Morgunblaðið - 04.05.1962, Page 15

Morgunblaðið - 04.05.1962, Page 15
Fösíudagur 4. maí 1962 UORGVNBL AÐI& 15 Haraldur Á. Sigurðsson og Brynjólfur Jóhannesson eru meðal Iþeirra, sem skemmta á skemmtun Lionsklúbbsins Þórs á sunnudag. Sýna þeir leikþátt, sem Haraldur hefur samið. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) é>lýstárleg skemmtun næsta sunnudag: Kunnir borgarar skemmta í Háskólabíói til ágóða tyrir Bláa bandið liIONS-klúbburinn ÞÓR efnir til nýstárlegrar skemmtuniar næst- komandi sunnudag í Háskólabiói. Allir þeir, sem þarna koma fram til þess að skemmta, eru félagar í Þór. Allur ágóði rennur til Bláa bandsins. Skemmtunin (hefst kl. hólfiþrjú etfir hádegi. Haraldur Á. Sigurðs son, sem er kynnir skemmtunar- innar, tekur fyrstur til máls, en síðan flytur Friðfinnur Ólafs- son prologus. Þú heldur Tómas Guðmundsson ræðu. Næsta atriði er svo vísnaþátt- ur, Sigurður Benediktsson býður upp á Friðfinn Ólafsson, Guð- mund Benedi'ktsson, Helga Sæ- mundsson og Jöhann Fr. Guð- mundssion. Þá flytur Þórarinn Þórarinsson ræðu, en síðan verð- ur tónlist, sem Jón Þórarinsson sér um ásamt Jakobi Hafstein og Þorsteini Hannessyni. Nú verður gert hlé á skemmti atriði, en að því loknu heldur Helgi Sæmundsson ræðu. Að henni lokinni flytja þeir Bryn- jólfur Jóhannesson og Haraldur Á. Sigurðsson leikþátt, sem sá síðarnefndi hefur samið. Að lok- uon mælir Jónas Sveinsson kveðju orð. Halldór Pétursson mætir kl. 2 í anddyri og teiknar þá, sem það vilja. Eins og skemmtiatriðaskráin ber með sér, er hér um mjög óvenjulega og fjölbreytta skemmt un að ræðs, sem ekki ber að efa, að verði vel sótt. Þeir, sem sjá um að skemmta gestum, eru allir góðkunnir borgarar. Ekki ætti það að spilla aðsókninni, að gott rnálefni er stutt með skemmtuninni, því að allur ágóði rennur til Bláa bandsins, eins og fyrr segir. Ákveðið hefur verið, að skemmtunin verði ekki endur- tekin. Aðgöngumiðar kosta 75 kiónur, og verður fiorsala á þeim í bókaverzlunum Lárusar Blön- dals í Vesturveri og á Skóla- vörðustíg. 30.000 blökku- menn í verkfalli Hvítir starfsbrœður styðja þá r. Ndoda, Norður Rhodesíu, — 3. maí — AP — Þrjátíu þúsund afríkanskir námuverkamcnn í koparbeltinu I Norður-Rhodesíu hafa nú gert alvöru úr hótunum síum um að gera verkfall til stuðnings kröf um sínum um hærri laun. Þeir miða kaupkröfur sínar við laun hvitra námuverkamanna, sem eru þrefalt hærri en laun blökku manna. Síðdegis í dag tilkynntu hvitir námaverkamenn að þeir styddu einhuga verkfall blökkumanna. Til þess að fara þó að lögum, segjast þeir munu koma áfram til vinnu á hverjum morgni og dveljast á vinnustað, eins og venjulega — en þeir muni ekki taka til hendi. Að verulegu leyti sí_.»dur þetta verkfall í sambandi við þær ýfingar sem nú eru í stjóm málum Rhodesíiu og kröfur blökkuimanna um sjálfstæði og upplausn Mið-Afríkusambands- ins. Haldi verfcfallinu lengi á- fram verður af því gífurlegt efna hagslegt tjón. Verfcfallið tekur til starfsmartna sjö fcoparnáma. Nouðsyn uukinnur menningur- legrur sumvinnu Norðnrlundu Úr fyrirlestri Henriks Grotbs SÍÐASTLIÐIÐ þriðjudags- kvöld flutti formaður Nor- ræna félagsins í Noregi, hinn kunni fyrirlesari Henrik Groth fyrirlestur sinn í há- tíðasal Háskólans, er hann nefndi: „Norden og Verden“. Groth lagði megináherzlu á það í fyrirlestri sínum að Norð urlöndin væru að sogast inn í stórveldi heimsins hvert út af fyrir sig. Þetta væri þrátt fyr- ir það að á síðustu árum hefði margt verið unnið raunhæft á sviði norrænnar samvinnu. Aðdráttarafl stórveldanna bæði á sviði efnahags og menn- ingarmála væri að eyðiléggja árangur menningarsamvinnu Norðurlandanna og þyrftu þau því að stórauka sína eigin menn ingarbaráttu hvert fyrir sig og sameiginlega. Groth kvað innbyrðis kala Norðurlandaþjóðanna hver til annarrar, er byggðist á fornum samskiptum þeirra nú að mestu horfinn og meðal æsfcufólks gætti hans nánast ekki. Þrátt fyrir þetta væru þessar þjóðir ekki naesta líkar. Norræn samvinna byggðist heldur ekki á sameiginlegum þjóðareinkenn um fyrst og fremst heldur á sam eiginlegum örlögum þessara þjóða í heiminum. Mörg dæmi nefndi fyrirles- arinn um raunhæfa samvinnu Norðurlandaþjóðanna, svo sem samninga á ýmsum sviðum. Þróun ýmissa þjóða til sam- einingar færi nú hratt yfir og ekki væri sýnilegt annað en Norðurlöndin rynnu skipt inn í þær heildir. Gat hann Efna- hagsbandalags Evrópu sem dæm is þar um. f menningarlegu tilliti beind- ist hugur einstaklinganna til bókmennta kinna stærri þjóða og þá fyrst og fremst hinna enskumælandi, en efcki innibyrð- is milli þessara þjóða. Ræðumaður kvað íslenzkar bókmenntir eiga í stöðugri bar- áttu fyrir tilveru sinni. Til þess að auðvelda þessa baráttu kvað hann raunhæfar aðgerðir verða að koma - til á hinum - Norður- löndunum. Stig í þá átt væri fcennzla nútíma íslenzku, er 'hæfist á næsta hausti 1 norsk- um menntaskólum. Hann nefndi jþetta sem dæmi um það hvernig Norðurlöndunum bæri að vinna raunhæft saman að því að styrkja bókmenntir sínar inn- byrðis. Það þyrfti að reka raun- hæfa menningarbaráttu og hún yrði Norðurlöndunum styrkur til sameiningar í heild í þjóða- samruna nútímans. Snjóþungi í Fljótum Bæ á Höfðaströnd, 2. maí. 1 HÉR í innsveitunum er mjög / gott veður og grær óðum. —J Vegir eru með versta móti.l tJti í Fljótum skiptir um við 1 Haganesvík. Þar fyrir fram-í an eru aðeins komnir hnott- ar upp. Fyrir tveimur dög- um var farið að moka af veg um úti í Fljótum. Voru þá á vegum upp undir fjögurra metra skaflar. Þótt snjórinn sé enn svona mikill þarna, er samt farið að tala um að opna Sigluf jarðarskarð. Hygg ég, að farið verði að moka af veginum yfir Lágheiði til Ólafsfjarðar. Ef nógu langt er sótt á mið virðist vera nógur fiskur, en innfjarða er lítil veiði. Grá- sleppuveiði er mikil og farið er að verða vart við sUung. — Björn. i Þer getið notið fegurðaríeyndardóms Pascaíe Petit LiUX HANDSÁPA „Bjart og fallegt hör- and er grundvöllur fegurðar“, — segir Pascale Petit. Kvikmyndastjörmir eins og Pascale Petit láta LUX um að halda hörundi sinu björtu og fallegu. LUX handsápa fer með húðina af þeirri mýkt og nærfærni, sem aðeins er á færi LUX. Öðlist sjálfar hör- undsblæ kvikmynda- stjarnanna. Pascale segir: „Gæt- ið hörunds yðar eins og ég, — notið jafn- an LUX handsápu.** 9 af hverjum 10 kvikmyndastjörnum nota Lux handsápu hvít, bleik, blá, græn og gul X-LT* Hl/lCS-M

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.