Morgunblaðið - 04.05.1962, Qupperneq 20
20
MORGVISBLAÐIÐ
Föstudagur 4. maí 1962
GEORGE ALBERT CLAY:
GINA
Saga samvizkulausrar konu
?>eir stóðu allir á fætur eins
og bekkur í skóla og söfnuðust
í smáhópa til að ræða þetta sem
þeir höfðu verið heyrnarvottar
að. Jæja þá? sagði Ishii bros-
andi.
Hann er eins og allir hinir,
reyndi Vicente að segja kæru-
leysislega, því að hann vissi
ekki, hvað hann gat sagt. Þetta
er bara kjaftæði. Það getur verið
nógu fallegt í skýrslum, en þrátt
fyrir það bíður hann nú í skrif-
stofunni sinni, til að heyra,
hvaða tilboð við getum gert hon-
um. Nei, þetta snýst allt um
peninga, Ishii. Því heilagari sem
þeir spila sig, því dýrari eru þeir
á mútunum.
Kann að vera. En samt mundi
ég nú ekki vera of fljótur á mér,
Vicente sæll.
Vicente fór úr skrifstofu aðmír
álsins fimm stundum síðar og
vissi þá litlu meira en þegar
hann kom. Viðtalið hafði verið
stuttort og árangurslítið. Aðmír-
állinn þakkaði honum starfsemi
hans hingað til og bætti því við,
að framvegis yrði að gera betur.
Hann var fjarlægur og hlédræg-
ur, og lét sem hann heyrði ekki
bendingar Vicentes um væntan-
lega gróðavon af hinu og þessu.
Hann hafði spurt um Don Diego
á þann hátt, sem gaf til kynna,
að fremur hefði hann nú kosið
samvinnu hans en Vicentes.
Síðan talaði Vicente við vini
sína, sem höfðu átt álíka sam-
tal og sízt vænlegra. Og þá fyrst
var það, að hann tók fyrir al-
vöru að óttast um sinn hag.
Svo að við erum þá orðin
lítilvægari en nokkru sinni áð-
ur? sagði Gina, þegar Vicente
trúði henni fyrir kvíða sínum
um framtíðina. Lítill kall varstu
nú áður en þessi maður kom, og
bráðum verðurðu ekki annað en
núll.
Það er hægast fyrir þig að
finna að, sem situr hér uppi í
skýjunum allan daginn, hreytti
Vicente út úr sér. Þú þekkir
minnst til þess, hvernig ég verð
að berjast fyrir tilveru minni í
borginni, hverja stund, sem guð
gefur yfir, hafa augu á hverjum
manni og hlut, hvíldarlaust. Þú
heldur, að það sé einhver barna-
leikur að múta og kúga fé og
ljúga og svíkja, án þess að láta
nokkurntíma ná tangarhaldi á
sér, Gina.
Er það það, sem þú leggur
aðallega fyrir þig? spurði hún-
Japanimir voru vinir þínir og
þú ætlaðir að verða ríkur og
voldugur. Háðið í röddinni var
iskalt. Þú ætlaðir að verða stjóm
andi, en ekki þý, var það ekki?
Vicente horfði lengi á konu
eína, ætlaði þá að fara að segja
eitthvað, en sá sig um hönd og
greip konjaksflöskuna. Hann
hellti í stórt glas og sat svo og
starði á það, án þess að bera
það upp að vörunum. Hann lang
aði til að segja Ginu hvernig
hann fyndi, að hann væri að
missa öll völd út úr höndunum,
og hvernig hann reyndi að berj-
ast gegn því, en fyndi bara æ
betur með hverjum degi, hversu
valdalaus hann væri orðinn.
Kannske hann pabbi þinn hafi
loksins ekki verið svo vitlaus,
sagði hún og særði hann nú þar
sem hann var veikastur fyrir. Ef
hann hefði verið í þinni aðstöðu,
hefði hann fundið eitthvert ráð
til þess að ég gæti haldið barn-
inu mínu hjá mér. Hún lét Vic-
ente oft heyra það, að hún
kenndi honum um brottflutning
barnsins. Hún kveikti sér í vindl-
ingi og horfði á manninn sinn
yfir borðið. Og nú er nýi her-
námsstjórinn næstum ennþá
minna hrifinn af þér en sá fyrri
var, bætti hún við.
Æ, guð minn góður, Gina,
sagði hann. Það er ekki eins og
þetta sé allt mér að kenna. Kom
ég kannski ófriðnum af stað?
Sendi ég Kato aðmírál hingað?
Hvað segirðu?
Ég sagði, að ekki hefði ég
komið ófriðnum af stað....
Það var ekki það. Hvað hét
þessi aðmíráll?
Kato. Hversvegna spyrðu?
Ég þekki hann. Ég hitti hann
í Japan. Hann var höfuðsmaður
þá, en það hlýtur að vera sá
sami. Hann var vinur Ishiis.
Já, Ishii segist þekkja hann.
Þá er það hann! æpti hún.
Hann reyndi að láta vel að mér
og ég gaf honum á hann, sagði
hún hlæjandi, en Vicente stundi.
En mér er ekki grunlaust um,
að hann mundi leggja í þá hættu
að fá annað kjaftshögg.
Seinna um nóttina, þegar Vic-
ente lá sofandi við hliðina á
Ginu rétti hún út höndina eftir
vindlingi. Hún gat ekki sofnað.
Hún hafði bylt sér á allar hliðar,
tímunum saman en hún varð að
horfast í augu við þetta, sem
hafði gripið hana heljartökum.
Hún vissi vel, að Vicente gat
aldrei orðið fyrirmaður þarna á
eynni, af því að hann átti það
ekki til. Hann hafði haft allt,
sem hann vildi hendinni til rétta,
en honum hafði mistekizt að
grípa gæsina meðan hún gafst
og hafði þannig hrapað niður í
það að vera þý og snýkjudýr.
Hún vissi vel, að bráðum mundi
hann engu fá framgengt, jafnvel
við hina lægri foringja Japana
og hinir æðstu mundu ekki einu
sinn kannast við nafnið hans.
Hún mundi löngu nóttina áður
en barnið var tekið frá henni, að
þá hafði hún ákveðið að seilast
eftir völdunum og halda þeim
siðan. Hún hafði ákvarðað að
grípa og halda öllu þvi, sem
Vicente og Blas höfðu þá verið
að veifa framan í hana. Hún
skyldi vera samvizkulaus og
kæra sig kollótta um verðið sém
hún yrði að kaupa völdin. Nú
beið tækifærið hennar og nú
mátti hún ekki hika.
Vicente! sagði hún og hann
hrökk samstundis upp. Hafði
hann kannske alltaf verið vak-
andi? Hafði hann kannske Hka
verið að reikna út, hvað vinátta
Ginu við aðmírálinn gæti gefið
í aðra hönd? Vicente, sagði hún.
Ég vil, að þú bjóðir Kato aðmírál
til kvöldverðar hingað.
Geturðu ekki sleppt því, Gina?
Nei, ég vil, að þú bjóðir hon-
um.
Þögn. Loksins tók Vicente til
máls og röddin var þreytuleg.
Jæja, ef þú heimtar það and-
varpaði hann og greip utan um
konuna sína og hélt henni fast í
faðmi sér.
XXVII.
Gina lagði mikla vinnu í að
undirbúa veizluna fyrir aðmírál-
inn. Ekkí mátti hún vera óhóf-
lega íburðarmikil, því að þá gat
hann ásakað þau um eyðslusemi.
Vicente hafði sagt, að hann væri
strangur, Að vísu mundi hún
ekki eftir honum þannig, en
hann gat hafa breytzt. En mat-
urinn varð nú samt að vera góð-
ur, svo að hann hefði einhverja
ánægju af honum. Hún ákvað að
hafa þetta máltíð blandaða sam-
an af japönsku og Filipseyja
mataræði, og Ishii leitaði fyrir
hana í borginni að viðeigandi
fæðutegundum og gaf henni
nokkrar flöskur af saki af einka-
birgðum sínum.
Eins varð hún að vera hóflega
klædd — girnilega en þó ekki
of áberandi.
Hún var nú tilbúin þegar bíll
aðmírálsins staðnæmdist við
dyrnar hjá henni. Aðmírállinn
kom inn og Vicente rétt á eftir
honum. Gina gekk fram með út-
rétta hönd, og Vicente ætlaði að
fara að kynna þau, rétt eins og
þau hefðu aldrei sézt fyrr, en
hún eyddi því.
Ég vonaði alltaf, að við ættum
eftir að sjást aftur, aðmíráll,
sagði hún.
Ég vissi, *ð við mundum gera
það, frú.
Voruð þér viss um það?
Alveg hárviss. Hann leit fast á
hana, rétt eins og til að gefa
henni í skyn, að innrásin hefði
verið áformuð, aðeins til þess,
að hann gæti hitt hana aftur.
Þetta var bjánaleg hugdetta
hennar, en henni þótti vænt um
hana samt.
En þá höfðuð þér betri að-
stöðu, sagði hún. Þér vissuð,
hvað Japanirnir ætluðu sér, en
ég ekki.
Ja, svo, jánkaði hann. Vicente
var sá eini, sem var alveg blind-
ur á hugsanirnar, sem milli
þeirra fóru.
Kato aðmíráll slengdi sér nið-
ur í stól úti fyrir garðdyrunum,
eins og hann væri úrvinda af
þreytu. Gina var önnum kafinn
að skipa stúlkunni, sem bar þeim
vínið, og Vicente gat ekki látið
sér detta neitt í hug til að segja
við þennan mikla mann, sem nú
var gestur á heimili hans. Hann
óttaðist, að ef hann segði nokkuð
yrði það eitthvað seinheppilegt.
Hann mundi, hvemig aðmíráll-
inn hafði úthúðað foringjum,
sem þágu jafnvel lítilfjörlegar
mútur og hann mundi hvernig
hann hafði rúið Don Alfonso,
hampkónginn, inn að skyrtunni
fyrir að skjóta ágóða undan.
Maðurinn var ómennskur. En svo
lá auk þess eitthvað í loftinu
núna, sem Vicente skildi alls
ekki, eitthvað, sem nagaði með-
vitund hans, en vildi ekki koma
fram í dagsljósið. Honum fannst
hann vera gestur og framandi
í sínu eigin húsi.
Aðmírállinn horfði út yfir lága
steinvegginn yfir dalinn fyrir
neðan með þunna þokuslæðingn-
um yfir og mörgu blikandi ljós-
unum. Þetta er eins og demantar
í svörtu flaueli, sagði hann.
Gina sneri sér frá þjónustu-
stúlkunni, sem var hversdags-
lega fær í starfi sínu, en skalf
nú á beinunum af návist Japan-
anna. Finnst yður það fara vel
saman,, aðmiráll? spurði hún
léttilega.
Mjög svo, frú.
Það ætla ég að muna, sagði
Gina og Vicente hrökk við. Hélt
hún kannske, að hann ætti eftir
að koma aftur?
Saki! sagði aðmírállinn glað-
lega og saup á glasinu. Og það
— Þér verðið að hafa konuna mína hjá yður í sjúkrahúsinu
þar til hún hefur náð sér fullkomlega. Það skiptir ekki máli
hvað sjúkravistin kostar.
>f * *
GEISLI GEIMFARI
•'f >f- >f
— Getur John enn verið í rann-
sóknarstofunni? Getur hann hafa
sett skipiö í sjálfstýringu.... og
látið mig fara erindisleysu?
Skyndilega heyrist rödd Láru í
talstöðinni....
— Vandal, þetta er Lára. Heyr-
irðu til mín.... ? John kallaði í ör-
yggiseftirlitið. Geisli geimfari er
hjá honum núna. Gallinn á dura-
billíum hlýtur að koma í ljós! Við
erum glötuð! j
svona ágætis saki. Svo teygði
hann úr sér og lét fara vel um
sig í stólnum. Þér eruð dásamleg
húsmóðir, frú, því að þér látið
manni finnast, að maður sé
heima hjá sér.
Það væri mér ánægja, ef yður
gæti fundizt Klettahúsið vera
yðar annað heimili, sagði Gina.
Þetta hús gætj veitt mér allt,
sem ég hef heima, sagði aðmíráll-
inn lágt. Allt! Og orðin urðu
ekki misskilin.
Nú varð afbrýðisemin varkárn
inni yfirsterkari hjá Vicente.
Kannske hr. Kato vildi vera
gestur okkar um hrið, sagði
hann, og enda þótt orðin kæmu
kæruleysislega, sauð reiðin svo
niðri í honum, að hann hækkaði
róminn ósjálfrátt og orðin urðu
líkust hótun.
Konan min tekur það sem
sjálfsagðan hlut, að ég sé að
'heiman. Aðmírállinn festi augun
á Vicente, eins og hann væri lít-
ill strákur, sem hefði brotið ein-
hvern skrautgrip. Það er hlut-
skipti konunnar minnar.
En þótt lítið væri, nægði það
til þess, að stemningin var farin
út um þúfur og lagaðist ekki
einu sinni, þegar aðmírállinn
bauð Ginu arminn til að leiða
hana til borðs. Vicente lallaði á
eftir og sá greinilega reiðina I
augum konu sinnar.
Gina hafði ákveðið að nota
ekki viðhafnar-borðstofuna, svo
að lagt var á borð úti á garð-
þrepinu. Hún notaði japanska
postulínið sitt, bezta silfrið og
mörg kerti, svo að þegar þau
SHtltvarpiö
Föstudagrur 4. mal.
8.00 Morgunútvarp (Ðæn. — Morgu*
leikfimi. — 8.1« Tónleikar. —
8.30 Fréttir. — 8 35 Tónleikaí
— 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —■
12.25 Fréttir og tiikynningarK
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
13.25 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tlMe.
— Tónleikar. — 14.30 Veður-
fregnir — Tónleikar. — 17.00
Fréttir. — Endurtekið tónlistar-
efni).
18.30 Þingfréttir — 18.48 Tiikynningar,
— 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Daglegt mál (Bjarnl Einarsson
cand. mag).
20.05 Efst á baugi (Tómas Karlsaon).
20.35 Frægir söngvarar; XXII: Laurial
Melchior syngur,
21.00 Ljóðaþáttur: Hjörtur Pálsson stu<|
mag. les kvæði eftir Stephan G.
Stephansson.
21.10 Tvö tónverk eftir Luigi Boco-
herini (Boccherini kvintettinn
leikur):
a) Largo eantabile f D-dúr.
b) Kvintett í d-moll op. 25 nr. 1.
21.30 Útvarpssagan: „Sagan um Óla<
•— Árið 1914“ eftir Eyvind John-
son; X. (Árni Gunnarsson fil,
kand).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Erindi: Deildastarf Slysavama-
félags íslands (Garðar Viborg
erindreki).
22.30 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tónlist.
a) Licia Albanese syngur ópæru-
^aríur.
a) Capitol sinfóníuhljómsveiitin
leikur vinsæl lög; Carmen Drag-
on stjórnar.
23.10 Dagskrárlok.
Laugardagur 5. maí.
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Morgun
leikfimi. — 8.15 Tónleikar. —.
8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleiikar
— 10.10 Veðurfregnir).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12.25 Fréttir og tiikynningar).
12.56 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sig-
urjónsdóttir).
14.30 Laugardagslögin. — 15.00 Fréttir.
16.20 Skákþáttur (Guðmundur Am-
laugsson).
16.00 Bridgeþáttur (Stefán Guðjohn-
sen).
16.30 Veðurfr. — Tónleikar: Rawicz og
Landauer leika á tvö píanó með
Mantovani-hljómsveitinni.
17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyraí
Gunnar H. Blöndal bankafulltrúl
velur sér hljómplötur.
17.40 Vikan framundan: Kynning á
dagskrárefni útvarpsins.
18.00 Söngvar í léttum tón.
18.30 Tómstundaþáttur barna og ungl-
inga (Jón Pálsson).
18.56 Tilkynningar. «— 19.20 Veður-
fregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Upplestur: Ljóð eftir Kjartan J.
Gíslason frá Mosfelli (Rósa B.
Blöndals).
20.15 „Hensi Ottós og ég“: Guðmund-
ur Jónsson spjallar við Hendrik
Ottósson um músíklífið i Reykj*
vík á árunum áður.
21.00 Leikrit: „Andrés og hivalurinn**
eftir Gunnar Falkás, i þýðingu
Bjarna Benediktssonar. — Leik-
stjóri: Balvin Halldónsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög. —- 24.00 Dagskrárlok.