Morgunblaðið - 07.11.1962, Qupperneq 11
Miðvikudagur 7. nóvember 1962
MORGinUiL AÐIÐ
11
„V E R N D" - tímarit
Verndar komið út
ETjAÐINU heí-ur borizt ársrit
Verndar. Jiitstjórn skipa þau
Guðmun-duf Ingvi Sigurðsson,
Sigriður J. Magnússon, Ingimor
Jóhannesson og I>óra Einaredótt-
ir. Kápu'teikning er eítir Örlyg
Sigurðsson.
Ritið er fjölbreytilegt að efni
og sýnir í hnotskurn það ágæta
starf sem Vernd innir af hendi
í þágu olnbogabarna þjóðfélags-
ins.
Formaður Verndar, Þóra Ein-
arsdóttir, ritar inngangsorð, og
einnig grein sem hún nefnir
„Hið mikla vandamár*. Þar ræð
ir hún þau vandamál, sem skap-
azt hafa af ofneyzTu áfengis, og
segir meðal annars:
Félagasamtökin Vernd voru
stofnuð árið 1958 og er markmið
Iþeirra og verkefni, hjálp til
handa afbrotamönnum. Vemd
Shefur opna skrifstofu og vist-
heimili í Reykjavík. Enginn dag
ur ldður svo, að ekki sé hringt
til skrifstofu samtakanna, og
beðið um hjálp eða aðstoð fyrir
— eða vegna — drykkjusjúkra
manna og kvenna, sem hvergi
virðast eiga heima. Það er eng-
an veginn heppilegt að þurfa að
hýsa slika menn, en erfitt að út-
hýsa á dimimum vetrarkvöld-
um.
Sýnir þebta bezt, hvað þörfin
er brýn og aðkallandi, að þetta
vandamál sé tekið föstuim tök-
um. — Grein sirwii lýkux frú
Þóra með þessum orðuim:
Hér hefur lauslega verið
drepið á eitt af þeim vanda-
málum, sem skapast af ofneyzlu
áfengis. Það er augljóst mál, að
hér þarf að ráða bót á. Það
vantar skýli eða náttstað fyrir
þetta fólk til bráðabirgða, þar
til því er fenginn viðeigandi
samastaður eins og öðruni sjúkl-
ingum.
Það er krafa allra hugsandi
manna, að bætt sé úr því neyð-
arástandi, sem ríkir i þessum I
máluim í höfuðstað okkar. Eng-
inn maður ætti að komast í þá
aðstöðu að þurfa að liggja úti
á kölduim vetrarnóttum, enginn
að þuria að vera í vandræðum
með læknishjálp, ef veikindi
steðja að. Kirkjan og þær hjálp-
arstofnanir, sem fyrir eru í land
inu, eiga að taka höndum sam-
an við framfærslsu Reykjavíkur-
bongar um lausn þessa vanda.
Af öðrum greinum í Vernd
má geta: Skúli Þórðarson ,fram-
kvæmdastjóri Verndar, segir frá
starfiseminni, Auður Auðuns,
alþm. ritar grein Alhrot unig-
menna þjóðfélagsvandamál,
Rannveig Þorsteinsd. hrm.: Kven
fél. og Vemd, Kristinn Björnsson
sálfræðingur: Áfengisvarnadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur, Séra Eirikur J. Eiríksson
þjóðgarðsvörður: „1 fangelsi var
ég og þér komuð til mín, „Lára
Sigurbjömsdóttir: ,,Langt í landf*
Guðmundur Jóhannsson for-
stjóri: „Gott samstarf“, Sigríðu'r
J. Magnússon: „Jólastarf Vernd-
ar“, Páll Sigurðsson tryggingar-
yfirlæknir: Sjókrata-yggingar i
dag. Séra Bragi Friðriksson: Ekki
af brauði einu saman, Kjartan
Guðnason: Múlalundur, Knútur
Kristinsson læknir: Bókarfregn.
Einnig eru kveður frá Damnörku
og Noregi.
I. O. G. T.
Munið Hrannarfundinn að
Frikirkjuvegi 11 í kvöld kl. 8.30.
Skemmtun eftir fund.
Stjórnin.
Stúkan Einingin nr. 14.
Fundur í kvöld kl. 8.30. „Við
búum til blað“ undir stjórn
Ólafs F. Hjartar. Þáttakendur
allt fundarfólk. Æt.
M.S. „FJALLFOSS"
fer frá Reykjavík fimmtudaginn
8. þ.m. til Norðurlands
Viðkomustaðir: Akureyri, Húsa-
vík, Siglufjörður. — Vörumót-
taka á miðvikudag.
H.f. Eimskipafélag íslands.
Bókhaldari óskast
Maður vanur bókhaldi óskast til Hraðfrystihúss
Olafsvíkur. Góð laun. Nánari upplýsingar gefur
Gunnar Bjarnason, forstjóri Ólafsvík og ennfremur
í síma 1-3602.
Ver’ismiðjum vorum
og skrifstofu
verður lokað til kl. 1 fimmtudaginn 8. þ. m.
vegna jarðarfar.
H.f. Ölgerðin Egill Skallagrimsson
IMý sendiaig
svissneskar kvenblússur
/ilOl'.í* •
GLUGGIIMIM
Laugavegi 30.
Bútasala
Seljum í dag mikið úrval alls konar búta úr ull,
bómull rayon, teryleneefni og loðefnum í kraga og
húfur.
Einnig úrval af lttið gölluðum kven- og karlmanna-
peysum við mjög lágu verði.
Laugavegi 116.
Saumasfofa
óskar eftir stúlku nú þegar eða um áramót til þess
að sníða og hafa á hendi verkstjórn. Æskilegt væri
að hún gæti útbúið snið, en þó er það ekki skil-
yrði. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Verkstjórn
— 3710“ fyrir n.k. þriðjudag.
Skipstjóra
vantar á góðan bát er stunda á síldveiðar sunnan-
lands. Báturinn er búinn öllum nýtízku síldveiði-
tækjum, 2 misstórar smáriðnar síldamætur.
Tilboð leggist strax inn á afgreiðslu blaðsins
merkt: „Síldarskipstjóri — 3690“.
TILKYNNING FRÁ
Heilsuvemdorstöð Reykjuvíkur
Næstu daga tekur til starfa í Heilsuverndarstöð
Reykjavíkiu- rannsóknarstöð fyrir heymardauf börn
innan 4 ára atdurs.
Verður tekið á móti bömunum til læknisrann-
sóknar og heyrnarprófa, en aðeins samkvæmt til-
vísun frá læknum.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 22400 kL 10—11
f. h. alla virka daga og er þar tekið á móti pöntun-
um um skoðanir.
Reykjavík, 3. nóv. 1962.
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR.
Leigutilboð óskast
í verzlunarhúsnæði að Suðurlandsbraut 108 A, við
Háteigsveg, hentug fyrir kjötverzlim.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 5—7 e. h. í dag.
Skrifstoftihúsnæði til leigu
Húsnæði fyrir skrifstofur eða léttan iðnað er
til leigu við Bræðraborgarstíg. — Uppl. gefur
SVEINN FINNSSON
Málflutningur — Fasteignasala.
Laugavegi 30. Sími 23700 og 22234.
Sendisveinn óskast
allan daginn.
G. Helgason & Melsted hf.
Hafnarstræti 19.
Aðsto^arverkstjóri
Stórt fyrirtæki óskar að ráða aðstoðar-
verkstjóra. Framtíðaratvinna. Umsækj-
endur leggi inn umsókn er greini frá
aldri, menntun og fyrri störfum í dag
og á morgun á afgreiðslu Mbl. merkta:
„AÖstoðai verkst jóri — 3692".