Morgunblaðið - 24.10.1962, Side 24

Morgunblaðið - 24.10.1962, Side 24
f RÉTTASÍMAR M B L. — eftir lokun — Erlendar fréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 Dagur S. Þ. Sjá bls. 13 237. tbl. — Miðvikudagur 24. október 1962 Skiptist í tvð horn Skilningur í Vestri, gremja í Austri London, 23. okt. (AP-NTB) RÆÐU þeirri, sem Kennedy Banidarikjaforseti flutti í gær varðandi nýjar aðgerðir gagn- vart vígbúnaði á Kúbu, hefur verið misjafnlega tekið í heim- inum. Austan járntjalds eru ekki skiptar skoðanir um ræðuna, og aðgerðir Bandaríkjannia nefndar ,,lögbrot“ og „sjórán“, sem árás- aröflin þar í landi standi á bak við. Bandalagsriki Bandarikj- anna í Evrópu hafa hinsvegar flest lýst yfir stuðningi við stefnu Kennedys og fullum skiln- ingi á nauðsym þess að grípa til róttækra aðgerða. Fara hér á eftir sýnishorn af viðbrögðum á nokkrum stöðum: London: Brezka stjórnin lýsti í dag yfir fullum stuðningi við aðflutningsbann Kennedys á vopn til Kúbu. Jafnframt lýsti stjórnin því yfir að árásarbæki- stöðvar þær, sem Rússar hafa látið byggja á Kúbu, væru hættu legar heimsfriðinum. „Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkjanna gaf nýlega mjög ákveðna yfir- lýsingu um að vopn þau, er Sovétríkin hafa sent til Kúbu, væru einungis til varnar,“ segir í yfirlýsingunni. Sövétrikin hafa gerzt sek um undirferli jafnframt því sem þau eiga sök á því að hafa vísvitandi efnt til árekstra á nýjum landsvæðum. Þá segir þrezka stjórnin að fulltrúa henn- er hjá Sameinuðu þjóðunum. Sir Patrick Dean, hafi verið falið að styðja málstað Bandaríkjanna. Bonn: Konrad Adenauer kanzl- ari Vestur-Þýzkalands sagði í dag að Vestur-Þjóðverjar væru reiðubúnir til að taka hverri þeirri áhættu, er stafaði af stefnu Bandaríkjanna varðandi Kúbu. Sagði hann að þýzka stjórnin stæði einhuga með Bandaríkjunum. „Ástandið er al- varlegt," sagði Adenauer, „áhrifa getur gætt í Berlín.“ Brussel: Utanríkisráðherrar Efnahagsbandalagsríkjanna eru á fundi í Brússel, Og lýstu þeir í dag yfir fullum skilningi á að- gerðum Bandaríkjanna. Áðstaðan hefði gjörbreytzt eftir að kunn- ugt varð að komið hafi verið fyrir árásarvopnum á Kúbu. Washiti.gton: Á fundi með Stríðsvá- tryggingar London. 23. okt. — AP-NTB BREZK sjóvátryggingafélög tilkynntu í dag, að þau myndu taka upp ný vátryggingarið- gjöld fyrir skip, sem sigla til Kúbu. Stafar þessi ákvörðun af áðflutningsbanni því, sem] Bandaríkin hafa sett á vopn ■ til Kúbu. Verða iðgjöldin framvegis j miðuð við f arm einstakra skipa, og verða skipaeigendur að semja sérstaklega við vá- tryggingafélögin hverju sinni. Samtök brezkra skipaeig- enda lýstu því yfir í dag, að sigiingar til Kúbu væri ekki lengur mál, sem heyrði undir samtökin. Það væri héðan í frá brezku stjórnarinnar að ákveða um siglingar brezkra skipa til eyjarinnar. Margir skipaeigendur hafa að undanförnu gert samninga við ýmis kommúnistaríki um flutninga til Kúbu — sumir til langs tíma. Tryggingariðgjöld skipafé- laga hafa hingað til numið 0.0375% af verðgiidi, þ.e. 9 pencum af hverju sterlings- pundi eða 10% bandarísku centi af hverjum 280 dölum. Dean Rusk utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Washington í dag, lýstu fulltrúar nítján ríkja Ameríku yfir stuðningi við að- gerðir Kennedys. Aðeins fulltrúi Boliviu sat hjá, og það vegna þess ai hann hafði ekki fengið nein fyrirmæli frá ríkisstjórn sinni. Eru allar líkur fyrir því að öll Ameríkuríkin muni standa einhuga með Bandaríkj amönn- um. Belgrad: Tito forseti Júgó- slavíu sagði í dag að ástæða væri til að óttast það ástand, sem skapazt hefði vegna Kúbu. Hann sagði að þær einhliða aðgerðir, sem gripið hafi verið til, og aðr- ar þær aðgerðir, sem hugsanlega fylgdu hinum eftir, gætu stofn- að heimsfriðinum í voða. Tókíó: Ikeda forsætisráðherra kva.ðst vona að unnt yrði að Framh. á bls 23. 20 þusund manris hafa séð myndina UM 20 þús. manns hafa séð kvikmyndina 79 af stöðinni. Búizt er við, að kvikmyndin verði send til sýningar úti á landi eftir næstu helgi og byrj að á Akureyri og Keflavík. Stjórn Edda Film hefur á- kveðið að banna myndina börnum innan 16 ára aldurs 1 vegna sífelldra kvartana for- eldra, sem telja börnum innan þess aldurs óhollt að sjá hana. Kvikmyndaeftirlitið bannaði myndina börnum innan 12 ára aldurs. ftwftifttfftift*:::*:::: Nú er búið að steypa Keflavíkurveginn suður fyrir Hvaleyrarholt, og senn fer að nálgast sá tími þegar fyrsti kaflinn verður tekinn í notkun. Kaflinn, sem búið er að steypa, er 3,4 km á lengd. Sjá nánari frásögn á blaðsíðu 3. Ljósm.: Sv. Þorm. Herskip slá IMörg rússnesk hring um Kúbu skip á leið þangað Washington og Havana, 23. okt. — AP-NTB — FJÖLDI bandarískra herskipa hefur nú slegið hring um Kúbu og eru reiðubúin að stöðva hvert það skip, sem grunur gæti leikið á að flytti. vopn til Kúbu. Ekk- ert skip hefur enn verið stöðv- að, en vitað er um nokkur, sem eru á leið til Kúbu. Hefur banda- ríski flotinn sérstaklega fylgzt með ferðum rússneska skipsins Polotavia, sem er sérstaklega búið til að flytja eldflaugar. Er Varð fyrir bifreið og fótbrotnaði Akureyri, 23. okt. UM kl. 7.40 í morgun varð Sverrir Magnússon til heimilis að Norðurgötu 57, starfsmaður í Blikksmiðjunni fyrir bifreið skammt vestan við trésmíða- verkstæðið Skjöld í Gránufélags götu. Bifreiðin var fólksbíll af VW-gerð og lenti Sverrir á henni að framanverðu hægra megin en kastaðist síðan yfir hana og hafn aði á götunni aftan við bílinn vinstra megin. Sverrir var þegar fluttur í sjúkrahús og við rannsókn kom í ljós að báðar pípur hægri fót- ar voru brotnar og hafði hann Árni Sigurðsson sóknarprestur á Norðfirði PRESTKOSNING fór fram Norðfjarðarprestakajli í Suður Múla prófastsdæmi 14. þ.m. At- kvæði voru talin á skrifstofu biskups á mánudag. Á kjörskrá voru 894. Atkvæði greiddu 613 og fór atkvæðagreiðslan þannig að séra Árni Sigurðsson sóknar prestur á Hofsósi hlaut 422 atkv. séra Sigurjón Einarsson kennari í Kópavogi 130 atkv, og séra Trausti Pétursson prófastur, Djúpavogi 59 atkv. Einn seðill var auður og einn ógildur. Kosn ingin var lögmæt og séra Arni Sigurðsson því rétt kjörinn til prestakallsins. hlotið nokkur meiðsl önnur, sem órannsökuð eru enn Þau eru þó ekki talin stórvægileg St.E.Sig. Fjárleitað úr flugvél AKUREYRI, 22. október. — Um hádegisbilið í dag flaug Tryggvi Helgason, sjúkraflugmaður, um framdali Eyjafjarðar, í fjárleit., en slíkar leitir hefur hann fari ið í undanfarin haust. Með Tryggva voru kunnugir öárbændur. Leiðangursmenn fundu all margar kindur í 2 eða 3 dölum og verða þær sóttar næstu daga. Einnig sáu leitarmenn ógrynni af rjúpu. — St. E. Sig. Mokliríð á Akureyri KLUKKAN tæplega 10 í gær- kvöldi fór ið snjóa á Akureyri og um 15 mínútum síðar voru allar götur hér orðnar gráar. Laust fyrir kl. 11 fór fréttaritari blaðsins hringferð um bæinn. Þá var þétt hríð og hvítt orðið frá fjalli til fjöru, og talsverður snjór að safnast í brekkurnar. K1 11 var hér mokhríð. — St.E.Sig. talið að skip þetta sé nú á leið til Kúbu, og jafnvel að það verði fyrsta skipið, sem bandaríski flot inn hindrar í a? sigla þangað. Kennedy, Bandaríkjaforseti, boðaði í gær aðflutningsbann á vopn til Kúbu, og var jafnframt tilkynnt í Washington að ekki yrði hikað við að skjóta á skip, sem ekki hlýddu banninu. Skömmu eftir ræðu forsetans gaf Fidel Castro, forsætisráð- herra Kúbu, út fyrirskipanir um að kalla til vopna allan her landsins og var síðan útvarpað tilkynningu um Havanaútvarpið þess efnis að hernaðarástand ríkti í landinu. Búizt var við að Castro flytti útvarps- og sjón- varpsávarp í dag, en ekki vitað hvort úr því yrði. 254 skip Varnarmálaráðuneyti Banda- ríkjanna hefur neitað að gefa upplýsingar um fjölda herskip- anna, sem eru á verði við Kúbu, en í gær var áætlað að þau væru rúmlega fjörutíu. Ekki hefur heldur verið látið neitt uppi um fjölda rússneskra skipa á leið til Kúbu annað en að þau séu mörg. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum munu 254 erlend skip hafa affermt í kúbönskum höfnum á tímabilinu 1. júlí til 30. september sl., en þar af voru aðeins rúmlega 90 frá kommún- istaríkjunum, eða að meðaltali eitt á dag. Kennedy forseti hefur skipað sérstaka öryggisnefr.d, en í henni eru fulltrúar úr öryggisráði Bandaríkjanna. Á nefnd þessi að sitja fund með forsetanum á hverjum morgni og fylgjast með öllu, sem gerist varðandi Kúbu. f nefndinni eiga sæti Lyndon B. Johnson varaforseti, Robert Mc- Namara varnarmálaráðherra, Dean Rusk utanríkisráðherra, Douglas Dillon fjármálaráð- herra, Robert Kennedy dóms málaráðherra, Maxwell Taylor forseti herforingjaráðsins og John McCone yfirmaður leyni- þjónustunnar. Viðbúnaður í Florida Upplýst var í Colorado Springs í dag að sveitir orustuflugvéla hafi verið sendar þaðan til flug- valla í suðausturhluta Banda- ríkjanna, og er þar nú 180 þús- und manna herlið. Mikill við- búnaður er víða í Florida, sem er aðeins 145 km frá Kúbu, og í Key West og Mayport flota- stöðvunum hafa safnazt miklar hernaðarbirgðir. Nýr flugturn var byggður í Key West á 48 klukkustundum, og hefur tekið við yfirstjórn flugumferðar þar Framh. á bls 23. A ð e i n s dagar e f t i r í hinu glæsilega Skyndihapp- drætti Sjálfstæðisflokksins. — Þeir, sem hafa fengið senda miða, en ekki gert skil fyrir þá enn, eru því beðnir um að gera það eins fljótt og þeir frekast geta. — Miðarnir hafa selzt mjög vel og eru nú að- eins fáir eftir til sölu í happ drættisbílunum sjálfum í Aust urstræti (við Útvegsbankann) og skrifstofu happdrættisins í Sjálfstæðishúsinu. Skrif- stofan er opin til kl. 10 eJi. Togarasölur 1 GÆR seldu togararnir Hafliði í Cuxhaven 132 tonn fyrir 86.665 mörk og Jón forseti í Bremenhav en 123% tonn fyrir 89.500 mörk Einn togari selur í Bretlandi í dag oig tveir á morgun í Þýzka landi. Drætti alls ekki frestað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.