Morgunblaðið - 30.05.1962, Síða 14
W
Huglheilar þakkir tii þeirra, sem glöddu mig á 70 ára
afmæli minu 18 maí s.i. með heimsó.knum, gjöfum, heilla-
skeytum og blómum. — Lifið heil
Jóel Jónasson, Ljósheimum 10
Innilegt hjartans þakklæti til allra, sem 'heimsóttu mig
á 70 ára afmæUsdaginn. Hjartans þakklæti fyrir allar
gjafirnar, blómin og skeytin, — Guð blessi ykkur öll.
Hjörleifur Ólafsson.
I ÞórBur Einarsson
Kvennaskólastúlkur
*nunið kvöldfagnað Nemendasambandsins í Klúibbnum
í kvöld kl. 19,30. Allir árgangar velkomnir.
Stjórnin
Nýkomið
Italskir sumarskór
frá „Lombardi“
. . ~ Engir eins
^ l! I J Lönguhlíð
ÖLarcÁss
______milli Miklabrautar og Barmahlíðar
Spónaplötur
nýkomið 16, 18 og 22 mm
Húsasmiðfan
Súðarvogi 3
Timburverzlun — Trésmiðja — Byggingavörur
Faðir okkar
EINAH MAGNÚSSON
frá Glerárshögum,
andaðist að reimili sínu Meðallholti 11 þann 28. þ. m.
Guðbjörg Einarsdóttir, Magnús Einarsson.
Útför móður okkar
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
fer fram föstudaginn 1. júni og hefst með húskveðju að
heimili hennar. Torfastöðum, Fljótshiíð kl 2 eJh. — Jarð-
sett verður að Breiðabólstað.
Fyrir hönd vandamanna.
Ingibjörg Jónsdóttir, Guðjón Jónsson.
JÓN JÓNSSON
frá Flatey, fyrrverandi kennari,
ándaðist 19. maí. Úfcförin er afstaðin. hökkum sýnda
samúð. Þökkum einnig hjúkrunarfólki á Sólvangi hlýja
umönnun í veikíndum hans.
Ingibjörg Snorradóttir og aðrir vandamenn.
Útför mannsins míns
GÍSLA INGVARS HANNESSONAR
bónda á Skipum, Sfcokkseyri,
fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 2. júní. —
Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hins látna kl. 1 e.h.
Bílferð frá Bifreiðastöð íslands kl. 10 f.h.
Guðfinna Guðmundsdóttir
ÞÓRÐUR Einarsson bökhaldari,
er andaðist 21. þessa mánaðar,
verður jarðsettur í dag. Þórður
var fæddur 12. janúar 1881 að
Nýlendu í Garði, en foreldrar
hans voru hjónin Sesselja Sig-
mundsdóttir, fædd og uppalin
að Reyni í Mýrdal, og Einar
Matthíasson frá Hofi í Garði.
Fæðingarvetur Þórðar var
mjög kaldur hérlendis, svo sem
oft var um þetta árabil. Kom
það mjög hart niður á lands-
fólki öllu, ekki sízt úti við
sjávarsíðuna, en þar voru húsa-
kynni víða mjög léleg og upp-
hitun húsa nær óþekkt. Minn-
ist ég þess, að oft talaði Þórður
um það, að móðir sín hefði haft
hvað mestar áhyggjur af því, er
hún lá á sæng, hvort hún
mundi geta varið nýfæddan
sveininn kali. Fraus þá allt
úti sem inni og sængurfötin af
skornum skammti. Þórður var
aðeins á 7. aldursári, er hann
kom fyrst á sjó með föður sín-
um. Kröfur voru þá almennt
gerðar til barna og unglinga um
að rétta fram hjálparhönd, ef
létta mætti hina hörðu lífsbar-
áttu foreldranna. Þetta var oft
harður skóli, en hann var raun-
hæfur. Ætíð minntist Þórður
foreldra sinna með virðingu og
ástúð, þótt hann lifði stundum
við harðan kost. Sjálfur tók
hann þátt í baráttu lífsins strax
og kraftar hans leyfðu, og voru
það fyrstu morgungeislarnir í
lífi hans, er hann varð fær um
að leggja foreldrum sínum eitt-
hvert lið.
Þórður fann fljótt til þess, að
hann vantaði þekkingu, meiri
en þá, er almennt var að hafa
úr barnaskóla. Innritaðist hann
því í Flensborgarskölann í
Hafnarfirði haustið 1898. Eftir
námið i Flensborgarskóla var
Þórður mest í Keflavík. Stund-
aði hann þar sjóinn fyrst í stað.
Síðari hluta vetrar og á vorin
kom oft fyrir, að enskir „troll-
arar“ komu inn á höfnina í
Keflavík og vildu skipstjórar
selja fisk við vægu verði. í þá
daga hirtu Englendingar aðeins
flatfisk, og var hér því um að
tefla góð föng til bjargar lé-
legri vertíð Suðurnesjamanna.
Fylltu vertíðarmenn oft báta
sína með enskum togarafiski og
guldu fyrir í áfengi, vanalega
tvær til þrjár flöskur af
Whisky fyrir farminn. Yfirleitt
var Þórður Einarsson túlkur
fyrir formann sinn í þessum
ferðum, og minntist hann oft á
þessa kaupsýslu með ánægju.
Árið 1905 kvæntist Þórður
heitmey sinni Solveigu Bjarna-
dóttur, hinni ágætustu konu, og
bjuggu þau saman í 37 ár. Ári
síðar fluttust þau hjón til Hafn-
arfjarðar og stundaði Þórður
þar ýmis störf við höfnina á-
samt sjómennsku. En um haust-
ið 1907 tók hann við vélgæzlu
í ljósastöð Reykdals, er þá var
fyrst tekin í notkun. Vann
Þórður óslitið við þetta til
haustsins 1914, er hann gekk í
þjónustu enska fiskveiðifélags-
ins Bookless Bros. Síðar réðist
Elsku litli drengurinn okkar
S V E R R I R
lézt á barnadeild Lamdspítalans 25' maí. — Jarðarförin
hefur farið fram. — Þökkum innilega auðsýnda samúð.
Sólborg Marinósdóttir, Rúdolf Ásgeirsson.
Ráðskona
óskast að vistheimilinu að Elliðavatni
nú þegar. — Uppl. í síma 3-30-27
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur
íbúðarhœð
við Coðheima
Til sölu er 3ja hæð rússins nr. 14 við Goðheima.
fbúðin er 4 herb. og eld'hús alls 108 ferm. að stærð.
Sér hiti og vtöfalt gier að mestu. Sfcofa. gangur og Hall
teppalagt. Harðviðarhurðir. Svaiir. Failegt útsýnL —
Húsið fullgert að utan. Góð lán til langs fcíma fygja.
Til sýnis í dag frá kl. 6—8 síðdegis. Verðtillboð ásamt
greiðsluskilmálum óskast sent til undirritaðs fyrir kl.
12 á hádegi laugardaginn 2. júní.
Ausiurstræti 20 . Sfmi 19545
Þeir innflytjendur
sem óska að selja Reykjavikurborg strætisvagna með
eða án yfirbjggingar eru beðnir að senda oss upplýs-
ingar um tegundir og verð sem fyrst.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar
Húsnæði
Til leigu strax 60 ferm. húsnæði við Laugaveginn fyrir
léttan iðnað eða geymslu. — Tilboð merkt „Húsnæði
—4604“, sendist afgr. MbL
hann til annars félags, Hellyer
Bros. og vann þar um árabil.
Þessi ensku fiskveiðifélög voru
bæði stór þáttur í lífi Hafnfirð-
inga um þessar mundir og
höfðu mikil mannaforráð. For-
ráðamennirnir vissu vel að
vanda þurfti val þeirra manna,
er höfðu aðalstjórn á höndum,
bæði 1 skrifstofum og þó ekki
síður í þurrkunarstöðvunum,
þar sem tugir karla og kvenna
unnu. Það var því engin til-
viljun, að þessir framtaksmenn
réðu til sín Þórð Einarsson, og
hjá þeim vann hann um langan
tíma sem skrifstofumaður,
gjaldkeri eða bókhaldari og
framkvæmdastjóri í frávikum
eigendanna. Þetta sýndi ljós-
lega, hversu rétt þeir mátu
fjölhæfni Þórðar til starfa.
Á Hörðuvöllum, þar sem þau
Solveig og Þórður bjuggu
lengst í Hafnarfirði, var oft
langur vinnudagur hjá þeim
hjónum. Árvekni og dugnaður
var þeim hjónum jafnt í blóð
borið. Húsbóndinn alltaf vak-
andi yfir velferð heimilisins og
húsmóðirin önnum kafin með
sinn stóra barnahóp. Þau hjón-
in eignuðust tólf börn. Af þeim
eru átta á lífi, og eru þau öll
góðir og nýtir borgarar og hafa
getið sér góðan orðstír bæði
hér heima og erlendis.
Þótt efni væru ekki mikil að
Hörðuvöllum, voru þau hjónin
ávallt veitandi og þótti mörgum
þangað gott að koma.
Solveig, kona Þórðar, andað-
ist'hér í Reykjavík árið 1942.
Það sama ár réðist Þórður til
starfa hjá Kassagerð Reykja-
víkur og gegndi þar skrifstofu-
störfum allt til ársins 1957.
Árið 1949 kvæntist Þórður
æskuvinkonu sinni Margréti
Þorsteinsdóttur og lifir hún
mann sinn.
í þessi nærfellt 13 ár, er þau
hafa búið saman, Þórður og
Margrét, hefur heimili og sam-
búð þessara öldruðu heiðurs-
hjóna verið til sérstakrar fyrir-
myndar. Ástúð, fórnfýsi og
göfuglyndi hefur verið þeirra
aðalsmerki og skipað öndvegis-
sess á heimili þeirra.
Þórður Einarsson var maður
fremur lágvaxinn, en hann var
léttur í spori og léttur í lund.
Ég kynntist Þórði fyrst, er
hann kom til starfa í Kassa-
gerðina. Fyrir allan þann tíma,
er hann starfaði þar, vil ég
færa honum kærar þakkir,
þakka honum gott samstarf og
afkastamikinn vinnudag. 1 ná-
vist Þórðar var gott að vera,
lund hans ávallt létt og hlátur'
hans sérstæður og smitandi, því
að græzkulaus var hann ætíð.
Þórður var ljóðelskur og hag-
yrtur og einkar fljótur að kasta
fram stöku.
Við kveðjum Þórð Einarsson
hinztu kveðju í maí. Hann sagði
oft: „Maí er minn hættumánuð-
ur, og þegar ég fell frá, verður
það í maí“.
Eiginkonu, börnum og öðrum
ástvinum Þórðar sendi ég öllum
mínar fyllstu samúðarkveðjur.
Vilhjálmur Bjarnason.
Moskva, 28. maí — AP-NTB.
Rússar skutu í dag á loft nýju
gervitungli, sem fengið hefur
nafnið „Kosmos V“. Umferðar-
tími þess er rúimar 102 minútur.
Mesta fjarlægð frá jörðu er 1600
km en miimsta um 200 km.