Morgunblaðið - 19.06.1962, Qupperneq 20
20
MORCUFBLAÐIÐ
Þriðjudagur 19. júní 1962
Alexander Fullerton 9
Guli Fordinn
gat vel lesið hugsanir hans:
hann var að hugsa, að ef hann
vaeri í mínum sporum, stæði ekk-
ert í veginum þá mundi hann
ganga hreinlega að verki og
hverki hiRa. Og það er víst bezta
lýsingin á sálarástandi hans:
hann sá ekkert nema Jane.
Hann hélt áfram að tala svona
i heilan klukkutíma eða meira,
og við drukkum meira en þessa
fyrstu flösku af víni. Ég leyfði
honum að vaða áfram, og hlust-
aði á hann án þess þó að ala
beinlínis á honum. Ég hélt, að
honum gseti létt ef hann fengi
að tala eins og hann lysti. Loks-
ins leit hann á úrið og sagðist
verða að fara, Penny færi að
lengja eftir honum. Hann stóð
upp og brosti.
Þakka þér fyrir. Bill.. Ég vissi,
að þú mundir skilja mig.
Þegar þess er gætt, að ég hafði
ekki skotið inn nema einu og
einu orði á rönd, alla þessa heilu
klukkustund og meira, og hreint
ekki sagt honum neitt til upp-
örvunar né samúðar, fannst mér
þetta óþarfa þakklæti. Líklega
hefur það verið vínið og æsing-
urinn; hann sá hlutina eins og
hann vildi, að þeir væru.
Það var orðið dimmt meðan á
þessu samtali okkar stóð. Ég léði
honum vasaljós, svo að hann
skyldi ekki detta í einhvem
skurðinn á leiðinni heim til
Penny, og hann gekk eftir stígn-
um, sem lá beint gegn um skóg-
inn, blístrandi með sjálfum sér.
Sagan um Jane — II.
Það var næsta sunnudagsmorg
un, að Steve Roberts hringdi til
mín og bauð mér upp á að fá
einn gráan hjá sér um hádegis-
bilið. Mér fannst þetta einkenni-
lega fljótt eftir boðið, sem ég
hafði verið í hjá honum, og hafði
orð á því. Hvað hef ég gert til
þess að verðskulda svona mikið
af gininu þínu? spurði ég.
Sjáðu nú til, Billy. Rómurinn
var hálfönugur. Ég hef lítinn
tíma. Þú kemur?
Gott og vel. Rétt um hádegi,
ef það hentar þér. Við sjáumst
þá. Hann hringdi af og ég fór
að láta renna í baðið. Kannske
höfðu þau fundið mér aðra „við-
eigandi“ vinkonu? Kannske
Jane....nei ég vonaði, að það
v.sri ekki Jane. Mér fannst eins
og ég hefði verið „skikkaður" en
ekki boðinn.
Ég var rétt lagztur í baðið,
þegar ég mundi, að stúlka að
nafni Helen var boðin í hádegis-
verð í kofann hjá mér. Ég átti
tvö prýðilega falleg steikarstykki
í ísskápnum og hún ætlaði að
steikja þau handa okkur. Ég fór
upp úr baðinu, skellti á mig
handklæði til að taka við mestu
dæopunum, gekk að símanum og
hringdi til Roberts. Kona Steves
kom í símann og tjáði mér, að
hann hefði farið út til að leika
nokkrar holur af golf við ein-
hvern sem hefði eitthvert lista-
safn.
Æ, hver skrattinn. Hann var
nefnilega að bjóða mér til ykkar
um hádegið....
Ég veit.
Og svo get ég ekki komið.
Þú lofaðir að koma. Ég heyrði
á rómnum, að henni fannst ég
hafa svikið þau.
Já, en ég var búinn að bjóða
öðrum í hádegisverð hjá mér, og
hafði steingleymt því. Þið verðið
að fyrirgefa mér.
Hver er það? Geturðu ekki
komið með hann með þér?
Það er hún en ekfci hann.
Stúlka, sem heitir Helen Shaw.
þið hafið víst aldrei séð hana.
Er það sú rauðhærða?
Nei, ekki sú.
Komdu bara með hana með
þér. Geturðu það ekki?
Jú, það gæti ég kannske. En
það er hætt við, að við getum
ekki verið kominn fyrr en eftir
tólf.
Komið þið bara eins fljótt og
þið getið. Er þetta góð stúlka?
Pretzel var að sleikja bera fæt
urna á mér. Mig langaði mest til
að segja frú Roberts, að Helen
væri sjö sinnum fráskilin og
væri nú að koma beint út úr
Steininum. í stað þess sagði ég:
Heldurðu, að ég byði henni ann-
ars til hádegisverðar?
Mér datt í hug, þegar ég var
að leggja frá mér símann, að
frú Roberts mundi ekki Verða
hrifin af Helen. Hún er dálítið
siðavönd, enda þótt það sé ekki
á eins andstyggilega háu stigi og
hjá Penny Carpenter, en siða-
vönd er hún samt. Það var skrít-
ið, að hún skyldi samiþykkja jafn
laglega stúlku og Jane var. En
kannske gerði hún það ekki einu
sinni, heldur hefði Steve fundið
upp á því.
Ég fór aftur niður í baðkerið.
Pretzel lagði hlykkjóttu fram-
lappirnar upp á brúnina á því og
horfði á mig með þessum stóru,
brúnu augum og stundum laut
hann fram til þes að lepja sopa
úr baðinu. Honum þótti víst
sápubragðið gott.
Helen kom skröltandi í gamla
sportsbílnum sínum, hálftíma
fyrr en ég hafði búizt við henni.
Koma hennar leysti mig frá erf-
iðum hnút í sögunni, sem ég var
að semja, og þegar ég heyrði
skröltið í bílnum varð ég heldur
betur feginn að geta lagt frá mér
örkina og skrúfað lokið á sjálf-
blekunginn. Ég ætlaði að hlaupa
út til að fagna henni, en hún
varð fljótari til og við mættumst
í dyrunum og ég kyssti hana.
Þú hefðir nú getað lokað dyr-
unum fyrst, sagði hún, og hleypti
brúnum, og ég tók eftir því, að
hún var með nýjan lit á vörun-
um. Viltu ef til vill láta allt ná-
grennið horfa á okkur? Að vísu
horfði nú enginn á okkur nema
Pretzel, en ég gerði það nú samt
fyrir hana að loka dyrunum. Ég
sagði henni, að við ætluðum að
heimsækja Robertshjónin, en við
hefðum kappnógan tíma og gæt-
um fengið okkur eitt glas fyrst.
Við gengum svo yfir til Rob-
erts og vorum komin þangað
klukkan rúmlega tólf. Dyrnar
voru opnar svo að við gengum
beint inn og fundum loks hjón-
in úti fyrir garðglugganum, þar
sem þau sátu með glös fyrir frarn
an sig. Ég kynnti Helen fyrir
þeim og frúin spurði, hvort Hel-
en væri nokkuð skyld Shaw að-
míráli, sem bjó svo sem mílu
vegar frá þeim og ræktaði
hænsni. Helen kvað nei við því
og sagðist meira að segja aldrei
hafa séð aðmírál. Var þetta góð-
ur karl? Það lá einhvernveginn
í spurningunni, að væri svo,
kynni hún að vilja bæta honum
við í safnið sitt.
Steve hellti í glös handa okk-
ur og við settumst öll niður. Þá
sendi konan allt í einu manni
sínum augnatillit, rétt eins og
hann hefði gleymt að hneppa að
sér, og hann stóð upp aftur.
Bilí... .það var dálítið, sem mig
langaði til að sýna þér.
Hann fór svo með mig í lítið
garðhús, sem hann notaði fyrir
vinnustofu, en áður en við vor-
um komnir þangað alla leið,
sagði hann við rriig:
Ég þarf að tala við þig um
hann Carpenter. Þú ert víst tals-
vert náinn kunningi hans, er það
ekki? Ég kannaðist við, að svo
væri og Steve hélt áfram. Það
var hérna um kvöldið, að hann..
sástu hann með Jane Fairley?
Jú, ég hafði séð hann. Steve opn-
aði dyrnar á vinnustofunni sinni
og hleypti mér inn á undan sér.
Hann lokaði dyrunum og sagði.
Hann hringdi mig upp fyrir
tveim dögum og bað mig að hitta
sig við hádegisverð í borginni.
Ég þurfti eitthvað að fara í þúð-
ir, hvort sem var, svo að mér
var sama þó ég slægi tvær flug-
urnar í einu höggi. En geturðu
hugsað þér, hvaða erindi hann
átti með þessu?
Ég gat vel hugsað mér það og
þurfti ekki neinar tilgátur. Ég
horfði áhugalaust á Steve og
sagði. Hvað var erindið?
Hann vildi fá hjá mér síma-
númerið hennar Jane Fairley.
Hann kom með einhvern langan
reyfara um, að Penny langaði til
að bjóða henni í tennis.
Hver veit nema það sé satt.
Láttu ekki eins og asni, Bill.
Ef svo væri myndi hún hringja
til konunnar minnar og spyrja
um númerið, í stað þess að láta
það kosta manninn sinn fínan
hádegisverð, með ostrum og til-
heyrandi!
Nú, fékkstu ostrur?
Steve horfði á mig þegjandi,
andartak. Síðan brosti hann með
þolinmæðisvip. Ég get alveg séð,
hvað þú ert að hugsa, Bill. Þú
ert vinur Teds og ég er að stinga
nefinu í einkamál hans. En ef þú
ert raunverulegúr vinur hans,
skaltu vera okkar megin og gera
þitt ítrasta til að koma í veg
fyrir þetta.... þetta....
Er það nokkuð orðið ennþá?
Ekki það ég veit. En þetta er
hættulegt og við höfum áhyggjur
af því, hjónin. Þó ekki sé annað,
þá urðum við til þess að kynna
þau og berum því einskonar á-
byrgð að okkur finnst.
Svo konan þín veit um þetta
líka?
Já, og hún er óróleg vegna
Penny. Ef hún kæmist að
þessu..!
Já, ég gæti víst farið nærri
um, hvernig það yrði, sagði ég
og kinkaði kolli. Steve horfði
fast á mig. Penny er indælis
kona!
Ég hugsaði: Nú ertu ekki að
tala sjálfur, karl minn, heldur
konan þín. Hún hefur þig bara í
skítverkunum. Þar fyrir mót-
mælti ég ekki þessum orðum
hennar. Það var sjálfsagt rétt, að
Penny væri ágætis manneskja.
Ég kunni svo sem ekkert illa við
hana, en lofaði bara guð fyrir að
vera ekki giftur henni.
Hvað getum við gert við
þessu? spurði ég loksins.
Hann hristi höfuðið. Veslings
maðurinn, hann var álíka ráða-
laus og ég — hann var að fram-
kvæma skipanir, án allrar sarm-
færingar. Hann sagði: Ekkert,
fyrst um sinn. Við vildum bara
vita, hvort þú gerðir þér líka
ljósa hættuna, sem af þessu get-
ur stafað, og hvort við gætum
treyst á þína hjálp, ef til kæmi..
Jæja, við skulum koma inn aft-
ur.
Á leiðinni yfir grasblettinn,
sagði hann. Ef við verðum hepp-
in, gufar þetta upp af sjálfu sér.
Ef hann sér hana ekki dálítinn
tíma, held ég að hann kólni fljót-
lega aftur og gleymi öllu saman.
Kann að vera, sagði ég, en ég
hafði nú sjálfur enga trú á því,
að Ted léti nokkurn hlut gufa
upp af sjálfu sér. Hann hafði
lagt í þá hættu að fara að orða
þetta við Steve og ekki haft ann-
að upp úr því en opinbera, að
hann væri skotinn í stúlkunni.
Því að það var alveg gefið, að
kona Steves mundi blanda fleira
fólki inn í málið en mér einum.
Hún mundi hafa ánægju af að
vera miðdepillinn í þesum ástar-
leik. Ég varð hissa á Steve, því
að hann mátti vita það fyrir-
fram, að hann hefði ekkert upp
úr þessu samtali við mig. Hann
hefði átt að láta eins og vind um
eyrun þjóta og lofa konunni
sinni að sjá um allt. Það var svo
bersýnilegt, að þarna áttu að-
skotadýr ekkert erindi — það
voru Ted og stúlkan, sem ein
gátu leitt þetta til lykta.
Aðalvitleysan hjá Steve var
fyrst og fremst sú að fara nokk-
uð að nefna þetta við konuna
sína. Hvað sem öllu leið, hafði
Ted gert hann að trúnaðarmanni
sínum. Það hefði verið betra fyr
ir alla, ef hann héfði látið sér
nægja að gefa Ted þessa bend-
ingu urn upplýsingastofurnar.
Ekki svo að skilja, að Ted
yrði lengi að finna hana. Svo
sem tíu dögum eftir þessa hádeg-
isheimsókn mína hjá Röberts-
hjónunum, fór ég með Helen í
kvikmyndahús á Sjótanga. Við
fórum snemma, af því að á eftir
ætluðum við út að dansa í Sim-
onstown.
Við vorum að ganga út af sýn-
ingunni og skrafa um myndina,
sem við höfðum séð, en það
fyrsta sem við sáum þegar út
kom, var Ted og Jane Fairley.
Þau hlutu að hafa farið út á und
an okkur, því að þau voru nokkr
um skrefum framar, á leið að
bílnum hans. Svo stigu þau inn í
hann og óku af stað án þess að
sjá okkur. Helen hafði ekki séð
þau og ef til vill heldur ekki
þekkt þau, þótt svo hefði verið,
þar sem hún hafði ekki hitt Ted
nema einu sinni áður. Ég sagði
ekki neitt. En á þessari hálfri
annarri mínútu, eða hvað það
nú var lengi, sem ég horfði á
þau, hafði ég séð tvær hamingju
sömustu manneskjur, sem ég
hafði nokkru sinni augum litið.
Og ekki aðeins hamingjusöm,
heldur skein það einhvernveg-
inn út úr þeim að þau vissu full
vel, hvað þau voru að gera og
nytu þess út í æsar. Jafnvel hver
bláókunnugur maður á götunni,
hefði getað séð, að þau voru ást-
fangin.
Ég sagði Ted, að ég hefði séð
þau. Ég gerði það af ásettu ráði,
til þess að hræða hann, og vara
hann við því, að í borg á stærð
við Höfðaborg, gat enginn maður
farið huldu höfði lengur en fimm
mínútur. Ég hefði getað sagt hon
um þetta fyrr, því að sjálfur
hafði ég komizt að því nokkru
áður.
Hann hafði rekizt inn til mín
eins og svo oft endranær — en
hafði þó í þetta sinn ekki komið
í heila viku — til þess að drekka
eitt glas af víni og skrafa við
mig. Ég hellti í glösin og sagði
síðan, til þess að koma honum á
óvart: Var gaman á bíóinu um
daginn? Já, úti á Sjótanga.
Hann hnykkti höfðinu eins og
honum yrði hverft við. Svo
brosti hann. Já, mér fannst það
ágætt, þakka þér fyrir.
Það var allt og sumt. Hvorug
ur okkar nefndi Jane á nafn.
Við töluðum um daginn og veg-
inn, en það var sama sem að tala
mest um bækur, og ég sagði hon
um, að ég ætlaði að verða fjar-
verandi nokkra daga kring um
næstu helgi. Vinir mínir, sem
voru að opna nýtt gistihús við
Knysna höfðu boðið mér til
hátíðahaldanna í sambandi við
það, og ég hlakkaði til loftslags-
'breytingarinnar og þeirrar ný-
lundu að vera gestur hóteleig-
enda. Við skröíuðum um þetóa
fram og aftur, dukkum eitt glas
til, en þá leit Ted á úrið sitt —
eins og hann var vanur, en bara
fyrr en venjulega — og sagðist
verða að fara heim.
Ég skemmti mér prýðilega
þessa fjóra daga, sem ég var í
ferðinni. Veðrið var dásamlegt,
og hótelið upp á það fínasta, eins
og þau eru venjulega fyrst eftir
að nýr eigandi tekur við þeim,
og mjög þægilegt og að því er
virtist undir góðri stjórn. Þar
var dansað — og var meira að
segja kallað dansleikur — og
svo voru samkvæmi í barnum,
sem hafði verið breytt, svo að
nú var hann útbúinn, eins og
krá í Englandi. Ég skaut gaflok-
um og var að lokum búinn að fá
mikla leikni i þeirri íþrótt.
Ég kom heim úr ferðinni einni
eða tveim klukkustundum fyrr
en ég hafði gert ráð fyrir. Fj’rst
ók ég í vínsöluna, því að þar
VIÐ MÆLUM MEÐ
í kökuna
aiíltvarpiö
/
Þriðjudagur 19. júni.
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Tónleik
leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35
Tónleikar. — 10.10 Veður-
fregnir).
10.30 Syndousmessa í Dómkirkjunnl
(Westergaard Madsen Kaup-
mannahafnar biskup prédikar;
séra Pétur Sigurgeirsson á Ak-*
ureyri og séra Arngrímur Jóns-
son í Odda þjóna fyrir altari.
Organleikari: Dr. Páll Isólfs-
son).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.00 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
14.00 Útvarp frá Kapellu og hátíðasal
háskólans: Biskup íslands setur
prestastefnuna og flytur ávarp
yfirlitsskýrslu um störf og
hag íslenzku þjóðkirkjunnar á
synodusárinu.
15.30 Síðdegisútvarp (Fréttir, tilkynn
ingar og tónleikar. — 16.30 Veð-
urfregnir. — Tónleikar. — 17.00
Fréttir. — Endurtekið tónlistar
efni).
18.30 Harmonikulög. — 18.50 Tilkynn-
ingar. — 19.20 Veðurfregnir.
19.30 Fréttir.
20.00 Synoduserindi : Þjóðfélagslegt
hjálparstarf (Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir cand. theol.).
20.25 Kórsöngur: Kór kvennadeildar
Slysavarnafélags Íslands syng-
ur. Söngstjóri: Herbert Hriber-
schek. Einsöngvari: Eygló Viikt-
torsdóttir og Sigurveig Hjalte-
sted. Undirleikarar: Karel Pau-
kert, Mariluise Draheim, "Her-
bert Buchner og Wolfang Miin-
ch. (Hljóðritað á tónl. í Aust-
urbæjarbíói 2. apríl).
a) „Hættu að gráta, hringaná";
íslenzkt þjóðlag.
b) ,,L.ysthúskvæði‘‘; íslenzkt
þjóðlag.
c) Þrjú lög eftir Inga T. Láruss.
d) „Máninn líður“ eftir Jón
Leifs.
e) „í harmarina helgilundum'*
eftir Skúla Halldórsson.
f) Tvö lög eftir Herbert Hri-
berschek.
g) „Agneta og hafmeyjarnar"
eftir Niels Gade.
h) Þrjú sönglög eftir Johannes
Brahms.
21.00 Igor Stravinsky: Leifur Þórar-
insson talar um tónskáldið og
kynnir verk þess; II.
21.45 íþróttir (Sigurður Sigurðsson).
22.00 Fréttir og veðurfregni.
22.10 Lög unga fólksins (Guðrún Ás-
mundsdóttir).
23.00 Dagskrárlok.
HETJUSÖGUR
íslenzkt myndablað
fyrir börn 8-80 ára
HRÓI HÖTTUIt
og kappar hans
hefti komið
í blaðsolur
og kostar aðeins 10 krónur