Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. nóvember 1962 Valdabaráttan í Kreml eftir deiluna um Kúbu Þrengt er nú að Krúséff innanlands og utan L J Ó S T þykir, að valda- baráttan í Kreml hafi ekki á mörgum undanförnum árum orðið svo mikil sem nú. Síðastliðna viku hafa ráðamenn hvers kommún- istaríkisins í A-Evrópu, á fætur öðru, komið til Moskvu og setið þar langa og ákafa fundi með Krús- jeff og öðrum ráðamönn- um. Enginn vafi er talinn á því, að ástæðan sé síð- ustu atburðir í alþjóða- málum, þ.e. Kúbumálið. Er mest eftirvænting lá í loftinu, vegna þess máls, fyrir tveimur vikum, dvald ist leiðtogi rúmenskra kommúnista í Moskvu. — Síðan hafa lagt þangað leið sína kommúnistaleið- togar Póllands, Tékkósló- vakíu, A-f>ýzkalands og Búlgaríu. í gær var til- kynnt, að Janos Kadar, foringi ungverskra komm- únista, væri á leið til Moskvu. Opinber ástæða þessara . heimsókna er, að í dag, miðvikudag, á rússneska byltingin 45 ára afmæli. Raunveruleg ástæða er hins vegar sú, að nú er verið að reyna að sam- ræma skoðanir leiðtoga kommúnistaríkjanna og afla stuðnings við síðustu aðgerðir Krúsjeffs. Þetta er þó aðeins önnur hlið baráttunnar. — Hún stendur einnig heima fyr- ir. Undir venjulegum kringumstæðum taka rúss- neskir herforingjar ekki virkan þátt í því, sem ger- ist í innstu röðum flokks- ins. Þó er því fjarri, að þeir hafi ekki sterka að- stöðu, ef til meiriháttar deilumála kemur, svo sem varð nú vegna Kúbu. Völd herforingjanna Þetta hefur sýnt sig í bæði skiptin, sem til meiriiháttar átaka hefur komið innan kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, eftir fráfall Stalins, í marz 1953. í fyrra skiptið, er yfirmað- ur lögreglunnar, Lavrenti P. Beria, var tekinn höndum í júní 1953, og aftur réttum fjórum árum síðar, þegar Georgi A. Zhukov kom Krúsjeff til hjálpar á síðustu stundu. Það var 2. september sl., sem tilkynning kom um það, að Rússar og Kúbanar hefðu gert með sér samning um að rússnesk vopn yrðu flutt til Kúbu. Álit sérfræðinga er hins vegar, að ákvörðunin um að eldflaugar og sprengju- þotur skyldu sendar þangað, hafi verið tekin tveimur mán- uðum áður, er Raoul Castro fór í heimsókn til Moskvu: Fremstur í flokki þeirra, sem þá tóku á móti honúm, var Rodion Y. Malinovsky, land- varnaráðherra. Margir telja, að hann sé fremstur í flokki þeirra, sem eru óánægðir með stefnu Krúsjeffs. Því hafi forsætis- ráðherrann beitt fyrir sig Kliment Y. Voroshilov nú um helgina. Voroshilov lét þá birta eftir sig grein, í mál- gagni flokksins, þar sem hann hvatti til einingar. Þykir Malinovsky ljóst, að Voroshilov eigi að lægja þær óánægjuraddir, er gætt hefur innan hersins. Áður hafði Voroshilov ver- ið í andstöðu við Krúsjeff, eins og greinilega kom fram, er hann var öpinberlega nið- urlægður á 22. flokksþingi kommúnistaflokks Sovétríkj- anna 1957. en þá studdi hann öfl andstæð forsætisráðherran Afstaðan í dag Staða ráðamanna Kúbu, Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna nú, eftir að svo virðist sem friðsamleg lausn muni nást í Kúbumálinu, er í fáum orðum þessi: # Fidel Castro, försætisráð- herra Kúbu, verður að horf- ast í augu við það, að hann muni ekki sjá þann draum rætast, að Kúba ráði fram- vegis yfir kjarnorkuvopnum. Hins vegar hefur hann nú tryggingu fyrir því, að ekki verði gerð innrás á Kúbu — verði farið að gefnum loforð- um —; hann verður því frémsti leiðtogi kommúnista í Ameríkurík j urum. # Kennedy, Bandaríkjafor- seti, hefur fengið loforð Krús- jeffs um að eldflaugavopnin verði fjarlægð frá Kúbu, og að 'engin árásarvopn verði send þangað framvegis. Hins vegar verður forsetinn að horfast í augu við það, að með samþykki sinu um að gera ekki innrás á Kúbu — verði gefin loforð haldin — þá hefur hann raunverulega tryggt framtíð Castros. # Krúsjeff, forsætisráðherra Sovétríkjanna, hefur neyðzt til að draga til baka vopn sín frá Kúbu, og hefur þar með misst tækifæri til að raska því hernaðarjafnvægi, sem ríkt hefur milli stórveldanna, Sov- étríkjunum í vil. Tilgangur árásarvopnanna Svo mikilvægar vpplýsingar hafa komið fram um atburði síðustu mártaða, að hægt virð- ist með allmikilli vissu að rökstyðja, hver hafi verið til- gangurinn með því að koma fyrir árásarvopnum á Kúbu. Það þykir engum vafa unóir orpio, að ráðamenn innan sovézka hersins hafi átt mik- inn þátt í því, að tekin var ákvörðun um að hervæða Kúbu á þann hátt, sem raun ber vitni. í júlí fór Raoul Castro, bróðir Fidel Castro, til Moskvu. Opinberar tilkyðning ar skýrðu frá því, að þangað hefði hann farið í boði Malin- ovsky landvarnaráðherra. Er þangað kom, tóku á móti Raoul Castro þeir Malinovsky, Sergei S Biruzov, yfirmaður loftvarna, Nikolai I. Krylov, yfirmaður varna í Moskvu og nágrenni, F. B. Zozulya, að- míráll, og Sergei I. Rudenko, annar æðsti maður sovézka flughersins. í för með Raoul Castro voru helztu hernaðar- sérfræðingar á Kúbu. Þeir dvöldust rúmar tvær vikur eystra. Á þeim tíma ferðuðust þeir viða um Sovét- ríkin. Meirihluti Æðsta ráðsins var í Moskvu, meðan á heimsókn- inni stóð. Því gafst þar gott tækifæri til viðræðna, ef um það var að ræða að taka á- kvörðun um frekari hervæð- ingu Kúbu, Hins vegar fór Raoul Castro frá Moskvu, án þess, að nokk- ur yfirlýsing væri gefin um tilgang heimsóknarinnar. Ákvörðun í júlí Þeir 7 meðlimir Æðsta ráðs- ins (í því eiga sæti 12 aðal- fulltrúar), sem voru í Moskvu þennan tíma, voru Krúsjeff, Frol R. Kozlov, Aleksei N. Kosygin, Mikoyan, Leonid Bresihnev, Kirilenko og Susl- ov. Þrír yngstu meðlimir ráðs- ins, Gennandi I. Voronov, Nikolai V. Podgorny og Dim- itry 3. Polanski, voru ekki við staddir, né heldur tveir eldri meðlimir, Otto V. Kuusinen og Nikolai M. Shvernik. Tveir síðastnefndu eru taldir fylgj- endur Krúsjeffs, en yngri mennirnir eru af mörgum taldir vera fulltrúar and- ■ spyrnunnar. Þannig er ljóst, að n eiri hluti var fyrir hendi til að Krúsjeff taka allar meiriháttar ákvarð anir, sem víst er nú talið að gert hafi verið þá. Hins vegar er það álit sér- fræðinga að allt málið um hervæðingu Kúbu hafi verið tekið til endurskoðunar síð- ari hluta ágústmánaðar, er Ernesto Guevara og Emilio Aragonas, æðstu menn her- mála á Kúbu, komu í heim- sókn til Moskvu. Þá er talið, að aðeins fáir ráðamenn hafi verið í Moskvu; Breshnev, Kösygin, Voronov og e.t.v. Mikoyan. Krúsjeff var þá hins vegar í sumarleyfi á Krímskaga. Guevara var þrjá daga í ' Þannig sér skopteiknarinn síðustu viðbrögð Krúsjeffs og Castros. Moskvu, en hélt síðan til fund ar við Krúsjeff 30. ágúst. Sið- an fór hann aftur til Moskvu. í kjölfar þess kom síðan yfir- lýisingin, 2. septeimber, um hernaðaraðstoð við Kúbu. Vissa er fyrir því, að þann tíma, sem Guevara var í Moskvu, voru það fáir af að- alfulltrúum æðsta ráðsins þar, að ekki er mögulegt, að það hafi tekið neina ákvörðun þá. Hins vegar myndi ráðið fjalla um slíkt mál, sem flutninga kjarnorkuvopna til Kúbu, og því sé ljóst, að ákvörðunin hafi verið tekin í júlí. Tilgamgurinn Þegar þetta, og aðrir at- burðir sumarsins, eru hafðir í huga, þá fara ýmis rök að gera þá tilgátu sennilega, að tilgangurinn með hervæðingu Kúbu hafi "ekki verið einungis sá, að koraa upp útvarðastöð fyrir þau eldflaugavopn, sem ekki væri hægt að skjóta frá Sovétríkjunum til Bandaríkj- anna (þ.e. meðaldræg vopn og skammdræg) eða annarra ríkja á Vesturhveli jarðar, heldur hafi sú bætta hernað- araðstaða, sem af því leiddi fyrir Sovétríkin, átt að verða ógnun við Vesturveldin, þann- ig, að þau hörfuðu á öðrum vígstöðvum. Kemur það heim við þá kenningu, að Krúsjeff hafi tal- ið forsvarsmenn Vesturveld- anna svo veiklundaða, að þeir • myndu ekki vilja berjast • vegna hagsmunamála sinna og skuldbindinga. Sérstaklega kann það að eiga við um yfir- lýsingar Kennedys, Banda- ríkjaforseta, um að hann myndi halda til streitu rétt- indum Vesturveldanna í Ber- lín. Enn styrkir það þessa skoð- un, að ef til tíðinda drægi í Berlínarmálinu. þá yrðu Vest- urveldina að taka ákvörðun um það, hvort beitt skyldi kjarnorkuvopnum, á sama hátt og það var nú völ Krús- jeffs, hvort slíkum vopnum skyldi beitt vegna Kúbudeil- unnar. Fjölmargir stjórnmálafrétta ritarar hafa ú undanförnum mánuðum haldið því fram (áður en Kúbudeilan kom til sögunnar), að næsta skref Rússa. yrði að láta til skarar skríða í Berlínarmálinu. Hef- ur mörgum stoðum verið rennt undir þá kenningu, og virðast þær falla vel saman við skýringar á síðustu at- burðum. Krúsjeff hefur undanfarna mánuði látið að því liggja, að gerðir yrðu friðarsamn- ingar við A-Þýzkaland á þessu ári Hefur hann haldið því á lofti í því sambandi, að slíkt myndi hafa í för með sér al- ger yfirráð A-Þjóðverja yfir flutningaleiðum til V-Berlín- ar. Rússar hafa að nokkru leyti stigið skref í þá átt að fá A-Þjóðverjum aukin yfir- ráð yfir Berlín með því að þykjast engin afskipti hafa af aðgerðum við Berlínarmúrinn. Hafa þeir vísað öllum kvört- unum yfir hryðjuverkum þar Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.