Morgunblaðið - 27.10.1962, Side 8
8
MORGVNBLAÐ1Ð
Laugardagur 27. október 1962
Sextugur í dag:
Emil Jdnsson, ráöherra
EIN N af mikilhæfustu stjórn
málamönnum þjóðarinnar, Emil
Jónsson, félagsmálaráðherra, á í
dag sextugsafmæli. Hann er
fæddur í Hafnárfirði 27. okt. ár-
ið 1902. Voru foreldrar hans Jón
Jónsson, múrari, og kona hans
Sigurborg Sigurðardóttir frá
Mið-Engi á Vatnsleysuströnd.
Emil Jónsson var strax í
bernsku afburða námsmaður.
Hann lauk fullnaðarprófi í barna
skóla tólf ára, þegar slíku prófi
var yfirleitt lokið fjórtán ára.
Fór hann í Flensborgarskólann
og vakti þar athygli fyrir náms-
gáfur, sérstaklega í stærðfræði.
Hann hóf síðan nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík, las 5. og
6. bekk utanskóla á einum
vetri og lauk stúdentsprófi með
góðri einkunn á 17. ári. Hefur
bann orðið yngstur stúdent við
Menntaskói' nn í Reykjavík allra
nemenda skólans.
Að loknu stúdentsprófi hélt
hann til Kaupmannahafnar og
hóf nám við tækniháskólann.
Lauk hann þar verkfræðiprófi
árið 1925 og stundaði síðan um
eins árs skeið verkfræðistörf í
Danmörku.
Árið 1926 var Emil Jónsson
ráðinn bæjarverkfræðingur í
Hafnarfirði. Fjórum árum síðar
var þar fyrst ráðinn sérstakur
bæjarstjóri, og var Emil Jónsson
kosinn í þá stöðu. í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar var hann kosinn
árið 1930 og átti þar sæti til árs-
ins 1962, eða í 32 ár samfleytt.
Emil Jónsson hefur gegnt fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum í fæð-
ingarbæ sínum. Auk þess að
eiga sæti í bæjarstjórn hefur
hann setið í fræðsluráði, skóla-
nefnd barnaskólans og Flens-
borgarskólans, í útgerðarráðí og
í 22 ár átti hann sæti í stjórn
Sparisjóðs Hafnarfjarðar.
Árið 1937 varð Emil Jónsson
vitamálastjóri og tók við því
starfi af Thorvald Krabbe, sem
hafði gegnt því frá árinu 1905.
Gegndi hann starfi vitamála-
stjóra í um það bil tuttugu ár, að
undanteknum þeim tíma, er hann
var ráðherra á þessu tímabili.
Árið 1957 varð Emil Jónsson
bankastjóri við Landsbankann
og gegndi því starfi, þar til hann
varð ráðherra að nýju.
í miðstjórn Alþýðuflokksins
hefur hann átt sæti síðan árið
1930. Þegar Haraldur Guðmunds-
son varð sendiherra í Osló árið
1956 var hann kosinn formaður
Alþýðuflokksins og hefur verið
það síðan. Hann var fyrst kjör-
Slökun ocr
eðlileg
fræðing,
ný bók eftir
Huldu Jensdóttui
ÚT er komin bók er nefnist
„Slökun og eðlileg fæðing" eftir
Huldu Jensdóttur, ljósmóður. —
Eins og nafnið bendir til fjallar
bókin'um fæðingar og eru fjöldi
leiðbeininga til verðandi mæðra
í bókinni ásamt skýringarmynd-
um. Höfundur bókarinnar, frk.
Hulda Jensdóttir er yfirljósmóð-
ir Fæðingarheimilis Reykjavíkur
__ og er löngu landskunn fyrir
brautryðjendastarf sitt á sviði
afslöppunar og sársaukalausra
fæðinga. Að afloknu námi hér
fylltist hún miklum áhuga á
kenningum Dr. Reeds, sem fyrst-
ur kom fram með afslöppunar-
fæðingar, fór hún utan til náms
og aflaði sér framhaldsmenntun-
ar á því sviði. Árangur þessarar
menntunar og eigin reynslu af
henni er syo sú bók, jem hér er
komin á markaðiná. — Prent-
smiðja Guðm. Jóhan»ssonar hef-
ur séð um útgáfuna.
Eigandinn mætti þjóf-
unum í bankanum
inn á þing árið 1934 og hefur átt
þar sæti óslitið síðan, ýmist sem
þingmaður Hafnfirðinga, lands-
kjörinn þingmaður eða þingmað-
ur hins nýja Reykjaneskjördæm
is. Árin 1956—1958 var hann for-
seti Sameinaðs Alþingis.
Emil Jónsson hefur,átt sæti í
fjórum ríkisstjórnum, Hann varð
fyrst samgöngu- og iðnaðarmála-
ráðherra í ríkisstjórn Ólafs
Thors, nýsköpunarstjórninni, ár-
in 1944—46. Síðan varð hann
samgöngu- og viðskiptamálaráð-
herra í stjórn StefánS Jóhanns
Stefánssonar á árunum 1946—
1949. Haustið 1958 myndaði hann
minnihlutastjórn Alþýðuflokks-
ins og varð forsætisráðherra
hennar, en sú ríkisstjórn sat eins
og kunnugt er til haustsins 1959.
í núverandi ríkisstjórn fer Emil
Jónsson með sjávarútvegs- og
félagsmál.
Emil Jónsson hefur mjög látið
málefni iðnaðarins til sín taka,
bæði á Alþingi og innan samtaka
iðnaðarmanna. Hefur hann ver-
ið forgöngumaður um ýmis iðn-
aðarfyrirtæki í Hafnarfirði.
Emil Jónsson kvæntist árið
1925 Guðfinnu Sigurðardóttur og
eiga þau sex mannvænleg börn,
sem öll eru uppkomin.
Emil Jónsson er prýðilega gáf-
aður maður, hið mesta prúð-
menni í allri framgöngu og hinn
gervilegasti maður. Má óhikað
telja hann í röð fremstu stjórn-
málamanna samtíðar sinnar. —
Enda þótt hann sé maður skoð-
anafastur, mun það þó allra máT,
er með honum hafa unnið, að
hann sé samvinnuþýður og geri
sér far um sé skilja og virða
skoðanir annarra. Hann er ágæt-
lega máli farinn, flytur mál sitt
skipulega en æsingalaust. Mun
tvímælalaust mega telja hann
meðal beztu ræðumanna Al-
þingis.
Morgunblaðið óskar þessum
merka stjórnmálamanni til ham-
ingju með sextugsafmælið og
mikið og heillarikt lífsstarf.
f FYRRAKVÖLD var brotizt inn
í herbergi í heimavist Stýri-
mannaskólans og stolið baðan
bankabók með 16 bús. kr. inn-
stæðu, 500 kr. seðli og liðlega
7 þús. kr, ávísun útgefinni á Ut-
vegsbankanm.
Kl. 10 í gærmorgun fór eig-
andinn, sem hafði þá uppgötvað
stuldinn, í Austurbæjarútibú Út-
vegsbankans til þess að látá vita
um þjófnaðinn og greiða ekki
ávísunina né af innstæðu bókar-
innar. Vildi þá svo til að á sama
tíma komu tveir ungir menn í
útibúið til þess að selja ávís-
unina. Ekki fara sögur af fagn-
aðarfundunum, en lögreglan kom
og hirti þjófana báða. Ekki höfðu
þeir eytt 500 kr. seðlinum, en
60—70 krónum, sem þeir höfðu
stolið úr öðru herbergi í heima-
vistinni.
Við yfirheyrslur hjá rannsókn-
arlögreglunni í gær játaði annar
piltanna á sig innbrot í skrifstof-
ur Olíuverzlunar íslands aðfara-
nótt sl. sunnudags en þar hafði
hann stolið 3 vindlakössum og
nokkrum vindlingakveikjurum.
Leiðbeiningobók og kvikmynd
til Neytendasnmlaknnna
NEYTENDASAMTÖKIN í Banda
ríkjunum — Consumers Union —
hafa enn sýnt systursamtökunum
íslenzku þá rausn að senda þeim
upplag af leiðbeiningabók þeirra
um vöruval, er þau gefa út ár-
lega. Er þar úrdráttur úr grein-
um um niðurstöður saman-
burðarrannsókna á neyzluvörum
hvers konar, er birzt hafa í mán-
Háskólahátíðin
á laugardag
HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður haldin
fyrsta vetrardag, laugardag 27.
okt. kl. 2 e.h. í Háskólabíói.
Þar verða fluttir þættir úr há
skólaljóðum Davíðs Stefánssonar
við lög dr. Páls ísólfssonar: kór
undir stjórn tónskáldsins syngur,
frú Þuríður Pálsdóttir syngur ein
söng. Háskólarektor, prófessor
Ármsnn Snævarr flytur ræðu.
Tvöfaldur kvartett stúdenta syng
ur stúdentalög undir stjórn Sig
urður Markússonar. Háskólarekt
or ávarpar nýstúdenta, og veita
þeir viðtöku háskólaborgarabréf
um. Einn úr hópi nýstúdenta flyt
ur stutt ávarp, og nýstúdentar
syngja stúdentalag.
Háskólastúdentar og háskóla-
menntaðir menn eru velkomnir
á háskólahátíðina.
Veður og bilanir
tefja innanlflug
VEÐURGUÐIRNIR hafa að und-
anförnu verið Flugfélagi ís-
lands erfiður ljár í þúfu
varðandi innanlandsflugið, og
hafa ferðir oftlega tafizt mik-
ið og jafnvel fallið niður
Vörpuíu 4 kg. stein-
um inn um giuggana
BOLUNGARVÍK, 25. okt. — Að-
fararnótt sl. laugardags, líklega
um fjögurleytið, voru spellvirkj
ar hér á ferð og brutu samtals
24 rúður í mannlausum bygging
um víðsvegar um staðinn. Varð
barnaskólinn verst úti, en þar
voru brotnar 16 rúður.
Spellvirkjarnir notuðu grjót
til skemmdanna, og það ekki af
taginu því sumir stein
3—4 kg. Var þeim
smærra
anna voru
fleygt af miklu afli og má m.a.
geta þess að stórum steíni var
varpað af þvílíku afli inn um
rúðu á annari hæð skólahússins
að liann nam ekki staðar fyrr
en á vegg hinu megin stofunn-
ar, um fjóra metra frá gluggan-
um. Dældaðist veggurinn við
höggið.
Málið hefur verið í rannsókn
og tugir -ianna yfirheyrðir, en
spellvirkjarnir eru ófundnir enn.
— Fréttaritari.
aðarritum samtakanna á hverju
ári. Einnig eru þar almennar leið
beiningar um vöruval í hinum
ýmsu vöruflokkum. Bókin, sem
er nær 400 bls. að stærð, er því
eins konar handbók fyrir neyt-
endur, en þess ber að gæta, að
hinar sömu vörur eru að nokkru
leyti ávallt hér á markaði. j
Meðlimum Neytendasamtak-
anna gefst nú kostur á að fá bók-
ina á skrifstofu samtakanna i
Austurstræti 14 fyrir aðeins kr.
25,-, sem er þriðjungur útsölu-
verðs í Bandarikjunum. Skrif-
stofan er opin alla virka daga
kl. 5—7 e. h. nema laugardaga.
Meðlimasími samtakanna er
1 97 22.
Þá hafa Neytendasamtökin í
Bandaríkjunum sent samtökun-
um hér litkvikmynd, sem gerð
var í tilefni 25 ára afmælis hinna
bandarísku, en þau eru hin lang-
elztu í heimi og brautryðjandi 4
þessu sviði. Neytendasamtök eru
annars ung hreyfing, en af þeim
16 samtökum, sem aðild eiga
að Alþjóðastofnun neytendasam-
taka, eru hin þriðju elz'I'i.
Snemma á næsta ári eru liðin 10
ár frá stofnun þeirra hér. Kvik-
mynd hinna bandarísku Neyt-
endasamtaka verður sýnd hér í
Reykjavík og víðar um land á
næstunni á útbreiðslu- og kynn-
ingarfundum Neytendasamtak-
anna hér. Sl. viku bættust þeim
325 nýir meðlimir.
(Frá Neytendasamtökunum).
Ég reikna4
vegna slæmra veðurskilyrða. Og
ekki er ein báran stök því að í
gær brá svo við að þrjár vélar
félagsins í innanlandsflugi biluðu
og töfðust ferðir af þeim sökum.
Viðgerðum á vélunum þremur
lauk í gær enda munu þær hafa
verið smávægilegar, en nógar til
þess að ferðum seinkaði allveru-
lega. Svo sem kunnugt er hefur
FÍ sett sér mjög strangar öryggis
reglur og er ekki flogið af stað
nema allt sé í fyllsta lagi, allt
niður í smáatriði.
Veðrið hefur að undanförnu og
valdið miklum erfiðleikum og
töfum í innanlandsflugi félags-
ins. Einn daginn brá svo við að
ekkert var hægt að fljúga innan-
lands vegna veðurs nema til
Vestmannaeyja og er það mjög
fátítt, jafnvel einsdæmi.
Nokkuð hefur borið á óánægju
fólks vegna tafa í. innanlands-
fluginu, en félagið gerir allt, sem
í þeirra valdi stendur til þess að
halda innanlandsfluginu í horf-
inu. Ófyrirsjáanlegar bilanir og
slæmt veður valda meiri áhyggj-
um og höfuðverk hjá félaginu
sjálfu en hjá viðskiptavinum
þess, sagði talsmaður félagsins
Mbl. í gær.
í HaUST kom út á vegum Rík-
isútgáfu námsbóka ný reikning*
bók, eftir Jónas B. Jónsson,
fræðslustjóra. Bókin heitir: ,,Ég
reikna“. Hún er litprentuð og
prýdd mörgum myndum, teikn
uðum af Bjarna Jónssyni list-
málara.
Bókin er 48 bls. að stærð og
er ætluð 7 ára börnum. Efni henn
ar er í samræmi við fyrirmæli
námsskrár um námsefni þessa
aldursstigs. — Ætlast er til, að
börnin reikni í bókina sjálfa
jafnhliða því, að þau telja og lita
myndir af hlutum og dýrum.
30 fyrstu blaðsíðurnar eru æf
ingar í samlagningu og frádrætti
með tölunum 1—10, síðan kem-
ur samlagning og frádráttur með
tölunum 1—20.
Ætlunih er að gefa út aðra bók,
til að nota, áður_ en byrjað er á
þessu 1. hefti „Ég reikna". Þar
verður kennt um gildi talnanna
1—10, skrift tölustafa og algeng
ustu orð og hugtök um stærðir
og fjölda. Bókin miðast því við,
að búið sé að kenna þessi atriði.
Athugið!
að borið saman við útbreiðslv
er langtum ódýrara að auglýsa
i Morgunblaðinu, en öðrum
blöðum.