Morgunblaðið - 26.10.1962, Side 2
2
MORGUNBLAÐÍÐ
Föstudagur 26. október 1962
— Fjárlagaræðan
Framhald af bls. 1.
munu launabætur þær, er veittar
hafa verið á árinu, óhjákvæmi-
lega valda umframgreiðslum.
Eins og nú horfir, er rétt að gera
ráð fyrir greiðsluafgangi hjá rík
issjóði á yfirstandandi ári, en
ógerlegt er að svo komnu að
nefna tölur um það efni.
Heildarótgjöld fjárlaga
Heildarútgjöld fjárlaga fyrir
yfirstandandi ár voru áætluð
1748.7 millj. kr. Heildarútgjöld
fjárlagafrv. fyrir næsta ár, sem
hér liggur fyrir, eru áætluð um
2113,4 millj. og er það hækkun
364.7 millj. kr. Sú upphæð skipt-
ist þannig, að áætlanir með rekst
ursútgjöld hækkar um 347,5
millj., en útgjöld vegna eigna-
hreyfinga á 20. gr. um 17,2 millj.
í frv. er gert ráð fyrir greiðslu-
afgangi á næsta ári, sem nemur
um 12,8 millj. kr. Ástæður til
þeirra hækkana, sem eru á þessu
fjárlagafrv. frá gildandi fjárlög-
um, eru einkum þær, sem nú skal
greina.
í fyrsta lagi. Vegna fólksfjölg-
unar í landinu hækka ýmsir liðir
óhjákvæmilega frá ári til árs.
Má þar nefna sem dæmi kostnað
við kennslumál vegna fjölgunar
barna og unglinga við nám. Á
rekstursreikningi hækkar kostn-
aður við skólamálin um 18,4
millj. og á 20. gr. hækka fram-
lög til byggingar Menntaskóla
og Kennaraskóla um 2 millj.
Kostnaður við kennslumálin
hækkar þannig um rúmar 20
millj. króna. ,
I öðru lagi. Framlög til félags
mála hækka um 85,9 millj. Fram
lagið til atvinnuleysistrygginga-
sjóðs er að upphæð 32,9 millj. á
næsta árL í gildandi fjárlögum
var gert ráð fyrir, að framlagið
fyrir þetta ár yrði greitt á nokkr
um árum. Hefur nú verið ákveð-
ið, að það greiðist á næstu 4 ár-
um, og hefur fyrsta fjárveitingin
vegna framl. fyrir árið 1962 verið
tekin upp í fjárlagafrv., nú, en
það eru 6 millj. og 875 þús. kr.
f»á má vænta breytinga á lögum
um almannatryggingar, en heild
arendurskoðun á þeim lögum
stendur nú yfir. Má gera ráð fyr
ár nokkrum breytingum, er hafa
á för með sér aukin útgjöld, m!a.
þeirri breytingu, að allt landið
verði nú gert að einu varðlags-
svæði.
í frv. er áætlað framlag vegna
væntanlegra breytinga á lögum
um almannatryggingar, 20 millj.
kr. f>á hækka einnig framlög til
Byggingarsjóðs verkamanna, til
sjúkratrygginga og kostnaður við
rikisframfærslu sjúkra manna og
örkumla.
í þriðja lagi. Vegna endurreisn
ai' í stc .ulánamálum landbúnaðar
ins með lögum frá síðasta þingi,
hækka framlög ríkissjóðs um 9-
XRÍlij. kr.
í fjórða lagi. Vegna laga um
aflatryggingarsjóð hækka fram-
lög ríkissjóðs um 9 millj. kr.
Niðurgreiðslur og uppbætur
í fimmta lagi. Niðurgreiðslur á
vöruverði og uppbætur á útflutt
ai: landbúnaðarafurðir hækka um
130 millj. frá núgildandi fjárlög
run. Þegar áætlun var gerð um
þennan lið í fjárlögum þessa árs,
stóð yfir athugun á endurskoðun
á niðurgreiðslukerfinu í heild
með það fyrir augum, að draga
mætti úr þessum kostnaði. Nið-
urstaðan af þeirri athugun varð
sú, að hætt var við niðurgreiðslu
á kartöflum, en aðrar breytingar
reyndist ekki unnt að gera. í
þessu sambandi er rétt að benda
á þá staðreynd, að neyzla hinna
niðurgreiddu vara vex mjög
ört. Neyzla landsmanna á kjöti,
mjólk, smjöri og fleiri landbún-
aðarvörum eykst um 10% á ári
á sama tíma, sem fólkinu í land-
inu fjölgar aðeins um 2%. Ástæð
ur þessarar miklu neyzluaukn-
ingar, að neyzlan eykst fimm-
falt á við fólksfjölgunina, eru
væntanlega einkum tvær, önnur
batnandi afkoma landsmanna,
hin, að hið niðurgreidda verð
er lægra hlutfallslega en annað
verðlag í landinu, og þessar ástæð
ur kal1 é aukna neyzlu. Þessa
staðreynd er rétt að hafa í huga
í sumbandi við niðurgreiðslur í
framtíðinni á nauðsynjavörum.
Heildarfjárhæð til niðurgreiðslu
á vöruverði og til uppbóta á útfl.
landbúnaðarvörur er áætluð 430
millj. í stað 300 millj. í gildandi
fjárl. Á grundvelli þess magns
af landbúnaðarvörum, sem seld-
ist innanlands 1961 eru útgjöld
til niðurgreiðslu áætluð 352
millj., en til uppbóta á útfluttar
afurðir 60 millj. Samkv. fenginni
reynslu þótti svo rétt að hækka
þessa áætlun um ca. 5% vegna
meiri söluaukningar en gert er
ráð fyrir í þessum áætlunartöl-
um.
í sjötta lagi. í september sl. var
samkv. hinum nýju lögum um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna samið um 7 % launahækk-
un til handa ríkisstarfsmönnum.
Undirbúningi fjárlaga var þá svo
langt komið, að ekki þótti ger-
legt að endurreikna launalið i
frv. vegna þessarar uppbótar.
Þess vegna er uppbótin áætluð í
einu iagi á 19. gr. Á sl. vori var
ákveðið að greiða kennurum sér
um 270 milj. hærri tekjum en
fjárlög nú gera ráð fyrir. Þá er
miðað við innflutning, sem nemi
um 3500 millj. á næsta ári. Hinn
vaxandi innflutningur stafar af
aukinni framleiðslu, vaxandi
kaupgetu og frjálsari innflutn-
ingi.
2. Vaxandi velta innan lands,
enda er gert ráð fyrir, að 3%
söluskatturinn skili 247,6 millj.
eða 32,6 millj. meira en í gild-
andi fjárlögum.
3. Hækkandi tekjur lands-
manna bæði vegna almennra
kauphækkana og aukinnar fram
leiðslu, einkum síldveiði. Tekju-
og eignaskattur er áætlaður 155
millj. eða 60 millj. hærri en í
gildandi fjárlögum. Koma hér
einnig til áhrif skattlaga, sem
óvefengjanlega valda réttari
framtölum.
Þessir þrír liðir, sem ég gat um
sérstaklega, nema um 360 millj.
kr. áætluðum tekjuauka. Auk
þess hækka nokkrir smærri liðir,
5,8 millj., þá raforkumál 31,8
millj. og loks rannsóknir í þágu
atvinnuveganna o. fl. 12,7 millj.
17. gr. fjallar um félagsmál,
þar með framlög til almanna-
trygginga, og nema þau í fjár-
lagafrumvarpinu fyrir næsba ár
504,4 milj. kr.
18. gr. er til eftirlauna og
styrktarfjár, 42,3 millj.
19. gr., sem heitir: Til óvissra
útgjalda o. fl. 521 millj., en þar
er aðalliðurinn að sjálfsögðu 430
millj., sem ætlaður er til niður-
greiðslu á vöruverði og uppbóta
á útfluttar landbúnaðarafurðir,
sem samkvæmt gamalli venju eru
hafðar á 19. gr. Á þessari 19. gr.
er einnig sá liður, sem ég gat
um hér áðan, til launauppbóta,
65 millj. kr.
Þetta voru útgjöldin sam-
kvæmt rekstrarreikningi fjárl.
þ.e.a.s. 7.—19. gr.
1 20. gr. fjárl., sem kölluð er:
eignarhreyfingar, eru útgjöldin
áætluð 128,1 millj., þar af eru
Framlög til flugvallagerða hækka upp í 12,7 milljónir króna.
staka kgupuppbót vegna auka-
starfa, sem ekki eru önnur á-
kvæði um, hvernig greiða skuli
og samsvarar þóknunin greiðslu
fyrir fjórar stundir á viku þann
tíma, sem skóli starfar. Hefur
þótt rétt að fá fjárveitingu fyrir
þessari launauppbót fyrir árin
1962 og 1963.
Framangreindar launauppbæt-
ur til ríkisstarfsmanna og sérupp
bætur til kennara eru áætlaðar
65 millj. kr.
Til verklegra framkvæmda
í sjöunda lagi. Framlög til ým
issa verklegra framkvæmda eru
hækkuð. Þannig hækka framlög
til flugvallargerðar úr 10,7 millj.
upp í 12,7 millj. eða um 2 millj.
Framlag til vegaviðhalds hækkar
um 5 millj., úr 78 í 83 millj.
Framlög til hafnarmannvirka
og lendingarbóta hækka um 3.2
millj., úr 13,8 upp í 17 millj. Til
aukningar landhelgisgæzlu er
fjárveiting hækkuð um 3,4 millj.
upp í 8,4 millj., og er það bæði
vegna greiðslu afborgana og
vaxta af kaupverði varðskipsins
Óðins, og vegna kaupa á gæzlu-
flugvélinni Sif. Þá er nýr liður,
ZV2 millj. til smíði tveggja nýrra
flóabáta, Djúpbáts og Stykkis-
hólmsbáts. Áætlaður byggingar-
kostnaður hvors bátsins er 7
millj., og mun ríkissjóður greiða
helming smíðakostnaðar. Gert
er ráð fyrir, að greiða þurfi eina
millj. af framlagi ríkissjóðs til
hvors báts við undirritun smíða
samnings og 750 þús. að auki til
hvors þeirra á árinu 1963. Þess
vegna nemur fjárlagaliðurinn nú
3% millj. Síðan er gert ráð fyrir
250 þús. kr. árlegri fjárveitingu
til greiðslu hluta ríkissjóðs, unz
greiddur hefur verið helmingur
byggingarkostnaðar.
Hér hefur verið getið stærstu
liðanna, sem valda hækkun á
gjaldhlið fjárl., og sést af þeim
í hverju meginhluti hækkunar
fjárlfrv. er fólginn.
Skal þá vikið að tekjuáætlun
frv.
Heildartekjur ríkissjóðs.
Heildartekjur ríkissjóðs eru á
ætlaðar á næsta ári 2126,2 millj.,
og er það hækkun um 374,2 millj.
frá gildandi fjárl. án þess að
skatta- eða tollstigar séu hækk
aðir eða nýjar álögur upp teknar.
Þessar ástæður valda aðallega
aukningu ríkisteknanna:
1. Vaxandi innflutningur, sem
skilar að óbreyttum tollstigum
og vísa ég ta grg. fjárlfrv. um
þau atriði.
Helztu gjaldaliðir
fjárlagafrumvarpsins
Þessu næst skulu raktir í stór-
um dráttum helztu gjaldaliðir
fjárlagafrumvarpsins.
í 7. gr. fjárlfrv. er gert ráð
fyrir, að vaxtagreiðslur nemi
10.6 millj. kr. Það er hækkun
um 1,4 millj. frá gildandi fjár-
lögum og stafar aðallega af kaup
um á húseigninni Borgartúni 7,
sem ég mun koma nánar að í
öðru sambandi.
8. gr. er kostnaður við æðstu
stjórn landsins, 1,6 millj.
9. gr. er til alþingiskostnaðar
og yfirskoðunar ríkisreikninga,
12.6 millj.
10. gr. til ríkisstj., en þar er
innifalinn allur kostnaður við ut-
anríkisþjónustuna, er 50,6 millj.
kr.
11. gr. er í þrem liðum. Það er
fyrst a) dómgæzla og lögreglu-
stjórn, sem er áætlað, að kosti
96.1 millj., en í því er innifal-
inn kostnaður við landhelgis-
gæzluna. 11. gr. b) kostnaður
við innheimtu tolla og skatta
32.1 millj. og c) sameiginlegur
kostnaður við embættisrekstur,
2,2 millj. kr.
12. gr. fjallar um læknaskip-
un og heilbrigðismál, og er kostn
aður samkvæmt henni 66,1 millj.
kr.
13. gr. skiptist í nokkra undir-
kafla..Eru þar fyrst vegamál, en
til þeirra á að verja 114,2 millj.
kr. Þá er samgöngur á sjó 17,6
millj., vitamál og hafnargerðir
34.1 millj., flugmál 12,2 millj. Ég
vil geta þess í sambandi við flug-
málin, að þetta er aðeins rekstur
flugvallanna, en hins vegar er
annar liður, nokkru hærri en
þetta, á 20 .gr., til nýrra flug-
valla. Þá er veðurþjónusta 5,2
millj. og ýmis mál, þar er m.a.
Ferðaskrifstofa ríkisins, ferða-
mál, lar.d- og sjómælingar o. fl.
6,5 millj.
14. gr. skiptist í tvo undirliði,
það er a) kennslumál og er gert
ráð fyrir, að þau- kosti 241,4
millj. kr. b) er til opinberra
safna, bókaútgáfa og listastarf-
semi 15,.. millj.
15. gr. kirkjufnál, og er veitt
til þeirra 1GV2 millj.
16. gr. skiptist í fimm undir-
liði. Er þar fyrst landbúnaðar-
mál 95,2 millj., þá sjávarútvegs-
mál 36,7 millj., þá iðnaðarmál
stærstu liðirnir afborganir lána
rikissjóðs 20,1 millj., framlag til
Ríkisábyrgðarsjóðs 38 millj., til
bygginga ríkisspítalanna 7,2
millj., til flugvalla 12,7 millj., til
ýmissa skólabygginga á vegum
ríkisins 8,4 millj. Til byggingar
lögreglustöðvar 3 millj. o. fl.
Ekki á að standa á fé
til byggingaíramkvæmda
menntaskólans
Ég vil af sérstöku tilefni minn-
ast á einn lið í 20. gr., sem er
hækkaður nú frá gildandi fjárl.,
og það er til byggingar Mennta-
skólans í Reykjavík. í gildandi
fjárl. vorU veittar 2 millj., og sú
fjárveiting er nú hækkuð upp í
3 millj. Á undanförnum árum
hefur safnazt saman nokkurt fé,
sem veitt hefur verið til bygg-
ingar menntaskóla, og er nú eft-
ir ónotað af fyrri fjárveitingum
um 5,2 millj. kr. Húsnæðismál
menntaskólans eru eitt af hinum
mestu nauðsynjamálum, sem
vinda þarf bráðan bug að að
hrinda í framkvæmd. Það er að-
kallandi að ákveða, hvert stefna
skuli, hvort á að byggja nýtt
menntaskólahús og þá væntan-
lega á þeim grunni, sem grafinn
var fyrir nokkrum árum í Hlíð-
um suður, eða hvort á að byggja
viðbótarbyggingar austanvert
við núverandi menntaskóla, eða
gera hvort tveggja, og tel ég það
æskilegast. Gamli menntaskól-
inn, sem þar hefur starfað í yfir
eitt hundrað ár, á að starfa á-
fram. Slíkar minningar eru
tengdar við það hús, að því verð
ur að halda við lýði, svo lengi
sem kostur er. Það er ekki að-
eins vegna skólahaldsins sjálfs.
Þar var Þjóðfundurinn haldinn,
Alþingi í mörg ár, þar sat Jón
Sigurðsson öll sín þing, því að
Alþingishúsið, sem við nú erum
í, var ekki byggt fyrr en að hon-
um látnum.
Það er mjög aðkallandi að taka
sem fyrst ákvarðanir um, hvert
stefna skuli í byggingarmálum
menntaskólans og afla sam-
þykkis skipulags- og byggingar-
yfirvalda í þeim efnum. Þegar
þetta liggur fyrir, sem ég vona
að verði, áður en langt um líð-
ur, á ekki að standa á fé til þess-
ara nauðsynlegu framkvæmda.
5,2 millj. eru sem sagt geymslu-
fé og 3 millj. er gert ráð fyrir
að veita í fjárlfrv. fyrir 1963. Um
leið og hafizt verður handa af
myndarskap og röggsemi, verð-
ur að hækka fjárframlög frá rík-
inu og útvega lánsfé, eftir því
sem nauðsyn krefur. f þessum
málum má enginn dráttur leng-
ur verða — svo mikið er í húfi
fyrir æsku Reykjávíkur og æsku
alls landsins, auk þess sem hér
stendur metnaður þjóðarinnar á
bak við.
Meiri vegagerð fyrir sama fé
í sambandi við þessa grg.
fyrir einstökum tekju- og út-
gjaldagreinum fjárl. og þeim
hækkunum, sem af ýmsum á-
stæðum hljóta að verða á tekj-
um og gjöldum ríkisins, þykir
mér rétt að minnast á nokkur
atriði varðandi hagsýslu, hag-
ræðingu og sparnað í vinnu-
brögðum á vegum ríkisins.
í síðustu fjárlagaræðu gat ég
um nokkur atriði í þessum efn-
um, sem ýmist væru komin til
framkvæmda eða á undirbún-
ingsstigi. M.a. gat ég þess þá, að
í vegaframkvæmdum hefði orð-
ið veruleg umbót í því efni, að
við skiptingu vegafjár hefði ver-
ið farið inn á nýjar brautir. Það
var öllum mönnum orðið ljóst,
að með því að skipta vegafénu á
mjög marga staði, þannig að að-
eins lítið kom í hlut hvers, var
verið að kasta peningum á glæ,
því að oft fór meginhluti fjár-
veitingar til tiltekins vegar fyrst
og fremst í það að flytja mann-
skap, verkfæri og vélar á stað-
inn og þaðan aftur.
f fjárl. 1959 var vegafénu
skipt niður á 219 staði. í fjárl.
fyrir 1960, 1961 og 1962 var
fækkað þeim vinnustöðum, þar
sem ætti að vinna hverju sinni,
en fjárveitingin aukin að sama
skapi. Á yfirstandandi ári hafa
þeir staðir, sem fjárveitingarnar
hafa farið í, verið 132, í staðinn
fyrir 219 árið 1959. Á því er eng-
inn vafi, að þessi fækkun vinnu-
staða og hækkun fjárveitingar í
hvern stað, leiðir til betri nýt-
ingar fjárins, og sparast þannig
mikið fé, sem kemur landsmönn-
um til góða í því, að þeir fá
meiri vegagerð fyrir sama fé.
Aukinn sparnaður og bætt
vinnubrögð
Sameining á innheimtu þing-
gjalda, útsvars, fasteignagjalda
til borgarsjóðs Reykjavíkur og
sjúkrasamlagsiðgjalda til Sjúkra
samlags Reykjavíkur, er nú
komin í kring, og hóf innheimtu
stofnunin nýja starfsemi sína 1.
september sl. undir nafninu
Gjaldheimtan. Þess er að vænta,
að skattborgurum þyki hag-
kvæmara að geta greitt öll sín
gjöld á einum stað, í stað þriggja
eða fleiri áður. Nú þegar Gjald-
heimtan er komin á stofn, virð-
ist áætlunin um kostnað við
hana hafa verið nærri lagi, og
má vænta þess, að fyrir ríkis-
sjóð verði af þessari endurskipu-
lagningu sparnaður, sem nemi
eigi minna en 2% millj. kr. á
ári, en auk þess mikill spárnað-
ur fyrir aðra þá aðila, sem að
innheimtustofnuninni standa. —.
Þessi framkvæmd er einn þáttur
í breyttu skipulagi við álagn-
ingu og innheimtu skatta og
tolla í ríkissjóð. Meðan við þenn-
an þátt var unnið, hafa aðrir
þættir verið látnir bíða, enda
var beðið eftir breytingunni á
t skattalögunum, sem gerð var nú
í ár, áður en lengra yrði haldið.
Nú ex ný tollskrá einnig í und-
irbúningi. Verður haldið áfram
undirbúningi þess að koma sparn
aði og bættum vinnubrögðum við
álagningu og innheimtu skatta
og tolla í ríkissjóð, en á því er
énginn vafi, að eins og sparnað-
| ur verður mikill við gjaldheimt-
una, sem ég nefndi, þá er einnig
hægt að spara mikið fé varðandi
þessi atriði.
Varahlutabirgðir Vegagerðar-
innar nema 22 millj. kr.
Eins og minnzt var á í fyrra
hefur verið til athugunar kostn-
aður við bifreiðar og vinnuvélar
ríkisins. Sú athugun er komin
töluvert áleiðis og nú þegar má
sjá, að mjög mikils sparnaðar'er
að vænta með skynsamlegri end
urnýjun á bifreiða- og vélakosti.
I Framhald á bls. 15.