Morgunblaðið - 28.10.1962, Side 1
24 siður og lesbók
49. árgangur
241. tbl. — Sunnudagur 2?. október 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Indverjar óttast
innrás í Assam
Nýju-Delhi, Tokyo,
26. október — AP.
NEHRTJ, forsætisráffherra Ind-
lands, hefur látið færa Krúsjeff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
orðsendingu sína. Þar segir að
Indverjar muni því aðeins setj-
ast að samningaborðinu með Kin
verjum, að Kínverjar dragi her-
lið sitt til baka .
Þá herma óstaðfestar fregnir
frá Nýju-Delhi, að Nehru hafi
vikið Krishma Menon, landvarna
ráðherra til hliðar, og leiti for-
sætisráðherrann nú ráða hjá
öðrum.
Harðir bardagar halda áfram
á norðausturvígstöðvunum. Hafa
Indverjar sent tvær hersveitir
til að reyna að stöðva framsókn
Kínverja þar. Óttast indverskir
ráðamenn, að Kínverjar hyggi á
frekari sókn þar, og muni reyna
að ráðast inn á sléttumar við Ass
am, en þá mundi vera um að
ræða innrás í Indland.
í Ladakh-héraði segja fréttir,
að Kínverjar hafi nú náð þar á
sitt vald öllu því landssvæði, sem
deilur þar stóðu um. Er sagt ró-
legra á þeim vígstöðvum í dag.
Til að reyna að styrkja varn-
araðstöðuna í Assam, hafa Ind-
Gröf
Móses
FRÁ >ví hefur verið sikýrt í
fréttum frá AP, að fundizt
hafi um 50 metra hár pýra-
mídi í Jórdaniu, í eyðimörk-
inni um 30 km. fyrir sunnan
Amman. Pýraimídann fann
rannsóknarleiðangur frá Vene '
zuela. Álítur leiðangursstjór-
inn, Próf. Julio Ripaimonti, að
hér kunni að vera um að
ræða gröf Móses.
Er talið, að gröf hans sé
inni í pýramídanum, og verð- I
ur nú unnið að því að rann- j
saka pýramídann nánar.
verjar kallað mikið af herliði
sínu frá landamærum Pakistan,
og er því nú stefnt til norðaustur
vígstöðvanna við rætur Hima-
layafjalla. Nokkurs ótta gætir um
það, að Pakistan kunni að nota
sér það tækifæri til að ráðast
inn í Indland, en hatur hefur
ríkt milli þessara ríkja allt frá
1947.
Fregnir frá Tezpur í Assam
herma, að Kínverjar séu nú í
óða önn að flytja þungavopn
yfir fjallaskörðin frá Tíbet.
Eins og áður segir er ástandið
nú alvarlegast í Assam. Þar munu
nú um 2000 indverskir hermenn
vera að reyna að stöðva fram-
gang Kínverjanna, en þeir sækja
fram eftir vegi nokkrum, sem
liggur um nær 14.000 feta hátt
fjallaskarð. Fyrir neðan er lág-
lendið, sem Indverjar óttast
mjög, að Kínverjar hyggist nú
að ráðast inn á. Það svæði liggur
utan umdeildu svæðanna á þess-
um slóðum.
Fjallaskarð það, sem um ræðir,
er um 20 km frá bænum Towang,
sem Kínverjar hafa hertekið. Er
sagt, að hermenn Kínverja á
þessum slóðum séu að minnsta
kosti 10.000.
Þá var tilkynnt í dag, að Ind-
verjar hefðu nú yfirgefið enn
eina útvarðastöð við landamæri
Tíbet. Áður höfðu Kínverjar
hrakið Indverja frá tveimur slík
um stöðvum. Fjórða útvarðastöð-
in á þessum slóðum varð þó var-
in.
Einnig hefur Indverjum tekizt
að stöðva framsókn Kínverja
undanfarna tvo daga austan við
norðausturvígstöðvarnar, nærri
Luhit-ánni.
Eins og áður segir, þá hefur
sá orðrómur gengið, að Krishna
Menon, landvarnaráðherra Ind-
lands, hafi nú verið vikið til
hliðar, og njóti Nehru nú ráðlegg
inga K. S. Thimayya, hershöfð-
ingja, sem áður hafði dregið sig
til baka. Er talið, að Menon hafi
staðið sig illa í viðræðum við
Kínverja á undanförnum árum.
MBL. fékk þessa mynd frá
London í gær. Er hún tek-
in úr lofti síðdegis á föstu-
dag, yfir hafinu austur af
Kúbu. Fremst á myndinni
sést norska olíuflutninga-
skipið „Mylla“, á leið til
Kúbu. Skipið er frá Osló.
Það stefnir í suðurátt, að
sundinu milli Kúbu og
Haiti, er myndin var tek-
in. Að baki þess sést banda
rískur tundurspillir á leið
í veg fyrir olíuskipið.
Myndin var tekin af ljós-
myndara AP-fréttastofunn
ar, Robert Schutz, sem að
myndatökunni lokinni,
flaug með filmuna til Pu-
erto Rico. Þaðan var mynd
in símsend til New York
og þaðan til London. —
Frásögn sjónarvotta fylgir
hér að neðan.
Sjónarvoitar að
stöðvun olíuskips
íslenzk flugvél nauö-
lendir í Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn, 27. okt. — Einkaskeyti til Mbl.
I GÆR varð flugvél frá Flugfélagi íslands að nauðslenda
á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn vegna hreyfilsbilun-
»r. Stöðvaðist umferð stórra flugvéla um völlinn nokkra
fctund af hennar völdum. Flugvélin var á leið til Reykja-
víkur frá Kaupmannahöfn um Skotland.
hafði lagt af stað þaðan til Skot-
lands. BjÖrgunarsveitir flugvall-
arins voru kvaddar á vettvang.
Er það alltaf gert, þegar flugvél-
ar með bilaða hxeyfla lenda á
vellinum.
Svo óheppilega vildi til, að
tvö lendingarhjól flugvélarinnar
sprungu þegar hún lenti. Var
því ekki hægt að flytja hana af
lendingarbrautinni þegar í stað.
Bifreið flutti farþegana til flug-
Skömmu eftir að flugvélin
lagði af stað frá Kaupmanna-
höfn til Skotlands varð flug-
manninum Ijóst, að hreyfill
hafði bilað. Hann skýrði flug-
umferðarstjórninni frá því að
hann neyddist til að snúa við og
samtímis var farþegunum sagt,
að öryggis vegna yrði að lenda
aftur í Kaupmannahöfn. Flug-
vélin lenti á Kastrupflugvelli
nokkri stund ef tir að hún
stöðvarinnar og sérfræðingar
hófu þegar rannsókn á biluninni.
Flugvélin stöðvaði alla umferð
um aðallendingarbrautina á
Kastrupflugvelli og varð að láta
nokkrar stórar flugvélar, sem
lenda áttu á vellinum, halda á-
fram til Hamborgar. Seinkaði
það sumum farþegum þeirra allt
að tveimur klukkustundum. —
Flugvél flugfélagsins var flutt i
flugskýli til viðgerðar, en far-
þegarnir verða í Kaupmanna-
höfn í nótt og halda heimleiðis
á morgun.
Með vélinni voru alls 26 far-
þegar. —
Sjá ennfremur bls. 24
Stóra Inagua-eyja, Brezku
Vestur-Indíum, 26. okt.
— (AP) —
V IÐ urðum vitni að sér-
stæðum atburði í dag, er
bandarískur tundurspillir
sigldi með miklum hraða
í veg fyrir olíuflutninga-
skip, svo nærri Kúbu, að
skipin höfðu landsýn.
Við horfðum á úr flug-
vél, er tundurspillirinn
sendi ljósmerki. — Er
hann hafði gengið úr
skugga um, hvaða skip var
á ferð, var því leyft að
halda áfram inn í sundið
milli Kúbu og Haiti. Síðan
sneri tundurspillirinn sér í
hálfhring og hélt aftur á
haf út til frekari gæzlu. —
(Skýrt var frá því í Was-
hington, að hér hefði verið
um að ræða tundurspill-
inn ,,Brough“).
Við, sem í flugvélinni
vorum, erum fréttamenn
og ljósmyndarar AP-frétta
stofunnar. Flugmaðurinn
var Jack Chapman frá
„Alt-Island Air Charters“,
en það félag heldur uppi
leiguflugi milli Puerto
Rico og Jómfrúareyja.
Við komum frá San Juan,
Puerto Rico, tókum eldsneyti
á þessari eyju, sem er um 240
km norðaustur af Kúbu. Síð-
an héldum við í fjögurra klst.
flugferð yfir svæðið, þar sem
bandarísku herskipin eru. —
Við komumst að raun um:
• að lítið er um skipaferðir,
norður, suður og austur af
Kúbu. Á 160 km svæði fyrir
norðurströnd Kúbu sáum við
ekki eitt einasta kaupfar. Á
stóru svæði norður af Kúbu
getur hvorki að líta skip né
flugvélar.
0 að skip Bandaríkjanna
og e. t. v. nokkurra banda-
lagsþjóða þeirra halda uppi
eftirliti, þannig, að engin skip
komast óséð til Kúbu.
• að ekki er hægt að greina
úr lofti, þegar flogið er fyrir
ströndum Kúbu, hvort verið
er að reisa eldflaugastöðvar.
Við flugum næst eyjunni í
um 7 km fjarlægð, en gátum
ekki séð neinar eldflauga-
stöðvar. Á norðausturodda
Kúbu sáum við hálfgerðan
flugvöll, sem ekki var merkt-
ur inn á kort okkar, og ekki
virtist sem unnið hefði verið
við hann nýlega.
„Mylla“ frá Osló
Skipið, sem við sáum tund-
urspillinn sigla í veg fyrir,
ekki langt frá Inagua, var
norskt olíuflutningaskip. Það
bar nafnið „Mylla“ og er frá
Osló. Lestarlúgurnar voru
negldar niður, og okkur virt-
ist frekar, að skipið væri með
korn eða aðra slíka vöru, én
olíu. Það kom á hraðri ferð
frá norðri.
Úr flugvél okkar sáum við
tundurspillinn koma á mikilli
ferð úr norðaustri og stefna
í veg fyrir olíuskipið. Þegar
tundurspillirinn nálgaðist tók
hann að senda ljósmerki, en
ekki gátum við greint svar-
merki olíuskipsins.
Framlh. á bls. 2.