Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 12
12 MORCVTSBIAÐIÐ Fimmtudagur 22. nóv. 1962 JMrogpustMtaMfe Otgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavlk. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónssor Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Otbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjóm: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakið. ÞJOÐIN HAGNAST Á VIÐREISNINNI UTAN ÚR HEIMI viku heimsótti Adenauer Kenncdy forseta. Myndin er tekin á fundi þeirra. Listamenn hjálpa flóttamönnum — og aðrar fréttir frá Sameinuðu þjóðunum ¥ Tm þá staðreynd verður ekki lengur deilt, að nú hefur tekizt að rétta við fjár- hag þjóðarinnar, sem var orð- inn þannig eftir langvarandi óstjórn, að gjaldeyri slcorti til kaupa á brýnustu lífsnauð- synjum. Alþjóðlegar lána- stofnanir voru okkur gjör- samlega lokaðar og venju- leg viðskiptalán þýddi hvergi að nefna. Nú horfa málin þannig við, að við höfum safnað verulegum gjaldeyris- varasjóðum, samhliða því sem innflutningur hefur ver- ið gefinn frjáls á fjölmörgum vörutegundum og framboð nauðsynjavara aukizt meir en dæmi eru til. Þetta hefur tekizt, án þess að nokkurs staðar örlaði á samdrætti, sem hefði atvinnuleysi í för með sér, enda eru fram- kvæmdir nú hvarvetna eins miklar og vinnuafl frekast leyfir. M.a.s. málgagn Framsókn- arflokksins slysast til að við- urkenna þetta í ritstjórnar- grein í gær, og hafði það þó margsinnis fullyrt, að við- reisnin væri fyrir löngu far- in út um þúfur, hér væri í uppsiglingu kreppa, sam- dráttur, atvinnuleysi og móðu harðindi af mannavöldum. í gær segir Tíminn hins vegar: „Á þeim fjórum árum, sem eru liðin síðan vinstri stjóm- in fór frá völdum hafa þjóð- artekjurnar stóraukizt“. En síðan bætir blaðið því við, að „viðreisnin hefur breytt tekjuskiptingunni al- þýðu manna stórkostlega í ó- hag, enda takmark hennar að draga auðinn sem mest í fáar hendur.“ Þetta er raunar ekki í fyrsta skipti, sem Framsókn- armenn halda því fram, að tekjuskiptingin í hinu ís- lenzka þjóðfélagi sé að verða mjög óréttlát. Fyrst sögðu þeir, að viðreisnin myndi leiða til þess ,að allir töpuðu, ekki sízt atvinnufyrirtæki, en síðan drógu þeir í land og sögðu að það væri bara „al- menningur", sem tapaði. Mbl. hefur margspurt Tím- ann að því, af þessu tilefni, hverjir það væru, sem of mikið bæru úr býtum; ein- hverjir hlytu það að vera, úr þvi að tekjuskiptingin væri óréttlát. Svar hefur ekki fengizt við þessari spurn- ingu, og er hún því endur- tekin enn einu sinni: Eru það t. d. menntamenn, iæknar, verkfræðingar og aðrir, sem of mikið fá. Er það útgerðin, sem ber of mikið úr býtum. Er það landbúnaður- inn, sem græðir óhóflega, eða er það iðnaðurinn og verzl- unin. Hafa sjómenn eða iðn- aðarmenn of hátt kaup, og þannig mætti lengi spyrja. Það er Tímans að svara því, hverjir þessir menn eða fyr- irtæki séu, sem svo óhóflega græða að auðsöfnun þeirra sé „alþýðu manna stórkost- lega í óhag.“ Sannleikurinn er auðvitað sá, að það er rétt, sem Tím- inn segir, að þjóðartekjurnar hafa stóraukizt, og sú tekju- aukning hefur komið öllum landslýð til góða. Líklega hefur afkoma manna aldrei verið betri en nú að undan- fömu, og þó fer mjög stór hluti tekjuaukningarinnar til þess að treysta fjárhag þjóð- arinnar, svo að stórauka megi framkvæmdir í fram- tíðinni og svo hins vegar til þeirra miklu framkvæmda, sem þegar er unnið að. Að sjálfsögðu gætu menn borið enn meira úr býtum, ef þeir vildu þegar eyða öll- um fengnum, en skoðun ís- lenzks almennings er og hef- ur verið sú, að fjárfesta þurfi mikið og búa í haginn til þess að okkar harðbýla land geti orðið betra með hverju árinu, sem líður. HAGUR LOFTLEIÐA ITíða á Norðurlöndum hafa " blöðin snúizt til varnar Loftleiðum, vegna þess að þau hafa talið aðför SAS að hinu íslenzka félagi órétt- mæta. Ólíklegt er þess vegna að SAS geti fengið almenn- ingsálitið meðal frændþjóða okkar í lið með sér. Af því leiðir að aðförin getur varla heppnazt. Fjarstætt er líka, að Loft- leiðir sameinist hinni skandi- navísku samsteypu, eins og stungið hefur verið upp á. Loftleiðamönnum hefur gef- izt bezt að treysta á sjálfa sig, dugnað og útsjónarsemi, svo að þeir hljóta að hafna samnrna við SAS. Eini árangur aðfararinnar virðist þannig verða sá, að SAS hefur tekizt að auglýsa Loftleiðir betur en hinu litla félagi hefði nokkurn tíma auðnazt af eigin rammleik. Er það út af fyrir sig góðra gjalda vert, en skynsamlegt væri fyrir SAS að lægja öld- umar, áður en nafn Loftleiða Helmingur skuldabréfa S. Þ. seldur Bretland hefur keypt skulda- bréf Sameinuðu Þjóðanna fyrir 12 milljónir dollara, og Banda- ríkin hafa keypt samskonar bréf fyrir 44,1 milljón dollara. Hafa þá 29' ríki keypt skuldabréf fyrir 100,9 milljónir dollara. Auk þess er komið á hvers manns var- ir í nágrannalöndunum. BÆ NDAHÖLLIN ¥Tmræður eru á ný hafnar um Bændahöllina og er tilefnið, að óskað er að lög- fest verði á ný gjaldheimta á bændur til að standa undir kostnaði við þessa fram- kvæmd. Er ekki undarlegt þótt mönnum hrjósi hugur við að standa að slíkri lög- gjöf, þegar hliðsjón er höfð af því, að bygging þessa húss mim kosta á annað hundrað milljónir og líklega um hundrað milljónir fram yfir það, sem upphaflega var á- ætlað. Bændur munu sjálfir þurfa til afnota eina hæð þessarar byggingar. Sams konar hæð leigja þeir Flugfélaginu fyrir 650 þús. kr. á ári, þannig að í rauninni er það sú upphæð árlega, sem þeir þurfa að fá til eigin reksturs, en ekki milljónir eins og farið er fram á. Auðvitað er gott að fá full- komið hótel í höfuðborginni, og vel tókst líka til um val forstjóra og nafns á hótelinu, en hins vegar er skelfilega hvimleitt, þegar farið er að tala um Astra-bar, Saga-grill og hvað það nú allt er, sem vistarverur byggingarinnar eru nefndar. hafa 17 ríki skuldbundið sig til að kaupa skuldabréfin, og nemur þá upphæðin alls 117,9 milljón- um dollara. Sendiherra Bandaríkjanna hjá S. Þ., Adlai Stevenson, hefur til- kynnt að Bandaríkjaþing hafi samþykkt heimild til kaupa á skuldabréfum Sameinuðu Þjóð- anna fyrir 100 milljónir dollara, að því tilskildu að upphæðin fari ekki fram úr samanlagðri upp- hæð annarra ríkja. Lét hann í ljós von um, að þetta mundi örva önnur ríki til að kaupa skulda- bréfin, þannig að alls yrðu lagð- ar fram 200 milljónir dollara. Innistæður Alþjóðabankans juk ust um 27,4 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi yfirstandandi fjárhagsárs og eru nú orðnar samtals 726,8 milljónir dollara. Atkvæðagreiðslan um aðild Kína Þegar Allsherjarþingið felldi tillögu frá Sovétríkjunum um, að „fulltrúar Sjang Kaí-sjeks“ skyldu hætta störfum í öllum deildum Sameinuðu þjóðanna og fulltrúar Kínverksa alþýðulýð- veldisins taka sæti Kína, greiddu 42 ríki atkvæði með sovézku til- lögunnni. Þau voru: Afganistan, Albanía, Alsír, Arabíska sambandslýðveldið, Bretland, Burma, Burundi, Búl- garía, Ceylon, Danmörk, Eþíópía, Finnland, Ghana, Guinea, Hvíta- Rússhland, Indland, Indónesía, frak, Júgóslavía, Kambódía, Kúba, Laos, Mali, Mongólía, Mar- okkó, Nepal, Noregur, Pakistan, Pólland, Rúmenía, Sierra Leone, Sovétríkin, Sómaiía, Súdan, Sví- þjóð, Tanganyika, Tékkóslóvakía, Túnis, Uganda, Ukranía og Ung- verjaland. 56 ríki greiddu atkvæði gegn tillögunni og 12 ríki sátu hjá. Ríkin sem sátu hjá voru: Aust- urríki, Holland, ísland, ísrael, Kýpur, Líbanon, Malaja, Nígería, Portúgal, Saudi-Arabía, Togo, Trinidad—Tobago. Atkvæðagreiðslan fór fram 30. október. í fyrra var svipuð til- laga felld með 48 atkvæðum gegn 36, og 20 ríkks sátu hjá. Listamenn hljápa flóttamönnum með hljómplötu. Einir tíu af frægustu dægur- lagasöngvurum heims munu vinna saman að hljóplötu, sem send verður á markaðinn í árs- byrjun 1963 til að útvega flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna fjármuni til að veita flóttafólki aukna aðstoð. Undir venjulegum kringumstæðum mundu umrædd- ir söngvarar ekki geta sungið inn á eina og sömu.plötu vegna samn inga við ólík fyrirtæki, en fyrir tilstilli leikarans Yul Brynners og annarra góðra manna var unnt að ná samkomulagi við öll fyrirtæki sem hlut áttu að máli. í Evrópu einni eru enn 20.000 flóttamenn, sem þarfnast hjálpar. Nöfnin á söngvurunum, sem verða á plötunni, verða birt síð- ar í þessum mánuði. Hljómplat- an ber nafnið „All Star Festival“. Það er hollenzkt fyrirtæki sem sér um gerð hennar og dreifingu í samvinnu við önnur hljóm- plötufyrirtæki. Þar sem lista- mennirnir hafa afsalað sér öll- um launum í sambandi við hljóm- plötuna, má búast við talsverð- um hreinum hagnaði af hverri seldri plötu. „All Star Festival" ber merki Sameinuðu þjóðanna og verður ekki aðeins seld í hljóðfæraverzl unum, heldur einnig hjá samtök- um og stofnunum sem styðja starf Sameinuðu þjóðanna og flóttamannahjálpina. Vantar 4,5 milljónir dollara. — Forstjóri flóttamannahjálpar S.Þ., Felix M. Schnyder, tilkynnti i lok október, þegar framkvæmda- hefndin kom saman í Genf, að á árunum 1962 og 1962 mætti búast við að útgjöld flóttamanna- hjálparinnar yrðu 11,8 milljónir dollara, og vantar þá 4,5 milljón- ir til að nægilegt fé sé fyrir hendi. Ef aðildarríkin auka ekki framlög sín eða aðrir aðilar hlaupa ekki undir bagga með okkur, munum við ekki geta ráð- ið bót á þeirri flóttamannaneyð, sem verið hefur í heiminum allt frá lokum seinni heimsstyrjald- ar, sagði forstjórinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.