Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.11.1962, Blaðsíða 20
20 Moxcrn/nr. aðið Miðvikudagur 7. nóvember 196J „Og þú ert bara stelpa', sagði Greene. Þau brostu bæði og voru þeg- ar orðin mestu mátar. Hún var hæstánægð með mynd irnar, sem hann tók. Meira að segja Joe varð hrifinn af þéim. Úrval úr fyrstu myndunum, sem Greene tók af henni, kom í LOOK, 17. nóvember 1953. Á einni síðunni voru tólf litlar myndir af henni. Hún var í þykkri, of stórri peysu, og var að fitla við mandólín. Svo kom heilsíðumynd með svörtum grunni. Þar var hún í svörtum kjól og aðeins fætur, hendur og andlit kom fram. Um einu ári seinna kom Greene aftur vestur í öðru er- indi, en tók þá nokkrar ínyndir af henni. ,,Ég náði í vissar hliðar af henni, sem enginn hefur náð áður“ sagði Grene. „Mér datt í hug að búa til bók um Marilyn, með myndum af henni í öllu hugsanlegu skapi. Við töluðum um þetta og ég tók marger mynd ir með þessa bók fyrir augum“. Marilyn var hreykin af þess- um myndum. Hún sýndi Negul- esco þær, til þess að sjá viðbrögð málarans við þeim. Negulesco sagði einu sinni við einhver dáleiðsluáhrif á hana, því að hann hefur fengið hana í mig: „Þessi Greene hefur haft stellingar, sem hún hefur aldrei áður verið í. Ég held/að Marilyn hafi alltaf hugsað um sjálfa sig á einhvern hátt, sem enginn ljós- myndari hefur getað séð. Og fyr- ir leikkonu er útlitið mikilvægt. Greene sá eitthvað meyjarlegt í fari hennar, eitthvað hreint og saklaust og náði því méð mynda- vélinni. Svona var það sem hún vildi sjá sig sjálf, og kannski er það þessvegna sem henni finnst hann vera snillingur. Það var engin önnur ástæða til þess, að hún gæti komizt á vald hans“. En hver komst á hvers vald? Og nú víkjum við sögunni aft- ur til nóvembermánaðar 1953. Joe Og Marilyn höfðu nú ákveð- ið brúðkaupsdaginn á nýársdag 1954. Og hvað gerði svo Marilyn á þessum sex vikum frá því brúð- kaupsdagurinn var ákveðinn og þangað til hann kom? Var hún að kaupa inn í búið? Var hún að ráðgast við skreytingafyrir- tæki um íbúðina sína? Var hún að undirbúa önnur smáatriði fyrir brúðkaupið? Fór hún úr einu boðinu í annað hjá kunn- ingjunum? Nei, hún tók engan þátt í þessu venjulega tilstandi eins Og það gerist í Ameríku hjá til- vonandi brúði. Jafnvel kvik- myndastjörnur, sem ætla að farr að gifta sig fara líkt að og aðr- ar. En bara ekki Marilyn. Því að til þess að taka þátt í öllu þessu þurfti hún að eiga ein- hverjar vinkonur, og þær átti hún ekki. Það hafði fylgt henni alla ævi að geta ekki stofnað til varanlegrar vináttu við aðrar konur. Hún stóð í sæmilega stöð- ugu sambandi við leiklistarkenn- arana sína, svo sem Natasha Lyt- ess og síðar Paulu Strasberg. Og svo lauslegan kunningsskap við starfssystkin, meðan á upptöku stóð, eins og Jane Russell og Eileen Heckart. En sá kunnings- skapur risti aldrei djúpt. Á tímabilinu rétt fyrir gift- inguna, komst Marilyn í alvar- legar deilur við húsbændur sína. Án þess að tala við hana, hafði félagið látið það boð út ganga, að næsta mynd þess yrði „The Girl in the Pink Tights", og skyldu upptökur hefjast 15. des- ember. Frank Sinatra hafði verið ráðinn fyrir 500C dali á viku til að leika móti henni. Marilyn, sem nú var komin á hámarks- laun samkvæmt samningi sínum, varð að gera sér að góðu vesæla 1500 dali, enda þótt hún ætti að verða efst á leikendaskránni. Marilyn tók það í sig að vera móðguð og hneyksluð. Hún sagði, að nafn myndarinnar eitt saman, gerði hana taugaóstyrka. Hún vissi ekki annað um efni hennar en það, að þetta var söngútgáfa af gamalli Betty Grable-mynd. Hún skrifar: ,,Ég hafði verið að þræla af öllum mætti til þess að verða almennileg leikkona. Ég vissi vel, að félagið mundi geta grætt á því að sýna mig í ljós- rauðum buxum, en það vildi ég bara ekki“. Hún kvaðst verða að lesa handritið áður en hún gæfi kost á að leika í myndinni. Aðalskrif- stofán neitaði að lofa henni að sjá það. Marilyn sagði, að þetta síðasta tiltæki væri beint fjandskapar bragð af hendi Zanucks, „af þvi að ég lét hann bíða í klukkutíma við verðlaunaafhendingu". En að baki missætti hennar við félagið lá annað og meira en fjandskapur við Zanuck og móðg un yfir að vera á þrælalaunum. „Vandræðin voru djúpstæðari en það. Ég vildi láta fara með mig eins og mannlega veru, sem hefði unnið sér eitthvað til ágætis, síð- an á munaðarleysingjaárunum". Þessi munaðarleysingjaár henn ar voru nú að vísu fimmtán ár aftur í tímann op ekki hafði nú Zanuck komið henni í munaðar- leysingjahælið. En hvenær sem eitthvað mikið lá við, veifaði hún þessu munaðarleysi sínu og heimtaði uppbætur fyrir liðna tímann. Marilyn lét hvergi bugast og tilkynnti umboðsmanni sínum, Charlie Feldman, að hún kæmi ekki í kvikmyndaverið fyrr en hún hefði fengið að lesa hand- ritið og samþykkt það. Svo hvarf hún. Enginn gat náð henni í síma, hvorki umboðsmennirnir né Inez Melson, nýi ráðsmaður- inn hennar. Hún sást hvergi þar, sem áður hafði verið hægt að ganga að henjjú vísri. Cadillac- bíllinn var horfinn af stæðinu sínu. Jafnvel Skolsky og Lytess vissu ekkert hvar hana var að finna. Félagið auglýsti þá, að hún væri rekin. Hún var ekki lengur á kaupi. 15. desember kom engin Marilyn. Þetta kostaði félagið um 25000 dali á dag, af því að bæði Sinatra og aðrir urðu að bíða eft ir henni — sem var álíka dægra- dvöl og að bíða eftir Godot. Þá hringdi Marilyn frá San Francisco, þar sem hún hafði ver ið í felum. Félagið sendi henni handritið og lýsti því yfir, að brottreksturinn væri úr gildi. Hún las handritið, sem var um dyggðuga kennslukonu um alda- mótin, sem verður dansdræsa í knæpu í Bowery. Marilyn lýsir þessari manneskju sem leiðinlegri upp- tugguihrækjandi tusku — ómerki legustu persónu, sem hún hefði nokkurntíma rekizt á í kvik- myndahandriti. Hún sagðist hafa kafroðnað niður í tær, hvenær sem hún hugsaði til þessarar lendavaggandi kennslukonu vera að fremja einhvern ósiðlegan dans. Félagið auglýsti þá brottrekst- ur hennar í annað sinn. Nú er það svo, að borgarlegu fólki er ekki sama um þegar einhver situr af sér 1500 dala vikukaUp. Til þess hljóta menn að vera hreinustu meinlætamenn. Enda þótt Marilyn hefði skömmu áður lofsungið dyggðina, var ekki hægt að kaUa hana meinlæta- manneskju. Hún sat í San Fran- cisco og var gröm. En Di Maggio hafði verið búinn að segja henni, að hennar hæfileikar gætu ekki verið þekktir fyrir það, og að hún yrði að losa sig við þessar ruslmyndir og stíga upp í þær dramatisku hæðir, sem henni væru samboðnar. Dansmeistar- inn Cole sagði henni, að hún gæti orðið ágætis Nana. Hún hafði les ið söguna eftir Zola og reynt að fá George Cukor, sem var þekkt- ur ,,kvennaleikstjóri“ til að láta hana reyna sig sem hina fraggu ástmey. En Cukor var ekkert hrifinn af þeirri hugmynd. Um- boðsmennirnir höfðu vönað, að ef hún snerist til varnar fyrir Veiddu nú fisk! alvöru, mundi félagið gera við hana nýjan samning. En nú leit ekki vel út með það. Hún var með skjálfta. Kannski ætti hún að láta updan og leika knæpudrós ina? Bull og vitleysa, sagði Joe. Nú væri einmitt rétti tímínn fyrir þau að gifta sig. Hann átti að fara til Japan í febrúar, til að kenna þar einhverjum knattleiks flokki, og þau gætu átt rólega daga eftir brúðkaupið, þar í landi. En hvers vegna gætu þau ekki farið til Japán, án þess að vera gift? spurði Marilyn. Til 'hvers þurftu þau að gifta sig strax? Ættu þau ekki heldur að bíða með það? Kvikmyndaleik- konur lytu ekki sömu lögum og annað fólk. Rita Hayworth hafði flækzt um alla Evrópu með Ali Khan og síðan með Dick Hay- mes, áður en hún giftisí þeim. Lana Turner og Lex Barker, Ava Gardner og Frank Sinatra höfðu farið í langferðir saman, án allr- ar blessunar klerkdómsins. Það væri ekki rétt að ana svona inn í hjónabandið. En Di Maggio vildi ekki eiga andir því að lenda í neinu hneyksli. Þegar hann fór til Banff að hugga hana, hafði hann ekki gist í hennar gistiihúsi í Banff Springs, heldur í öðru, sem var í 40 mílna fjarlæigð. Nei, iþað var ekki um það að tala — þau urðu að gifta sig áður en þau legðu af stað. Hún lét svo undan firnmtu- dagsmorguninn 14. janúar 1954. Ákvörðun hennar kom næstum snögglega. Ráðsmaðurinn í veit- ingahúsi Di Maggios hringdi til Charles S. Peery dómara. Hann var þá 1 einhverju iögfræðinga- samsæti. Ráðsmaðurinn bað dóm arann að koma 1 snarkasti í skrifstofuna sína, þar eð hann hefði verið kjörinn til að fremja hjónavígslu — og það hina eftir- tektarverðustu á árinu. Peery flýtti sér til ráðhússins og stóð þar reiðubúinn klukkan eitt. Joe og Marilyn komu, ásamt svara- mönnum sínum kl. 1.25. En nú hafði þetta þegar kvisazt út Og mannsöfnuður kominn fyrir utan ráðhúsið. Brúðhjónin og fylgd- arlið þeirra urðu að troðast til * * * SAGA B £ RLIIMAR -K -K -X Þar sem engin sameining náðist, urðu mörkin milli svæðanna, þar sem herirnir höfðu numið staðar, smám saman að landamærum hins frjálsa og kommúnistíska heims. — Brandenborgarhliðið varö tákn skipt- ingarinnar. Þegar hér var komið, rændu Rúss- ar sinn hluta Þýzkalands skipulega, og neilar verksmiðjur voru fluttar til Russlands. A vestursvæðinu voru tilraunir til slíkra framkvæmda stöðv aðar eftir samningsumræður milli sigurvegaranna og hinnar sigruðu þjóðar. í Austur-Þýzkalandi voru vísinda- menn og verkfræðingar oft vaktir upp um miðjar nætur og fluttir aust- ur á bóginn með tækjum sínum, til hess að vinna fvrir Stalín. þess að komast að lyftunni. Þeg- ar komið var upp á þriðju hæð, var Joe orðinn svo ringlaður, að hann sneri í öfuga átt ög lenti í gangi, þar sem engar dyr voru. Það spáði ekki góðu, svOna ábrúð ka-upsdaginn. Þau flýttu sér að snúa við og koanast á rétta leið. Marilyn gaf upp aldur sinn sem 25 ár, sem var óþarflega lágt, þar sem hún hafði orðið 27 I síðastliðnum júnímánuði. Brúð- guminn var tólf árum eldri, en unglegur samt. Blaðamennirnir hnöppuðust nú að þeim með spurningar. „Ég er afskaplega spennt“, sagði Marilyn. „Ég gæti ekki hugsað mér að verða hamingju- samari“. Hún kvaðst ekki ætla að verða í kvikmyndunum meira en tvö eða þrjú ár í viðbót, en þá hlakkaði hún til að verða „ein- göngu húsmóðir og móðir“. „Já“, glumdi í Joe. „Við ætl- um að eignast heilan hóp af krökkum. Nú benti dómarinn brúðhjón- unum að koma og Joe þaut til, eins og hann væri í kappleik, eins og einn blaðamaðurinn orð- aði það. Klukkan 1.48 stundvís- lega voru þau orðin hjón. Joe var í sólskinsskapi þegar hann sat fyrir myndum með Marilyn. Peery dómari notaði sér ekki þennan venjulega rétt til að kyssa brúðina. „Ég hafði aldrei séð hana áður og vildi ekki vera of nærgöng- ull“, sagði hann síðar. SHUtvarpiö 8.00 12.00 13.00 14.40 15.00 17.40 18.00 18.20 19.30 20.00 20.05 20.20 21.45 22.00 22.10 22.30 23.16 Miðvikudagur 7. uóvember. Morgunútvarp. Hádegisútvarp. „Við vinnuna*: Tónleikar. „Við sem heima sitjum“: Svan* dís Jónsdóttir les úr endurminn ingum tízkudrottningarinnar Schiaparelli. Síðdegisútvarp. Framburðarkennsla í dönsku og ensku. Útvarpssaga barnanna: „Kusa 1 stofunni" eftir Önnu Cath.- Westly; IV. (Stefán Sigurðs* son). Veðurfregnir. — 18.00 Þing« fréttir. — 18.50 Tilkynningar. Fréttir. Varnaðarorð: Jón Oddgeir Jóns« son fulltrúi talar í fjórða sinn um fyrstu hjálp á slysstað. Il>g úr söngleikjum: Melac« hrino hljómsveitin leikur. Kvöldvaka: a) Lestur fornrita: Ólafs sag* helga; II. (Óskar Haldórssoa cand. mag.). b) Alþýðukórinn syngur lslenzlc lög. Söngstjóri: Dr. Hallgrímur Helgason. c) Gunnar Benediktsson rithöf-* undur flytur erindi: Loftur er í Eyjum. d) Andrés Björnsson flytur frá söguþátt „Nóvemberdagur og nótt“ eftir Stefán Ásbjarn- arson á Guðmundarstöðum 1 Vopnafirði. e) Þrjár skagfirskar húsfreyj^ ur raula við gítarinn sinn. íslenzkt mál (Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag.). Fréttir og veðurfregnir. Saga Rothschild-ættarinnar eftlr Frederick Mortan; n. (Her- steinn Pálsson ritstjóri). Næturhlj ómleikar: Píanókonsert nr. 3 í d-moH efttr RakhmaninoÆf (Van Cliburn og Fílharmoníusveitin í New Yorlc leika: Leonard Bernsteúa stj órn- ar). Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.