Morgunblaðið - 07.11.1962, Qupperneq 3
Miðvikudagur 7. nóvember 1962
MORGlNBLAÐIÐ
3
NÚ um helgina mun hinn
kunni skemmti- og samkomu-
staður Beykvíkinga, Sjálfstæð
ishúsið við Austurvöll, opna
í nýjum búningi, en undan-
farna tvo mánuði hafa staðið
yfir gagngerðar breytingar og
endurbætur á húsinu. Hefur
„litla salnum“ svonefnda verið
breytt í vínstúku og vegg-
skreytingum og lýsingu aðal-
salarins mjög breytt, svo og
skipan salarins sjálfs. Allt er
húsið ný teppalagt, breyting-
ar hafa verið gerðar á snyrti-
herbergjum, anddyri o. fl.
Lúðvig Hjálmtýsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðishúss
ins tjáði fréttamanni Mbl. í
gær að hafizt hefði verið
handa um breytingarnar í
Séð eftir sai Sjálfstæðishússins í áttina að anddyrinu Vínstúkan sést ofarJega á myndinni. —
Breytingarnar má gjörla sjá. (Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.)
Sjálfstæðishúsið í nýjum búningi
Opnar um helgina eftir gagngerðar breytingar
Lúðvig Hjáimtýsson, framkvæmdastjóri (t.v.) og Wilhelm
Schröder, yfirþjónn, í Sjáifstæðishúsinu í gær.
september sl. Sjálfstæðishúsið
hefði fyrst verið opnað 1946
og hefði það þá verið fyrsta
nýmælið í veitingahúsamál-
um borgarinnar frá því er
Hótel Borg var opnað 1930 og
Tjarnarcafé 1933. Hefði húsið
þá markað tímamót en síðan
hefði orðið hin öra þróun í
veitingaihúsamálum borgarinn
ar og hefði því ekki verið um
annað að ræða en að breyta
húsinu til þess að fylgjast
með timanum.
Lúðvig sagði að breyting-
arnar væru einkum fólgnar
í að í húsinu hefur nú verið
fyrirkomið bar, sem ekki hefði
verið áður. Verða þar þrír
þjónar til taks og veitingar
fram bornar á borð á barn-
um, auk þess sem menn geta
þegið þær við barinn sjálfan.
Við barinn starfa ennfremur
tvær stúlkur auk þjónanna.
I>á hafa miklar breytingar
verið gerðar á snyrtiherbergj-
um hússins og er þar nú allt
nýtt. Miklar breytingar hafa
verið gerðar á anddyrinu, sem
nú er allt lagt „teak-spæni,
svo og á fatageymslunni. Þá
hafa verið gerðar breytingar
á eldhúsi og vinnuplássi bak
við það. í eldhúsið hafa verið
keyptar nýjar vélar og tæki,
og verður matur fram borinn
i húsinu á kvöldin.
Þá hefur salnum sjálfum
verið breytt mjög, og þar
fyrir komið veggskreytingum
og lýsingum breytt. í salnum
er stærsta dansgólf í Reykja-
vík, öll húsgögn hafa verið
gerð upp og litaðir dúkar eru
á borðum. Þá hefur upphækk-
unum beggja vegna dansgólfs-
ins verið breytt, en sviðið
heldur sér sem áður.
í Sjálfstæðishúsinu mun
leika Kaprí-tríóið undir stjórn
Baldurs Kristjánssonar, píanó-
leikara, en auk hans eru í
tríóinu þeir Grettir Björnsson
og Erwin Köppen. Sagði Bald-
ur fréttamanni Mbl. í gær að
hljómsveitin hefði viðað að
sér miklu af efni, og mundi
einkum leggja áherzlu á
„dinnermúsík“ og létta. þægi-
lega dansmúsík. Söngvari verð
ur Colin Porter, kunnur dæg-
urlagasöngvari í Reykjavík. í
ráði er að fá söngkonu erlend-
is frá á næstunni.
Atta þjónar vinna í salnum
Og þrír á barnum, og er yfir-
þjónn Wilhelm Scröder.
Lothar Grundt hefur annazt
allar skreytingar innanhúss en
flatarteikningar gerði Hall-
dór Jónsson, rakitekt.
Lúðvig Hjálmtýsson tjáði
frétamanni Mbl. að lögð yrði
áherzla á að ekki sækti húsið
yngra fólk en það, sem leyfi-
legt er. Lögð yrði höfuð-
áherzla á að gera gesti sem
ánægðasta, bera fram góðan
mat á kvöldin og skemmta
þeim með góðri tónlist Loks
sagði Lúðvig að húsið mundi
taka að sér hádegisveizlur o£ 1
síðdegisdrykkjur, sem til féllu
í vetur.
Sjálfstæðishúsið mun vænt-
anlega opna í hinum nýja
búningi á föstudagskvöld.
Kosníng um
m’ðlunar-
tillögu
KOSNINGAR um miðlunartil-
lögu sáttasemjara i síldveiði-.
deilunni verða í skrifstofu Sjó-
mannaíélags Reykjavíkur í dag
kl. 10—12 og 2—10. Aðeins þeir
félagsmenn, sem hafa stundað
síldveiðar á árinu hafa kosninga-
rétt.
AKRANESI, 5. nóv. — Hátíða-
sýningu og skemmtun hélt
Skátafelag Akraness í Bíóhöll-
inni sl. föstudag og laugardag í
tilefni hálfrar alúar afmælis
skátastarfs á íslandi. Skemmt-
unin fór vel fram. — Oddur.
STAKSTEIMAR
„Að afmá forsendur
baráttu sin_iar“
Moskvumálgagnið segir í rit-
stjórnargrein í gær:
„Gagnstætt kenningu Morgun-
blaðsins er staðreyndin auðvitað
sú að sósíalistum er það keppi-
kefli að afmá- forsendur baráttu
sinnar, en Sjálfstæðisflokkurinn
heldur dauðahaldi í ranglátt þjóð _
félagskerfi".
Grein þessa ritar Magnús Kúbu
fari Kjartan$son, sem allra
manna dyggilegast hefur fyrr og
síðar þjónað hvws kyns öfga
öflum. Forsenda baráttu hans
hefur verið sú að rússneskur
imperíalismi stefndi að heims-
yfirráðum og honum væri ætlað
það hlutverk að greiða götu of-
beldismanna í heimalandi sínu.
Þegar hann svo frumlega talar
um „að afmá forsendur baráttu
sinnar“, virðist því helzt vera
fyrir hendi að hann riti Krú-
sjeff yfirboðara sínum leyni-
skýrslu og biðji hann lengstra
orða að koma kommúnismanum
fyrir kattarnef!
Vinur Castros
Magnús Castro
Ritstjóri kommúnistablaðsins
ræðir líka um vin sinn Castro,
sem á Kúbu hefur komið á því
dýrðarríki, sem kommúnistar
vilja innleiða á þessu landi. Vafa-
Iaust finnst honum Castro þessa
dagana standa sig betur en Krú-
sjeff, því sá síðarnefndi hefur
lagt upp laupana og hirt eld-
flaugarnar og ógnarvopnin, sem
hann var búinn að fá Castro í
hendur. Finnst Stalínistum sjálf-
sagt sem lítill mannsbragur sé
að Krúsjeff um þessar mundir.
Kommúnistar hér og þar
I öllum lýðfrjálsum löndum
berjast kommúnistar um á hæl
og hnakka til að hindra að ráð-
stafanir séu gerðar til almanna-
vama, ef til styrjaldar dragi.
Leynir sér ekki, að stefnan í þeim
málum sem öðrum er samræmd.
Þeim er boðið að veikja varnar-
mátt lýðræðisþjóða og koma í veg
fyrir, að menn geti bjargast, ef
svo hörmulega fer, að hinir rúss-
nesku ofbeldismenn leggja til at-
lögu. Um þetta mál ræðir Alþýðu
blaðið í forystugrein í gær og
segir m. a. réttilega.:
,4 umræðum um atmanna-
varnir hér á landi halda íslenzkir
kommúnistar hinu sama fram og
flokksbræður þeirra erlendis.
Þeir segja að í nútima styrjöld
séu allar varnir gagnslausar. I
kjarnorkustyrjöld myndu engin
skýli geta forðað mannslífum
eða komið í veg fyrir líkamstjón
segja þeir. En á sama tíma og
kommúnislar halda þessu fram
eru þeir sjálfir að byggja sk. li
í þeim ríkjum, er þeir ráða.
Þannig byggja kommúnistar )
Austur-Þýzkalandi skýli fyrir al-
menning. Og þeir leggja áherzlu
á það í áróðri sínum þar, að
skýlið geti haft mikið að segja.
Það hlálega er, að á sama tíma
og austur-þýzkir kommúnistar
eru að byggja skýli í Austur-
Þýzkalandi reka þeir áróður gegn
skýlum í Vestur-Þýzkalandi.
Hafa tímarit í Vestur-Þýzkalandi
birt myndir af slagorðum þýzkra
kommúnista til stuðnings al-
mannavörnum í Austur-Þýzka-
landi og við hlið þeirra myndir
af áróðri þeim, er kommúnistar
beita í Vestur-Þýzkalandi gegn
vörnum þar. Er þetta dæmi frá
Þýzkalandi táknrænt fyrir tví-
skilning kommúnista almennt“.