Morgunblaðið - 26.10.1962, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.10.1962, Qupperneq 11
r Föstudagur 26. oktober 1962 MORGVlSBLAfílÐ II óhjákvæmilega sú, að menn leggja á sig æ minna erfiði fyrir æ meiri laun, eða þann- ig á það að vera a.m.k. Er hægt að ætlast til þess að jafn velgefin þjóð jafn sérstæðu landi og okkar slíti sér út fyrir einhverja aðra? Nei, má ég þá heldur biðja um dönsku blöðin. Okkur skortir enn svo margt, sem okkur er ekki sam boðið að skorta. Við eigum nóg með okkur sjálf. Enn eiga t. d. ekki allir bíla og tiltölu- lega fáir sumarbústað í sveit. En fleiri og fleiri stunda nú laxveiðar. enda eru þær eitt höfuðeinkenni nútíma menn- ingarþjóðfélags. Útlendingar eru mjög hrifnir af íslenzka laxinum, bragða ekkert betra, og kunna vel að meta það, þegar þeim er boðið til veiða í einhverri af stóru ánum, þar sem trén byrgja ekki fyrir út- sýnið. Þeir útlendu hafa oft á orði, að auk þess sem íslendingar séu gestrisnir og stórlyndir, séu afbrot sennilega færri hér á landi en nokkurs staðar,' jafnvel þó ekki sé miðað við fólksfjölda. Þetta lætur ekk- ert undarlega i eyrum okkar, því við erum að eðlisfari hlýðnir þeim lögum, sem við teljum að eitthvert vit sé í. Auðvitað kemur það stöku sinnum fyrir hér hjá okkur, að menn aðhafast ýmislegt, sem ekki má; draga á í góð- um laxveiðiám, hnupla úr verzlunum, eða aka yfir gatna mót á rauðu Ijósi. Allt slíkt er auðvitað vítavert og ber að hegna afbrotamönnunum duglega. Hins vegar eru svo þeir, sem gefa út falskar ávísanir eða svíkja undan skatti. Þess hátt- ar er í sannleika sagt ekki hægt að taka illa upp. Menn verða að bjarga sér, hvort sem þeir búa á íslandi eða annars staðar. Þeir, sem ekki geta svikið undan skatti eru auðvitað verr settir en hinir og búa þar af leiðandi við lakari kjör. Eðlilegast væri, að allir hefðu einhverja smugu. — En að hefta alla slíka sjálfsbjargarvið- leitni væri langtum verst og jaðraði við hreina lögleysu. Betur má ef tiuga skal önnur lögleysa er það, að ekki fæst leyfi til að opna næturklúbb í höfuðstaðnum. Þegar slíkt leyfi yrði veitt, fynndi almenningur fyrst, að stjórnarvöldin létu sér þarfir borgaranna einhverju móli skipta. í fyrsta lagi er ófært að geta ekki sýnt erlendum ferðamönnum neitt næturlíf, , sem jafnast á við það, sem tíðkast í öðrum heimsborgum. í öðru lagi er skemmtanalífið svo fábreytt hér, að veitinga- Framtakssamir menn og víð- sýnir sýndu þann einstæða frumleik og dugnað í sumar að koma af stað happdrætti meðal sjómanna á síldinni og var vinningurinn ferð til Mallorka. Þar eð happdrætti er algerlega nýtt fyrir íslend- inga og auk þess mjög skemmtilegt og spennandi, þá er þess vænzt að hér verði ekki látið staðar numið. Skemmtilegast væri að senda heilar skipshafnir út til Mall- orka næsta sumar og einnig mætti færa happdrætti sjávar útvegsins út til báta °g tog- ara. Þeir, sem t. t. veiddu þyngstu þorskana og ýsurnar á vetrarvertíðinni yrðu sendir til mánaðar hvíldar á Mall- orka eða Kanaríeyjum — og vafalaust yrði það mjög til að auka vinsældir togaraútgerð- arinnar, ef eitthvað svipað yrði gert þar. Þetta yrði sem sagt töluverð kjarabót, en þar af leiðandi einnig kjara- skerðing fyrir landkrabbana, ef þeir yrðu ekki aðnjótandi sömu hlunninda. Og þeir, sem engan happdrættisvinn- ing hlytu, yrðu að fá andvirði vinningsins greitt í peningum svo að allir sætu við sama borð og bæru jafnmikið úr býtum. Þróaðist þetta þá upp í reglulegan sumaraukastyrk, sem rikissjóður greiddi öll- um landsmönnum, enda er víst af nógu að taka hjá ríkis- sjóði — og jafngott að verja þeim peningum í eitthvað skynsamlegt, eitthvað fyr- ir fólkið. Ekki veitir nú líka af því að ríkið bæti okk- húsin fyllast nú orðið af gömlum vana, þó þangað sé ekkert að sækja nema nokkra tvöfalda, sem menn drekka nú orðið — líka af gömlum vana. Sjússinn kostar hvort sem er ekki nema 40—50 krónur — og gerir maður nokkuð skynsamlegra við þess ar skitnu krónur sem hvort eð er falla sífellt í verði? Nú, eitthvert róð verður fólk að hafa til þess að gleyma and- streymi daglega lífsins um stundar sakir, hrista af sér hversdagsleikann, sem er hálf- gerð plága hér í menningunni. Skemmtanalíifið er orðið einn veigamesti þáttur þjóð- 'lífsins og ber vissulega að fagna því. Enda þótt margir góðir menn hafi lagt mikið af mörkum til eflingar skemmt- analífinu, er töluvert langt í land að við komumst á heims- mælikvarða hvað úrval og fjölbreytni í þessum efnum snertir, eins og ég benti áður á. Hér eru öll skilyrði fyrir fjölbreyttara næturlíf og er það hálfgerð synd að láta jafnmikla möguleika- ónýtta. Næturdrykkja í heimahúsum og dansleikir í sveitum bæta dálítið úr skák en það hlýtur að vera xrafa hvers menning- arþjóðfélags, að stjórnarvöld- in sýni skemmtanamálunurn fullan áhuga. Þymgstu þorskarnir En alltaf gerist þó eitthvað, sem jákvætt verður að teljast ur upp alla þessa skatta, sem lagðir eru á landslýðinn. Uppmælingin lifi Nú haustar og fara þá sumir að hugsa til vertíðar, en fleiri hafa samt áhuga á þvi, hvort ' boðið verður upp á eitthvað almennilegt á skemmtistöðun- um í vetur. Það er heldur ekki nema eðlilegt, því lífið er löngu hætt að vera fiskur á íslandi. Fólk fer líka áð hugsa um jólin jólamatinn og jóla- gjafirnar — og hverju það ó að klæðast í öllum samkvæm- um, sem hátíðunum fylgja. Fólk gerir misjafnar kröfur í þessum efnum sem eðlilegt er, en alltaf virði ég samt kvenþjóðina fyrir naégjusemi og hagsýni í vetrarklæðnaði. Þarna arka þser um í vetrar- hörkunum í háhæluðum skóm og næfurþunnum nælonsokk- um og eru ní ekki mikið að hugsa um að fá sér eitthvað skjólbetra, blessaðar. Þegar rætt er um menning- arþjóðfélag nútímans má ekki gleyma uppmælingarkerfinu svonefnda, sem vafalaust hef- ur stuðlað meira en flest ann- að að bættum þjóðarhag, þ.e.a.s. þar sem það tryggir mönnum a.m.k. tvöföld laun. Annað er hrein vitleysa — og tiigangslaust. Það er þjóð- arnauðsyn að innleiða þetta kerfi á sem flestum sviðum svo að allir geti grætt á öll- um. Okkar helzta vandamál — og það, sem öllum gengur erfiðgst að kingja, er, að Pét- ur og Páll bera meira úr býtum en ég og þú, hvernig svo sem þeir fara að því. Ef hægt væri að tryggja, að við, ég og þú, bærum meira úr býtum en Pétur og Páll, þá mundu viðhcrfin breytast. Þetta er mál málanna, það vandamál sem stöðugt er ver- ið að leysa, en aldrei leysist samt. Og þetta er einmitt ein höfuðástæðan til þess, að þjóðin, sem hefur svo margt um fram aðrar þjóðir, lifir ekki áhyggjulausu lífi í landi sínu, — sem hún verðskuldar þó vissulega. 1 upphafi minntist ég ' auglýsingu í brezku blaði, auglýsingu um geysimikinn hamingjugróða. Ég hef aldrei séð slíka auglýsingu í íslenzku dagblaði, enda hrekkur hamingjugróðinn sennilega skammt fyrir sunnudagssteik- inni, brjóstbirtunni og nýja bílnum. Nei, íslendingar láta ekki bjóða sér hvað sem er! h.j.h. SPILIÐ, sem hér fer á eftir var spilað í rúbertubridge í Englandi ekki alls fyrir löngu. Er spilið einkar skemmtilegt og vel spilað Sagnir gengu þannig: Suður Vestur Norður Austur 2 4 2 gr 3 4 4 * 4 4 5 4 d obl pass 5 4 dobl redoll pass pass pass 4 5-3-2 4 10-8-5-4 4 Á-D-10-6 4 G-5 4 10-7-4 4 4 K-G-9-6 4 K-G-9-7- -2 0-4-3-2 4 8 4 2 4 K-D-10- 9-7-6-3 4 Á-K-D-G-9-8-6 4 Á-7-3 4 4 Á-8-4 Ekki er hægt að segja annað en að sagnirnar hafi verið fjör- ugar og varla hægt að finna að lokasögn Suðurs. Vestur lét út lauf 2, sem aust ur drap með drottingu og suð- ur með ás. Sagnhafi tók nú spaða ás og kom þá í ljós hvern ig spaðarnir skiptust hjó and- stæðingunum. Sagnhafi tók nú þá ákvörðun að reikna með, að vestur hefði í upphafi átt 8 tígla 3 spaða, 1 hjarta og 1 lauf. Hann tók þvi spaða kóng og hjarta ás og lét þvínæst út spaða 6. Vest- ur varð að drepa og átti nú ekki annað en tígul til að láta út. Hann valdi að láta út tígul 5, sem drepið var í borði með tígul 10 og hjarta var látið í heima. Nú lét sagnhafi út tígul 6 úr borði og kastaði hjarta heima og vestur drap og varð enn að láta út tígul, sem suður drap í borði með drottningu og kastaði layfi í heima. Nú tók sagnhafi tígul ás og kastaði síðasta lauf- inu og þar sem hann átti aðeins tromp eftir vanrn hann spilið á þennan skemmtilega hátt. Vestur getur hindrað að suð- ur vinni spilið á þennan hátt með því að láta strax í byrjun spaða 10 eða spaða 7 í spaða ás inn, þegar sagnhafi ætlar svo að koma honum inn þá á hann aðeins spaða 4 eftir. „Skemmtilegast væri að senda heilar skipshafnir út til Mallorka næsta sumar.....................“ Gjöf til Hall- jirímskirkiu S-'ðastliðinn sunnudag, að lokinni guðsþjónustunni, er fram fór inn an múra hinnar hálfbyggðu Hall- grímskirkju, sendu þau hjónin Solveig og Páll Hallbjörns, kirkj- unni tíu þúsund krónur að gjöf, í byggingarsjóðinn. eÞssa fallegu gjöf þakka ég hér með, sem og hollustu gefendanna við málefni kirkjunnar fyrr og síðar. „Hvar í ósköpunum hafið þið fengið peninga í þetta? „spurði maður nokkur var við messuna og sá, hversu langt var komið verkinu. Ég svaráði sem satt var, að megnið af kostnaðinum væri komið frá almenningi, fólkinu, sem sendir' inn gjafir sínar og áheit, vegna áhuga á málefninu, — auk bæjartillagsins og þess fjár, sem safnað er á vegum kvenfélagsins og annarra aðila. Ég hefi þá trú, að framvegis muni samskotin fara vaxandi, svo að unnt verði að hraða verk- inu enn meir. — Ég vona, að eng- inn taki mér illa upp, þótt ég stingi því að þeim, sem hafa notið góðs af síldveiðinni í sumar að síra Hallgrímur myndi á sinni tíð hafa kunnað að meta það, ef þeir létu kirkju Krists í té eitt- hvað dálítið af gróðanum. Fáir hafa betur beðið fyrir fiskimönn- um en hann, smbr. sálminn nr. 659 í sáimabókinni. Jakob Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.