Morgunblaðið - 19.06.1962, Side 1
vill halda
áfram bar-
áttu
Serkneska útlaga-
stjórnin á Öndverðum
meiði við bráðbirgða
stjómina
Algeirsborg, Oran, 18. júní.
— (AP-NTB) —
1 G Æ R tilkynnti Chawki
Mostefai, fulltrúi alsírsku
útlagastjórnarinnar í alsírsku
bráðabirgðastjórninni, að tek
izt hefði samkomulag með
fulltrúum OAS-hreyfingar-
innar og ráðherrum hráða-
birgðastjórnarinnar, um að
veita OAS-mönnum grið, eft-
ir að Alsír hefði öðlazt sjálf-
stæði, gegn því, að þeir
legðu nú þegar niður vopn
og hættu við gereyðingar-
stcfnu sína.
Klofnir í afstððu sinni til vopnahlésins
flAS ■ Hran
INiý viðhorf
í Alsír
SAMKOMULAQ Serkja og
OAS og hin nýju viðhorf íi
Alsír eins og þau voru síð-
degis í gær eru reifuð á
bls. 10; þar eru einnig birtar
myndir frá Alsír.
Tilkynningin kom mjög á
óvart, þar eð forráðamenn
Serkja höfðu áður lýst því
yfir, að OAS-menn yrðu að
sæta ábyrgð gerða sinna, og
þeim yrði ekki, frekar en öðr
um Evrópumönnum í Alsír,
veitt nein réttindi umfram
það, sem kveðið er á um í
Evian-samkomulaginu.
Fares forsætisráðherra bráða
birgðastjórnarinnar hélt í
gærkvöldi útvarpsræðu, þar
sem hann endurtók fyrirheit
Mostefai, og hvatti menn til
að virða samkomulagið.
Framh. á bls. 23
Treglega gengur að
ná saman þjóð-
stjórninni
Souphanouvong dvelst í N-Vietnom
Vientiane, 18. júní. (AP-NTB)
TÖF hefur orðið á því, að þjóð-
Stjórnin I Laos, sem samkomu-
lag náðist um 12. þ. m., komi
saman. Ætlunin var, að ráð-
Jherrarnlr kæmu til Vientiane í
dag, en af því varð ekki. Soupa-
nouvong, fulltrúi Pathet Lao,
er ekki enn kominn til Vienti-
ane. Þá hefur stjórn Boun Oums
og Nosavans ekki enn skilað af
eér í hendur Savang Vatthana,
konungs. Souvanna Phouma,
foringi hlutlausra, og væntan-
legur forsætisráðherra þjóð-
Stjórnarinnar, kom hins vegar
til borgarinnar í dag, frá
Krukkusléttu, en áður hafði
hann setið ráðstefnu með Ho-
Chi-Minh, foringja kommúnista
f N-Vietnam, og Souphanou-
Vong, sem enn dvelst þar.
Ekki er ljóst, hvað tafið hef-
ur ferð Souphanouvongs frá N-
Vietnam, né hvað þeir ræddust
við, hann, Souvanna Phouma
og Ho-Chi-Minh.
Souphanouvong og Souvanna
Phouma hafa báðir mótmælt
því, er þingið í Laos (sem þeir
viðurkenna hvorugur) sam-
þykkti myndun þjóðstjórnarinn-
ar, og telja þeir, að aldrei hefði
átt að tilkynna opinberlega um
þá ákvörðun þingsins.
Nokkur uggur ríkir meðal
vestrænna stjórnmála- og sendi-
manna, um að allt sé ekki á
hreinu með afstöðu Souphanou-
vongs, og velta menn því fyrir
sér, hvað hann og foringi hlut-
lausra hafi verið að gera í
Hanoi, er þeir ræddu þar við
Framhald á bls. 23.
Frelsisþráin er of-
beldinu yfirsterkari
sagði Adenauer í V.-Berlín 17. júní
Berlin, Bonn 17. júní
— (AP).
I dag var þess minnst í V.-
Berlín og flestum öðrum borg-
um V.- Þýzkalands, að 9 ár eru
liðin frá því að a.-þýzk alþýða
IManndráp
Berlin, 18. júní — AP
Til tíðinda dró í Berlín í
dag, er hópur manna, eða um
13 talsins, hugðist flýja til
V-Berlínar, um jarðgöng.
A-þýzkir verðir sáu til
fólksins og hófu skothríð.
Þrátt fyrir það er sagt, að
tvær konur og börn hafi kom
izt vestur yfir, en í skothríð-
inni féll einn a-þýzkur landa
mæravörður. Talið var í
fyrstu, að v-þýzkir lögreglu-
menn hefðu svarað skothríð-
inni, er kúlur austanmanna
flugu yfir landanrærin. Síðar
kom þó í ljós, að svo var ekki
A-<þýzki lögreglumaðurinn,
sem lét lífið, var að aðstoða
flóttafólkið, en féll fyrir kúl-
um starfsbræðra sinna.
hins flóttafólksins.
gerði byltingu gegn kommúnista
stjórninni þar.
★ ★
Adenauer, kanzlari V.-Þýzka-
lands, kom til Berlínar í morg-
un og talaði á fjöldafundi, sem
haldinn var þar í tilefni bylt-
ingarafmælisins.
í ræðu sinni hvatti kanzlar-
inn A.-Þjóðverja til að vera
þolinmóðir og sagði; — Við vit-
um, að Þýzkaland verður ekki
sameinað í bráð. Við munum
ekki beita valdi til að ná tak-
marki okkar, framtíðin verður
okkur hliðholl, því að frelsis-
þnáin er ofbeldinu yfirsterkari,
þegar til lengdar lætur.
Willy Brandt, borgarstjóri V.-
Berlínar tók einnig til máls á
fundinum, en hann sóttu um
það bil 100 þús. manns.
Áður en fundurinn hófst ók
Adenauer til Seestrasse-kirkju-
garðsins, en þar eru grafin átta
Madrid, 18. júní — AP.
f ræðu, sem Franco, ein-
ræðisherra Spánar, hélf á
laugardag, lýsti hann því yf-
ir, að órói sá, sem gætt hefur
á Spáni að undanförnu, væri
runninn undan rifjum komm
únista. Lagði Franco mikla
áherzlu á það, að nú ríkti
hvarvetna prentfrelsi á Spáni
Gífurlegur mannfjöldi tók
þátt í hátíðahöldunum í
Reykjavík 17. júní og voru
líklega fleiri en nokkurn
tíma áður á Arnarhóli með
an barnaskemmtunin og
kvðldvakan fóru fram. —
Nánar er sagt frá hátíða-
höldunum á blaðsíðu 3.
fórnarlömb byltingarinnar. Var
kanzlarinn meðal þeirra, sem
lögðu blómsveiga á leiðin.
Þessi heimsókn Adenauers til
Berlínar er sú þriðja frá því að
kommúnistar reistu múrinn
milli borgaihlutanna í ágúst sL
Rússar
dæma 9
Gyðinga
til dauða
París, 18. júní. (NTB)
TVEIR Gyðingar hafa verið
dæmdir til dauða í Moskvu
fyrir „fjárglæfra“ og tveir
aðrir hlutu langa fangelsis-
dóma.
Alls hafa þá 9 Gyðingar
verið dæmdir til dauða fyrir
sams konar afbrot á nokkr-
um vikum, fjórir í Moskvu,
tveir í Odessa og þrír í bæn-
um Dniepropetrovsk.
Frá siðustu dauðadómun-
um er sagt 12. júní í blað-
inu Pravda Ukraina, sem er
opinbert málgagn kommún-
istaflokksins í Ukraninu.
*