Morgunblaðið - 25.03.1962, Síða 13

Morgunblaðið - 25.03.1962, Síða 13
{ Sunnudagur 25. marz 1962 MORCVNBLAÐI& 13 Á NOKKRUM áratugum hefur Reykjavík breytzt úr sjávarþorpi í nýtízkulega borg. Á myndinni til vinstri, sem tekin var 1961, sést hið nýja Háloga- landshverfi. Hin myndin var tekin á sama stað aðeins 4 árum áður. REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 24. marz Frumkæði Reykjavíkur , r Á nokkrum áratugum hefur Reykjavík breytzt úr sjávarþorpi . í veglega borg. Höfuðborgin hef ur orði-ð að taka við miklum bluta fólksfjölgunarinnar í land- inu og sjá hinni hraðvaxandi fbúatölu fyrir margháttuðum þörfum. Samhliða hefur byggð vaxið í nærliggjandi kaupstöðum og eveitarfélögum, svo að skammt er þess að bíða, að samfelld byggð verði suður um Hafnar- fjörð og upp um Mosfellssveit. Fyrir frumkvæði borgarstjórn- ftr Reykjavíkur er nú unnið að heildarskipulagi alls þessa svæð- is af erlendum og innlendum sér- fræðingum, og er markmiðið að tryggja það, að „Stór-Reykja- vík“ framtíðarinnar verði ný- tízkuleg borg með fullkomnu skipulagi. Jafnframt er svo, eins og kunn- Ugt er, unnið ötullega að því að ganga endanlega frá skipulagi gamla Miðbæjarins og einstakra svæða bæjarlandsins innan ramma heildarskipulagsins. Mikið átak Mjðg rösklega er þannig unnið að skipulagsmálum höfuðborgar- innar, svo að á betra verður vart Ikosið. Að sjálfsögðu mun menn greina eitthvað á um þær skipu- iagstillögur, sem endanlega verða samþykktar. í því efni, eins og evo mörgum öðrum, getur aldrei ©rðið um algjört samkomulag að ræða, og vafalaust geta menn eftir 20 eða 30 ár bent á eitthvað, sem betur hefði mátt fara í skipu iagstillögum, sem gerðar voru árið 1962. Fram hjá því verður aldrei sneitt. Á sarna hátt væri fjarstætt að halda því fram, að allt það, sem gert var í skipulagsmálum fyrir 20 eða 30 árum, hafi verið alfull- komið. Þvert á móti er hér eins ©g í öllum borgum öðrum hægt að benda á mistök. Banngjarnir menn leiða hins vegar að því hugann, að fólks- fjölgunin í höfuðborginni hefur ©rðið miklu örari en noikurn ór- aði fyrir, og skjótar ákvarðanir hefur oft þurft að taka til að atemma ekki stigu við hinni öru þróun. Þegar á heildina er litið, hljóta menn að játa, að furðuvel hafi rætzt úr og Reykjavík þoli fylli- lega samanburð við sambærileg- ar borgir erlendis í skipulagslegu tilliti. Þarfir „irmflytjendanna44 1 ' Þegar rætt er um það, sem iógert er í höfuðborginni, verða menn að hafa hugfast, að Reykja- vík hefur orðið að taka á móti allsendis óeðlilegri fólksfjölgun. Reykvikingar hafa ekki takmark- að aðstreymi til höfuðborgarinn- ar, heldur reynt á hverjum tíma að fullnægja þörfum þeirra, sem hér vildu búa. Meginkapp hefur því verið lagt á að auðvelda íbúðabyggingar til að búa bæði uppvaxandi kynslóð og „innflytjendum“ mannsæm- andi vistarverur, og hefur göfur- legu fjármagni verið varið til að ganga frá lóðum og leggja götur. Sumir deila á borgaryfirvöld- in fyrir það að verja ekki meiri hluta gatnagerðarfjár til að full- gera götur, í stað þess að „þenja borgina út“. Varla er þó ástæða til að ætla, að þeir, sem búa í hinum ágætu ílbúðum í nýju hverfunum, séu þessarar skoðun- ar. Hitt er svo annað mál, að nú er tímabært að hefja stórátak til að fullgera götur höfuðborgar- innar, enda hefur Geir Hallgríms son, borgarstjóri, boðað heildar- áætlun um gatnagerð, sem fylgi í kjölfar hitaveituframkvæmd- anna. Glæsileg borg Það ætti að vera sameiginlegt áhugamál Reykvíkinga og raunar landsmanna allra, að Reykjvík- yrði sem bezt og glæsilegust borg, og að því er stöðugt unnið. Skipulagsmálin eru tekin traust um tökum, eins og áður segir. Hinar miklu hitaveitufram- kvæmdir eru hafnar, fjármagn er tryggt og verkfræðilegum und irbúningi komið í gott horf, svo að allir íbúar höfuðborgarinar munu búa við þægindi og sparn- að hitaveitunnar innan fjögurra ára. Skýrt hefur verið frá miklum vatnsveituframkvæmdum og áætl un verið gerð um hagkvæma höfn. Síðast en eklki sízt er svo ver- ið að ganga frá áætluninni um að fullgera allar götur borgarinnar á tiltölulega skömmu árabili. Má því með sanni segja, að Reykvíkingar geti horft björt- um augum á þróun mála í höfuð- borginni, batnandi hag og betra og fegurra líf. Góð borg En Reykjavík er líka góð borg frá náttúrunnar hendi. Fagurt umhverfi meta menn ef til vill ekki til peningaverðs, en jarðgufu í sjálfu bæjarlandinu, ágætustu vatnsból í nánd borgarinnar og hin beztu hafnrskilyrði hljóta, svo nokkuð sé nefnt, að bæta hag höfuðborgarbúa. Ingólfur Arnarson valdi sér þar bólfestu, sem síðar átti eftir að verða hið ákjósanlegasta íið- setur höfuðborgar. Þess vegna er það vel til fallið, að samhliða stór sókn Reykvíkinga til að bæta og fegra höfuðborgina skuli borgar- ráð hafa samþykkt að láta gera tilraun til að finna, svo að ekki verði um deilt, hvar bæjarstæði Ingólfs hefur verið. Vonandi leiða boranir þær, sem hefjast í maímánuði, undir stjórn þeirra Þorkels Grímssonar, forn- leifafræðings, og Þorleifs Einars- sonar, náttúrufræðings, í ljós, hvar bærinn hefur staðið, svo að takast megi að varðveita reit til minningar um fyrsta land- námsmanninn í hjarta höfuðborg arinnar. Uppgjöf kommúnismans Kommúnistamálgagnið á fs- landi hefur haft heldur hljótt um aðalfund miðstjórnar kommún- istaflokksihs rússneska, aldrei þessu vant, og ligja til þess skilj- anlegar ástæður. Sjálfur Krús- jeff lýsti því sem sagt í ræðum sínum, að landlbúnaður Ráðstjórn arríkjanna væri í megnasta ólestri, eftir 40 ára kommúníska stjóm hans. Hann dró ekki dul á, að víða væri kjötskortur og taldi, að grundvallarbreytingar yrði að vera til að kippa málunum í lag. Á tímabili voru menn farnir að halda að Krúsjeff mundi horf- ast í augu við raunveruleikann, afnema samyrkjubúskapinn og veita bændum frjálsræði. Hefði það að sjálfsögðu verið eðlileg nið urstaða af hans eigin orðum. All- ar tilraunir til sameignarbúskap- ar og kommúnisma höfðu brugð- izt og örlitlar einkaskákir, sem menn máttu rækta, sáu fyrir helmingi allrar landbúnaðarfram leiðslunnar. Hvort sem Krúsjeff hefur verið yfirbugaður á miðstjórnarfundin- um eða hann hefur ekki sjálfur þorað að lina á tökunum, þegar til kastanna kom, þá er hitt víst, afi miðstjórnin gafst upp á að leysa málin og allt er enn í sama ólestrinum. Völdin fyrir öllu Út af fyrir sig er skiljanlegt, að kommúnistaleiðtogarnir reyni í lengstu lög að hliðra sér við að horfast í augu við raunveruleik- ann. Þeir vita sem er, að fleiri myndu á eftir koma, ef losað yrði um fjötrana á bændastéttinni. Þess vegna er höfðinu enn bar- ið við steininn, lappað er upp á gamla kerfið með nýrri yfirstjórn og meira eftirliti, þótt engum ætti að dyljast það, hvorki aust- an tjalds né vestan, að kerfið sjálft hefur beðið algert skip- brot. Ekki eru fréttimar, sem berast af samyrkjuibúskapnum í Kína, heldur glæsilegar. Hungursneyð- in þar stafar ekki nema að mjög litlu leyti af völdum tíðarfars. Það er gamli fyrirslátturinn, sem málpípur heimskommúnismans ætíð hafa gripið til, þegar reynt hefur verið að skýra vandræðin í landbúnaðarmálum kommún- istaríkjanna. Það ætti nú að verá orðið ljóst, að landbúnaður og kommúnismi fara ekki soman. Þetta væri kom- múnistum sæmst að viðurkenna, þótt þess sé ekki að vænta, að íslenzka deildin geri það, meðan húsbændur hennar þora sig hvergi að hræra og bíða þess, að enn lengra sígi á ógæfuhliðina. Búnaðarþingi lokið Sömu dagana og rússnesku leið togarnir þinguðu um landbúnað- armál sat Búnaðarþing hér í höf- uðborginni. Málefni þess voru ekki jafn erfið og viðfangsefni kommúnistafundarins. íslenzkur landbúnaður hefur blómgazt og dafnað á sama tíma og rússneski landbúnaðurinn er í algerri nið urlægingu. Á einu sviði þurftu þó íslenzku búnaðarfulltrúarnir að horfast í augu við mikið vandamál og taka ábyrga afstöðu, en í því efni brást þeim bogalistin eins og aust anmönnum. Vinstri stjórnin skildi við lána- sjóði landbúnaðarins gjaldþrota, svo að þeir skulda 34 millj. kr. fram yfir eignir og það þótt rí'kis sjóður hafi á undangengnum þremur áratugum lagt þeim til yfir 130 milljónir króna í óaftur- kræfum framlögum. Nú er verið að gera stórátak til að reisa sjóði þessa við, þannig að þeir verða á fáum árum geysi- sterkir og geta staðið undir stór- feldum lánveitingum, sem gjör- bylta munu landbúnaðinum, auð- velda mönnum að stækka mjög búin og bæta hag sinn. Tii þess er ætlazt að land'bún- aðurinn leggi sjálfur nokkuð fram til styrktar sjóðunum, og er það þó aðeins lítill hluti fjár þess, sem til þeirra á að renna. Þá bregður svo við að meiri- 'hluti Búnaðarþingsfulltrúa mót- mælir því, að nokkur eyrir komi frá landbúnaðinum sjálfum til þess að tryggja þetta stórátak. Bændur ábyrg stétt Bændur hafa lengst af verið taldir meðal hinna ábyrgustu stétta íslenzks þjóðfélags, enda eru þeir víðast íhugulir og að- gætnir. Þess vegna furðar menn mjög á hinni óábyrgu afstöðu, sem meiriihluti Búnaðarþingsfull- trúa tók til viðreisnar lénasjóða landbúnaðarins. Enn furðulegri er þó þessi af- staða þegar þess er gætt, að sams konar gjaid og hér átti að renna til styrktar landbúnaðinum, var samþykkt að veita til byggingar bændahallarinnar í Reykjavxk. Varla getur það farið á milli mála, að það sé landbúnaðinum núðsynlegra að eiga styrka sjóði til framkvæmda í sveitum lands- ins en eignast 'hótel í Reykjavík. Auðvitað er það samt mál bænda, hvort þeir vilja verja fé sínu í slíkar framkvæmdir, en það verð ur að teljast fullkomið ábyrgðar- leysi að neita á sama tíma að leggja nokkuð af mörkum til bún ðarsjóðanna. Þessi afstaða meirihluta Bún- aðarþings skaðar mjög bænda- samtökin. Venjulega hafa menn viðurkennt, að samtök bænda væru öfgalausari í ályktunum sínum en ýmis hagsmunasamtölk önnur og því verið litið með skiln ingi á samþykktir bænda. Það almenningsálit gafst Búnaðar- þingi nú tækifæri til að styrkja með ábyrgri afstöðu til lánasjóð- anna. Var leitt, að þingið skyldi ekki bera gæfu til þess. Nýr flugvöllur Mikið hefur að undanförnu ver ið rætt um nýjan flugvöll og eru skoðanir manna allskiptar á því, hvort byggja eigi fullkominn flug völl í námunda við Reykjavík og þá helzt á Álftanesi eða notasit við Keflaví'kurflugvöll, sem síður en svo er nokkur frágangssök, þegar steinsteyptur vegur er kominn suður til Keflavílkur. f grein, sem Ingólfur Aðal- steinsson ritaði fyrir skömmu i Morgunblaðið, bendir hann á það, að nauðsynlegt sé að koma upp fullkomnum varaflugvelll norðan eða austanlands. Hann segir: „Það liggur því næst fyrir að gera það upp, hvort við höfum efni á því að byggja einn fulÞ kominn þotuvöll, en sá flugvöllr ur verður að koma norðanland* eða austan. Þegar þeim áfanga væri lokið, getum við gert áætl- anir um byggingu flugvallar á Álftanesinu." Það segir sig sjálft, að fullkom inn flugvöllur norðan eða aust- anlands eykur meira flugöryggl en nýr flugvöllur í nánd við Keflavíkurflugvöll. Þeir tveiv flugvellir mundu oftast lokast samtímis, en flugvöllur fyrir norh an eða austan þá venjulega vena nothæfur. Forystumenn flugmála ættu því sannarlega að íhuga, hvort þeir ekki vildu fremur leggja á sig það óhagræði að bíða eftir flugvelli í nánd við Reykja- vík gegn því að fá öruggan vara- flugvöll.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.