Morgunblaðið - 14.10.1962, Blaðsíða 2
2
MOnGUlSBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. október 1962
/
*
utbreiðsluherferð
Neytendasamtaka
Adenauer til Washington
HINGAÐ kom Arnarfell
fyrrkvöld með síldartunnur.
Hafði skipuð áður losað taLs
vert magn af tunnum í Hafn-
arfirði. Hér mun það eiga að
losa um 10 þús. tunnur. Beð-
ið er nú stöðugt eftir að samn
ingar takist um síldveiðikjör-
in svo skipin geti hafið veið-
ar. — Ljósm. Sv. Þorm.
Sksðamót
*
Islartds á
Austurlandi
STJÓRN Skíðasamibands íslands
hefur nýlega ákveðið að fela
Ungmenna- og íþróttasarobandi
Austurlands að sjá um Skíðamót
íslands á næsta vetri. Er gert ráð
fyrir því að landsmótið fari fram
um páskana i Neskaupstað og
Norðfirði. Mun það verða í fyrsta
sinn’ að íslandsmeistaramót í
íþróttum er haldið á Austur-
landi.
Formaður Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands er
Kristján Ingólfsson, Eskifirði, en
formaður Skíðaráðs UIA er
Gunnar Ólafsson, Neskaupstað.
Eftirprentanir
á striga
í SÝNINGARGLUGGA Morgun-
blaðsins er nú útstillt nokkrum
eftirprentunum á striga. Prent-
unin er gerð á Ítalíu af prent-
smiðjunni Ricardo í Milano, sem
Rammagerðin í Reykjavík hefur
einkaumboð fyrir. Eftirprentan-
ir þessar eru gerðar af 40 mynd-
um eftir heimsþekkta málara,
aðallega frönsku impressíónist-
ana svo sem Degas, Renoir, Cez-
anne, Matisse og Gaugin og
nokkra aðra t. d. Rembrandt og
Picasso. Mjög sjaldgæft er að
nota striga við eftirprentanir,
Pittsburgh Pa., Bandarikjunum,
13. október — (AP) —
PIERRE Salinger, blaðafull-
trúi Kennedys forseta, til-
kynnti í Pittsburgh í dag að
Konrad Adenauer kanzlari
Vestur-Þýzkalands kæmi í
opinbera heimsókn til Banda
ríkjanna í næsta mánuði í
boði Kennedys. Er kanzlar-
Nýir stöðvastjór-
ar F.í. í Eyjum
og Egilsstöðum
FYRIR nokkrum dögum auglýsti
Flugfélag íslands h.f. eftir stöð
varstjórum við afgreiðslur fél-
agsins i Vestmannaeyjum og á
Egilsstöðum.
Nýlega hefur verið gengið frá
ráðningum og er Sigurður Krist
insson ráðinn til að veita af-
greiðslu félagsins í Vestmanna-
eyjum og Guðmundur Benedikts
son til þe-s að veita afgreiðslu
félagsins á Egilsstöðum forsöðu.
Sigurður Kristinsson hefir
starfað 'hjá Flugfélagi íslands á
Akureyri og í Reykjavík síðast-
liðin sex ár. Hann tók við rekstri
afgreiðslu Flugfélags íslands í
Vestmannaeyjum 1. okt. s.l.
Guðmundur Benediktsson,
Egilsstöðum, hefir starfað sem
fulltrúi og gjaldkeri við útibú
Búnaðarbanka íslands á Egils-
stöðum s.l. ár en var áður úti-
'bússtjóri Kaupfélags Héraðsbúa
á Egilsstöðum. Guðmundur mun
taka við stjórn afgreiðslu Flug-
félags íslands á Egilsstöðuim 1.
maí 1963.
inn væntanlegur til Washing
ton 7. nóv. n. k.
Salinger sagði að Kennedy
hefði boðið Adenauer til að fá
tækifæri til að hitta hann og
ræða við hann um sameiginleg
vandamál Bandaríkjanna og
Vestur-Þýzkalands.
Þetta verður í annað skiptið,
sem Adenauer heimsækir Banda
ríkin eftir að Kennedy varð for-
seti, en siðast kom hann þangað
í nóvember í fyrra. Ekkert hefur
verið látið uppi um það hvaða
vandamál leiðtogarnir munu
ræða. En orðrómur hefur verið
á kreiki um að Bandaríkin ótt-
ist vaxandi spennu í Berlín. —
Auk þess hefur Nikita Krúsjeff
forsætisráðherra Sovétríkjanna
hvað eftir annað lýst því yfir að
Rússar muni undirrita sér-frið-
arsamninga við Austur-Þýzka-
land.
Nýtt samkomuhús
Húsavík, 13. okt.
I DAG var fréttariturum blaða
boðið að skoða nýtt samkomu-
hús, sem mun hefja starfsemi
sína hér á Húsavík í dag.
Alþýðuflokksfélag Húsavíkur
keypti gamla húseign á síðasta
ári og hefir síðan verið unnið
að því að breyta húsinu í ný-
tízkulegt veitingahús. Síðar var
stofnað hlutafélag um rekstur
hússins og því valið nafnið Hlöðu
fell.
Teikningar af innréttingum
gerði Ragnar Einarsson arkitekt
og er húsið hið vistlegasta og
bætir úr brýnni þörf Húsvíkinga
fyrir samkomuhús. Framkvæmda
stjóri er Guðmundur Hákonar-
son. — Fréttaritari.
STJÓRN Neytendasamtakanna
skýrði Mbl. frá því í gær, að kl.
9 f.h. í dag verði hafin sókn til
öflunar nýrra meðlima, eflingar
starfsseminni og treystingar
grundvallar þess, sem byggt er á.
I stað leiðbeininga, bæklinga og
félagsrita, er hingað til hafa ver-
ið gefin út, keraur nú „Neytenda
blaðið", í stóru broti og fjöl-
breytt að efni. Fyrsta blaðið kem
ur út eftir viku og er það ein-
göngu sent til meðlima, en áskrift
argjald blaðsins er innifalið í árs
gjaldi samtakanna, kr. 45, ásamt
rétti til lögfræðilegrar aðstoðar
og upplýsinga, vegna kaupa á
vörum og þjónustu. Að minnsta
kosti 3 blöð munu gefin út fyrir
áramót. Engar auglýsingar verða
teknar um vörur, en hingað til
hafa þær tíðkast af fjárhags-
ástæðum.
Dagleg störf Neytendasamtak-
anna eru furðu umfangsmikil. —
Skrifstofan er opin 2 klst. á dag
Og er málum þá veitt viðtaka, en
eftir er að vinna úr þeim. Sívax-
andi fjöldi fólks leitar til sam-
takanna, og ber þvi brýna nauð-
syn til að auka starfkrafta
þeirra. Mörg Og mikil verkefni
bíða úrlausnar og kvaðst stjórn-
in vonast til að undirtektir
manna verði slíkar, er sókn þessi
hefst, að þeim verði gért kleyft
að sinna þeim í auknum mæli.
Neytendasamtökin eru aðili að
alþjóðastofnun slíkra samtaka og
hafa rétt til að birta í eigin
blaði niðurstöður rannsókna allra
samtaka, sem aðild eiga að stofn-
uninni. 5—10 manns leita dag-
lega til samtakanna með mál,
svo að sjá má að stöðugt sam-
band er haft við neytendur.
Forstöðumaður samtakanna,
Sveinn Ásgeirsson, hagfræðing-
ur, benti á, að rannsókn kartöflu
málsins hefur víðtækara gildi fyr
ir neytendur en hvað varðar
gæði kartafla, sem þeir neyta
daglega, þótt það sé ærið hags-
munamál eitt.
Reglugerð hefur verið sett á
um flokkun og mat á smjöri og
ostum, og voru allar tillögur
Neytendasamtakanna teknar til
greina við samningu hennar.
Neytendasamtökin hér á landi
eru hin 3. elztu í heimi, og hlut-
fallslega þau langfjölmennustu.
Meðlimir eru um 5 þúsund.
Á næstunni verður starfssemi
og tilgangur samtakanna kynnt-
ur víðs vegar um land, og er
væntanleg til landsins kvikmynd
frá Bandaríkjunum. „Neytendur
vilja vita“, sem sýnd verður á
þeim kynningum.
Simar samtakanna eru: 19722,
15659 og 36042.
í GÆRMORGUN var komið landínu var aftur á móti hlý
mikið háþrýstisvæði yfir NA- suðlæg átt, sem fylgdi lægð-
Grænlandi og éljagangur var inni suður af Hvarfi. Yfir
á Jan Mayen og náði allt til Bretlandseyjum var kyrstæð
norðurlandsins. Suðvestur af hæð.
Unnið við óseyrarbrautina (Ljósm. G. E.)
Óseyrarbraut
HAFNARFIRÐI. — Síðan í ágúst
hefir verið unnið að vegarlagn-
ingu með sjónum fyrir neðan
Hvaleyrarbraut og verður fyrsti
áfangi hans út að hafnargarði.
Er þessi vegur að mestu, þar
sem áður var Óseyrartún, enda
dregur hann nafn sitt af því og
heitir Óseyrarbraut. Á kafla, þar
sem Hvaleyrarbraut og þessi
nýja gata mætast, þurfti að fylla
talsvert upp í fjörunni svo og
skammt frá hafnargarðinum. Er
nú verið að grafa fyrir klóaki
og vatnsrörum en síðan verður
vegurinn fullgerður.
Fyrir ofan þennan nýja veg
er álareykhúsið, og nýverið hafa
verið reist þar tvö fiskvinnslu-
hús, og annað stórt er fyrir. Af
þessu má sjá að mikil þörf var
fyrir veg á þessum stað. Og nú
styttist einnig leiðin út á hafnar-
Heímdellingar
SKYNDIHAPPDRÆTTI
Sjálfstæðisflokksins stendur
yfir í aðeins einn mánuð og
er sá tími nú þegar meira en
hálfnaður. Það er þvi áríð-
andi, að þeir, sem fengið hafa
senda miða, geri vinsamleg-
ast skil sem allra fyrst.
Skrifstofan í Sjálfstæðis-
húsinu er opin allan daginn.
garðinn og léttir af umferðinnl
á Hvaleyrarbrautinni.
Myndin hér að ofan var tekin
fyrir nokkru af framkvæmdum
við Óseyrarbraut. — G.E.
Mislingar í
Grænlandi
Kaupmannahöfn, 13. okt. (AP)
U M þriðjungur allra íbúa Græn
lands hafa fengið mislinga í far-
aldri þeim, sem þar hefur geng-
ið frá því í apríl sl. Samkvæmt
opinberum skýrslum hafa 10,771
tilfelli verið skráð, en talið er
að mörg þúsund sjúklinga hafi
ekki leitað læknis. Alls hafa 49
látizt úr mislingum eða fylgi-
kvillum á þessum tíma.
íbúar Grænlands eru um
32.000.
%