Morgunblaðið - 08.04.1962, Side 17
Sunnudagur 8. apríl 1962
MORGUNBLAÐlb
17
Halldóra
dóttir —
A MORGUN verður gerð frá
Possvogskirkju útför ástkærrar
ömmusystur minnar, Halldóru
Einarsdóttur, sem lézt hinn 31.
imarz s.l. Hún var fædd 8. októ-
ber 1889 að Kóngsparti í Helgu-
staðahreppi við Reyðarfjörð,
dóttir hjónanna Oddnýjar Guð-
mundsdóttur og Einars Þorláks-
eonar, er þar bjuggu.
’ Föður sinn missti hún aðeins
5 ára gömul, en ólst eftir það
til 15 ára aldurs upp hjá móður
einni, sem af frábærum dugnaði
mátti ala önn fyrir barnahópn-
um, 8 talsins, þar af 2 frá fyrra
hjónabandi hennar, en Dæja,
eins og yngri kynslóðin í fjöl-
Bkyldunni kallaði hana gjarna,
var þeirra yngst. Þrjú systkin-
anna dóu þó mjög ung. Eftir að
Oddný var orðin ekkja tók hún
2 börn í fóstur, svo að nærri
má geta, að einhvem tíma hafi
verið þröngt í búi, enda báru
lifnaðarhættir Dæju þess vott
alla ævi, að hún hafði ekki van-
izt því að gera háar kröfur,
txema þá helzt til sjálfrar sín.
Fyrst eftir að hún fór úr for-
eldrahúsum réðist hún í vist til
sr. Jóhanns L. Sveinbjömssonar
á Hólmum í Reyðarfirði. Þar mun
hún hafa dvalizt um 5 ára
skeið, eða til tvítugsaldurs, en
Þá kom hún tiil Vilborgar, syst-
ur sinnar, og mágs síns, Péls
Bóassonar, sem þá bjuggu á
Eskifirði. Upp frá því, eða í
fulla hálfa öld, var heimili
þeirra jafnframt' hennar heim-
fli. Og því heimili vann hún
ætíð allt það gagn, sem hún
mátti, eins og öðru og öðrum,
er hún tók ástfóstri við. Sér-
stöku ástfóstri tók hún þó við
syni þeirra og fósturdóttur,
þeirra böm og síðar bamabörn,
enda lagði hún sig alla fram
allt til hins síðasta fyrir okkur
ástvini sína.
Þegar systir hennar og mágur
fluttust suður til Reykjavíkur
árið 1934 fluttist hún hingað
með þeim. Á þeim tíma var hér
víst ekki um auðugan garð að
gresja eða auðhlaupið að því að
fá atvinnu, En Dæja lét það
ekki á sig fá fremur en annað,
sem á móti blés, heldur réðist
til atlögu við erfiðleikana af
BÍnum dæmafáa dugnaði og
þrautseigju. Hún var því sí-
Btarfandi fram á síðasta dag,
jafrvt á heimilinu sem utan
þess. Ekki þó í því skyni að
afla sér veraldarauðs, því að
henni var hugleiknara að geta
glatt aðra og látið gott af sér
leiða.
E inars-
Minning
Það er ekki tilgangur minn
að rekja hér æviatriði eða mann
kosti Dæju til neinnar hlítar.
Bæði er það, að hinn ytri ævi-
ferill hennar, sem að samfélag-
inu snýr, gefur ekki nema ófull-
komna mynd af manneskjunni
sjálfri, og hitt, að kostum henn-
ar þarf ekki að lýsa fyrir þeim,
sem til hennar þekktu. Við
þekktum öll af eigin raun fórn-
arlund hennar, trygglyndi, trú-
rækni, greiðvikni, atorku og ör-
læti. Og vist er mér annað ofar
i huga nú, þegar hin hinzta
kveðjustund er upp runnin, en
einstök atriði úr ævi hennar.
Miklu frekar hefði ég viljað
geta með þessum fáu línum lát-
ið í ljós örlítinn þakklætisvott
til þín, Dæja mín, fyrir alla þá
ástúð, umhyggju og fórnfýsi,
sem þú sýndir mér allt frá
hinu fyrsta til hins síðasta. Þess
um línum er því ætlað að vera
eins konar sonarkveðja til þín,
kæra frænka, því að naumast
getur nokkur móðir verið barni
sínu meira en þú varst mér. —
Hafðu þökk fyrir allt. Blessuð
sé minning þin.
Hörður Einarsson.
Félagslíl
Víkingur, 4. fl.
Útiæfing á sunnudag kl. 1.30.
Þjálfari.
I. O. G. T.
Stúkan Framtíðin nr. 173.
Fundur mánudag kl. 8.30. —
Félagar úr barnastúkunni Svövu
heimsækja. Hagnefndaratriði. —
Góð fundarsókn er góðtemplur-
um til sóma.
Æt.
Svava nr. 23.
Fundur í dag. Inntaka. —
Skemmtiatriði og dans eftir fund.
Gæzlumenn.
Skrifstofustúlka
Stúlka óskast á skrifstofu strax til bókhaldsstarfa
og vélritunar. Tilboð merkt: „4388“, sendist afgr.
Mbl. fyrir 9. þ.m.
^JJóteí (JJorcýCimeó
BORGARNESl
býður yður páskadvol í fögru umhverfi. Tilvalinn
staður til þess að eyða páskafríinu. Áherzla er lögð
á góða þjónustu og matur er fyrsta flokks, fram-
rciddur úr bezta fáanlegu efni, m. a. hinum þekktu
landbúnaðarafurðum Borgarfjarðarhéraðs.
Ferðir eru daglega í Borgarnes, bæði með bifreið-
um og sjóleiðis með m.s. Akraborg.
Kynnið yður ferðaáætianir.
Þeir, sem koma í eigin bifreiðum, geta notað tæki_
færið til þess að litast um í héraðinu, því allir vegir
eru greiðíærir.
Verið velkomin í Borgarf jörð !
AUKIN Framvegis munum við selja FISK nýjan — reyktan
— frystan — saltan.
PJONUSTA BRAUÐ ávallt nýbakað og af KÖKUM flestum
U IA tegundum.
HJA KJÖRBÚÐ TÓMASAR
TriMACI Grensásvegi 48 — Sími 37780
1 UIVIAol Kjöt — Kjötvinnsluvörur — Álegg — Grænmeti —
GRENSÁSVEGI 48 Ávextir — Allar nýlenduvörur — Hreinlætisvörur
Sendum um allan bœ
SKYIMDI8ALA
KARLMANNASKÓR margar gerðir
(áður kr. 489.00, 554.00, 589.00)
fyrir aðeins kr. 150.00 og 298.00.
KULDASKÓR með hæl fyrir kvenfólk
aðeins kr. 150.00 og ýmislegt fleira
fyrir lágt verð.
AÐEINS ÞESSIR 2 DAGAR
A SKÓFATIMAÐI
og Þriðjudag
KULDASKÓR fyrir kvenfólk sléttbotnaðir
(áður kr. 596.00) fyrir aðeins kr. 298.00.
ENNFREMUR SELJUM við NÆLONSOKKA
með saum og saumlausa fyrir
aðeins kr. 25.00 og 29.00 parið.
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.