Morgunblaðið - 17.05.1962, Side 17
MOPGVNBL AÐIÐ
17
Fimmtudagur 17. maí 1962
m i
Hinn nýi skíöaskáli ÍR í Hamragiii við Kolviðarhól.
— /Jb róttamannvirki
Frh. af bls. 8.
jc Vegleg sundlaug
í Vesturbænum
f nóvember sl. var Sund-
laug Vesturbaejar vígð, en á
síðasta kjörtímabili var varið
til byggingar hennar 9,1 millj.
kr. Er sundlaugin hið feg-
ursta mannvirki og umhverfi
rennar allt mjög fallegt, og
hefur aðstaða sundiðkenda í
borginni batnað mjög með til-
kömu hennar. Stærð laugar-
innar er 25 x 12 m, en út frá
aðallauginni er bogmynduð
vaðlaug, um 200 fermetrar að
stæ-rð, ætluð börnum. f>á er
i byggingunni komið fyrir
gufubaðstofu og hvíldarber-
bergjum, en síðar verða byggð
ir þar staerri búningsklefar.
Vesturbæingar hafa frá upp-
hafi sýnt mikinn áhuga á bygg
ingu Sundlaugar Vesturbæjar.
Mannvirki þetta hefur vakið
óskipta athygli allra sem
þangað hafa komið, en þar er
m. a. komið fyrir gosbrunni
og fiskasafni í forsalnum til
ánægju og yndisauka fyrir
gesti.
A Stuðningur borgarinnar
við framkvæmdir
félaganna
Fyrir nokkrum árum var
úthlutað ailstórum íþrótta-
svæðum til nokkurra íþrótta
félaganna í borginni. Svæði
þessi eru dreifð um borgina,
svo að allir unglingar borg-
arinnar eigi sem skemmst að
fara til íþróttaiðkunar. Hafa
íþróttafélögin m. a. reist fé-
lagsheimili sín á svæðum
þessum, og reka nú 6 þeirra
félagsheimili, sem öll hafa
verið reist á undanförnum
áratug. Ekkert þessara félags
heimila er alveg fullgert, en
öll hafa þau þó verið tekin
í notkun. Borgarstjórn
Reykjavíkur hefur stutt þess
ar framkvæmdir fjárhags-
lega, en borgarsjóður greiðir
30% kostnaðar við félags-
svæði, vellina og félagsheim-
ilin, og lagði fram á síðasta
kjörtímabili 1.4 millj. kr. til
þessara framkvæmda. Með
þessum stuðningi hefur
iiþróttafélögunum verið gert
'kleift að byggja ílþrótta-
velli, íþróttahús, félags
heimili, skíðaskála og skíða-
lyftur. Leikur enginn vafi á
því, að þessi félagsheimili og
sú starfsemi, sem íþróttafé-
lögin reka í sambandi við
þau, hefur orðið íþróttalífi
borgarinnar mikil lyftistöng.
Auk þessa hafa tvö íþrótta-
félög reist stór íþróttahús, og
þau hafa komið sér upp 4
grasvöllum og jafnmörgum
malarvöllum, og eru 2 malar
vellir til viðbótar þegar í
undirbúningi. Verður lögð á
það áherzla í framtíðinni, að
þau félög, sem bolmagn hafa
til að reisa eigin félagsheim-
ili, geti fengið lóðir fyrir í-
þróttasvæði sín og félags-
heimili og þau styrkt til þess
arar starfsemi.
•k Fjölga verður skíða-
lyftum
Sjö skíðaskálar eru nú
reknir á vegum íþróttafélag-
anna, en þar að auki reka
skátafélögin nokkra skála. —
Nú er þörfin því brýnust fyr
ir fleiri skíðalyftur, en sýni-
legt er, að með f jölgun þeirra
væri aðstaða mjög bætt til
skíðaiðkunar, og má telja
víst, að í kjölfar þess mundi
aukast mjög áhugi á skíða-
íþróttinni og skapaður grund
völlur fyrir verulegum fram-
förum í þessari íþróttagrein
hér á landi.
if Nýr golfvöllur
Innan 1—2 ára mun
verða tekinn í notkun nýr
golfvöllur, sem Golfklúbbur
Reykjavíkur er að koma sér
upp í Grafarlandi. Verður
hinn nýi völlur vafalaust til
þess að vekja aukinn áhuga á
þessari íþrótt. Við völlinn
verður svo byggt búningsher-
bergi og myndarlegt félags-
heimili.
íþróttanámskeið fyrir
yngstu kynslóðina.
í næstu viku hefst nám-
skei.ð í frjálsum iiþróttum,
knattspyrnu og hand'knattleik
fyrir ófélagsbundna æsku í
borginni, á aldrinum 6—11
ára, sem Reykjavíkurborg efn
ir til í samvinnu við íþrótta
bandalag Reýkjavíkur, en
borgarsjóður greiðir allan
kostnað af þessum námskeið
um. Er gert ráð fyrir, að nám
skeið þessi standi yfir fram
í miðjan júlimánuð. Á s.l. ári
var efnt til hliðstæðra nám-
skeiða í júní og júli, og var
aðsókn og árangur svo góð-
ur, að sjálfsagt þótti að halda
þessari starfsemi áfram. Er
stefnt að því að auka þe9sa
starfsemi svo, að hún geti
eftirleiðis staðið yfir alla sum
armánuðina. Má með þessu
móti vafalaust glæða mjög á
huga æskufólks á íþróttalífi,
en mest er þó um vert, að með
slíkri starfsemi má beina ungl
ingunum frá götunni og að
heilbrigðum og þroskandi við
fangsefnum.
★ Aðstaða til sjóbaða í
Nauthólsvík verður bætt.
Loks má nefna, að af
hálfu yfirvalda borgarinnar
er mikill áhugi á því að bæta
aðstöðu til sjóbaða í Nauthóls
vík, m.a. með byggingu varn
argarðs og upphitun vatnsins
í víkinni með afgangsvatni frá
hitaveitunni. Má búast við,
að undirbúningur þessara
framikvæmda muni hefjast á
næstu árum, og e.t.v. á næsta
kjörtímabili.
★ Mörg stórvirki.
Eins og af þessu yfirfiti
má sjá hefur mikið áunnizt
í íþróttamálum á sfðustu ár-
um, mörg ný stórvirki þegar
hafin og enn önnur i undir-
búningi.
Borgarfélagið hefur ekki
legið á hlut sínum í þessum
efnum, enda má segja, að hötf
uðsjónanmið þeirra, sem hér
hafa ráðið má'lum á undan-
förnum árum og nú halda um
stjórnvölinn, sé það
— að veita íþróttahreyfing
unni þá aðstoð, sem henni
er nauðsynleg á hverjum
tima og unnt er að láta
í té.
- íþróttastarfsemin
t Framh. af bls. 1
að byggingu útisundlaugar í
Laugardal, sem fullgerð
verður stærsta sundlaug hér
á landi, og opnar möguleika
til þess, að hér verði efnt til
alþjóðasundmóta. Er áreiðan
lega ekki ofmælt, þótt sagt
sé, að hún geti valdið þátta-
Bkilum í sundíþróttinni hér á
landi og skapi sundfólki okk-
ar aðstöðu til jafns við sund-
fólk annarra þjóða. Auk þess
arar laugar munu á næstu
árum verða byggðar þrjár
sundlaugar í Laugardalnum.
Það var án alls efa merk-
asti áfangi íslenzkra íþrótta-
mála á síðari árum, þegar
íþróttaleikvangurinn í Laug-
ardal var fyrst tekinn í notk
un, en hann var vígður á því
kjörtímabili, sem nú er að
Ijúka, 17. júní 1959, með fjöl
mennasta íþróttamóti, sem
nokkru sinni hefur verið efnt
til hér á landi. Þar er nú
óhorfendasvæði fyrir 13.000
manns, en þegar leikvangur-
inn verður fullbyggður
munu rúmast þar 30.000
manns.
Síðustu daga hefur verið
unnið við að steypa upp
kjallara íþróttamiðstöðvar-
innar í Laugardal, en því
verki er nú lokið. Bygging
hennar mun hafa mikla þýð-
ingu fyrir íþróttahreyfing-
uaa í heild, en þar verða
einkum skrifstofur og gisti-
húsnæði fyrir íþróttaflokka,
sem sækja íþróttamenn okk-
ar heim. Reykjavíkurborg
mun veita þeim aðilum, sem
f yrir þessari by ggingu
standa, veglegan stuðning,
og er reiknað með, að fram-
lög borgarinnar muni nema
20—30% af heildarkostnaði
hennar.
Eitt stærsta átak borgar-
innar í íþróttamálum á sl.
kjörtímabili var bygging
Sundlaugar Vesturbæjar,
sem vígð var í lok síðasta
árs. Lagði borgarsjóður 9.1
millj. kr. til þessa nytsama
og fagra mannvirkis á tíma-
bilinu.
Unnið verður að því á
næstu árum að bæta aðstöðu
til skautaiðkana frá því, sem
nú er, m. a. með því að koma
; upp vélfrystum skautasvell-
um í borginni. Mun þá ræt-
ast margra ára draumur
hinna fjölmörgu skauta-
manna borgarinnar.
Auk þess, sem borgarfélag
ið sjálft hefur ráðizt í bygg-
ingu fjölmargra og glæsi-
legra -íþróttamannvirkja, hef
ur það einnig veitt framtaki
hinna einstöku íþróttafélaga
á þessu sviði dýrmætan fjár
hagslegan stuðning. Borgar-
sjóður hefur greitt 30%
kostnaðar við félagssvæði
þeirra, íþróttavelli og fé-
lagsheimili, og lagði t. d.
fram á síðasta kjörtímabili
einu 1.4 millj. kr. til fram-
kvæmda þeirra. Þessi starf-
semi hefur haft farsæl áhrif
á íþróttalífið í borginni, og
er stefnt að því að veita
henni þann stuðning, sem
unnt er, og stuðlað verður
að því að koma upp æfinga-
svæðum í q/'Í'ut borgar-
hverfum.
Það, sem hér að framan
hefur verið nefnt, eru að-
eins nokkur hinna stærstu
verkefna á sviði íþróttamála,
sem unnið hefur verið að og
unnið er nú að. Fjölmargt er
ótalið, eins og t. d. að stefnt
er að því að hefja undirbún-
ing að gerð malarvallar í
Laugardal og halda íþrótta-
vellinum á Melunum vel við,
þar til hinn nýi völlur verð-
ur fullgerður; einnig, að
stefnt mun að því á næstu
árum að bæta aðstöðu til sjó
baða í Nauthólsvík, m. a.
með byggingu varnargarðs
og upphitun vatnsins í vík-
inni með afgangsvatni frá
hitaveitunni.
Ekki má heldur gleyma
því, að það er fleira en hin-
ar verklegu framkvæmdir
einar, sem máli skipta. í
næstu viku mun hefjast í-
þróttanámskeið fyrir börn og
unglinga á aldrinum 6—11
ára, sem Reykjavíkurborg
gengst fyrir í samvinnu við
íþróttabandalag Reykjavík-
ur. Þessi námskeið munu
standa fram í miðjan júlí
og verða með svipuðu sniði
og á sl. sumri.
Árangurinn af þeim nám-
skeiðum var svo góður,
að sjálfsagt þótti að halda
þessari starfsemi áfram og
auka hana, og er stefnt að
því, að þessi námskeið geti
staðið -yfir alla sumarmán-
uðina í framtíðinni. Með
þessu er vakinn áhugi æsku
borgarinnar á íþróttalífi,
henni beint af götunum og
að heilbrigðum viðfangsefn-
um.
Námsmeyjar Húsmæðra- þeirra að bregrða sér á dans dansleikinn. Hér sjást nokkr
skóla Reykjavikur héldu ný leik — gömlu dansana — í ar þeirra, þegar þær tóku
lega peysufatadag sinn. Á Þórskaffi. Meyjarnar settu lagið með hljómsveit Guð-
þeim degi er orðin venja að sjálfsögðu svip sinn á mundar Ingólfssonar.