Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 6
6 MORCVISBLAÐIÐ Fimmtudagur 22. nóv. 1962 Sr. Sveinn Víkingur: Rök prdfessorsins VEGNA þess að óvenjulega mikið hefur veiið spurt og spjallað um umræðuþáttinn í Ríkisútvarpinu 4. þ. m. og hann gerður að blaðamáli, tel ég mig ekki geta hjá því komizt að leggja þsir örfá orð í belg. Eins og hlustendur muna full- yrti próf. Dungal, að lækningar framkvæmdar af framliðnum mönnum með aðstoð miðla væru blekking einber og svik. Ekki færði hann þó önnur örk fyrir þessari fullyrðingu en þrjú dæmi, og snerti þó aðeins eitt þeirra lækningu. Hin tvö voru út í hött og komu ekki því máli við, sem um var rætt. Ég leiddi þess vegna hjá mér að svara þeim. Það mun og hafa vakið athygli, hve einkennilega langt var seilzt eftir þessum dæmum, þar sem tvö þeirra voru milli 50 og 60 ára gömul, eða lítið eitt yngri en prófessorinn sjálfur og hið þriðja milli 10 og 20 ára. Auðvitað er prófessornum frjálst að notast við gamlar munnmælasögur í stað frambærilegra raka. Hitt er prófessor ekki samboðið að rang- færa slíkar sögur í þeirri von, að menn séu búnir að gleyma því rétta. Og það er þess vegna, að ég er knúinn til að víkja að sög- um hans nokkrum orðum. Ein „sönnun“ prófessorsins gegn andalæknirrgum var sú, að Gísli nokkur á Elliheimilinu Grund hefði séð Jesúm Krist „og snarlæknuðust á honum hendurn ar“. En Matthías Einarsson hefði sagt, að hann hefði skoðað karl- inn, og hefðu hendurnar verið jafnkrepptar eftir sem áður. Gallinn á þessu vottorði hins ágæta látna læknis er sá, að það mun aldrei hafa verið gefið. Og það af þeirri einföldu ástæðu, að það voru ekki hendur heldur fót- leggir gamla mannsins, sem hér var um að ræða. Öllum heimild- um blaðanna frá þessum tíma ber saman um það, að hin skyndilega lækning hafi verið í því fólgin, að gamli maðurinn, sem áður staulaðist við hækjur, varpaði þeim frá sér og gekk uni einn og óstuddur. Að þessu voru mörg vitni. Hefði óneitanlega verið skynsamlegra og vísindalegra af prófessornum að kynna sér þetta mál áður, það hefði sparað honum að fara með staðlaust fleipur í áheyrn alþjóðar. Önnur „sönnun“ prófessors Dungals fyrir fánýti lækninga framliðinna lækna fyrir milli- göngu miðla var sú, að á fundi hjá Indriða miðli fyrir 50—60 árum hafi verið mælzt til þess að handan eða að minnsta kosti samþykkt, að tekin skyldi ljós- mynd af líkamninga-fyrirbæri. Var Magnús Ólafsson ljósmynd- ari, sem nú er löngu látinn, feng inn til þess að taka myndina, en Ijósmyndin sýnt, að líkamningur þessi var ekki annað en hvítt lak, sem hengt var á kústskaft. Hefði mynd þessi síðan verið sýnd próf. Haraldi Nielssyni og Einari Kvar an rithöfundi, og var að skilja á prófessornum, að þeir hefðu þagað og hylmað yfir svikin. Ég tel þessa aðdróttun að tveimur ágætustu andans mönnum þjóð- arinnar, báðum látnum, algjör- lega ósæmilega. Og ég leyfi mér að spyrja prófessorinn. Hvar er þessi ljósmynd? Hvað varð .um línlakið og kústskaftið? Er það álit prófessorsins, að miðillinn hafi gleypt bæði línlakið og kústskaftið, — eins og sumir „fræðimenn“ hafa haldið fram sem skýringum á líkamninga- fyrirbærum? Og telur prófessor- inn það eðlilegt og sennilegt, ef miðillinn var vísvitandi svikari, sem hafði með sér hvítt línlak og kústskaft inn á fundinn til þess að blekkja með því fundargesti, hafi ekki aðeins samþykkt, held- ur beinlínis farið fram á það, að fenginn yrði maður til þess að ljósmynda svikin?!! Og að lok um þetta. Ef prófessorinn er sannfærður um, að þarna hafi á óyggjandi hátt verið sönnuð svik á miðilinn, hvers vegna hefur hann þá hylmað yfir þau í öll þessi ár? Þriðja „sönnun" prófessorsins hafði þó það sér til ágætis að hún snerti það málefni, sem um var rætt. Það var rúmlega hálfrar aldar gömul saga um það, að framliðinn læknir, norskur, hefði með aðstoð Indriða rniðils tekizt á hendur að reyna að lækna sjúkl ing af krabbameini. En ekki tókst betur til en svo, að maðurinn lézt nokkru síðar, og við krufn- ingu líksins komið í ljós, að mein- ið var enn fyrir hendi. Vel má þetta vera rétt. En það hefur hent fleiri lækna en þá fram- liðnu að geta ekki læknað krabbamein. Veit ég heldur eng- an hafa haldið því fram, að lækn- ar yrðu almáttugir eftir líkams- dauðann. Þá yrði líka lítið úr okkar ágætu læknum hérna meg- in, og mannlegt að þeir óskuðu lagaverndar gegn svo skæðum keppinautum, eins og sálfræðing urinn var að drepa á í umræð- unum. En ef próf. Dungal telur þessi mistök framliðna læknisins varðandi lækningu eins krabba- meinssjúklings vera gilda sönn- un þess, að allar lækningar fram liðinna lækna séu svik, þá er naumast þess að vænta, ef hann er sjálfum sér samkvæmur í rök- Marjory vísar blindum foreldrum sínum leið yfir götuu foreldra sinna I GLASGOW í Skotlandi býr lítil fjölskylda, hjón og þriggja ára dóttir þeirra, Marjory. Það sem gerir þessa fjölskyldu frábrugðna öðrum litlum f jölskyldum, er að fað- irinn er blindur, móðirin sér mjög illa og getur ekki ferðazt um einsömul, en dótt- irin hefur fulla sjón. Þegar hjónin þurfa að ferð- ast um borgina fer dóttir þeirra Marjory með þeim. Foreldrarnir hafa litlu stúlk- una í beizli og gengur hún á undan þeim, vísar leiðina og lætur ekki koma sér úr jafn- „Sjón“ vægi þó yfir umferðargötur sé að fara. Faðir Marjory Ted Proffitt segist ekki vera fullkomlega öruggur um, að litla stúlkan sé þessu ábyrgðarmikla hlut- verki vaxin, en til þessa hetf- ur dómgreind hennar aldrei brugðizt. Móðir Marjory, Ohristine Proffitt segir, að litla stúlkan sé mikil blessun fyrir þau hjónin. — Ég gæti t. d. ekki farið í verzlanir án þess að hafa hana mér til aðstoðar. Þegar Marjoiry gengur um göturnar í Glasgow með for- eldrum sínum, vekur hún mikla undrun og aðdáun veg- farenda. Þó að Marjory sé ekki nema þriggja ára eru foreldrar hennar byrjaðir að kenna henni að stafa og gengur litlu stúlkunni vel að læra það. Hjónin nota stafakubba við kennsluna og eru þeir útbúnir sérstaklega með blindraletri á einni hliðinni, en venjulegum bókstöfum á annarri. • ERU SKAUTAR UÚXUSVARA? Kæri Velvakandi! Undanfarið hefur mátt líta fjölda manna á tjörninni, sem hafa fært sér í nyt ágætt skauta svell og skemmt sér vel við hollla íþrótt. En sá er bara hængurinn á að mi'klu færri eiga þess fcost að fara á skautuim en vildu. Kemur þetta fyrst og fremst til af því að fólk hefur ekki efni á því að gefa börnum sín- um skauta. Skautar skrúfaðir á stígvél, eins og nú tíðkast kosta um og yfir 800,00 kr. og mér er sagt að þetta óheyrilega verð stafi að nokkru leyti af þvi að skautar eru flokkaðir sem lúxusvara og þannig tollaðir. Eins og það nád nokkurri átt! Er það ekki fyrst og fremst í þágu sjálfs samfélagsins að hér vaxi upp heilbrigð og lifs- glöð æska? Og hver er svo alvaran að baki, þegar menn eru að tala um að hlúa að „Hugarfóstur hófu mál og hikstuðu rim um útvarps- . spjalL Enginn fann þar anda og sál, en aumlegt raus varð mikið ííaU“. færslunum, að hann telji lækn- ingar sjálfs sín eða læknanna yfirleitt vera upp á marga fiska, þar sem vitað er, að þeir verða að gefast upp við að lækna krabbamein ekki einu sinni held- ur oftsinnis á hverju ári. En skynsamir menn sjá, að þetta eru engin rök. Þeim kemur ekki í hug að telja störf lækna hégóma, þótt þá enn bresti kúnn- áttu og getu til að lækna alla sjúk dóma, né heldur kemur þeim til hugar að trúa því, að í dæmum þeim, sem prófessorinn bar fram í útvarpsumræðunum, sé nokkur snefill af sönnun fyrir því að lækningar framliðinna lækna, með aðstoð miðla, séu blekking- ar og svik. Sveinn Víkingur. Velvakandi getur gjarnan tekið undir þessar frómu ósk- ir Jóthannesar. Okkur er kunn ugt að ekki einasta skautar heldur og vel flest íþróttatæ'ki skoðast sem lúxusvarningur. T.d. skíði, sem nú munu vera einhver allra dýrustu fþrótta- tæki, sem fáanleg eru. Þó munu það vera tæki, sem ekki síð- ur stuðla að heilbrigði og hreysti en sbautarnir. Vel flest iþróttatæki eru til þess eins að efla og styrkja hrausta æsku og . ttu því að skoðast sem heilbrigðis og menningartæki og tollast sem slík. • AUMLEGT RAUS. Oft kemur það fyrir að Vel- vakanda eru send ljóð og stök- ur. Minna er -s vegar u*n það að Velvakandi birti slíkan kveðskap. Oft er um að ræða kesknikveðskap og tíðum fá- t .ma leirburð. Ein vísa barst okkur nú fyrir skemmstu og má e.t.v. segja að hún mætti fljóta með hinum í ruslakörf- una. Ástæða er kannski til að halda henni til haga þar sem hún er sögð eftir einn af sál- fræðingum landsins. En vísan ’hljóðar þannig: þroska og manndómi uppvax- andi kynslóðar? í Bandaríkjunium þar sem laun manna eru hekningi hærri en hér kosta venjulegir skautar ekki meira en 300 kr. Væri ekki hægt að fá þvi tframgengt að þe'. hlutir, sem stuðla að heilbrigði manna, séu ekki tollaðir sem óhófs- vara? Eða er það orðinn lúxus að eiga heilbrigða sál i hraustum líkanma? Með þökkum. Jóhannes Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.