverj-
ir „óþekktir aðilar“ hafi fært Bir-
gittu brauðsnúð á gullfati, þegar
bakarameistarar sögðu nei?
Guðjón Sigurðsson.
Veitingastofa
Veitingastofa í fullum gangi til sölu eða leigu nú
þegar. — Tilboð merkt: „1. marz — 7958“, sendist
afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld.
Itfúrarar
Tilboð óskast í utanhússpússningu á húsinu GlaS-
heimar 14. — Upplýsingar á staðnum eða í síma
37728.
Bátur til sölu
Bátur 8% tonn með 48 ha Lister dieselvél og Atlas
dýptarmæli til sölu strax. Báturinn er tilbúinn
á vertíð. Línu- og netaveiðarfæri geta fylgt.
Upplýsingar gefur
LÁRUS JÓNSSON, Ólafsfirði Sími 4.
- S H
Framh. af bls. 1
en stunda þá framleiðslu, sem öll
þjóðin byggir afkomu sína á.
3. Fundurinn álítur, að hækk-
un útlána á sjávarafurðir sé
vissasta leiðin til að gera fyr-
irtækjum þessum kleift að reka
starfsemi sína af fullum krafti
og auka þar með framleiðsluna
og þar með gjaldeyrisöflunina.
Fjárhagsnefnd fundarins fjall
aði um framangreindar tillögur,
en í henni voru: Kristinn Gunn
arsson, Hafnarfirði (framsögu-
maður), Aðalsteinn Jónsson,
Eskifirði, Einar Guðfinnsson,
Bolungarvík, Gísli Konráðsson,
Akureyri, Gísli Hermannsson,
Reykjavík, Sigurður Jónsson,
Siglufirði og Þorsteinn Sigurðs-
son, Vestmannaeyjum.
Þá samþykkti fundurinn, að
starfsemi samtakanna skuli
byggjast áfram á verðjöfnunar-
kerfi, svipuðu því sem tíðkazt
hefur.
Fundurinn kaus 10 manna
nefnd, sem m. a. skal athuga, í
samráði og samvinnu við stjóm
SH., hvaða breytingar er æski-
legt að gera á starfsemi sam-
takanna. Skulu fullnaðarskýrsl-
ur og tillögur um þessi efni
liggja fyrir næsta aðalfundi SH.
Nefndina skipa: Huxley Ólafs-
son, Keflavík, Óskar Kristjáns-
son, Suðureyri, Sturlaugur Böðv
arsson, Akranei, Gísli Konráðs-
son, Akureyri, Kristinn Gunn-
arsson, Hafnarfirði, Þorsteinn
Amalds, Reykjavík, Gunnar
Bjamason, Ólafsvík, Óskar Sig-
urðsson, Vestmannaeyjum, Ólaf-
ur Jónsson, Sandgerði og Lúð-
vík Ingvarsson, Eskifirði.
Ennfremur fóm fram ýfcarleg-
ar umræðar um rekstur verk-
smiðju S. H. í Nantiooke og þau
vandamál, sem þar hefur verið
við að stríða. Er hér eihkum um
að ræða skort á rekstursfé, sem
hefur orsakað greiðsludrátt til
framleiðenda. Sanda vönir til,
að þau vandamál leysist á næst-
unni, þar sem góðar horfur em
á, að eðlileg reksturs- og við-
skiptalán fáist hjá bandarískum
lánastofnunum. Þá afgreiddi fund
orinn ýms önnur mál til stjórn-
ar S. H.
í lok fundarins flutti Gísli Kon
ráðsson o. fl. eftirfarandi fcillögu:
„Aukafundur S. H. samþykkir
að fela stjórn S. H. að hluast til
um það, eð innheimta í kröfum
þeim, sem Coldwater telur sig
hafa á hendur Árna Ólafsson og
Pálma Ingvarssyni, komi ekki til
framkvæmda, fyrr en að loknum
aðalfundi 1962.
Ennfremur samþykkir fund-
urinn að fola S. H. að leita eftir
samkomulagi við fyrrnefnda
menn um það, að þeir fasfcráði
sig ekki til starfa hjá öðrum
aðila, fyrr en að loknum sama
aðalfundi“.
Mælti flutnir.gsmaður fyrir til-
lögunni á þá leið, að þar sem nú
færi fram athugun á starfsemi
S. H. og framtíðarskipulagi sam-
kvæmt ákvörðun fundarins, þá
teldi hann og flutningsmenn, að
ekki bæri að taka afstöðu til inn
heimtu umræddra skuldakrafna,
fyrr en frekari athugun hefði far
ið fram.
Einnig taldi flutningsmaður, ef
engin samþykkt væri gerð við-
víkjandi fyrrverandi sölumönn-
um Coldwater Seafood Corp.,
þeim Árna Ólafssyni og Páima
Ingvarssyni, væri því slegið
föstu, að um alvarlega sök væri
að ræða hjá þeim, en slíkt væri
varhugavert, fyrr en rannsófcn
sú, sem fundurinn hefði ákveðið,
hefði farið fram og staðreyndir
málsins lægju fyrir á næsta aðal-
fundi. Tillaga um að vísa fram-
angreindri tillögu til stjórnarinn-
ar var felld með 19 atkvæðuna
gegn 23 ag tillagan síðan sam-
þykkt.
TVÆR
3|a eða 4ra herb. íbúðir
óskast helzt í sama húsi, sem fyrst í Reykjavík
eða nágrenni. Algjör reglusemi. — Nánari upplýs-
ingar í síma 36562.
I ðnaðarhúsnœði
ca. 50—100 ferm. óskast sem fyrst til leigu. —
Tilboð merkt: „Iðnaðarhúsnæði — 7308“, sendist
afgr. Mbl. fyrir miðvikudag.
3 herh. íbúð
Ný eða nýleg óskast. Verður að vera fullgerð eða til—
búin undir tréverk. — Jarðhæð kemur til greina.
Tilboð merkt: „1000—7309“, sendist afgr. Mbl. fyr-
i ir miðvikudag.
Stúlka
Rösk stúlka óskast í bókaverzlun. Enskukunnátta
nauðsynleg. Umsóknir sendist afgr. Mbl. merkt:
„Bækur — 7961“.
Verfíðarfólk
Ráðskonu og tvo vana flakningsmenn vantar. Einnig
mann til að fella þorskanet og sjá um annan neta-
útbúnað fyrir einn bát. Heppilegar aðstæður fyrir
hjón. Upplýsingar i síma 2164 og 2376, Keflavík.
Vantar strax
beitingamenn
eða tvo vana sjómenn. — Upplýsingar á
herbergi nr. 6 á Hótel Skjaldbreið.