Morgunblaðið - 19.06.1962, Page 2
2
MORGVNBLAÐIÐ
ÞriSjudagur 19. júní 1962
' r f -
IMorðmenn langt norð-
austur í hafi
Siglufirði, 18. júní.
A LAUGARDAG fékk frétta-
ritari þær upplýsingar að 20
norsk síldveiðiskip lægju í
vari við Langanes og fjöldi
annarra væru á leiðinni til
landsins.
Virðast hinar góðu spár
norskra og íslenzkra síldar-
rannsóknarmanna hafa hleypt
nýjum krafti í íslandsútgerð
norskra síldveiðimanna, sem
virðast ætla að verða á und-
an þeim íslenzku a.m.k. fyrsta
áfangann. í dag fékk frétta-
ritarinn þær upplýsingar að
um 20 síldarskip hefðu kast-
að á vaðandi síld út af Kol-
beinsey og hefði fyrsta kastið
verið 1100 tunnur. — Stefán.
Jakob Jakobsson fiskifræð
ingur upplýsti í gær að í fyrri
nótt hefðu skipin fengið 200
til 400 tunnur í kasti á fyrr-
greindum slóðum.
Að því er blaðið hefir kom
ist næst eru norsku síldveiði-
skipin að veiðum 90 sjómílur
NNA-A af Kolbeinsey eða um
120 sjómílur NNA frá Rifs-
tanga.
Þorkell Grtmsson, fornleifafræðingur, og Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur, meo oor-
kjarna, sem teknir hafa verið undanfarna daga í Miðbænum, þar sem líklegt er að finn-
Ist leifar um byggð á landnámstíð.
Borað niður á land Ingólfs
Undanfarna daga hafa Þor-
kell Grímsson fornleifafræð-
ingur og Þorleifur Einarsson,
jarðfræðingur, unnið að því á
vegum Þjóðminjasafnsins og
með styrk frá borgarráði að
bora á svæði því í Miðbænum,
sem líklegt er að leifar finn-
ist um byggð Ingólfs Arnar-
sonar. Eru þetta fyrstu raun-
verulegu rannsóknimar sem
gerðar eru í þessu skyni. f
gær var búið að bora á 12
stöðum, við Tjamargötu, milli
Herkastalans og Steindórs-
prentáhússins. á auðu lóðinni
sunnan við Steindórst>rent, í
garðinum sunnan við Suður-
götu 5, í portinu sunnan við
Suðurgötu 3 og var verið að
byrja á bílastæðinu á Dillons-
hússlóðinni. Eru teknir upp
borkjarnar af jarðlögum. sem
geymdir eru, ásamt öðrum
jarðvegssýnishomum, til rann
sókna seinna.
Þorkell Grímsson hefur í vet
ur verið að búa sig undir
þetta verkefni, aðallega með
því að kynna sér skjöl um
byggS í Reykjavík. Fyrir síð-
ustu helgi var svo hafizt
handa með tveimur jarðbor-
um frá Jarðborunum ríkisins,
sem einnig lánuðu tvo menn
til starfsins. Hafa þeir Þor-
leifur og Þorkell borana fram
á næsbu helgi og hyggjast
bora sem víðast, þar sem hægt
er að komast að fyrir bygg-
ingum, og vonast jafnframt
til að geta aftur borað eitt-
hvað í haust.
Mlög gamalt lag
Þorkell tjáði blaðinu í gær,
að þegar hefðu fundizt ýmis
konar merki mannavistar á
ýmsum tímum. Er borað gegn
um möl og lausan jarðveg nið
ur á stóra steina og þétt mal-
arlag. sem er á þriggja m dýni
eða jafnvel grynnra. í sund-
inu milli Herkastalans og
Steindórsprents eru fundnar
mannvistarleifar mjög djúnt
niðri og bví sennilega frá
elztu tíð. Þar fundust einmitt
forngrÍDÍr og úrgangshaugar
frá landnámstíð. er grafið var
fvrir grunni Steindórsprent-
hússins árið 1944. Eru um 20
hlutir sem bá fundust, varð-
veittir í Þióðminjasafninu.
svo sem steinlamnar, steinlóð
af færum, járnfolað af páli o.
fl.. en eldstó, er þerna var. er
ekki til lengur. Á Náttúru-
gripasafninu eru varðveitt
dýrabein, birkikurl og jarð-
vegsleifar frá sama stað. Þor-
kell sagði í gær, að sýnishorn-
in frá borununum hefðu ekki
verið rannsökuð og vildi hann
því ekkert um þau segja á
þessu stigi málsins.
Gróðurfarið í landi Ingólfs
Þorleifur Einarsson lagði
einnig áherzlu á, að enn sem
komið er. sé þetta aðeins könn
un. En hann hefur áhuga á
að athuga gróðurfarið í landi
Ingólfs og eru ýmsar aðferðir
til að finna svo gömul gróður-
lög. T. d. má finna dýpsta
gróðurlagið, sem ekki sést í
gróðurfarsbreyting af manna
völdum. Ef öskulag finnst, má
beita öskulagaaðferð Sigurð-
ar Þórarinssonar. en öskulög
eru í mýrum á Revkj avíkur-
svæðinu, t. d. eitt frá Torfa-
jökulsvæðinu, sem fallið hef-
ur í landnámstíð og nær til
Revkjavíkur, að því er Þor-
leifur tjáði okkur. Einnig er
hugsanlegt að friókorn finn-
ist. en til að hafa gagn af
þeim má ekkert jarðrask hafa
orðið á staðnum. Tjörnin
mundi vera grundvöilurinn,
sem hægt er að nota til sam-
anburðar, því þar leggst lag
yfir lag gegnum aldirnar, og
ekkert raskast. — Þetta er að-
eins það sem hugsanlegt er,
sagði Þorleifur að lokum,
rannsóknirnar eru rétt að
byrja.
Próf við Háskóla
Islands í maí og júní
Embættispróf í guðfræði:
Bernharður Guðmundsson,
Ingólfur Guðmundsson.
Svart: Svein Johannessen, ósló
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Ingi R. Jóhannsson.
28. Bc2-d3 Dc7-a5
Embættispróf i læknisfræði:
Egill A. Jacobsen,
Guðjón Sigurbjömsson,
Halldór Halldórsson,
Inger Idsöe,
Jóhannes Bergsveinsson,
Leifur Jónsson,
Ólafur Gunnlaugsson,
Ólafur Jónsson,
Páll G. Ásmundsson,
Sverrir ó. Georgsson.
Embættispróf í lögrfæði:
Bragi Steinarsson,
Gunnar Hafsteinsson,
Heimir Hannesson,
Jóhannes J. L. Helgason,
Jón Ægir ólafsson,
Jón S. óskarsson,
Jónas A. Aðalsteinsson,
Ragnar Aðalsteinsson.
Kandídatapróf í viðskipta-
fræðum:
Björg Gunnlaugsdóttir,
Einar Sigurðsson,
Gunnar Þór Hólmsteinsson,
Oddur Sigurðsson.
Próf í íslenzku fyrir
erlenda stúdenta:
Johan H. W. Poulsen. .
B.A.-próf:
Ásdís Kristjánsdóttir,
Ásgrímur Pálsson,
Auður Gestsdóttir,
Gunnar Ásgeirsson,
Bergljót Gyða Helgadóttir,
Guttormur Sigurbjarnason,
Kristín ólafsdóttir Kaaber,
Sigríður Sveinsdóttir,
Skúli Jón Sigurðsson,
Þórarinn Andrewsson,
Þórarinn Guðmundsson.
Fyrra hluta próf í verkfræði:
Birgir Ágústsson,
Benedikt E. Guðmundsson,
Sigurður Þórðarson,
Þorbergur Þorbergsson,
Þráinn Karlsson.
íslenzk listaverk
sýnd í Þýskalandi
í DAG verður opnuð í borginni
Kiel í Vestur-Þýzkalandi sýning
á 70 íslenzkum listaverkum, graf
ik teikningum og vatnslitamynd
um eftir 17 listamenn. Sýningin
er haldin að tilhlutan „Deutsch
Umferðarslys og
ölvun við akstur
f GfflRDAG var lögreglunni i
Reykjavik tilkynnt um að bíll
væri útaf veginum við Laxá i
Kjós. Fór lögreglan á staðinn en
mennirnir i bílnum höfðu náð
foonum unp á vesinn og haldið
áfram áður en lögreglan kom.
Lögrevlan elti bílinn og náði hon
um við Botnskálann í Hvalfirði.
Tveir menn voru ? bílnum. báð-
ir töluvert ölvaðir. Bíl'inn er
eign annars beirra, en báðin eru
mennirnir frá Akranesi. Höfðu
þeir báðir ekið ölvaðir.
Þá var bíl ekið á Ijósastaur á
Mýrargötu í fvrrinótt. Mun stýr-
isútbúnaður bílsins hafa bilað.
Sex manns var í bílnum og hlaut
það nokkur meiðsli, sem gert var
að á slysavarðstofunni.
Þá var stolnum bíl ekið á hús
við Bræðrafoorgarstíg. Tyeir
menn. sem nokkru áður höfðu
stolið bílnum, meiddust í árekstr
inum og voru fluttir á slysavarð
stofuna. Bíllinn stórskemmdist.
Ausland-Gesellsdhaft", en félag
ið Germania í Reýkjavík hefur
haft veg og vanda af undirbún-
ingi hennar. Pétur Eggerz, sendl
herra íslands í Bonn opnar sýn-
inguna, og verður forseti borgar
stjórnar Reykjavíkur, frú Auður
Auðuns viðstödid opnunina.
Sýningin í Kiel er tengd við
svokallaða Kielarviku, sem eru
alþjóðleg hátíðahöld, er haldin
eru árlega þar í borg. Listaverk-
in á sýningunni verða síðar svnd
í öðrum borgum í Vestur-Þýzka-
landi m.a. í Köln. Þeir list.a-
menn, sem verk eiga á sýning-
unni er þeir: Ásgeir Bjarnbórs-
son, Ásgrímur Jónsson. Finnur
Jónsson, Guðmundur Einarsson,
Gunnlaugur Blöndal, Hafsteinn
Austmann, .Tón Engílberts. Jó-
hannes S. Kjarval, Pétur Frið-
rik. Ragnar Páll Einars«en,
Ríkfoarður Jónsson. Si°urður Sig
urðsson. Sveinn Þórarinsson og
Veturliði Gunnarsson.
Félarið Germanía hefur un^nn
farin ár haldið uoni v'ðtækU
menningarsamtstarfi við Vestur-
Þýzkaland. M.a. fi'itti mennte-
málaráðberra, dr. Gvlfi Þ. Gísia-
son erindi um íslenzk hióðfAi--v-
mál á síðastliðnu hausti í Berlíri
ov Liibeck.
Núverandi stiórn Germon'u
skina: dr. Jón E. Vesfxial, fnr-
mað"r og meðstiórnendur Lúð-
vik Siemsen stórkaupmaður. fr-'i
Þóra Timmermann. og haafr-'ð-
ínaarnir Pétur Ólafsson og Már
Elísson.
í GÆR kl. 12 var djúp lægð
vestur af Bretlandseyjum á
hreyfingu norður. — Víðast
hvar hér á landi var hæg
austlæg átt og skýjað, en
þokuloft sums staðar á NA-
landi. Með suðurströndinni
voru skúraleiðingar.
Veðurspáin kl. 10
í gærkvöldi:
SV-land og miðin: NA
kaldi, stinningskaldi á mið-
unum, smáskúrir austan til.
Faxaflói, Breiðafjörður og
miðin: NA kaldi, víða létt-
skýjað.
Vestfirðir og miðin: NA
kaldi, léttskýjað sunnan til.
Norðurland og miðin: Aust
an kaldi, úrkomulítið en
skýjað.
NA-land tdl SA-lands og
miðin: Austan og síðar NA
stinningskaldi, skýjað, dálítil
rigning 4 morgun.
Horfur á miðvikudag;
Austan og NA átt, þurrt
og bjart veður um vestan
vert landið og lítils háttar
rigning á Austur- og NA-
landi.