Morgunblaðið - 26.10.1962, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.10.1962, Qupperneq 1
II Föstud. 26. okt. /962 s 2tttn*uunWíiíuí> FjárEagaræða Gunnats Thoroddsen Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðlierra HÉR FER á eftir ræða fjármála- ráðherra, Gunnars Thoroddsen, við 1. umræðu fjáriaga sl. þriðju dagskvöld. Herra forseti. Góðir hlustend- ur. Frv. til fjárlaga fyrir árið 1963 liggur hér fyrir til 1. umr. Rétt er að gera fyrst grein fyrir afkomu ríkissjóðs á sl. ári. Þeg- ar ríkisbókhaldið hefur lokið upp gjöri ríkisreiknings, en það var xiú á öndverðu sumri, fara yfir- skoðunarmenn Alþingis yfir reikninginn og gera athugasemd- ir sínar. Af hálfu fjmrn. eru sam in svör og skýringar í samb. við þær aths. og að því loknu gera yfirskoðunarmenn tillögur um, hvernig með skuli fara. Reikn- ingurinn er síðan prentaður með aths., svörum og tillögum og sam- kv. stjórnarskránni ber að leggja frv. til laga um samþykkt á ríkis- reikningnum fyrir Alþingi. Þessu er nú lokið, og var frv. til laga um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir 1961 lagt fyrir Ed. Alþing- is í gær, tekið þar fyrir til 1. umr. og vísað til 2. umr. og fjhn. Mun það vera í fyrsta sinn, sem full- gerður reikningur fyrir næstliðið ár ásamt frv. um samþykkt á hon um er lagt fyrir Alþingi, áður en 1. umr. fjárlaga fer fram. Athugasemdir með fæsta móti. Yfirskoðunarmenn gera að þessu sinni 28 aths. við ríkisreikn inginn og er það með fæsta móti. Till. þeirra, að svörum fengnum, hafa samkv. venju verið ýmist á þá leið, að þeir telja aths. full- nægt með svarinu eða málið sé upplýst, að þeir telja, að svo búið megi standa, að aths. sé til at- hugunar eða eftirbreytni fram- vegis, og loks, að þeir vísa mál- inu til aðgerða Alþingis, ef þeim þ. '..ir sérstök ástæða til. í þetta sinn var ekkert atriði, sem yfic- skoðunarmenn töldu ástæðu til aö vísa til aðgerða Alþingis. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni, að breyta þurfi þeirri venju, sem hér hafði tíðkazt um langan aldur um endanlega sam- þykkt ríkisreikninga á Alþingi, aó þeir væru ekki lagðir fyrir A’hingi til samþykktar fyrr en þeir eru orðnir 2—4 ára gamlir. 1 i þessi csiður hafði viu^ - zt lengi. Nú hefur þessu verið breytt. Ríkisreikningar fyrir ár- in 1959, 1960 og nú fyrir 1961 hafa verið lagðir fyrir Alþingi til samþykktar strax á næsta ári eft ir reikningslok. Var að því stefnt varðandi hina tvufyrrireikninga', að unnt væri að afgr. þá endan- lega á Alþingi fyrir áramót, en sú regla þarf að komast á. En stjórnarandstæðingar lögðu á það rrykið kapp, bæði á þingi 1960 og 1961 að koma í veg fyrir, að þessi umbót kæmist í fram- kvæmd, og tókst að tefja málið í bæði skiptin. En allt er, þegar þrennt er, og nú er hin þriðja til- raun gerð, til þess að fá ríkis- reikninginn endanlega samþykkt an fyrir áramót, og vænti ég þess fastlega, að hv. stjórnarand.stæð ingar láti sér nægja þá gleði að hafa tafið þessa umbót í 2 ár, og allir hv. alþm. telji nú tíma- bært að koma á þessari sjálf- sögðu reglusemi í rikisbúskapn- um. Afkoma ríkissjóffs 1961 Skal nú gefið hér yfirlit um afkomu ríkissjóðs á árinu 1961. Tekjur ríkissjóðs voru áætlaðar í fjárlögum 1589 millj. kr., en urðu 1672 millj. og voru þannig 83 millj. fram úr áætlun. Liggja til þess aðallega tvær ástæður. Tekju- og eignarskattur fór veru lega fram úr áætlun. Það stafar einkum af réttari framtölum, sem eiga rót sína að rekja til umbóta á skatta- og útsvarslögum. Og tekjur ríkissjóðs af innflutningi, sem .miðast við hundraðstölu af verðmæti innfluttra vara, urðu meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Á hinn bóginn urðu tekjur af rekstri ríkisstofnana, — en þar er Áfengis- og tóbaksverzlun rík isins stærsti liðurinn — um 19 millj. kr. minni en fjárlög ætl- uðu. Útgjöld ríkisins eru í fjár lögum greind sundur í reksturs- útgjöld samkv. 7.—19. gr. og eignarhreyfingar samkv. 20. gr. Rekstursútgjöldin, sem voru á- ætluð 1476,4 millj. reyndust 1509,8 millj. eða 33,4 millj. um fram áætlun. Nemur það um 2,3%. Til samanburðar má geta þess, að á árunum 1946—1958 voru umframgreiðslur á rekstr- arreikningi að meðaltali tæplega 11%. Árið 1959 urðu þær 0,8%, 1960 urðu rekstursgjöldin lægri en fjárlög gerðu ráð fyrir eða 3,7% undir áætlun. Þessar um- framgreiðslur árið 1961 stafa eink um af hækkuðu kaupgjaldi á miðju ári og gengisbreytingunni, sem kom í kjölfar þeirra. Launa hækkun opinberra starfsmanna um 13,8% frá 1. júlí 1961 mun hafa valdið um 25 millj. kr. hækk un ríkisútgjaldanna á árinu og gengisbreytingin sjálf um 10 millj. kr. hækkun. Þetta voru rekstursgjöldin. Útgjöldin samkv. 20. gr. fjár- laga voru áætluð 111,9 millj., en urðu 77,1 millj. eða 34,C millj. undir áætlun. Flestir liði 20. gr. fylgdu úæ th.ii, en vegna stofn- unar Ríkisábyrgðasjóðs samkv. lögum frá síðasta Alþingi þurfti ekki að greiða úr ríkissjóði 38 millj. kr., sem áætlað hafði verið í 20. gr. fjárlaga vegna áfallinna ríkisábyrgða. í Ríkisábyrgðasjóð inn var ákveðið, að rynni veru- legur hluti af gengishagnaði 'út- flutningsbirgða í ágúst 1961. Ósamræmi í útreikningi greiðslujafnaðar Heildarútgjöld ríkissjóð samkv. fjárlögum, þ.e. bæði reksturs- gjöld og útgj. skv. 20. gr. fjárí., voru áætluð rúmar 1588 millj., urðu tæpar 1587 millj. eða rúm- lega 1 millj. undir áætlun. Þar sem ríkisreikningurinn og írv. um samþykkt á honum liggur nú fyrir Alþingi, get ég verið stutt- orðari en ella um einstök atriði hans. Auk tekna og gjalda samkv. fjárlagaliðum eru ýmsar útborg anir og innborganir hjá ríkissjóði, sem hafa áhrif á greiðslujöfnuð- inn. Eru það einkum breytingar geymslufjár, yeitt lán, aukið rekstrarfé ríkisstofnana, fyrir- framgreiðslul- vegna fjárl. næsta árs o. fl. Þegar finna skal greiðslu jöfnuð ríkissjóðs, þ.e.a.s. greiðslu afgang hans eða halla, þá hafa fleiri reglur en ein verið viðhafð ar. í ríkisreikningnum fyrir 1961 hefur nú eins og 1960 verið tek- in upp grg. um greiðslujöfnuðinn, en slíka grg. hefur ekki verið að finna áður í ríkisreikningum. í þeim skýringum kemur það m.a. fram, að sú aðferð, sem ríkisbók- haldið hefur haft, er nokkuð frá- brugðin þeim reglum, sem Seðla banki íslands notar. Þessi munur liggur m.a. í því hvernig telja skuli breytingar á geymslufé, fyrningar o.fl. Samkv. aðferð rík isbókhaldsins varð greiðsluaf- gangur ríkissjóðs árið 1961 um 57 millj. kr. Seðlabanki íslands hefur um nokkurra ára skeið not að aðra reikningsaðferð við á- kvörðun greiðslujafnaðar ríkis sjóðs, og hefur það komið fram í tímariti bankans, Fjármálatíð- indum. Seðlabankinn notar hér svipaða aðferð og ýmsar alþjóð- legar fjármálastofnanir, svo sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Al- þjóðabankinn og Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD. í stuttu máli er hún fólgin í því, að reiknuð er sú breyting, sem orðið hefur á árinu á sjóði, banka innstæðum og lausaskuldum rík issjóðs. Ef breytingin á þessu þrennu samanlagt er jákvæð, þá hefur orðið greiðsluafgangur, sem því nemur, ef hún er nei- kvæð, er greiðsluhalli sam- kvæmt þessum reglum sem nú hafa hlotið allalmenna viðurkenningu, var greiðsluaf- gangur ríkissjóðs á árinu 1961 72,4 millj. Þessi regla Seðlabank ans og alþjóðlegra fjármálastofn ana er einföld í notkun, gefur glögga mynd af útkomu ríkis- sjóðs og gerir auðvelt að átta sig á áhrifum afkomu ríkissjóðs á efnahagslífið. Til fróðleiks skal hér getið um greiðslujöfnuð rík- issjóðs árin 1950 og síðan samkv. þessari aðferð Seðlabanka ís- lands. 1950 var greiðsluafgangur 23,9 millj. 1951 var greiðsluhalli 9,1 millj., 1952 greiðsluhalli 38 millj., 1953 greiðsluafgangur 7,2 millj., 1954 greiðsluafgangur 15,5 millj., 1955 greiðsluhalli 5 millj., 1956 greiðsluhalli 28,4 millj., 1957 greiðsluhalli 36,8 millj., 1958 greiðsluafgangur 52,7 millj., 1959 greiðsluafgangur 13,2 millj, 1960 greiðsluafgangur 35,4 millj og 1961 greiðsluafgangur 72,4 millj. Þetta eru tölurnar samkv. þeim reglum, sem Seðlabankinn og al- þjóðlegar fjármálastofnanir nota. Ný löggjöf um ríkisbókhald og endurskoffun Nú munu menn spyrja: Þarf að ríkja einhver óvissa um það, hvernig reikna skuli raunveru- lega afkomu ríkissjóðs á hverju ári? Er ekki hægt að setja ttm það fastar reglur og skapa samræmi frá ári til árs? Svarið er: að þessu er einmitt unnið. Nú hefur á ann að ár verið undirbúin ný lög- gjöf um ríkisbókhald og endur- skoðun. Er gert ráð fyrir veru- legri breytingu á gerð fjárlaga og ríkisreiknings, til þess að fá glögga mynd af afkomu ríkis- sjóðs og gott samræmi milli fjár laga og ríkisreiknings. En eins og hv. alþm. er kunnugt, skortir mjög á, að svo sé nú. Oft er örð ugt um samanburð á fjárlögum, ríkisrekiningi og frv. til laga um samþykkt á honum. Með undir- búningi þessarar nýju löggjafar er m.a. að því stefnt að fá slegið fastri reglunni um það, hvernig reikna skuli greiðslujöfnuð, greiðsluafgang eða halla ríkis- sjóðs, sú regla verði lögfest og þar með tryggt samræmi milli ára, svo að um þetta þurfi ekki að deila. Drög að slíku frv. og ýtarleg grg. hafa verið samin og eru nú til athugunar hjá ýms- um sérfræðingum um þessi efni. En hér er um að ræða mjög nauð , synlega umbót í rilkisrekstrinum, sem þarf að koma í framkvæmd sem fyrst, en jafnframt verður að vanda mjög allan undirbúning þeirrar umbótar. Rétt aff gera ráff fyrir greiffslu- afgangi á yfirstandandi ári Skuldir ríkissjóðs eru í árslok 1961 taldar um 995 millj. kr. Þær hafa lækkað um 348 millj. á ár- inu, en sú skuldalækkun liggur fyrst og fremst í því, að Seðla- bankinn hefur með samningi við fjmrn. tekið að sér skuldir við Alþjóðabankann og Gjaldeyris- sjóðinn. Það er nýmæli í skulda málum ríkissjóðs, að tekjuaf- gangi ársins var nú fyrst og fremst ráðstafað til að greiða upp lausaskuldir ríkisins. Þær voru í ársbyrjun 1961 42,8 millj. kr., en voru greiddar að fullu á árinu. í lok 1961 voru því engar lausa-. skuldir hjá ríkissjóði. En lausa- skuldir ríkissjóðs hafa undanfar- in ár verið sem hér segir miðað A við árslok: 1950 91,9 millj., 1951 84.4 millj., 1952 80,5 millj., 1953 72,8 millj., 1954 69,2 millj., 1955 105 millj., 1956 91,5 millj, 1957 89.5 millj., 1958 voru þær 60,8 millj., 1959 voru þær 28,1 millj., 1960 42,8 millj. og í lok ársins 1961 engar. Eignir ríkisins umfram skuld- ir, — það, sem kallað er skuld- lausar eignir eru nú taldar 1292,3 millj. kr. og höfðu aukizt um 144 millj. á árinu. Varðandi horfur um afkomu ríkissjóðs á árinu 1962 er þess að geta, að rekstrar tekjur ríkissjóðs voru áætlaðar í fjárlögum 1748,8 millj.. og rekstr arútgjöld, 1637,7 millj. 30. sept. sl. voru rekstrartekjur orðnar 1347 millj. og rekstrarútgjöld 1293,8 millj. Tekjur af innflutningi <• munu reynast nokkru meiri æn ráðgert var, bæði sökum vax- andi magns innfluttra vara, svo og þess, að samsetningur innflutn ingsins virðist færast í það horf, að tolltekjur af hverri krónu verði meiri. Ennfremur má búast við, að tekju- og eignarskattur verði hærri en fjárlög gera ráð fyrir. Á hinn bóginn munu verða umframgreiðslur á liðnum til nið urgreiðslu á vöruverði innan- lands og til uppbóta á útfluttar landbúnaðarafurðir. Ennfremur Framhald á bls. 2. E F N I þessa aultablaðs er m. a.: Kirkjuþingið í Vatikaninu .............. bls. 3 Picasso, málarinn mikli ................— 6 Eskifjörður ............................ — 8 „Það er ekki sæmandi“ ..................— 10 Heimsókn til Blönduóss .................— 12 . nyon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.