Morgunblaðið - 04.05.1962, Síða 16
16
MORGVNBL AÐIÐ
Föstudagur 4. maí 1962
Sængur
Endurnýjum gömlu sæng-
urnar. Eigum dún og fiður
held ver. Seljum gæsa-
dúnssængur og kodda í
ýmsum stærðum.
Dún- og fiðurhreinsunin,
Kirkjuteigi 29, sími 33301.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir i marg
ar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. Sími 24180.
Amerískar
kvenmoccaslur
SKÓSALAN
Laugavegi 1.
Brauðstofan
Sími 16012
Vesturgötu 25
Smurt brauð, Snittur, Öl, Gos
og Sælgæti. — Opið frá kl.
9—23.30.
Óiiýru prjdnavörurnar
seldar í dag eftir kl. J
CUarvörubúðin
Þingholtsstræti 3.
Smurt brauð
og snitlur
Qpið frá kl. 9—11,30 e.b-
Sendum heim.
Brauðborg
irakkastíg 14. — Sími 18680
Brotajárn og málma
kaupír hæsta verðí.
Arinbjörn Jónsson
Sölvhólsgötu 2 — Simi 11360.
Jóhannes Lárusson
héraðsdómslögmaður
lögfræðiskrifst. - fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842
VITA-BAR
á horni Vitastígs og Bergþórugötu.
Snittur, snmrt brauð og kaldur matur afgr. út.
Egg og bacon, vinarsnitzel, öl, káffi o. fl.
Opið frá kl. 6 að morgni til kl 11,30 að kveldi.
Góð og fljót afgreiðsla.
Guðný Guðmundsdóttir
F.: 26. febr. 1863
D.: 25. apríl 1962.
HEIL ÖLD, það er langur tími!
Hversu margt hlýtur það að
vera, sem við hefir borið á
heillar aldar ævi. Sá, sem um
þessar mundir -hefir hundrað ár
að baki, hefir á ævileið sinni
stigið yfir breiðasta bilið, sem
þjóðarsagan okkar þekkir, fra
upphafi vega. — Um miðja síð-
ustu öld rikti hér fullkomið
miðaldalíf, — tiltölulega svip-
að og það hafði verið á undan-
förnum öldum. — í dag horfum
við mót rísandi atómöld. — Þá
JÓN N. SIGURÐSSON
Málflutnin-gsskrifstofa
hæstaréttarlögmaður
Sími 14934 — Laugavegi 10.
EGGERT CLAESSEN og
GÚSTAV A. SVEINSSON
bæstaréttarlögmen
Þórshamri. — Síml 11171
iSOtWfiVltf'*
Húnvetningar — Húnvetningar
Fermingarföt Ferraingarkápur
skyrtur
slaufur
skór
pils
blússur
peysur
Til fermíngargjafa
Svefnpokar — Bakpokar — Tjöld — Veiðistengur — Mynda-
irélar — Japanskir borðlampar — Veiðihjól — Rafmagns
grammifónar — Standlampar o. m. fl.
MATVARA — FÓÐURVARA — BÚSÁHÖLD
VÖRUR MEÐ HVERRI FERÐ.
Verzlunarlélagið VALIiR
Blönduósi.
IMotuð húsgögn
gjörbyltingu, sem þessi tími
geymir í skauti sér, getur eng-
inn gert sér grein fyrir, nema
sá einn, sem hana hefir lifað.
f dag verður önnur elzta kon-
an í Keflavíkurkaupstað. Guð-
ný Guðmundsdóttir, til moldar
borin. Hún kvaddi þennan heim
með nærfellt hundrað ár á herð
um .
Guðný fæddist í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Karitas
Guðlaugsdóttir og Guðmundur
Sveinss-on. Hún ólst upp með
móður sinni, þar eð faðir henn-
ar lézt á meðan hún var á
bernskuskeiði. í Keflavík dvöld-
ust þær mæðgur að mestu leyti,
þar til Guðný var 15 ára. Þá lá
\eið hennar austur í Fljótshlíð.
Þar var hún vinnukona að Háa-
múla um 5 ára skeið. Dvölin
þar eystra varð henni mjög
minnisstæð ávallt síðan. HIús-
'bændur hennar, fólkið, sém þar
varð á vegi hennar, — og síð-
ast en ekki sízt Hlíðin sjálf, áttu
svo sterk ítök í huga hennar, að
á hinar björtu minningar henn-
ar þaðan féll aldrei fölvi til
endadægurs.
Úr Fljótshlíðinni lá svo leið-
in til Keflavíkur á ný. Þar réð-
ist hún til starfa hjá Norðfjörð
kaupmanni og var starfsstúl’ka
á heimili hans næstu 5 árin.
Norðfjörðsheimilið stóð, eins
og að líkum lætur. flestum
’heimilum þar um slóðir fram-
ar, hvað snerti myndarskap og
menningarbrag allan, á þeirr'a
tíma mælikvarða. — Dvölin þar
reyndist Guðnýju líka næsta
notadrjúg.
Að eðlisfari var hún gædd
mörgum þeim eiginleikum, er
góða húsmóður mega fegurst
prýða, — og því notaði hún sér
óspart þá margháttuðu mögu-
leika, sem þetta fyrirmyndar-
heimili veitti henni til náms og
þjálfunar í hinum víðtæka verka
hring húsmóðurinnar, og það
sýndi hún jafnan síðar, að hún
kunni vel að færa sér fengna
reynslu í nyt. —
Þegar Guðný var 25 ára að
aldri, þá giftist hún unnusta
sínum, Sigurði Gunnarssyni frá
Kiðafelli í Kjós. — Þau stofn-
uðu heimili í Keflavík og bjuggu
þar allan sinn búskap. að und-
antekinni eins árs dvöl í Reykja
vík — eða um það bil. —
Fyrstu árin var Sigurður ut-
anbúðarmaður við Edinborgar-
verzlunina í Keflavík En síð-
ar sneri hann sér að sjónum og
gerðist athafnasamur útgerðar-
maður, þegar fram liðu stund-
ir. Hann var t.d. einn hinna
fyrstu þar syðra, sem hófu vél-
bátaútgerð.
Vettvangur Guðnýjar var
heimilið. Innan vébanda þess
rækti hún sitt ævihlutverk af
frábærri umhyggju, alúð og at-
hafnasemi. Meðfæddur og áunn
inn myndarskapur hennar á sínu
sviði var slí'kur, að heimili henn
ar var almennt talið af þeim,
sem til þekktu, meðal hinna
fremstu í sinni röð. —
Þau hjónin, Sigurður og Guð-
ný, eignuðust 7 börn. Tvö þeirra,
það elzta og vngsta. létust í
frumbernsku. Hin 5 eru öll á
lífi. Þau eru þessi, talin í ald-
ursröð: Guðrún, gift Eyþóri
Þórðarsyni, sjómanni í Hafnar-
firði, Guðmundur, ókvæntur,
dvelst í Reykjavík, Rósa, kaup-
kona í Reykjavík, ekkja. Gunn«
ar, sjómaður í Keflavík, kvænt«
ur Maríu Jónsdóttur og Sigur-
veig, gift Friðrik Þorsteinssyni,
forstjóra í Keflavík.
Dóttursonur þeirra, Axel Eyj«
ólfsson, bifreiðarstjóri í Kefla-
vík, ólst einnig upp hjá þeim.
Og eftir lát Sigurðar var hann
áfram hjá ömmu sinni »g á
hennar vegum öll sín uppvaxt-
arár.
Sigurður er nú látinn fyrir
allmörgum árum. Hann varð
bráðkvaddur hinn 3. júní árið
1930.
Eftir lát manns sins dvaldist
Guðný á heimili sona sinna til
ársins 1938. Þá fluttist hún til
Sigurveigar dóttur sinnar og
þeirra hjóna, og 1 skjóli þeirra
lifði hún upp frá þvi. Á heim-
ili þeirra átti hún fagurt og frið
sælt ævikvöld. — Þar var hún
umvafin hvers konar umhyggju,
sem þau hjónin gátu henni í té
látið. Og ekki létu börn þeirra
sitt eftir liggja á því sviði. Enda
var jafnan hið nánasta kærleiks
samiband milli hennar og þeirra.
Allt það sem Guðnýju var vel
gert, var hún innilega þakklát
fyrir. Og þakklæti sitt tjáðí hún
ekki aðeins i orðum, heldur og
í athöfnum sínum öllum.
Hún var sífellt þakklát, —
sífellt glöð og létt í lund — og
sístarfandi, fram til hinztu
stundar. —
Guðný var einstaklega heilsu-
góð alla sína ævi. Hún var fag-
urt og hugljúft gamalmenni —
og bar ávallt með sér fríðleika
og yndisþokka fyrri ára. — Hún
var prúð í dagfari, — hæglát og
hlédræg í fasi og framgöngu
allri. Og öllum þeim, sem hún
átti samleið með. var hún elsku
leg, hlý og góð. — Líkams- og
sálarkröftum sínum hélt hún
ótrúlega lítt skertum fram á
allra síðustu ár. Hún fékk hægt
andlát. Hún leið útaf eins og
lítið, saklaust barn við móður-
barm. —
Hafi hún þökk fyrir heillar
aldar ævidag. Megi kærleikans
Guð, sem gætti hennar alla tíð
og gaf henni þrek og styrk til að
standast í starfi og stríði ævidags
ins, vefja hana heilögum örmum
elsku sinnar, — signa hana og
blessa, — og krýna hana hæstum
heiðri hins trúa þjóns, — við
síðasta sólarlag.
Guð blessi ástvinum hennar
öllum hugþekkar og hjartfólgn-
ar minningar. Megi þser vekja
Ijúfan söng í sál — og senda
ylgeisla sína að innstu hjarta-
rótum. —
Bj. J.
Ný húsgögn
Höfum opnað í Kjörgaxði sérstaka deild sem notuð og smávegisgölluð húsgögn.
miklum afslætti ýmsa staka muni svo sem stóla og sófa.
Seljum einnig með
^SKEIFANk
— Sími 16975.