Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 1
24 slður 49. árgangur 262. tbl. — Fimir.tudagur 22. nóvember 1962 Prentsmiðja Morgunblaðsins LÓG RETT Framsóknarmenn stóðu að ofbeldisverk- um með kommúnistum á ASI-þingi Bættu gráu ofan á svarf með fláræði og brigðum ÞAU TÍÐINDI gerðust á Alþýðusambandsþingi, þeg- ar gengið var til afgreiðslu um kjörbréf Landssam- bands íslenzkra verzlunarmanna, laust eftir mið- nætti í nótt, að Framsóknarmenn snerust á sveif með kommúnistum og stóðu með þeim að ofbeldis- verkum þeim og lögbrotum, sem kommúnistar höfðu boðað, en Framsóknarmenn höfðu þótzt vera andvíg- ir. Fluttu þeir, ásamt kommúnistum, tillögu um það, að kjörbréf LÍV yrðu ekki afgreidd og fulltrúun- um yrði meinaður atkvæðisréttur á þinginu. Þessa málsmeðferð reyndi þjóðfylking kommúnista og Framsóknarmanna að verja með því, að ekki gæfist tími til að rannsaka gögn þau, sem kjörbréf fulltrúa LÍV byggðust á, enda þótt þessi gögn hefðu verið í höndum félagsdóms frá því í sumar og meira að segja skorað á Alþýðusambandið að gera athuga- semdir við þau, án þess að það treysti sér til þess. Enda þótt engin athugasemd væri gerð við gögn Landssambandsins frá kjörbréfanefnd né öðrum, stóðu Framsóknarmenn við nafnakall að samþykkt þessarar endemistillögu. Atkvæði féllu þannig, að 177 greiddu tillögu kommúnista og Framsóknar- manna atkvæði, og gerðust þannig berir að svikum við lög og rétt. Á móti voru 151. Á bls. 24 í blaðinu í dag eru birt nöfn allra þeirra fulltrúa, sem stóðu að þessu gerræði. Segja má að hlutur Framsóknarmanna sé verri en kommúnista í þessu máli, með tilliti til fláræðis þess og brigðmælgi, sem þeir hafa viðhaft. Um það er fjallað í ritstjórnargrein hér á síðunni. Hér fer á eftir frásögn af störfum þingsins í gær: meiritalutann leggja til, að gögn- unum verði vísað til væntanlegr- ar miðstjórnar ASÍ, en fulltrúar L.ÍV fái leyfi til þingsetu á þessu þingi með málfrelsi og tillögu- r.'tti ( ekki atkvæðisrétti). Þá tók til máls framsögumað- ur minnihluta kjörbréfanefndar, Óskar Hallgrimsson. Sagðist hann fyrst vilja bæta úr þeim mis- tökum, sem þingforseta hefðu orð ið á, er honum láðist að bjóða hina nýkomnu fulltrúa LÍV vel- komna á þing og í launþega- samtökin. Bauð Óskar þá síðan velkomna, og tóku fundarmenn undir það með lófataki. Óskar rif jaði síðan alla forsögu þessa máls. Kvað hann hér vera um að ræða launþegasamtök, sem ættu lögvarinn rétt á því að tengjast heildarsamtökum laun- þega. Þegar þeim var varnað þessa frumréttar, áttu þau ekki annars úrkosti en leita til dóm- stólanna. Óskar kvaðst persónu- lega harma það, að þessa leið hefði þurft að fara, en það hefði ekki verið sök LÍV, heldur meiri hluta síðasta þings ASÍ. Nú lægi fyrir ótvíræður efnisdómur í mál inu, og meirihluti þings hefði kvöldið áður viðurkennt og stað- fest, að LÍV er löglegur aðili ASÍ. Af þeirri staðreynd hlyti af- greiðsla kjörbréfanna að mark- ast. Hins vegar virtist meirihluti kjörbréfanefndar enn ætla að af- neita staðreyndum, því að hann vildi láta réttkjörna fulltrúa meðlimasambands ASX vera sem gesti á þinginu, eins og fulltrúa Stéttarsambands bænda. Óskar minnti á, að ASÍ hefði vanrækt skyldu sína og ekki haft neina forgöngu um að mynda félög launlþega í stétt verzlunar- og skrifstofufólks. Félögin hefðu engu að síður verið stofnuð, og hefði ASÍ átt að bjóða þau vel- komin fyrir löngu. Flest væru þau veik og vanmegnug nema Verzlunarmarmafélag Reykjarvik Framh. á bls. 2 ÞEIR LÖGÐU Á RAÐIN Einar Olgeirsson. Eysteinn Jónsson. MMMMI FUNDUR á þingi ASÍ hófst kl. 16 í gær. Þar voru mættir full- trúar LÍV, en eins og skýrt var frá í Mbl. í gær, samþykkti þing- ið í fyrrakvöld að taka kjörbréf þeirra tii umræðu, og fenigu þeir afhenta aðgöngumiða á gær- morgun. Forseti þingsins, Björn Jóns- son, skýrði frá því, að kjörbréfa- mefnd hefði lokið störfúm, og tók eíðan til máls framsögumaður meirihluta hennar, Snorri Jóns- son, Sagði hann kjörbréfanefnd hafa komið saman á fund um morguninn, og hefðu þá legið fyrir kjörbréf, útgefin af XjÍV. Hins vegar hefði vantað lög sam- bandsfélaga, félagaskrár o. fl. gögn, sem form. LÍV, Sverrir Her mannsson, hefði svo afhent nefnd inni eftir beiðni hennar. Á félags ekránum væru nöfn 3305 manna. Sagði Snorri það álit meirihluta nefndarinnar, að ekiki væri auð- hlaupið að rannsaka þessi gögn ó þessu þingi, svo sómasamlegt gæti talizt. Vera mætti, að skrárn ar væru í aðalatriðum réttar, en tíminn væri of skammur, meðan þingið stæði, til þess að athuga þær. Sagði framsögumaður síðan Meö lögum skal land byggja „ÞVÍ verður ekki trúað að ó- reyndu, að Framsóknarmenn standi með kommúnistum að lögbrotum og ofbeldi í sam- bandi við inngöngu Landssam bands íslenzkra verzlunar- manna í Alþýðusamband Is- lands“, var viðkvæði lýðræðis sinna allt þar til í gær, að á daginn kom, að einmitt þetta varð hlutskipti fulltrúa á ASI-þingi, sem telja sig með- limi lýðræðisflokks. En þótt menn vildu ekki trúa því, að Framsóknarmenn myndu standa með kommúnistum að lögbrotum, var þó ýmislegt, sem benti til þess, að þeim væri lítt treystandi. Nær því vika leið frá því að dómur Félagsdóms var kveð- inn upp, þar til málgagn Framsóknarflokksins lýsti því yfir, en þó varfærnislega, að hiýða ætti lögum og dómum. Aldrei áfelldist blaðið komm- únista, þótt þeir lýstu því op- inberlega yfir, að þeir ætluðu að fremja lögbrotin og ein- læg samstaða var með komm- únistum og Framsóknarmönn um frá upphafi Alþýðusam- bandsþings, þrátt fyrir yflr- lýsingar hinna fyrmefndu um fyrirhugaða ofbeldistil- raun. Nú liggur það fyrir, að á- stæðan til þess að Framsóknar menn sögðu að hlíta ætti dómum, var sú, að þeir ótt- uðust almenningsálitið en ekki hin að þeir væru ekki reiðu- búnir til að fylgja kommún- istum í lögleysunum. Þeir voru aðeins að þreifa sig á- fram og reyna að finna þá leið til að þóknast banda- mönnum sínum, sem ekki sýndi augljóslega, að þeir væru reiðubúnir til að brjóta gegn lögum og dómum ís- lenzka lýðveldisins, ef það þjónaði sameiginlegum hags- munum flokks þeirra og kommúnista. Svo óhönduglega tókst þó til, að það mun allra manna mál, að hlutur Framsóknar- manna sé mun verri en komm únista. Þeir bættu fláræði við lögbrotin og það svo augljós- lega, að hver maður sér, að þeir standa ekki einungis uppi sem lögbrjótar, heldur líka lít- ilmenni, sem þora ekki að horfast í augu við eigin gerð ir. Sá fyrirsláttur, að eigi hafi verið tími til að athuga fé- lagaskrár verzlunarmanna er fráleitari en tali taki. Verka- mannafélagið Dagsbrún eitt er álika fjölmennt og samtök verzlunar- manna. Ekki vafðist þó sk á þess félags frekar en ann- axra fyrir kjörbréfanefnd. Þar að auki er það sök banda- lags Framsóknar og kommún- ista sjálfs, að eigi var tekið að ræða kjörbréf LÍV fyrr en í gær. En síðast en ekki sízt er það ómótmælanleg stað- reynd, að félagsdómur skor- aði á Alþýðusambandið þegar í suraar að gera athuga- semdir við félagaskrár LÍV, ef þœr væru einhverjar, og skrárnar lágu þá frammi í dómi til afnota fyrir báða að- ila. í dómi félagsdóms segir, að „Alþýðusamband íslands verði dæmt skylt að veita stefnanda, Landssambandi isl. verzlun- armanna, inrugöngu í Alþýðu- sambandið með fullum og ó- skertum félagsréttindum sem stéttarfélagssambandi.“ Þegar þverbrotið er gegn dómi þess- um, er því vegið að réttar- skipan íslenzka lýðveldisins, þá eru ólög í hásæti hafin, þá er framið níðinigsverk, sem varla verður valið vægara heiti en þjóðsvik. Njáll sagði: „Með lögum skal land öyggja.“ Þessi orð hafa verið Ieiðarljós íslenzku þjóðarinnar. Þau túlka vilja hennar til að búa við réttar- öryggi lýðræðisþjóðskipulags ins. Það er þvi ekki lítið áfall, þegar leiðtogar „lýðræðis- flokks“ falla í þá freistni að beita sér fyrir því að lög og dómar, grunévöllur réttarrik is, sé þverbrotið — þegar þeim gleymist saga landsins og sú arfleifð, sem við í dag byggj um allt á. „I'jð lögunn skal land byggja — og ólögum eyða.“ Þess hefði mátt vænta að leiðtogar annars srtærsta stjórnmfUaflokks landsins héidu trúnað við þessi orð í stað þess að verða vargar í véum. Það er svo mál út af fyrir sig, að þessi svik við lýðræði og rétt eru framin í nafni fjölmennustu samtaka alþýð- unnar. Með því atferli hljóta þau samtök að verða stór- sköðuð um ófyrirsjáanlega framtíð. Meðan þeir menn ráða þar, sem slíkum aðferð- um beita, getur Alþýðusam- band Islands ekki orðið neitt einingartákn alþýðunnar, né samtök, sem gætt geti hags- muna hennar. Það er því mik- il ábyrgð, sem þeir menm tak- ast á herðar, sem jafnframt lögbrotunum gera sér leik að því að eyðileggja heildarsam- tök islenzkrar alþýðu. Hver sem framvinda þessa máls verður, þá ber þó að fagna því, að við þessi bola- brögð Framsóknarmanna meff kommúnistum munu augu margra opnast fyrir því, að lög og lýðréttindi munu lítils virt, ef áform þessara banda- manna um að ná sameiginleg um þingmeirihluta tækjust og sú vinstri stjórn yrði stofnuð, sem samkvæmt orðum komm únista sjálfra á að hagnýta sér reynslu síðustu vinstri stjórnar og herða þannig frá upphafi tökin að landslýðnum, „að vera alþýðustjórn eða þróast upp í það“. Níðingsverk Framsóknar- flokksins getur því orðið honum dýrkeypt um það er lýkur, og ekki er ólíklegt, að Eysteinn Jónsson, formaður flokksins, sem aðförinni stjórn aði í samvinnu við Einar Ol- geirsson, eigi eftir að iðrast gerða sinna. «*r« MTWM m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.