Morgunblaðið - 24.10.1962, Page 15
Miðvikudagur 24. október 1962
MORGVTSBLAÐIÐ
15
STEIIMASTEYPUVÉL
Ævintýraförinni
er senn lokiö
Jerúsálem, 19. öktóber.
ISLENZKI ferðamannahópurinn,
sem farið hefur um löndin fyr-
ir botni Miðjarðarhafs á vegum
Ferðafélagsins útsýnar, er kom-
inn til Jerúsalem eftir tveggja
vikna sögulega ferð sem verið
hefur ævintýri líkust. f hópnum
eru 42 þátttakendur auk farar-
stjóra, Ingólfs Guðbrandssonar,
og leiðsögumanns, Sigurðar A.
Magnússonar. Þar við bætist
áhöfn flugvélarinnar frá Flug-
félagi íslands, sex manns.
Hópurinn hefur hvarvetna
vakið athygli og fengið sérlega
góðar viðtökur, því þetta er í
fyrsta skipti sem íslenzkur ferða
mannaflokkur heimsækir þessar
slóðir. Fyrsti viðkomustaður var
Vínarborg, þar sem hópnum var
tekið með sérstökum ágætum.
Hann dvaldist í borginni tvo
daga, og fór að sjálfsögðu í Vín-
aróperuna annað kvöldið. Þar
var sýndur „Grímudansleikur-
inn“ eftir Verdi með úrvalssöng-
kröftum.
í Miklagarði (Istambul) bjó
hópurinn í einu glæsilegasta
gistihúsi Evrópu, Hótel Hilton.
Þriggja daga dvöl í Miklagarði
veitti kærkomið tækifæri til að
reika um fornar slóðir Væringja,
skoða eitt mésta guðshús ver-
aldar, Sófíu-kirkjuna frá 6. öld
e. Kr., og heimsækja nokkrar
tilkomumestu moskur og hallir
hinnar sögufrægu borgar, sem
hefur átt fáá sína líka um íburð
og glæsileik, bæði á mektardög-
um austrómverska ríkisins og
síðar á blómaskeiði Tyrkjaveld-
is. f Miklagarði er stærsti aust-
urlenzki bazar veraldar, Grand
Bazaar, heil smáborg undir þaki,
og þótti íslendingunum forvitni-
legt að kynnast litríku lífinu í
öngstrætum og rangölum þessa
sérkennilega borgarhverfis. Ekki
má heldur gleyma skeiðvellinum
forna eða „paðreiminum“, sem
Væringjar þekktu vel, eða hin-
um rammgeru borgarveggjum,
sem staðið hafa í hartnær fimm-
tán aldir.
Frá Miklagarði var flogið til
Aþenu. Þar voru skoðaðar hin-
ar merkilegu fornminjar og
glæsileg musterin á Akrópólis-
hæð, bæði í sólbirtu og tungls-
ljósi um miðnætti. Ennfremur
var litazt um kringum hæðina,
farið upp á Arésar-hæð þar sem
Páll postuli hélt sína frægu
ræðu, litið yfir leikhús Díónýs-
osar, vöggu 'vestrænnar leiklist-
ar, og hið kunna hringleikhús
Heródesar Attíkusar, sem enn er
notað til hljómleika og leiksýn-
inga. Dagur i Delfí varð þátttak-
endum ógleymanlegur, bæði
vegna óviðjafnanlegrar náttúru-
fegurðar staðarins og sökum
minjanna um forna blómatíð,
þegar Delfí var miðdépill alls
hins gríska heims og helgasti
staður hans.
Frá Aþenu var flogið til Beir-
ut, höfuðborgar Líbanons, hinna
fornu heimkynna Fönikíu-
manna. Flogið var yfir gríska
Eyjahafið, Ródos og Kýpur. Bað-
strendur í Beirut eru heimsfræg-
ar, en borgin hafði líka upp á
margt fleira að bjóða, t. d.
Coca Cola
er góður drykk’ur með mat
og nauðsynlegur d hverju
heimili
'
Coca-Cola er Ijuffengur og hressandi drykkur, sem léttir
skapið og gerir lífið dnægjulegra, Coca-Cola er bezta
hressingin í önnum daasins, Það er auðvelt að taka a
möti gestum ef Coca-Cola er til d heimilinu
Nokkrir ferðalanganna á Akrópólis.
stærsta spilavíti Austurlanda og
eitt fegursta útsýni við austan-
vert Miðjarðarhaf.
Frá Beirut ók hópurinn í leigu
bílum yfir hin fögru Líbanon-
fjöll, sem við könnumst við úr
Gamla testamenti. Þar fékk
Salómon sedrusviðinn í musteri
sitt og hallir, og þar er eitt bezta
skíðaland nálægra Austurlanda.
Komið var við í Baalbek, hinni
fornu höfuðborg guðsins Baals,
er síðar varð einn helgasti stað-
ur rómverská ríkisins undir nafn
inu Heliopólis (Sólborgin). Þar
standa enn einhverjar bezt varð-
veittu rústir rómverskra helgi-
dóma, hið tröllaukna musteri
Júpítérs og tvö minni hof, helg-
uð Bakkusi og Venusi.
Síðla dags var komið til Dam-
askus, höfuðborgar Sýrlands,
sem talin er vera elzta byggða
borg veraldar. Þar komst hóp-
urinn í kynni við andrúmsloft
Þúsund og einnar nætur og skoð
aði ýmsa staði nátengda kristn-
inni, t. d. húsið þar sem Páll
postuli var skírður og fékk sjón-
ina aftur, „strætið, sem nefnt er
hið breiða", gluggann á borgar-
veggnum, sem Páll var látinn
flýja út um undan ofsóknar-
mönnum sínum, og þannig mætti
lengi telja. í Damaskus var enn-
fremur heimsótt hin mikilfeng-
lega Omayyad-moska, ”eist árið
705, eitt veglegasta guðshús
Múhameðstrúarmanna.
Eftir sólarhrings viðdvöl I
Damaskus var enn haldið í ný-
tízkulegum leigubílum áleiðis til
Landsins helga. Við ferðafólkinu
blöstu ýmsir kunnir staðir úr
Biblíunni, svo sem Nebó-fjall,
þar sem Móses andaðist eftir að
hann hafði litið fyrirheitna land
ið, bg Jeríkó-borg.
Ferðafólkið tók sér bað í
Dauðahafi, 392 metrum undir
sjávarmáli, og var vatnið þar
svo salt að menn flutu ofan á
því eins og korktappar. Skammt
frá botni Dauðahafs er staður-
inn við ána Jórdan, þar sem Jó-
hannes skírari skríði Jesúm, og
átti hópurinn þar hljóða stund.
Þeir forsjálustu höfðu meðferðis
flöskur undir hið helga vatn ár-
innar, svo þeir gætu flutt það
með 'sér heim til fslands. í
Framh. á bls. 23
Séð yfir Aþenu ofan af Akrópolis um miðnætti. Fióðlýsta hæðin
í baksýn er Lýkabettos. Ljósm.: Óskar Gíslason.
Góðir greiðsluskilmálar ef semzt suax.
Vinnustofa ÁSGEIRS LONG sími 50877,
með mótum fyrir tvær
milliveggjaplötum. Vélin
er tílbúin til afgreiðslu
strax.