Morgunblaðið - 25.03.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.03.1962, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 25. marz 1962 %%%%%%%%%%%% / w. ak Qí %%%%%%%%%%% Hvítt: R. Fischer. Svart :V. Kortsnoj. Spánski leikurinn. 1. e4 — e5 2. Rf3 — Rc6 3. Bb5 — a6 4. Ba4 — Rf6 5. 0-0 — Be7 6." Hel — b5 7. Bb3 — 0-0 8. c3 — d6 9. d4 Þetta afbrigði var aifar vin- sælt á hinu fræga Skálkmóti í New York 1924. Síðustu árin hef ur þetta afbrigði skotið upp koll inuim öðru hvoru. 9. — Bg4 10. Be3 — Þannig var þetta afbrigði teflt f áðurnefndu skákmótL Skemmti legt er að rifja örlítið upp aðra möguleiika í þessu afbrigði 1) 10. dð, Ra5. 11. Bc2, c6. 12. dxc6, Dc7. 13. Rbd2, Dxc6. 14. Rfl, Rc4 staðan er jöfn. Trifunovic — Barza, Zagreb 1955. 2) 10. h3, Bxf3. 11. Dxf3!? — (Annar möguleiki er 11. gxf3). 11. — exd4. 12. Ddli, dxc3. 13. Rxc3, Ra5. 14. Bc2, He8. 15. f4, b4. 16. Rd5, Rxd5. 17. Dxdö, c6. 18.Dd3, g6, afar flðkin staða. Bronstein — Keres, Budapest 1950. 10. — exd4 Bezt. Varhugavert er 10. — Rxe4. 11. Bd5, Dd7. 12. Bxe4, d5, Rb4. 17. Rbd2, Rxc2. 18. Dxc2, Rfd7. Eða 15. Rbd2, Rc6. 16. h3, Bh5. 17. Bb2, qxd4. 18. g4, Rxg4! Trananesko — Paohmann. 15. — Rd7 16. Rbd2 — Bf6 17. Hbl — Með uppstillingunni sem Fiisclh er kýs sér í 15. leik hindrar hann Korctsnoj í að létta stöðu sína með uppskiptum á svörtu biskupunura.. 17. - c4 18. h3 — Bxf3 19. Rxf3 — cxb3 20. axb3 — Dc7 21. Be3 — Bc3 í>að athyglisverðaista við þessa stöðu finnst mér tvímælalaust vera hve erfitt svörtu riddiaram ir eiga' um vik. Venjulega hefur svartur frjálst val á drottningar væng fyrir riddara sína. Stöðu baráttan er nú að ná hámarkL 22. He2 — b4 Eðlilegra virðist 22. — He8. 23. Rd4 — Hfe8 24. Rf5 — Rb7 25. Bd4 — g6 Dálítið -vogaður leikur. Ef til vill var 25. — Rf6 færnari leikur. 26. Rh6f Kf8 ,27. Hcl! — Hac8 28. Bd3 — Da5 29. He-c2 Re5 30. Bfl — Rc5 Tímabundin peðsfórn til þess að létta á spennunni. 31. Bxc3 — bxc3 32. Hxc3 — Kg7 33. Rg4 — Rxg4 34. Dxg4 — Hb8 35. Hf3 — Rxe4 Ekki 35. — Rxb3? samt Hc7. 36. Dd7! 36. Df4 — /5 37. He3 — He5 38. Hc6 — Hbe8 Meiri vöm veitti 38. — Db4. 39. Hxd6 — Dal 40. Hxa6 — Dd4 41. . H d3 — Db2 42. d6 — g5 43. De3 — f4 44. Da7f — gefið %%%%%4r%Qr%%%4 Bridge <%%%%%%%%%%%% HAUSTIÐ 1959 gekk i gildi hjá Bridgesambandi íslands reglu- gerð um meistarastig, þannig að spilurum innan Bridgesambands- ins yrðu veitt meistarastig eftir ákveðnum reglum í hlutíalii við árangur þeirra. Gilti þetta í öll- um keppnum innan Bridgesam- bandsins, bæði innanfélagsmót- um, svæðamótum og landsmót- um. Eftir þessum 3 gráðum er að keppa: 1. Félagsmeistari: Til þess að ná því stigi þarf spilarinn að ná 25 meistarastig- um. 2. Svæðameistari: Til þess þarf 125 meistarastig, þar af stór hluti í svæðamótum eða landsmótum. 3. Landsmeistari: Til þess þarf 250 meistarastig, þar af stór híuti í svæðamótum eða landsmótum. Hugmyndin er, að þessar gráð- Ur veiti ákveðin réttindi, t. d. munu landsmeistarar fá þátt- Símon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson tökurétt í stórmótum án keppni og endurgjalds. Við höfum nú eignagt okkar fyrstu svæðameistara. Eru það þeir Símon Símonarson og Þor- geir Sigurðsson frá Bridgefélagi Reykjavíkur. Símon Símonarson er fæddur 24. september 1933 í Reykjavík. Hann stundaði nám í Verzlunar- skóla íslands og lauk þaðan prófi 1952. Að loknu námi fór Símon til Þýzkalands og dvaldist þar um stundarsakir við íþróttanám, en hóf skömmu síðar starf við Iðn- aðarbanka fslands og hefur starf að þar síðan. Símon bvæntist 1959 Eddu Finnbogadóttur úr Reykjavik og eiga þau einn son. Þorgeir Sigurðsson er fæddur 11. september 1934 í Reykjavík. Hann er sonur hins kunna íþróttafrömuðar Sigurðar Hall- dórssonar, núverandi formanns Knattspyrnudeildar KR.. Þorgeir varð stúdent frá Verzlunarskóla íslands 1954 og hóf síðan nám við endurskoðun og lauk prófi 1960. Hann starfar hjá endurskoð- unarskrifstofu Mansoher & Co. Þorgeir kvæntist 1955 Þórhildi Sæmundsdóttur úr Reykjavík og eiga þau 2 börn. Þeir Þorgeir og Símon hófu keppnisbridge árið 1955 í sveit Halls Símonarsonar, og hafa þeir haldið tryggð við þá sveit síðan. Stærstu sigrar þeirra til þessa eru: Árið 1959: fslandsmeistarar I sveitakeppni. Árið 1959: íslandsmeistarar 1 tvímenningskeppni. Árið 1960: íslandsmeistarar | sveitakeppni og tvímennings- keppni. Árið 1961: Reykjavikurmeist- arar í tvímenningskeppni og Bikarmeistarar. 13. Bxh7f Kxh7. 14. dxe5 og avartur hefur enganvegin mót- spii fyrir peðið. 11. cxd4 — Ra5 12., Bc2 — Rc4 Sennilega hefur Kortsnoj stefnt að því að flækja stöðuna sem mest, að öðruan kosti hefði hann valið leik Keresar 12. — c5(!) í skák þeirra Unzicker — Keres, einvígi 1956. Þar var framhaldið 13. Rbd2, cxd4. 14. Bxd4, Rc6. 15. Be3, d5! 16. exd5, Rb4. 17. h3, Bh5. 18. Bg5, Ha7. 19. Bb3, Rfxd5 jöfn staða. 13. Bcl — c5 14. b3 — ~ Kortsnoj ABCDEFGH. ABCDEFGH Fischer Staðan eftir 14. b3 Geller lék 14. Rbd2, gegn Panno í Amsterdam 1956. 14. — Rxd2. 15. Dxd2, Bxf3. 16. gxf3, cxd4. 17. Dxd4 með fjölþættum möguleikum fyrir báða aðila. 14. — Ra5 15. d5! — Þetta virðist vera öfilugasta avaxið. Eftir 15. Bb2, Rc6. 16. d5, • Skemmtileg ár Ég sá um daginn Mennta- Skólablaðið. Mér þótti það ákaflega líflegt og óskaði þess andartak að ég væri aftur kominn í skó'lann, en mennta- skólaárin verða einkum þegar frá líður einhver skemmtileg- asti tírninn í lífinu. En þar sem mínar eigin hugmyndir um „menntaskólalíf" eru farnar að umvefjast rósrauð- um bjarrna, þá datt mér í hug að spyrja einhvern sem stend vu- í eldinum: Hvernig er að vera menntaskólanemi? Fyrir valinu varð ritstjóri skólablaðsins, Sverrir Hókn- arsson, sem er sjöttabekking- ur. En þó hann eigi stúdents- próf fyrir höndurn í vor, rit- stýrir hann blaðinu, og skrifar í það, m. a. leikdóm um Skugga-Svein Þjóðleikhússins, og leikur sjálfur, Ketil í Úti- legiunönnunum, og æfir hlut- vehk hjá Grímu. Sverrir brá skjótt við og svaraði spurn- ingu minni. Hann segir: • Hvernig er að vera menntaskólanemi? Yfirliitt get ég fiátt hugsað mér ánægjulegra en að stunda nám við Menntaskólann í Reykjavík. Námið sjálft er kannski ekki alltaf beinlínis Skemmtilegt, en það er alls ekkert kvalræði, og félags- lífið bætir margfalt upp það, sem á kann að skorta í nám- inu. Fyrir þá, sem eiga sér margvísleg áhugamál er alltaf nóg um að vera: listkynning- ar, málfundir, bókasafn, plötu safn, dansleikir og fleira — það er af nógu að taka. Það þarf sannarlega engum að leiðast í menntaskóla, sé hann ekki algert dauðyfli. En vitanlega má að mörgu finna. Til dæmis er nemenda- hópurinn orðinn alltof stór fyrir skólahúsið, þannig að Skilyrði til kennslu í ýmsum greinum, t. d. eðlisfræði og náttúrufræði eru hin hönmu- legustu. Auk þess er bagalegt að Skipta þarf nemendahópn- um í tvennt — fyrir og eftir hádegi. Nú er að vásu í ráði að gera hér nokkra úrbót, þar sem í sumar verður byggt nýtt hús að baki þess gamla. Rýmk ar þó til muna í skólanum, auk þess som þarna verða væntan lega settar upp heppilegar eðlisfræði- og náttúrufræði- stoíur. Þó er hér auðvitað ekki um neina endanlega lausn að ræða. Að mínu áliti er of mik ið að hafa rúmlega 700 manns saman í Skóla. Þetta mikill fjöldi getur aldrei orðið sam- einaður hópur, og þannig glat ast sá góði félagsandi, sem á að rikja í skólum sem þessum. Auk þess er líklegt, að tala nemenda verði innan fárra ára kominn upp í 1000. Það er þvi augljóst mól, að byggja þarf annan skóla, Og það má ekki dragast lengi. • B^lting í kennsluháttum íslenzkir menntamenn fá nær alla sína almennu mennt- un í menntaskóla. Það liggur í augum uppi, að mikið ríður á að þessi menntun sé víðtæk og haldgóð. Hún á að gera mönnum kleift að hugsa sjálf- stætt Og skilja samtíð sína. Því miður fer því fjarri, að menntaskólinn fullnægi þeim kröfum, sem menn Mjóta að gera til hans. Námsefnið Og kennsluaðferðirnar eru löngu staðnaðar og alltof litlar kröfur gcrðar til sjálfstæðrar hugsunar og vinnubragða. Kennslunni er hagað eins og Sverrlr Hólmarsson j*'* ekkert hafi gerzt í heiminum síðastliðin fimmtíu ár eða svo. í stað þess að gera menn að þroskuðum og menntuðum einstaklingum leitast skólinn við að gera þá að vélum, sem gefa frá sér á'kveðið svar sé þeim sýndur ákveðinn miði á stúdentsprófi. Til að bæta úr þessu þarf gerbyltingu á kennslukerfinu, sem er reynd- ar aðeins íramfkvæmanleg með tilkomu rýmna húsnæðis. Það yrði of lamgt mól að lýsa þessum breytingum nán- ar. Ég ætla aðeins að nefna nökkrar fræðigreinar, sem eru að mínu viti afar mikilvægar hiverjumi menntamanni, en menntaskólinn sniðgengur nær algerlega, en það ern mannfræði, listasaga, vísinda- saga, bókmenntasaga, tónlist- arsaga, tónfræði, heimspeki Og sálfræði. Ef Íslendingar ætla að teljá sig með menningarþjóðum og hafa á að skipa traustri og dugandi menntamannastétt, þá er kominn tími til að taka Skipulag menntaskólanna til rækilegrar endurskoðunar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.