Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 1
24 siður
gmiwlííaííiSi
49. árgangur
249. tbl. — Miðvikudagur 7. nóvember 1962
Prentsmiðja Morg'tmblaðsins
I
Bandaríkjunum
Edward Kennedy kjörinn
öldungadeildarþingmaður
New York — NTB-AP
1 DAG gengu Bandaríkjamenn
til þing- og ríkisstjórakosninga
og var kjörsókn víðast mjög
goð.
Er talið, að hin mikla kjör-
sókn verði demókrötum í vil,
því að oft er talsverð deyfð yfir
flokksmönnum forseta landsins,
ef þingkosningar eru haldnar
milli forsetakosninga, en and-
Stæðingarnir betur vakandi.
Kosnir eru allir þingmenn
fulltrúadeildarinnar, 435 að tölu,
39 af 100 öldungadeildarþing-
mönnum og 35 af 50 ríkisstjór-
um. —
í dag töldu stjórnmálafrétta-
ritarar í Bandaríkjunum engan
vafa á því, að demókratar héldu
meirihluta sínum á þingi, en þeir
áttu 261 þingmann í fulltrúa-
deildinni og 64 í öldungadeild-
inni. Var talið, að demókratar
myndu tapa 10—15 þingmönn-
um í fulltrúadeildinni, en vinna
tvö í öldungadeildinni. ,
SÍÐUSTU FBÉTTIR:
Þegar blaðið fór í prentun
í nótt höfðu þær fregnir bor-
izt, að Edward Kennedy,
hróðir Bandaríkjaforseta,
hefði sigrað George Cabot
Eodge, frambjóðanda repúblik
ana í öldungadeildarkosning-
unum í Massachusets.
Þar sem talningu var lokið
höfðu demókratar fengið 62
fulltrúadeildarþingmenn, en
repúblikanar 5.
tJtvarpsstöðin National
Brodcasting Company skýrði
frá því, að allar líkur bentu
til þess að Nelson Rockefell-
er bæri sigur úr bítum í ríkis-
st’órakosningunum í New
York.
Demókratinn John McCor-
mack var endurkjörinn ríkis-
í Suður-Carolina var Don
ald Russel, kjörinn ríkisstjóri
en hann var einn í framboði.
Fregnir bárust enn fremur
af því að fleiri demókratar
hefðu verið endurkjörnir rík-
isstjórar ' Suðurríkjunum.
• NIXON
Fylgzt er með ríkisstjóra-
kosningunum í Kaliforníu af
mikilli athýgli, en þar býður
Richard Nixon, fyrrverandi vara-
forseti Bandaríkjanna, sig fram
gegn núverandi ríkisstjóra,
demókratanum Edmund Brown.
Telja stjórnmálafréttaritarar að
stjórnmálaferli Nixons sé lokið,
ef hann tapar í kosningunum. —
Talið er að Nixon og Brown fái
mjög líkan atkvæðafjölda og úr-
slitin verði ekki kunn fyrr en
168.500 utankjörstaðaatkvæði
hafa verið talin.
Nixon sagði við fréttamenn í
dag, að hann væri ekki vanur
að spá um kosningaúrslit, en
þó gerði hann ráð fyrir því að
hann myndi sigra með nokkurra
atkvæða meirihluta.
• NEW YORK
Ríkisstjórakosningarnar í
New York vekja einnig mjög
mikla athygli. Þar berjast þeir
Nelson Rockefeller, núverandi
ríkisstjóri, og Robert Morgent-
hau, nær óþekktur demókrati.
Ef Rockefeller sigrar, eru taldar
Framhald á bls 23.
Viðræður Mikoyans og
Castros ganga stirðlega
Kúbanskir útlagar segja eldflaugar
geymdar í hellum d eyjunni
Washington og Havana, 6. nóv.
— NTB-AP —
• Haft var eftir opinberum
heimildum í Bandaríkjunum
í dag, að Sovétríkin hefðu
stöðvað samsetningu sprengju
flugvéla á Kúbu samkvæmt
kröfum Bandaríkjastjórnar.
• Áreiðanlegar heimildir í
Havana hermdu í dag, að þar
væri álitið, að viðræður Cast-
ros, forsætisráðherra Kúbu,
og Anastas Mikoyans, fyrsta
aðstoðarforsætisráðherra Sov
Talið að 21 mað-
ur hafi látið lífið
í námuslysi á Svalbarða
Longyeabyen, Noregi,
6. nóvember. (NTB).
1 gærkvöldi rétt fyrir miðnætti
varð sprenging í námugöngum í
kolanámu á Svalbarða og er tal
ið að 21 maður hafi farizt. f
kvöld höfðu 10 lík fundizt, en 11
menn voru enn grafnir í göngun
um. Talið er að enginn þeirra
hafi komizt lífs af.
Ekki er fullkomlega kunnugt
um orsök slyssins, en talið er að
orðið hafi gassprenging. Náman,
sem er í Nýja Álasundi á Sval
barða er ríkiseign. 1953 varð slys
I námunni og eftir það var miklu
fé varið til þess að auka öryggi
námumannanna. 100 menn
vinna í námunni.
étríkjanna, gengju stirðlega.
• Kúbanskir útlagar í
Bandaríkjunum halda því
fram, að birgðir sovézkra
eldflauga séu geymdar í hell-
um á eyjunni.
Sagt er í Washington að Kuz-
netsov, aðstoðarutanríkisráðherra
Sovétstjórnarinnar, hafi lýst því
yfir við McCloy, formann Kúbu-
nefndar Kennedys, að Sovétríkj-
unum reyndist erfitt að fá
Castro til aff samþykkja eftirlit
SÞ með brottflutningi eldflauga
frá Kúbu.
Skýrt var frá því í Washing-
ton í dag, að Bandaríkin hefðu
gert Sovétríkjunum það ljóst, að
þau yrðu að fjarlægja allar
sprengjuflugvélar af gerðinni
Iljushin 28 frá Kúbu ásamt öðr-
um árásarvopnum. — Kennedy
Bandaríkjaforseii hefur sent
Kuznetzov, aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, orðsend-
ingu, þar sem gerð er grein fyrir
þessum kröfum.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins skýrði frá því,
að áður en aðflutningsbannið
var sett á Kúbu hefðu verið um
30 flugvélar af gerðinni Iljushin
28 á sovézkum flugvöllum á
eyjunni og frá 1. nóvember
hefðu verið teknar upp að
minnsta kosti tvær flugvélar af
þessari gerð. Voru flugvélarnar
teknar upp eftir að Krúsjeff gaf
skipun um að rífa niður eld-
flaugastöðvarnar.
Kuznetzov nefur ekki staðfest
það í viðræðum sínum við Mc-
Cioy um Kúbumálið, að sprengju
fiugvélarnar verði fjarlægðar.
. Framh. á bls. 23.
KONUK hafa löngum verið i
annálaðar fyrir forvitni og
ekki virðist forsetafrú Banda-
ríkjanna Jacqueline Kennedy
vera nein unidantekning. Þeg-
ar maður hennar Bandarikja-
forseti tók á móti Ben Bella,
forsætisráðherra Alsír í Hvíta
húsinu á dögunum, striddu
siðareglur gegn því, að for-
setafrúiu væri viðstödd. En
konur taka aldréi beinan þátt
i opinberum hátíðahöldum ti'
heiðurs háttsettum Múham-
eðstrúarmönnum . Jacqueline
Kennedy átti að bíða i rósa-
garði Hvíta hússins meðan að
maður hennar tók á móti Ben
Bella, en hún faldi sig í
runna, eins og sjá má á mynd-
inná, og fylgdist þaðan með
afchöfninni.
Fer Menon úr
indlandsstjörn?
Liðssöfnun á vestur-vígsíöðvunum.
Barizt á austur-vígstöðvunum. •
Nýju Delhi, Peking —
(NTB — AP)
Indverjar og Kínverjar saka nú
hvor annan um liðssöfnun og
árásarundirbúning í nágrenni
Chusul í Ldakhéraði, en við
Chusul er indverzkur flugvöll-
ur. Segja Indverjar, að Kínverj
ar ætli að ráðast á flugvöllinn,
en Kínverjar segja, að Indverjar
ætli að ráðast inn á kínverskt
land.
Stjórn indverska Kongress-
flokksins fór þess á leit við
Nehru, forsætisráðherra, að
hann viki Krishna Menon, fyrrv.
varnarmálaráðherra úr ríkis-
stjórninni, en Menon sér nú um
i vopnaframleiðslu i lndlandi.
Menon sagði í dag, eftir að
honum barzt þetta til eyrna, að
hann óskaði eftir því, að fá að
taka þátt í baráttu landsmanna
sinna, hvort sem hann gerði það
sem stjórnarmeðlimur, þingfull-
trúi eða herstjóri.
Bardagar geisuðu á norðaust-
urlandamærum Indlands og
Kína í dag og sagði talsmaður
indverzka varnarmálaráðuneytis.
ins, að ekkert mannfallt hefði
orðið í liði Indverja, en margir
Kínverjar hefðu fallið.
Indverska varnamálaráðuneyt
ið segir, að Kínverjar hafi aukið
liðsstyrk sinn í nágrenni ind-
verska flugvallarins í Chusul 1
Framh. á bls. 23.