Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 2
2 MORGXJHB1.AÐ1Ð Miðvikudagur 7. nóvember 1962 Vpt*.- '" -' ......55» , 1'jQOOOTig1' I! 'JWggW1 jfl.v wyj wnyrnv ■> .■ ■’ ••■• v-"- Q&&W' Við Brandenborgarhlið. Sigurffur Guffmundsson, Björgvin Vilmundarson, Eyjólfur Konráð Jóns- son, Heimir Hannesson, Jón Skaflason, Stefán Sörensen, Bjarni Beinteinsson, Ragnhildur Helga- dóttir, Björgvin Guðmundsson og Einar Benedik tsson. Kynntu sér starfsemi Evrópustofnana UM SÍÐUSTU helgi lauk ferða- lagi 10 ungra manna á vegum Varðbergs um ýms Evrópuríki í J>eim tilgangi að kynna sér starf- semi Efnahagsbandalags Evrópu, Nato, OECD og Evrópuráðsins. Þátttakendur 1 ferð þessari voru þrír frá hverjum lýðræðis- flokkanna þriggja auk fararstjór- ans Einars Benediktssonar hag- fræðings. Var fyrst haldið til London, par sem viðræður voru við starfsmann utanríkisráðu- neytisins um 'Efnahagsbandalag- ið, afstöðu Breta til þess og vandamál þau, sem samfara væru aðild þeirra. Frá London var farið til Briissel, en þar hafði Efnahags- bandalagið undirbúið dagskrá um bandalagið, Euratom og Kola- og stálsamsteypuna. Var hin víðtæka Evrópusamvinna skýrð og greiðlega svarað fyrir- spurnum hinna íslenzku þátttak- enda. _ í París voru málefni Atlants- hafsbandalagsins og Efnahags- og framfarastofnunarinnar skýrð og rædd á mörgum fundum og í Strassbourg var síðar fjallað um málefni Evrópuráðsins. Frá Frakklandi var haldið til Bonn, þar sem íslendingunum gafst tækifæri til að hitta for- ystumenn stjórnmálaflokkanna og háttsetta starfsmenn utanrík- isráðuneytisins. Var þar einkum rætt um Efnaihagsbandalagið og leiðir þær, sem helzt væru færar fyrir Islendinga tii þess að öðl- ast einhverskonar aðild að banda laginu, og loks hélt hópurinn svo til Berlínar í boði þýzku stjórn- arinnar. Eins og að líkum lætur var það eftirminnilegast við förina til Berlínar að sjá fangelsismúr- inn alræmda, en auk þess gafst tækifæri til þess að ræða við flóttamenn, sem höfðu hinar ógn- arlegustu sögur að segja af Hf- inu austan járntjalds. Islenzku þátttakendurnir fóru einnig til Austur-Bexlínar, þótt varlegra væri talið að fara þangað ekki í neinum hóp og varast rækilega að nefna í hvaða erindum ís- lendingarnir ferðuðust um Þýzka land. Gekk ferðin austur fyrir stórslysalaust, en hafði djúptæk áhrif á alla þá, sem ekki höfðu áður séð hvernig umhorfs er austan járntjaldsins. Er ekki ofmælt að ferð þessi, sem farin var til þess að kynnast þróun þeirri, sem nú á sér stað í Evrópu, hvort sem mönnum líkar hún betur eða ver, hafi i alla staði verið hin fróðlegasta og þátttakendum til mikils skiln- ingsauka, enda voru viðtökurnar hvarvetna með ágætum. Saítgulan á Fá- skrúðsfirði AB gefnu tilefni vegna fréttar, sem birtist hér í blaðinu í gær, þar sem segir frá saltgulu í fiski á Fáskrúðsfirði, hefir blaðið afl- að sér þeirra upplýsinga að inn- flytjandi saltsins er ekki fyrir- tækið Kol og salt hf. hér í Reykjavík. Ljósmyndir af leyni- | skjölum fundust í peningaskóp Aug steín Karlsruhe 6. nóv. (NTB-AP) JOACHIM Lösday, saksóknari V-Þýzkalands skýrði frá því í Karlsruhe í dag, að lögreglan hefði fundið ljósmyndir af einu af leyniskjölum vamarmálaráðu neytis V.-Þýzkalands í fórum út- gefanda vikuritsins „Der Spieg- ei“, Rudolfs Augstein. Einnig skýrði hann frá því að forsvarsmenn „Der Spiegel" hefðu fengið vitneskju um að leit myndi verða gerð í skrif- stofum blaðsins, áður en hún var framkvæmd og hefðu því getað samræmt framburð sinn og skotið ýmsu undan. Saksóknarinn sagði ennfremur, aff í bréfum, sem fundist hefðu í skjalasafni blaðsins hefði komið fram, að „Ðer Spiegel" hefði ætlað að halda áfram aff afla sér upplýs- inga um hernaðarleyndarmál, þó að útgefandi blaðsins og rit- stjórar vissu, að það væru land- ráð. Joachim Löisday, skýrði frá þessu á fundi með fréttamönn- um. Sagði hann, að Ijósmyndirn- ar af leyniskjalinu hefðu fundizt í læstum peningaskáp, sem Aug stein hafði til umráða. Lösday hélt því fram, að Adolf Wicht, ofursti í her V.-Þýz)kalands, hefði skýrt Augstein frá því, að starfsemi „Der Spiegel" yrði rannsökuð, viku áður en rann- sóknin hófst. Kvað saksóknarinn það koma fram af minnisblöðum, sem lögreglan hefði lagt hald á, að þeir starfsmenn blaðsins, sem handteknir hafa verið og grun- aðir um landráð, hafi verið bún ir að koma sér saman um hvað þeir skyldu segja, er rannsókn- in yrði framkvæmd. Einnig hefðu þeir séð um að fjarlægja allar heimdldir, sem notaðar voru, við ritun greinarinnar, sem olli því að rannsóknin var gerð. Þá sagði Lösday, að auk ljósmyndanna af leyniskjalinu hefðu fundisfc ljósmyndir, stymplaðar hernaðar leyndarmái. Lösday, upplýsti að lokum, að enn færu fram rannsóknir á því hverjir hefði látið „Der Spiegel" leyndanmálin í té, en sagði, að enn væri ekki hægt að skýra frá framvindu þeirra rannsókna. Órjúfanleg vinátta og bræðralag Kína og Sovétríkjanna Peking, 6. nóvember. — Leiðtogar kínverska kommúnista flokksins, sendu leiðtogum komm únistaflokks Sovétríkjanna orð- sendingu í dag í tilefni byltingar afmælisins. Fréttastofan Nýja Kína skýrði frá þessu. í orðsendingunni sagði, að Suslov leggur biessun yfir brottvikningu Jugovs Sofía, 6. nóv. (NTB — AP) Mikhail Suslov, einn af helztu Flug á þremur hreyflum Skýring Loftleiða VEGNA fréttar, sem birtist í Mbl. í gær um að Loftleiðavél- ar hefðu tvívegis flogið lang- leiðina milli tslands og New York á þremur hreyflum, sendu Loftleiðir blaðinu eftirfarandi í Vegna greinar í Morgunblaðinu í dag vil óg skýra frá eftir- greindu: Hinn 13. okt sl. var ég flug- stjóri á Cloudmaster-flugvél Loftleiða er var á leið til New York frá Reykjavík. Þegar ég var rúmlega hálfnaður bilaði einn af hreyflunum. Ég tók þá ákvörðun, að lenda á næsta flug velli, sem var Goose-Bay. Þeg- ar óg átti eftir um þriggja stund arfjórðunga flug þangað bárust mér upplýsingar um að flugvöll- urinn væri í þann veginn að lok ast vegna veðurs. Eg átti þá efaki annars úrkosta en að halda áleiðis til New York, þar sem ólendandi var á þeim flugvöil- um, sem nálægir voru. Ég hélt ferðinni svo áfram viðstöðulaust ag með eðlilegum hætti, unz loomið var til New York. Eftir að farið hafði verið framhjá St. Lawrence-fljóti var flugveð- ur ágætt að öðru leyti en því að þoka lá yfir nokkrum flugvöll- um norðan New York, en á Idlewild var skafheiðskirt. Af öllum ofangreindum ástæð- um taldi ég að öry.ggi hinna 40 farþega og áhafnar væri bezt tryggt með fyrrgreindum ráð- stöfunum. Reykjavík 6. nóv. 1962 Hallgrímur Jónsson Samikvæmt skýrslu Ragnars Kvaran flugstjóra um ferð hans fná New York til Reykjavíkur 15. okt. sl. verður hann var ó- eðlilegrar gangbreytingar í ein- um af hreyflum flugvélarinnar. Hreyfillinn gekk eðlilega með mjög aukinni eldsneytisgjöf, en við venjulega eyðslu var afl hans minna en skyldi. Flugstjórinn tók þá ákvörðun um að stöðva hreyfilinn og halda áfram ferðinni til Reykjavíkur, þar sem flugveður var gott og ráð fyrir því gert að unnt yrði að ræsa hreyfilinn, ef þess gerð- ist sérstök þörf. Flugið gekk eðlilega að öðru leyti og lent var í Reykjavík klukkutima á undan áætiun. skipulagssérfræffingum komm- únistafiokks Sovétríkjanna, hrós aði í dag leiðtogum búlgarska kommúnistaflokksins fyrir góða forystu flokksmála. í fréttum frá AP segir, að líta megi á þetta sem staðfestingu Sovétríkjanna á því, að þau séu samþykk brottvikningu Antons Jugov, forsætisráðherra Búlgar- íu og annarra háttsettra manna innan búlgarska kommúnista- flokksins, úr embættum. Suslov, er formaður opin berrar sendinefndar Sovétríkj- anna á 8. þingi búlgarska komm únistaflokksins. í ræðu, sem hann hélt á þinginu í dag varaði hann menn við því að : "íta Kúbumál ið leyst, þó að ógnuninni um kjarnorkustyrjöld hafi verið bægt frá um sinn. Sagði Suslov, að hraða yrði samkomulagi um Kúbumálið, því annars geti soð ið upp úr. Suslov fordæmdi að fluntingsbannið ,sem Bandaríkja menn settu á árásarvopn til Kúbu og eftirlitsaðgerðir þeirra á Karíbahafi. Sagði hann, að friðelskandi öfl í heiminum yrðu að vera vel á verði, standa sam- einuð og halda áfram baráttunni gegn ár ásar .-liu.wgingum heims valdasinna. Sfislov kvað það augljóst, að Bandaríkin hefðu ráðgert innrás á Kúbu og stefndu með því heims .Cnum í voða og hc„ a—ara: — „Ríkisstjórn - Sóvétríkjanna gat ekki setið aðgerðarlaus þegar þannig var ástatt. Hún tók skjóta ákvörðun í samræmi við Moskvu yfirlýsinguna frá 1960, um að 1-ommúnistaflokkarnir verði að halda áfram að berjast fyrir friðn um þar til styrjöld sé skollin á. Aðgerðir Sovétríkjanna kollvörp uðu áætlunum Bandaríkjamanna og leiddu til bætts ástands í al- þjóðamálum", sagði Suslov. bræðralag og vinátta Kínverja og Sovétríkjanna, sem byggðist á kenningum Marx og Lenins um alþjóðariki verkamanna, væri ó- rjúfanleg og myndi standa til eilífðar. Orðsendingin var undirrituð af formanni kínverska kommúnista flokksins Mao Tse-Tung og send Krúsjeff, forsætisráðherra Sovét ríkjanna og Brezhnev, forseta landsins. Segir í henni, að Kínverjar vilji berjast gegn heimsvaldasmn um við hlið Sovétríkjanna. Einn ig vilji þeir berjast fyrir frið í heiminum og framförum mann- kynsins. Ljúka kínverjar lofsorði á Sov étríkin fyrir framlag þeirra i þágu friðarins og þjóðir Sovét- ríkjanna, sem vinni að uppbygg- ingu þjóðfélags síns undir for- ystu miðstjórnar kommúnista- flokksins, þar sem félagi Krú sjcff sé -.emstur í flokki. F Y RIR helgi voru kuldar SV-land til Vestf jarða, Faxa um allt land, en hefur smá- flóamið til Vestfjarðamiða. — hlýnað síðan. Kl. 4 í gær var SA kaldi, milt veður og viða vindur A eða SA stæður um þurrt í nótt en stinningskaldi allt land og þíðviðri. Mestur og rigning með köflum á morg var hitinn 10 stig á Hellu, en un. sumsstaðar í innsveitum norð- an lands var hiti ennþá um Norðurland og miðin: SA frostmark, þó hitinn á annesj kaldi, milt og víðast þurrt um þar væri 5—7 stig. NA-land og miðin: SA kaldi Veðurspáin kL 10 í gærkvöldi: þokusúld á miðum og annesj- SV-mið: SA stinningskaldi um en annars þurrt að mestu. fyrst en allhvasst þegar líður Austfirðir og SA-land og á daginn, súld með köflum miðin: SA kaldi súld eða rign fyrst, rigning síðdegis. ing.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.