Morgunblaðið - 19.07.1962, Síða 18
18
MORGUNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 19. júlí.
lék eins og
A-liöi ber og vann 2-0
Þrír „óþekktir" unnu sig upp í fremstu raðir
ÞAÐ hét svo að A- og B-landslið
héldu upp á afmæli KSÍ á Laug-
ardalsvellinum í gær. En vegna
forfalla urðu liðin talsvert breytt
frá því sem upphaflega var á-
kveðið. Akureyringarnir komu
ekki í bæinn og setti bað veru-
legan svip tætings og upplausnar
á A-liðið. Eirmig mretti Garðar
ekki og hafði bað eitt veruleg
áhrif. En burtséð frá þessu þá
„átti“ B-liðið leikinn og bað svo
algerlega að 2—0 sigur B-liðsins
er varla nægur til að lýsa yfir-
burðunum. Enda skall hurð oft
nærri hælum við mark A-liðsins
og hrein heppni að mörkin þar
urðu ekki fleiri.
JÁKVÆTT
Þessi leikur varð veru-
lega jikvæður að því leyti, að
j ungir menn fengu tækifæri til
{ að reyna sig og sýra getu
; sína, sem ekki hafa áður feng
ið tækifæri til þess og voru
■ ekki valdir til þess. Geir Krist
I; jánsson í marki B-liðsins
sýndi verulega góð tilþrif og
• sýndi sig fyllilega eins hæfan,
ef ekki betur, en beir sem
rifizt er um, til að skipa lands
lið. Bogi Sigurðsson miðvörð-
ur liðsins sýndi ákveðinn leik
og góðan og er vissulega
treystandi fyrir stórum verk-
efnum. Hvorugur þessara
hefði fengið að láta ljós sitt
; Skína ef „landsliðsnefndin"
hefði fengið að ráða. En þess-
um tveim má hiklaust bæta í
„landsliðsmannahopinn“ _ og
*; prýða þeir hann. Sá hirm
þriðji er Þorsteinn bakvörður
; Friðþjófsson. Hann sýndi
t mjög ákveðinn leik og yfir-
vegaðan og tilheyrir nu einn-
Ig „landsliðshópnum“. Það
eina sem skyggir á það próf
sem þessir merm fengu, var
hve A-liðið var bitlaust.
★ LEmUBINN
B?liðið tók leikinn strax í sínar
hendur og með dálítilli heppni
Ikþm forskotið þegar á annari
mínútu. Leikið var upp v. kant,
en þar stöðvaði A-vörnin upp-
hlaupið en Þorsteinn bakvörður
kóm aðvífandi og gaf vel fyrir
rryarkið. Grétar miðh. B.-liðs átti
sköt sem Helgi varði en hélt
ekki og Högni Gunnlaugsson
kþmst í dauðafæri og sendi yfir
Hjelga sem sat eftir fyrra skotið.
(B-liðið lauk fyrri hálfleik með
þýí að bæta öðru mariki við á
næst síðustu mínútu. Upphlaupið
v&r failegt, byrjaði á vallarmiðju
Ellert Sohrám hóf það, sendi út
á éy. kant til Þórðar Jónsonar,
hárm gaf vel fyrir og Ellert kemst
í íæri. Helgi ver en heldur ekiki
0|f Iiggur eftir á jörðinni. Grét-
ar kemur aðvífandi og sendir
ltólega í markið af þröngu færi.
aíilli þessara marka átti B-lið
iðj ,á köflum góðan leik stundum
n#ð laglegum skiptingum sem
gérðu A-liðs mennina að hálf-
gérðum „statistum" á vellinum.
Faári átti B-liðið mörg og var
á ,'stundum hrein heppni að ekki
fór ver fyrir A-liðinu. Mark B-
liéisms komst aldrei í hættu í
fwri hálfleik.
tfeíðari hálfleikur var mun jafn
arj. Innherjar A-liðsins (Guðm. :
k. og Bergsteinn Magnússon) |
ru nú virkari, en höfðu vart
sézt í fyrri hálfleik. Skiptust ,
liðin á upphlaupum sem ekki
sköpuðu verulega hættu og eng
in mörk . Eftir rúman stundar-
fjórðung náði A-liðið sinni mestu
pressu á B-markið. Bergsteinn
komst einn innfyrir, en Geir
bjargaði með úthlaupi á réttu
augnabliki. Guðmundur Óskars
son komst upp úr því í skotfæri
en Þorsteinn bjargaði á línunni
og Rikharður fékk knöttinn og
sendi að marki en Geir var vel
á verði.
Hættuleg færi urðu ekki fleiri
en B-liðið hefði allan tímann
heldur betur, sýndi betri leik
með skiptingum og dreifaðara
spili.
★ i.ihin
Leikur A-liðsins var að veru
legu leyti í molum. Það er ekki
næg afsökum að liðið vanti brjá
Akureyringa og Garðar. Vörn-
in var of fljótt í vandræðum,
framverðirnir náðu aldrei tök-
um á uppbyggingu og framlínan
var sundurlaus og stundum
'herfilega klaiufaleg. Helgi hefur
líka varið betur einkum er hann
seinn að komast í stöðu eftir
hálfvarin skot. Af því varð
hann nú að horfa á mótherj-
ana skora 2 mörk.
Heildarsvipur B-liðsins var
langt framar vonum og á köfl-
um náði liðið góðum leik. Aft-
asta vörnin var aldrei í vand-
ræðum. Geir fékk ekki hættu-
mikil skot, en hann fékk tæki-
færi til að sýna góðar stað-
setningar og umfram allt út-
hlaup, sem björguðu mörkum
— og kannski sigrinum í þetta
sinn. Aðrir markmenn okkar
geta ekki sýnt úthlaup sem
Geir gerir nú. Þorsteinn sýndi
góðan leik sem fyrr segir og
Hreiðar var vel með og er aft-
ur að ná sínu bezta. Bogi brást
aldrei í stöðu miðvarðar. Hlið-
arframverðirnir, Ormar og Ragn
ar, unnu vel saman og voru
máttarstólpar hjá liðinu og
framlínan sýndi á köflum vel
skipulagðan leik. Ellert var
driffjöður þar í og var bezti
maður framlínunnar. Grétar
skipti vel við útherjana og það
ruglaði vöm A-liðsins, en hann
gætti sín illa á rangstæðum og
vantaði hörku í einleik sinn,
Þórður og Ingvar voru traustir
á köntunum, en hvorugur leik-
ur þó nógu utarlega. Það er
einhver „miðju-tilhneiging“ í
þeim báðum.
A. St.
„Klippa sig“ inn á völlinn
VH) bregðum hér út af van-
anum og sýnum ekki stjörn-
urnar á myndum núna, heldur
áhorfendur. Og við völdum
ekki þá góffu dyggu, sem
styrkja íþróttastarfiff með
„löglegum“ heimsóknum á
vellina. Nei, hér eru þeir sem
heldur vilja vaða moldar-
börðin utan við völlinn, húka
fyrir utan og glápa gegnum
vírnet til að spara sér 10—20
kr. Slíkt er kannski afsakan-
legt ef menn eru alveg aura-
lausir, en að gera sér það að
reglu er heldur leíður ávani.
Sveinn Þormóffsson tók þess
armyndir á Laugardalsvellin-
um. Sú minni sýnir strákana
troða sér gegrnim göt. Og þess
eru dæmi að þeir hafi komið
með vírklippur með sér til að
„klippa sig inn á völlinn“.
Þeir virðast heldur vilja
leggja aurana í kiippur til að
eyðileggja en að leggja sama
pening í aðgöngumiða. Hin
myndin þarfnast ckki frekari
skýringa.
Nú hefur vallarstjórnin lát-
ið girða með mikiu sterkari
girðingu, uýrri tækni sem og
er til fegurðarauka. En aldrei
verður þetta gott fyrr en völl-
urinn er fullbyggður og 3—6
m veggir umlykja hann
27 danskir knatíspyrnu-
drengir heimsækia Þrótt
r
Knattspymufétagið Þróttur
fór í ferðalag til Danmerkur í
fyrrasumar, með 3. fl. sinn und
ir fararstj. þeirra bræðra Magnús
ar og Gunnars Péturssona. Flokk-
urinn keppti alls 10 leiki í knatt
spyrnu í Danmörku og 3 í hand
bolta. Meðal þeirra staða sem
leikið var í var Holbæk, enda
stóðu knattspyrnumenn þar fyr-
ir móttökunum á Þróttarliðinu.
Til endurgjalds þessari heimsókn
koma tveir flokkar frá Holbæk
hingað nú, þ.e. II. og III. fl. alls
27 menn það á meðtaldir tveir
fararstjórar, * boði Þróttar.
Flokkarnir koma með Dr. Alex-
andrine og ganga fyrst á land í
Vestmannaeyjum, þar sem þeir
munu leika fjóra leiki, á fimmtu
daginn kemur og laugardaginn.
Að því búnu koma þeir svo hing
að til Reykjav. á sunnudaginn
kemur og dvelja hér allt til 4.
ágúst n.k. en fara þá með m/s
Hcklu heimleiðis. Hér leika gest
irnir alls sex leiki að minnsta
kosti, auk þcss, sem þeir leika
tvo leiki i Keflavík. Leikirnir i
Reykjavík fara fram dagana 23.,
25. og 27. júli. Tveir leikir hverju
sinni.
Þróttur hefur vandað mjög til
móttöku fiokkanna, en í undir-
búningsnefnd eru þessir: Harald
ur Snorrason form. Þrófctar,
Gunnar og Magnús Péturssynir
Börge Jónsson og er hann form.
móttökunefndar og Vilberg Jóns
son.
Væntir Þróttur þess að heim-
sókn þessi og móttökur allar,
styrki enn og efli hin ágætu og
ánægjulegu samskifti sem félag
ið hefir hingað til dönsk knatt-
spyrnufélög og forystumenn
þeirra.
Holbæk liðin sem hingað koma
eru mjög sterk og hafa auk þess
styrkt sig með lánsmönnum til
fararinnar.
Fararstjórar eru þeir: Jörgen
ánægjuleg samskipti sem félag
kunnir menn í knattspyrnuhreyf
ingunni í Danmörku. Jörgen
Knudsen hefir leikið marga úr-
valsleiki með SBU, m.a. gegn
Fram (Rvk) árið 1958.
Námskeið
í frjálsum
íþróttum
í DAG kl. 5,30—7,15 hefst nám-
skeið í frjálsum íþróttum á í-
þróttaleikvangi Ármanns vi3
Sigtún.
Kennd verða undirstöðuatriðl
i frjálsum íþróttum fyrir byrj-
endur og þjálfun fyrir þá, sem
lengra eru komnir.
Haldnir verða fræðslufundir,
sýndar kvikmyndir og einnig
verður farið í skemmtiferð.
Námskeiðinu mun svo ljúka
með íþróttamóti. Keppt verður
í öllum þeim aldursflokkum,
sem þátt taka í námsskeiðinu.
Stjórnendur verða þjálfari fé-
lagsins og honum til aðstoðar
beztu frjálsíþróttamenn Ár-
manns.
Öllum er heimil þátttaka,
stúlkum og piltum.
Nánari upplýsingar verða
veittar í síma 33843 á fimmtu-
dag.