Morgunblaðið - 19.06.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.06.1962, Blaðsíða 24
Fiértasímar Mbl — eftir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Inniendar fréttir: 2-24-84 17 júní ræður Sjá blaðsíðu 8 og 13. 136. tbl. — Þriðjudagfur 19. júní 1962 í HRETINU er grekk yfir út- ’ nes Norðurlands fyrir síðustu helgi leiddi rigningin til þess i að lækir og ár uxu í Ólaís- firði svo mjög að beljanidi straumur lá um götur bæjar- ins undir austurhlíðum fjall- anna. Hér sjáum við eina göt- una eins og árfarveg og vatns flaumurinn er sem stórfljót væri. Maður drukknar í Fjallsá í Úræfum ÞAÐ sviplega slys varð síð- astliðinn laugardag við brú- argerð yfir Fjallsá á Breiða- merkursandi í Öræfum, að maður féll í ána og barst í henni um kílómeters leið áður en hann náðist. Lífgun- artilraunir báru ekki árang- ur. — Fundur í kvöld EKKI náðist samkomulag um hlutaskiptingu á síldveiðum á fundi samningsaðila s.l. föstudag en sáttasemjari hefir boðað nýjan fund í kvöld kl. 20.30. Minkur við Siglufjörð SIG'LUFIR-Ðl7 18. júní. — í gær fann Ólafur Jóhannsson, lögreglu þjónn, minkagreni í landi Staðar hóls handan Siglufjarðar. Tókst honum að vinna einn yrðling, en aðrir úr fjölskyldunni sluppu. Fær Reykjavíkur- borg Viðey Vestasti og austasti Hlutinn fást Laust eftir kl. 3 á laugardag- inn voru starfsmenn við Fjallsá að taka mót utan af stöpli und- ir hinni nýju brú. Var verk þetta unnið niðri í ánni. Skyndi lega féll einn starfsmannanna, Gunnar Þorsteinsson, bóndi á Hnappavöllum í Öræfum, bróð- ir Páls Þorsteinssonar alþingis- manns, í ána. Fjallsá er talin ein með mestu vatnsföllum á landi hér eftir að kemur fram á sumar og straumþungi er þar nú orðinn mjög mdkill. Nokkra stund sást Gunnar í ánni, en hvarf svo sjónum samstarfs- manna sinna. Þegar var brugð- ið við og haldið niður með ánni, en Gunnar náðist ekki fyrr en hann hafði borizt um kílómeters leið. Á staðnum voru menn er kunnu til björg- Gunnar Þorsteinsson. unar og hófu þeir þegar lífgun- artilraunir og héldu þeim áfram, þar til læknir kom frá Horna- firði eftir 3 klukkustundir og hann síðan, en án árangurs. — Gunnar heitinn mun hafa verið um hálfa klukkustund í ánni, Hann var ekki syndur. Gunnar Þorsteinsson var 49 ára að aldri og lætur eftir sig konu og þrjú börn, elzt 17 ára, en yngst 4 ára. Eitt barna hans átti að fermast á sunnudaginn. REYKJAVÍKURBÆR hefur fyr- ir nokkru hafið umleitanir um að fá Viðey, og hefur þegar verið keyptur skiki vestan á eynni, en ekki hefur náðst neitt samkomu- Siglufjarðarskarð teppíst UM kl. 5 í fyrradag, laugardag, fengu Siglfirðingar staddir í Reykjavík þær upplýsingar hjá Vegamálastjórn, að Siglufjarðar skarð myndi opnast á miðjum degi í gær, sunnudag. Héldu Bræðslusíld- arverðið 145 kr. málið MEÐ tilvisun til laga nr. 97/1961, um Verðlagsráð sjávarútvegsins og samkvæmt úrskurði yfirnefnd ar í dag, skal verð á síld, sem veidd er á Norður- og Austur- landssvæði þ. e. frá Rit norður um að Hornafirði og fer til vinnslu í síldarverksmiðjur, á verðlagstímabilinu 10. júní til 30. septemiber 1962, vera sem hér segir: Hvert mál (150 lítrar) kr. 145,- Verðið er miðað við að síldin »é komin í löndunartæki verk- emiðjanna. Ef sild er flutt með sérstökum flutningaskipum til fjarliggjandi innlendra verksmiðja, taka sild- veiðiskipin þátt í flutningskostn- aði er nemur kr. 14,00 fyrir hvert mál síldar, er dregst frá framan- skáðu verði. Seljendur síldarinnar skili síld dnni í umhleðslu tæki móttak- anda. (Tilkynning frá Verðlagsráði sjávarútvegsins). heimildarmenn mínir á stað heimleiðis í samræmi við þær upplýsingar. Þegar á skarðið kom um miðj- an dag í gær, var vegurinn alls ófær vegna snjóa. Milli tveir og þrir tugir bifreiða biðu þess að komast yfir skarðið, en báðar ýtur vegamálastjórnarinnar voru bilaðar. Heimildarmenn mínir voru um hálfa aðra kluikkustund að ganga í snjó og ófærð þann kafla veg- arins, sem var undir fönn. Virt- ist það vera eitt til tvö dagsvenk að ryðja snjó af þeim vegi, sem vegamálastjórn hafði auglýst opinn til umferðar. Fjöldi fólks varð að koma sér fyrir á bæjum, allt frá Hofsós og út í Fljót, og beið þess að vegur- inn opnaðist. Voru ekki færri en 20—30 bílar, sem biðu Skaga- fjarðarmegin, þar af 3 stórir vöruflutningabílar. Tilkynnt var í útvarpi að veg urinn yrði fær um kl. 20 í kvöld. — Stefán. lag um kaup á mestum hluta eyjarinnar, sem er í eigu Stefáns Stephensen. Það er nokkuð útbreidd skoð- un að Viðey sé í lögsagnarum- dæmi Reykjavíkur, en svo er ekki og hefur ekki verið. Eyjan er í Seltjarnarneshreppi. Samt sem áður hafa bæjaryfirvöldin í Reykjavík leitað eftir kaupum á Viðey, eins og áður er sagt. Lítinn hluta vestast á eynni átti Guðmundur Kr. Guðmundsson og hefur hann verið keyptur. Annan lítinn hluta austast á eynni á Útvegsbankinn og er gert ráð fyrir að samningar tak- ist um söluna á honum til Reykja víkurbæjar. En um stærsta hlut- ann er óvíst, þar eð ekki hefur náðst samkomulag, er eftir kaup um hefur verið leitað. Atli ásamt móður sinni, Ingibjörgu Júlíusdóttur. (Ljósm. Mbl.: ól. K. M.) Cóð laxveiði í Viðidalsá LAXVEIÐI hófst í Víðidalsá hinn 15. þ.m. og fengust 15 laxar þegar fyrsta daginn á tvær stengur. Laxinn er vænn eða frá 8—14 pund. Síðan hefir verið nokkur afli og alls veiðst um 30 laxar. Veiðiveður hefir verið ó- hagstætt. Pilturmn, sem slasaðist i flugslysinu kominn heim SL. laugardag var pilturinn, sem slasaðist í flugslysinu við Korpúlfsstaði 16. maí sl., útskrifaður af Landakotsspít ala eftir mánaðar legu þar, en pilturinn slasaðist mikið. Hann heitir Atli Ingvarsson, Kleppsvegi 36, 18 ára að aldri. Hefur hann að mestu náð sér eftir slysið. Fréttamaður Mbl. hitti Atla að máli á heimili hans í gær, ásamt tveimur kunn- ingjum hans. Eru þeir félag- arnir allir skátar, og unnu að því fyrir slysið að smíða canoebát fyrir landsmót skáta á Þingvöllum í sumar. Voru þeir að ræða um áfram hald á smíðinni er frétta- manninn bar að garði. Atli sagði að hann hefði að mestu náð sér eftir slysið, en þó hefði hann fyrirmæli um að reyna ekki á sig næstu þrjá mánuðina. „En eftir mánuð má ég fara í útilegur og það er aðalatrið- ið“, sagði hann. Atli sagði að hann myndi eftir því er flugvélin var að steypast til jarðar, en ekkert um sjálft slysið. Næst mundi hann eftir því er hann var að klöngrast út úr brakinu af vélinni og þegar hann var fluttur í slysavarðstof- una. Atli sagði að hann hefði ekkert á mótd því að stíga upp í flugvél aftur. Um bátinn, sem þeir félag- ar eru að smíða í Skátaheim ilinu, er það að segja að hann mun verða fullbúinn innan skamms. Ætlunin var að smíða tvo slíka báta fyr- ir landsmótið, en smíðin féll niður er Atli slasaðist. Ekki var annað að heyra á þeim félögum í gær en að nú skyldi tekið til óspilltra mál- anna váð smíðina að nýju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.