Morgunblaðið - 14.10.1962, Page 4
4
MORCLNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. október 1962
Stúlka
prúð og ábyggileg óskast I
til afgreiðslustarfa í ný-
lenduvöruverzlun. Uppl. í |
síma 15719.
Andlitssnyrting Handsnyrting: Megrunarnudd Make up Upplýsingar í síma 12770. 1
Til sölu Fiat 1100 árgerð 1957. Uppl. í síma 1 298, Akranesi. í
Til sölu skellinaðra í góðu standi. Uppl. í síma I 50295 eða að Brekkugötu I 18, Hainarfirði.
Trésmiður og laghentur maður óskast 1 til starfa á trésmíðaverk- 1 stæði. Uppl. í síma 139391 eða 10982. ;
Tvö skrifstofuherbergi til leigu við Höfnina. — I Tilboð merkt: ,,Höllin — 1 3563“, sendist Mibl. fyrir 1 þriðjudag. ]
Notaðar hurðir Til sölu eru 9 notaðar hurðir (sléttar, málaðar) með körmum að Fálkagötu 22, uppi. Sími 18149.
Húshjálp — England Hr. Harris, 447 Harrogate Road, Alwoodley, Leeds 17.
Nylonpels Til sölu mjög fallegur pels nr. 44 sem nýr, á Þórsgötu 21A, miðhæð.
Atvinna Reglusamur eldri maður óskar eftir léttri atvinnu, t. d. húsvarðarstöðu, hesta- gæzlu eða öðru líku. Uppl. í síma 34622.
Grindavík Vil kaupa vel með farinn mottul. — Sími 92-8152.
2ja eða 3ja herb. íbúð óskast. Uppl. í sima 17254 og 35195.
Hafnarfjörður Kona óskast í sælgætis- og tóbaksverzlun. Uppl. í síma 50518 og 50301.
BÚSTJÓRA VANTAR að stóru kúabúi á Norður- landi, um áramót. Ráðningastofa Landbúnaðarins. Sími 19200.
Skreiðarhjallar óskast til kaups eða leigu fyrir næstu vertíð í Reykja vík eða Hafnarfirði. Uppl. í síma 34576.
f dag er sunnudagur 14. október.
86. dagur ársins.
Árdegisflæði er kl. 6.33
Síðdegisflæði er kl. 18.53.
NEYÐAHLÆK NIR — simi: 11510 —
frá kl. 1—5 e.h. alla virka daga nema
laugardaga.
Kópavogsapótek er opið alla vtrka
daga ki. 9.15—8, iaugardagu frá ki
U5—4. helgid frá 1—4 e.h. Siml 23100
Sjúkrabifreið Hafnarfjarðar sími:
51336.
Holtsapótek, Garðsapótek og Apö-
tek Keflavikur eru opin alla virka
daga kl. 9—7, laugardag frá kl. 9—4
og helgidaga frá kl. 1—4.
Næturvörður er i Rcykjavíkur
Apóteki vikuna 13—20. október.
Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna
13—20. október er Jón Jóhanensson,
Vitastíg 2, sími 51466.
n EDDA 596210167 = 7 ATKV.
I.O.O.F. = Ob. 1 P. = 1441016 814
= Hlst. Kpst.
I.O.O.F. 3 = 14410158 = XX-Lit-
myndir m. m.
I.O.O.F. 10 = 14410158=
FRÉTIIR
Húsmæðrafélag Reykjavíkur heldur
fund í Breiðfirðingabúð 15. október
kl. 8.30. Til skemmtunar verður: 1.
Hjúkrunarkona lýsir meðferð ung-
barna, 2. garðyrkjumaður talar um
niðursetningu lauka og garðblóma.
3. fiðluspil með píanóundirleik (tvær
ungar stúlkur), 4. kaffidrykkja.
Happdrætti
Sunnudagaskóli. Guðfræðideildar
Háskólans. hefst næstkomandi sunnu-
dag, 14. október kl. 11. fyrir hádegi.
Öll börn velkomin.
Kvenréttindafélag íslands. Fundur
verður haldinn í félagsheimili Hins
íslenzka prentarafélags á Hverfisgötu
21, þriðjudaginn 16. október kl. 20.30
j Fundarefni: 1. Forspjall. Fréttir úr
erlendum blöðum. 2. Séra Bragi Frið-
riksson. Tillögur Æskulýðsráðs um
fjölskyldukvöld á heimilum. 3. Frú
j Laufey Olsen flytu erindi og sýnir
myndir, 4. Félagsmál. Félagskonur
j mega taka með sér gesti að venju.
Opinber fyrirlestur um yoga. Sig-
valdi Hjálmarsson flytur opinberan
fyrirlestur í Guðspekifélagshúsinu í
kvöld kl. 8.30. J’yrirlesturinn nefnist
í leit að sjálfúín sér.
Basar Verkakvennafélagsns verður
7. nóvember n.k. Konur eru vin-
samlega beðnar að koma gjöfum á
basarinn tid skrifstofu Verkakvenna-
félagsins í Alþýðuhúsinu.
Kvenfélag Neskirkju heldur fund
miðvikudaginn 17. október kl. 8.30
í félagsheimilinu. Fundarefni: Vetr-
arstarfið. Konur eru beðnar að fjöl-
menna.
K.F.U.M. & K. í Hafnarfirði. Á
almennu samkomunní í kvöld kl. 8.30
talar Gunnar Sigurjónsson, cand.
theol.
Prentarakonur. Saumafundur 1 fé-
lagsheimilinu mánudagskvöld kí. 8.30.
Dómkirkjan. Síðdegisguðsþjónuöta
kl. 5. Séra Jón Auðuns.
Kaþólska kirkjan. Kirkjukvöld í
tilefni af kikjuþinginu kl. 6 síðdegis
í Kristskirkju í Landakoti.
Hafnarf jörður. Bindindisdagsins verð
ur minnzt með helgistund í Hafnar-
fjarðarkikju í kvöld kl. 8.30. Meðal
annars mun Helgi Tryggvason, kenn-
ari, flytja erindi, séra Garðar t»or-
steinsson, prófastur, flytur þar á-
varp, Ámi Jónsson syngur einsöng
og kór syngur með undirleik Páls Kr.
Pálssonar.
velur að
Sveinbjörn
skólastjóri.
segir hann:
þessu sinni
Sigurjónsson
Um val sitt
NÆR átta aldir líða frá upphafi íslands byggðar, þar til
skálid þjóðarinnar uppgötva hestinn sem yrkisefni. Stefón
Ólafsson klerkur í Vallanesi á 17 öld, ríður þar fyrst á
vaðið. Síðan hafa stoáld og hagyrðingar lýst töfrum góð
hesta sinna of list og prýði.
Flugvélin, hinn diásamlegi fararskjóti nútímans, ávöxtur
mannlegrar snilli og hyggjuvits, hefur verið góðkunningi
okkar í 2—3 áratugi, en lítt hefur þess gætt í Ijóðum
skálda. Séra Sigurður Einarsson í Holti undir Eyjafjöllum
mun einna fyrstur íslenzkra skálda gera reynslu sína af
þessu heil-landi farartæki nútímans að yrkisefni. Kvaeðið
birtist í Ijóðabók hans, Yndi unaðsstunda, 1952.
OFAR SKÝJUM.
Ég berst á nötrandi væng ofar skínandi skýjum.
— Hér skein sem snöggvast í azúrbláan f jörð
og brá fyrir iðgrænum dal svo hýrum og hlýjum,
— svo hvarf hún sýnum að fullu vor blessaða jörð
með agg og þrætur og allt, sem mennina greinir,
og allt sitt háværa stríð og þögula böl.
En hér sé ég loksins, hverju himinninn leynir
af heiðríkju og dýrð fyrir ofan skýjanna fjöl.
Og gott er að vita seinna, ef dimmur er dagur
og dapurt í heimi, að veröldin er svo gjörð,
að uppyfir ljómar endalaus himinn og fagur
í eilífri sóldýrð og biður að heilsa þér, Jörð.
Hann var sannur prófessor- og
konan hans var að segja vin-
konu sinni af frægðarverkum
hans.
— Trúir þú því, þegar hann
var að fara í baðið í gær, gleymdi
hann að fara úr fötunum.
— Þá hefur hann þó orðið
rækileiga blautur.
— Nei, til allar hamingju
gleymidi hann líka að skrúfa frá
vatninu.
★ • ★
Kona kom inn í nýlenduvöru-
verzlun og bað um sardínur.
— Eiga þær að vera íslenzikar,
norskar, sænskar, franskar eða
portúgalskar? spurði kaupmað-
urinn.
— Það er alveg sama. Ég ætla
að borða þær, en ekki að tala
við þær.
★ • ★
— Fyrirgefðu, sagði stelpan
sem kom inn á bókasafnið, ég
vildi gjarnan fá nýju bókina um
— Oliver Twist held ég að hún
heiti.
★ • ★
Fjö'lskylda Óla eru jurtaætur,
og dag nokikurn veróur Óli að
sitja eftir í skólanum.
Meðan hanin situr veltir hann
fyrir sér vandamáli, sem verður
sífellt stærra. Loksins spyr hann
kennarann:
— Kennari, má ég fara heirn
áður en maturinn visnar?
Orð lífsins
í»VÍ að ekki höfum vér þann
æðsta prest, er eigi geti séð aumur á
veikleika vorum (Jesú), heldur þann,
sem frestað var á allan hátt eins
og vor, án syndar. Göngum því með
djörfung að hásæti náðarinnar, til
þess að vér öðlumst miskunn, og
hljótum náð til hjálpar á hagkvæm-
um tíma. Hebr: 4:16.
KAUPENDUR Morgunblaðsins
hér í Reykjavík sem ekki fá blað
sitt með skilum, eru vinsamleg-
ast beðnir að gera afgreiðslu Morg
unblaðsins viðvart. Hún er opin
til klukkan 5 síðdegis til afgreiðslu
á kvörtunum, nema laugardaga
til klukkan 1 e.h. Á sunnudög-
um eru kaupendur vinsamlegast
beðnir að koma umkvörtunum á
framfæri við afgreiðsluna fyrir
klukkan 11,30 árdegis.
JÚMBÖ og SPORI
X— —:K—
Teiknari: J. MORA
Vagnstjórinn gekk að veggnum,
þar sem rifflar lögreglustjórans
stóðu. — „Það voru vopn nákvæm-
lega eins og þessi, sem rauðskinn-
amir skutu á okkur með“, sagði hann.
— Lögreglustjórinn var dálítið óró-
legur á svipinn eitt augnablik. Svo
sagði hann: „Það er óhugsandi, vin-
ur minn, þessir rifflar eru eign her-
mannanna í sléttuvirkinu. Vertu nú
rólegur, ég skal persónulega sjá um
að senda tvo manna minna með þér
í næstu ferðir. Við verðum að binda
endi á þessar sífelldu árásir.“
„Hvernig lízt þér á þetta?“ spurði
Júmbó, þegar hann og Spori voru á
leiðinni niður í bæinn. „Verið gæti,
að lögreglustjórinn hafi eitthvað
skítugt í pokahorninu," tautaði Spori.
„En hvaða áhuga getur hann haft á
að selja rauðskinnunum skotvopn?“
— „Peningar,“ svaraði Júmbó.
>f >f >f
GEISLI GEIMFARI
>f >f >f.
UMLE5S WE MOBIUZB EVERYBODY...
USE EVERY SCIENTinC BPAIN...X
CAU'T AN6WER TOZ TWE CON-
SEOUENCES WlTHIN 48 HOURS/^
Fleming
ið náðun um
Ordway? Ég
eins og sakir
ofursti, getið þér feng-
stundarsakir fyrir Rex
veit um glæp hans, en
standa.......
— Kannski, dr. Huer, en ég verð
auðvitað að fara ýmsar krókaleiðir.
— Til þess höfum við engan tíma.
— Ef ekki verður þegar hafizt
handa og allir vísindamenn taka þátt
í því, get ég ekki ábyr^- afleiðing-
arnar innan 48 klst.