Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.05.1962, Blaðsíða 2
s MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur I. maí 196L * c 4T Lesendur Morgunblaðsins mun sjálfsagt fýsa að sjá, hver viðbrögð Moskvumálgagnsins urðu við leyniskýrslunni til Einars Olgeirssonar, sem Morgunblaðið birti sl. laugardag um ógn- arstjóm Moskvuvaldsins í Austur-Þýzkalandi. Eins og vænta mátti, tók svarið ekki meira rúm en það, að Morgunblaðið sér sér fært að birta það hér í heild. Það mun sjálfsagt mál flestra, að Moskvublaðið hafi ekki brugðizt öllu aumlegar við síðan Krúsjeff gerði þvi þann óleik að afhjúpa ógnarstjóm Stalíns í Sovét ríkjunum, en þá skýrði það frá þeirri frétt í smáklausu undir fyrirsögninni „Kviksögur“. Múrveggir og gaddavír .gerbreyting til batnaðar'! Áður en Krúsjeff afhjúpaði ógnarstjórn Stalíns í Sovét- ríkjunum svaraði Moskvu- málgagnið ölluim frásögnum af hinu raunverulega ástamdi þar tíðum undir fyrirsögn- inni: „Moggi flúinn á Völgu bafeka". Eins og vænta mátti urðu viðbrögð blaðsins við birtingu Morgunblaðsins á leyniskýrslunni tiil Einars Ol geirssonar, formanns Moskvu fiokksins, um ógnarstjórnina í Austur-Þýzkalandi alveg eftir sömu formúlunni. „Moggi flúinn á Oderbakka“ var fyr irsögn þess á sunnudaginn, þegar það játaði tilvist leyni skýrsluinnar. Auðvitað skortir aðstamd- endur blaðsins allan mann- dóm til að taka undir fordæm ingu alls almennings á harð- stjórn hernámsliðs Sovét- stjórnarinmar og Uibridht stjórnarinnar í Austur-Þýzka- landi. Af gömilum vana er strax byrjað að bera í bæti- fléka fyrir þessa samherja. — „Einmitt margt af því, sem þarna (þ.e. í leyniskýrslunni) er gagnrýnt, hefur síðan ger breytzt til batnaðar", fullyrð- ir blaðið, án þess þó að nefna eitt eimasta daemi þess. Marg ir hafa þó vafalaust áhuga á því að fræðast um, hvað það er, st<n „hefur gerbreytzt til batnaðar í Austur-Þýzka- landi“ ekki sízt þeir, sem fylgt h-afa kommúnistum á undanfömum árum og trúað hinu hástemmda löfi þeirra um sælima í Astur-Evrópu — Þess vegna er það til-laga Morgunblaðsins, að Þjóð- viljinn svari t.d. eftirfarandi apurnimgum: • Eru kosningar í Austur- Þýzkalandi ekki lengur „skrípaleikur einn“? • Er öll gagnrýni ekki leng ur „óspart barin niður“? • Eru blöð og tímariit ekki lengur „undirgefin rit- stjórn flokksins og hi-n- um opimberu ritstjórum ekki heimilt að birta neitt án leyfi-s þar til kjörinna flokksstarfsmanna"? • Þurf-a sk-áld og rithöfund- ar ekki lengur „að beygja sig undir stefnu fldkiks og ríkis og skrifa í anda þeirrar stefnu, sem mörk uð er af flokknum hverju sinni“? • Á það ekki lengur við, að ráðamenn reyni „fyrst og fremst með valdi að hindra fól'kið í að koma9t til Vestur-Þýzkalándis“? • Er ekki „munur á lægstu og hæstu launum gífur- legur“ len-gur í Austur- Þýzkalamdi? • Er hætt að skerða lífskjör in í lamdinu „að ósk verka manna"? • Á sú lýsimg ekki lemgur við, að „hinum ein-stöku verkalýðsfélögum sé ó- mögulegt að hafa áhrif á launin“? • Verður það nú gert „án þess að flokkurinn leyfi“? 0 Er Austur-Þýzkaland ekki lengur „háð Sovétríkjun- um um efnahagsstefnu síma, svo og um tilveru sína sem sjálfstæðs rSk- is“? 0 Er hætt „að hóta bænd- um með fangelsun“, ef þeir ekki lúta boði og banmi Kommúnistaifllokks ins og ríkisvaldts hamis? • Er hætt að kalla arðrán Sovétríkjanna í Austur- Þýzkal-andi „stórmann- lega hjálp Sovétrikjanna við þýzka aiþýðu-lýðveld ið“? • Þora menn nú í Austur- Þýzkalandi að „setja nokkra sjálfsteeða skoðun fram af ótta við, að hún verði röng fundin, flokks fjandisamileg o.s.frv., við- komandi verði síðan refls að með einhverjum hætti“? • Er þessi lýsing úrelt orð- in: „Flökkurinn hefur rílk isvaldið í höndum“? • Eru Kommúmistafldkkur- imrn og æskulýðssamtöik hans hætt að hafa „óvið- urkvæmleg aflskipti af einkalífi manna“? Morgunblaðið veit, að öllum þessum spurningum verður að svara neitandi. En allir verða að njóta sannmælis. Því skal Morg unblaðið fúslega viður- kenna, að á einu sviði hef ur kommúnistastjórninni og Sovétyfirvöldunum í Austur-Þýzkalandi tekizt að vinna einstakt afrek síð an íslenzku stúdentarnir sömdu leyniskýrslu sína, þ.e. í byggingariðnaðinum: Þeim hefur tekizt að um- lykja heilan borgarhluta með múrsteinum og gadda vír! Áður en þeir Moskvu- menn á Þjóðviljanum, byrja á því að svara spurn ingunum hér að framan viljum við þó benda þeim á eitt atriði, sem ætti að geta orðið höfuðsönnun þeirra fyrir því, að allt hafi nú „gerbreytzt tiil batnaðar í Austur-Þýzka- landi“: Síðan leyniskýrsl an tii Einars Olgeirssonar var skrifuð hafa a. m. k. 760 þúsund Austur-Þjóð- verjar til viðbótar flúið kúgunina! Yfir 2 þús. lestir af lifur fil Eyja Vestmannaeyjum 27. apríl. NOKKUÐ má marka hvernig aflabrögð hafa gemgið af því lifr armagni, sem komið er á land hverju sinni. Fyrir þá, sem láta sig nokkru skipta aflabrögð og gaman hafa af að fylgj- ast með aflabrögðum, skal þeas getið, að Lifrarsamlag Vestmannaeyja hafði í gær tek- ið á móti 2083 smálestum af lifur á þessari vertíð. Á sama tíma 1961 var magnið 1337 smálestir, 1960 317-9 smálestir og 1959 3501 smálest. 1953 3136 smálestir á sama tíma. Rétt er að hafa í huga í sam- bandi við samamburð, að vertíð- in í fyrra hófst ekki fyrr en með marz og var þar af leiðandi nær helmingi styttri en venjulega. Mjög hefir dregið úr afla sein- ustu daga, sérstaklega þó vestur á Selvogsbanka, en austur í Meðallandsbugt, en þar er meiri hluti flotans að veiðum, hefir bátur og bátur verið að fá all- góðan afla. Nokkrir bátar eru þegar hættir með net og hafa ýmist tekið upp veiðar með líntl, eða farið á síldveiðar. — Bj. Guðm. Gjaldskrá fyrir verkfræðistörf breytt VERKFRÆÐINGAFÉLAG ís- lands hefur ákveðið breytingu á gjaldskrá sinni fyrir ráðunauta störf verkfræðinga og kemur hún til framkvæm-da 1. maí. Blaðið spurðist fyrir um þetta hjá Hinrik Guðmundssyni, fram- kvæmdastjóra félagsins I gær. Sagði hann að endurskoðun á gjatdskránni hefði staðið yfir ' undanfarið ár og hefði gjald-. skráinni verið umsnúið, sumt lækkað og annað hækkað og fært milli flokka og værl gjald- srá verkfræðinga nú sniðin eftir gjal-dskrá verkfræðinga 1 ná-‘ grannalöndunum, aðallega í Nor- egi. IJtankjörstaðakosning Utankjörstaðakosning hefst n.k. sunnudag 89. april. Þelr sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslumönn- um, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðismönnum sem tala isienzku. Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í HAGA- SKÓLA. Skrifstofan er opin sem hér segir: alla virka daga kl. 10—12, 2—6, 8—10, sunnudaga ki. 2—6. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins Aðalstræti 6 II hæð veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utan- kjörstaðaatkvæðagreiðsluna. Skrifstofan er opin daglega frá ki. 10—10. Símar 20126 og > 20127. Upplýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 20129. Yf Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Morgunblaðshúsinu Aðalstræti 6 II. hæð. Skrifstofan er opin alla daga frá kl. 10—10. Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er beðið að hafa sam- band við skrifstofuna og gefa henni upplýsingar varðandi kosningarnar. Athugið hvort þér séuð á kjörskrá i síma 20129. — • — Gefið skrifstofunnl upplýsingar um fólk sem verður fjar- verandi á kjördag innanlands og utanlands. — • — Símar skrifstofunnar eru 20126—20127. 1 Flugfélagið Bændahöllina Volhöll ú Þing- völlutn til söiu FLUGFÉLAG ÍSLANDS er flutt á 4. hæð í húsi Bændahallarinn ar og þar með hafa verið samein aðar undir einu þaki allax skrif stofur flugfélagsins nema sölu- skrifstofa-n, sem verður áfram í Lækjargötu 4. Það sem flytur í Bændaihöllina er aðalskrifstofan, sem var á Reykjavíkurflugvelli, milliianda flug- og upplýsingastarfsemi fé- lagisins* úr Lækjargötu 6B og bók'haldið úr hornihiúsi Frak-ka stígs og Lindargötu. Tekur Flu-g félagið alla 4. hæðin í Bæn-da- höllinni. Flutningar hafa staðið jnfir í 3 daga og verður opnað á nýja staðnum 2. maí, en sá dagur er talsverður merkisdagur í sögu Flugfélagsins, því þánn dag var fyrsta innan-landsflugið farið. — Væntir Flugfélagið sér góðs af því að hafa nú sameinað aila sína starfsemi. VALHÖLL á Þingvöililum hefur nú verið auglýst til sölu, en eig- andi er hlutafélagið Vallhöll h.f., framlkvæmdastjóri Ragnar Guð- laugsson, veitingamaðuir. Þetta hlutafélag hefur rekið veiti-nga- starfsemi á Þingvöilum í 17 ár samfleytt, keypti Valhöll vorið 1944 og sá Pétur Daníelsson, veit inga-maður um veitingar þar fram yfir Lýðveldi-shátiðina. Húsið var flutt af völlunum fyrir innan brúna fyrir Alþing ishátíðina 1930, þ.e.a.s. litla hús ið, sem nú er í miðjunni. Jón Guðmundis-son frá Brúisastöðuim tók þá við veitingarekstri og var stóri salurinn byg-gður við hiúsið fyrir hátíðina, en seinna var bætt vð skála. Nú hefur Vaihöll sem sagt verið auglýst til sölu og mun ætf unin að vita hvort aðrir aðilar hafa ekki áhuga á að halda þar áfram greiðasölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.