Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.11.1962, Blaðsíða 2
2 rMORGFJVBTAÐ1Ð Fimmtudagur 22. nóv. 1962 — ASÍ Jb/ng Framihald ai bls. 1. ur. Óskar vitnaði í þau orð Snorra Jónssönar, að ekki Isegi nein inntökubeiðni fyrir frá LÍV. Virtist honum því ekki vera kunnugt um, að LÍV er þegar aðili að ASÍ. Óskar kvað ljóst af öllu, að hér væri einungis borin fram tylliástæða, enda hefði gagnarannsókn þegar farið fram. Skrár félaganna hefðu ver ið sendar ASÍ þegar árið 1960 og aftur nú í september. Lagði Óskar að lokum til, að kjörhréf fulltrúa LÍV yrðu sam- þykkt. og fengju þeir sömu rétt- indi og aðrir þingfulltrúar. Nsestur tók til máls Pétur Sig urðsson. Sagði hann umsókn LIV hafa verið jynjað um sinn. meðan skipulagsmál ASÍ væru í deiglunni. Þó hefði þá, sem þá sóttu um inngöngu, ekki varð að minna um framtíðarskipulag samitakanna en hina, sem þegar voru aðiljar að ASÍ. Það hefði verið hagsmunamál allra laun- þega í landinu. Nú væru liðin tvö ár og ekíkert benti til þess, að skipulagsmálin væru að kom ast úr deiglunni. Fétur átaldi þau sýndarröik, sem meirihluti kjörbréfanefnd- ar beitti í málinu. Inntökubeiðni hefði legið og lægi fyrir frá LÍV Hún hefði verið lögð fyrir sein asta þing, en meiriihluti þess hefði fellt óréttlátan og ólögmætan úr skurð, er skotið hefði verið til Félagsdóms. Æðsti dómstóll ís- lendinga. Hæstiréttur íslands, hefði kveðið upp samhljóða dóm um það, að Félagsdómi bæri að kveða upp efnisdóm í málinu. Sá domur lægi nú fyr-, os eft- ir honum væri ASÍ skylt að veita LÍV inngöngu „með fullum og óákertum réttindum". Meirihluti þings ASÍ hefði í gær viðurkennt þennan d' í og gildi hans. Þá minnti Pétur og á það, að for- sendur minnihluta Félagsdóms væri allt aðrar og óskyldar þeim sem forraðamenn ASÍ nota í mál flutningi s- -m. Forseti ASI hefði lýst því yfir, að . >mi Féla. dóms v^a - .ðizt á íélags frelsið og stjórn_— áin brotin Forstöðumenn Vetrarhjálp- arinnar Á FUNDI borgarráðs 20. nóvem ber, skýrði Geir Hallgrímsson, borgarstjóri frá því að hann hefði falið Skúla Tómassyni yfir framfærslufulltrúa, sr. Óskari Þorlákssyni og Kristjáni Þorvarð arsyni lækni að veita v trar- hjálpinni forstöðu á þessu ári. Jafnframt 1 íði hann falið Magn úsi Þorsteinssyni framkva .nda- stjórn. Pétur Sigurðsson rakti sögu þessa máL og ræudi lagalega hlið þess. Þá gat hann þess, að engar brigður hefðu varið á það bornajr. *ð IJjV væri samtök launþega sem gættu hagsmuna félaga sinna um kaup og kjör. Að því leyti sem öðru uppfylltu þau fullkomlega lagaskilyrði. Hinir lögvörðu hagsmunir LÍV af því að ganga í ASÍ væru einn ig mikils verðir, því að ASÍ réði mestu um kaup oa kjör í landinu og hefði óumdeilanleg áhrif á þjóðanheildina. Vitnaði hann t.d. til þingtíðinda frá 25. þingi ASÍ, þar sem því er lýst yfir, að ríkis stjórn hafi orðið til vegna ihrifa ASÍ, sem hefði gensiö ú hólm við ríkisvaldið og sigrað. Annað þing hefði fellt ríkisstjórn. Væri af þessu og öðru ijóst, að mi'kið væri í hiúfi fyrir alla launþega í landinu að vera aðili að ASÍ. Um tímaleysið væri það að segja, að skrárnar hefðu legið hjá ASÍ síðan 1960. og hefði verið nægur tími til aC rann- saka þær og senda aftur til LIV með athugasemdum. Að lokum sagði Pétur Sigurðs son, að yrði tillagan, sem fram hefði verið borin, samiþykkt, væri ekki aðeins verið að brjóta rétt á fjölmennum launþegasam tökum, heldur væn verið að brjóta íslenzk lög. Næstur tók til máls Jón Sig- nrðsson. Rakti hann í ýtarlegu máli, hvernig núverandi valda menn í ASÍ hefðu brotið rétt og lög á launþegasamtökum. sem þeim væru ekki að skapi. Taldi hann LÍV eiga skilyrðislaust rétt til inngöngu í ASÍ. og væri þar um sóma ASÍ að tefla. Þá tók Hannibal Valdimarsson til máls. Hélt hann langa ræðu og taldi, að LÍV gseti vel beðið. LÍV hefði „dæmt sig“ inn í ASÍ með einstæðu.-. dómi. Kall aði hann verzlunar- og skrifstofu fólk „dæmda menn“ og .,hina dæmdu hersingu“, og skv. sama dómi gætu Oddfellowar fengið sig dærnda inn í Frimúrararegl- una! Einnig taldi hann, að óvið eigandi hefði verið að bjóða full trúa LÍV velkomna, og engin ástæða til fagnaðarláta eða gleði bragðs. — Engin tímasetning væri í dóminum, og væri ljóst. a-j ASÍ ætti að fullnægja honum. Þá varði Hannitoal löngu máli í per_I>nulega árás á Sverri Her- mannsson formann LÍV. Að lok um sagði hann, að hægt væri í samræmi við lög og reglur að reka fulltrúa LÍV heim, en rétt væri þó að veita þeim „prímsign ingu“, þannig að þeir gætu setið þingið án þess að hafa atkvæðis rétt. Eftir ræðu Hannitoals var gert þingihlé. Eftir matarhlé hófst þingfund- ur aftur um kl. 8.45. Fyrstur á mælendaskrá varGunnar Jó- hannsson, sem sagði, að skoðanir væru að sjálfsögðu skiptar um mál LÍV. Kvað hann 27. þing ASÍ hafa fellt inngöngu LÍV, þar sem skipulagsmál þess væru í endurskoðun. Þessum úrskurði þingsins hefði LÍV ekki viljað Míta og leitað til dóimstólanna, sem hefðu úrskurðað LÍV inn. Benti Gunnar á, að það hefði verið 3 manna meirihluti í Fé- lagsdómi, sem hefði kveðið upp þann dóm. Hins vegar hefði minnihluti Félagsdóms, þeir Benedikt Sigurjónsson og Ragn- ar ÓlafssOn, sem ekki væru minni lögfræðingar en meirihlut- inn, ekki talið rök vera fyrir að dæma LÍV inn í ASÍ. Eggert G. Þorsteinsson ræddi um framkomna tillögu um að vísa máli LÍV til næstu sam- bandsstjórnar. Hann sagði, að núverandi stjórn hefði haft mál- ið til meðferðar frá síðasta þingi og ekki væri líklegt, ef hún yrði endurkosin, að hún færi betur með málið. Sagði Eggert, að hann van- treysti núverandi sambandsstjórn Og tillagan um frestun á af- greiðslu kjörbréfanna væri til komin, vegna þess að sambands- stjórnin væri á móti inngöngu LÍV. Mótstaðan gegn inngöngu LÍV er eingöngu af pólitískum á- stæðum og allar aðrar mótbár- ur eru ly^pívaf, sagði Eggert, sem benti a að lokum, að ekki væri ný bóla, að sarmbönd hefðu verið tekin inn í ASÍ, t.d. Sjó- mannasambandið og Landssamto and vörubifreiðastjóra. Þá hefði ekki þurft að bera fyrir sig breyt ingum á skipulagi ASÍ. Eðvarð Sigurðsson tók til máls og sagði, að skipulag ASI væri stóngallað. Tími yrði að fást til að bæta úr því og ræða mörg brýn mál á þinginu. Framkom- in tillaga væri eðlileg og sjálf- sögð, þar sem enginn tírni væri til að sitja yfir þeim gögnum, sem nauðsynlega þyrfti að kanna í máli LÍV. Kvaðst Eðvarð þykja úrskurð- ur meirihluta Félagsdóms ákaf- lega hæpinn, enda hefði minni- Muti hans, sem skipaður hefði verið færustu lögfræðingum landsins ekki séð nein rök fyrir inn.gön.gu LÍV. Enda hefði meiri- Mutinn þurft að fara króikaleið- ir til að lögjafna LÍV inn. „Ég er ekki lögfræðingur, en mér finnst þetta hæpinn dómur", sagði Eð- varð. Talaði hann um, að LÍV-full- trúarnir gætu haft úrslitaþýð- ingu á gang mála á þingum ASÍ og þeir í framtíðinni jafnvel haft fulltrúa fyrir 5—6 þúsund með- limi. Hér er verið að fara að eins og í mörgum fasistaríkjum. Við get- um orðið að sætta okkur við að ráða engu um okkar mál“, sagði Eðvarð. Að ræðunni lokinni bar fund- arstjóri fram tillögu um stytt- ingu ræðutíma í 5 mínutur. Það samþykkti þingheimur. Pétur Sigurðsson fékk næstur orðið. Hann kvað ekki þurfa að deila um, áð LÍV væri komið inn í ASí. Sagði hann, að Hannibal hefði sagt Sverri Hermannsson kalla sig, þ.e. Hannihal, lygara. Það hefði Sverrir ekki gert að á- stæðulausu, því erlendir gestir, sem hefðu verið í boði ASÍ á ís- landi sl. sumar, hefðu sagt Sverri, að Hannibal hefði gefið þá lýsingu á LÍV, að það væru skipulögð samtök atvinnurek- enda. Þessi ummæli Hannibals væru lygi, ef nokkuð væri lýgi. Orð Sverris hefði því ekki verið út í bláinn. Að lokinni ræðu sinni bað Pét- ur um að vera settur á mæl- endaskrá aftur, þar sem ræðu- tími hefði verið styttur í 5 mín- útur. Björn Jónsson, fundarstjðri, lýsti þá yfir, að fundarsköp mæltu svo fyrir, að menn mættu ek'ki tala oftar en tvisvar um málið, nema framsögumenn. Guðjón Sigurðsson talaði um, að tímaskortur væri aðeins fyr- irsláttur hjá stjórn ASÍ, því hún hefði haft nægan tíma til að athuga gögn LÍV. Kvaðst hann ekki trúa því að óreyndu, að Framsóknarmenn gengju í lið með kommúnistum gegn LÍV og létu þá „hnýta sig aftan í hala rauðu kusu“ og greiða atkvæði gegn kjörbréfun- um. Óskar Hallgrímsson, framsögu- maður minnihluta kjörbréfa- nefndar, kvaðst mega tala sam- kvæmt fundarsköpum eins Oft og hann vildi. Spurði hann fund- arstjóra, hvort hann vildi leyfa sér ag flytja ræðu sína alla í einu, eða flytja hana í 5 mín- útna köflum. Fundarstjóri sagði, að Óskar mætti aðeins tala 5 mínútur í einu. Óskar lýsti þá yfir því, að hann yrði að skipta ræðunni niður og mættu fundar menn búast við sér æði oft í ræðustólnum. f ræðu sinni benti Óskar á, að ASÍ-stjórnin hefði haft næg an tíma til að kanna gögn LÍV, t.d. hefði Félagsdómur gefið henni mánaðar frest til þess. Benti Óskar á. að fjölmörg fé lög hefðu verið tekin inn í ASÍ, án þess að gögn þeirra hefðu ver ið grandskoðuð og jafnvel án þess að ganga úr skugga um hvort viðkomandi félög hefðu haldið aðalfundi. Öðru visi væri farið að með gögn LÍV. Hér varð Óskar að gera hlé á ræðu sinni, en bað samstund- is um að vera sebtur aftur á mæl endaskrá. Þá tók Jón Sigurðsson til máls. Sagði hann m.a. vegna um- mæla ASÍ-forystunnar, að inn- göngubeiðnin lægi ekki fyrir frá LÍV, að í fyrsta lagi væri þetta óþarfatal, því að LÍV væri þegar inni í ASÍ skv. dómi, og í öðru lagi lægi enn fyrir inntökubeiðni frá 1960, sem Félagsdómur hefði einmitt úrskurðað, að ASf væri skylt að taka við. Kvaðst hann mótmæla slíkum vinnubrögðum í málflutningi, sem ASí-forystan hefði gerzt sek um. Hermann Guðmundsson sagð- Valtýr sel- ur vel Sýning Valtýs Péturssonar | í Listamannaskálanum hefur i nú staðið yfir í 10 daga. Eins og af viðtökunum má sjá hef-1 ur sýningin vakið mikla at-1 hygli, enda eru þar 54 myndir, i sem listamaðurinn hefur unn ið að sl. 3—4 ár, en nýjustu' myndirnar eru frá þessu ári. I Þessar nýju myndir Valtýs eru | nokkuð frábrugðnar fyrri myndum hans og gætir þar hinna allra nýjustu viðhorfa í myndlist. i Eins og fyrr getur hafa við tökur verið ágætar og 16 mál verk selzt á sýningunni. — Sýningin er opin dag hvern til 25. nóvember nk. Er ekki að efa að marga muni fýsa að sjá sýningu Valtýs Péturs- sonar. ist hafa verið einn þeirra 165, sem greiddu atkv. kvöldið áður með því að taka kjörbréfin til afgreiðslu. Ég hefði kosið, sagði Hermann, að ASÍ hefði sjálft tekið við LÍV, en LfV hefði ekki þurft að leita til dómstólanna. Hvað, sem því uði, þá væri dóm- ur fallinn, sem yrði að hlýða, því að fara ætti að landslögum. Hann kvaðst telja það hagsmuna- legt atriði, bæði fyrir LfV og ASf, að verzlunar- og skrifstofu- fólk gengi í Alþýðusambandið. Ekkert væri eðlilegra, en ASf veitti LÍV stuðning, og ASÍ vildi styrkja sig með því að fá þessi fjölmennu samtök til liðs við sig, sem teldu hvorki meira né minna en um 3300 manns. LÍV yrði auð vitað háð væntanlegum skipu- lagsbreytingum, en því mætU ekki gleyma, að ASÍ hefði svik- izt um það í áratugi að gera skipulagsbreytingar, og því væri óhugsandi að neita laun- þegasamtökum um inngöngu á þeim grundvelli, að þær væru væntanlegar. Þær gætu enn dregizt í áratugi, því að meðal valdamanna ASf hefur sú skoð- un verið ríkjandi, því miður, að ekki megi breyta neinu, og staf- ar það af ótta við röskun valda- hlutfalla. Andstaðan gegn LÍV er pólitísk, sagði Hermann, en kappið, sem lagt er á af hálfu forsvarsmanna LÍV nú, er líka politiskt. En hér verða hagsmun- ir að ráða, og hér er um hags- muni beggja að tefla. Því bæri að taka LÍV inn með fullum réttindum. Það væru ekki fram- bærileg rök, að athuga þyrfti gögn. Síðan tóku til máls Björgvin Sigurðsson, Kristinn B. Gíslason, Jón Sn. Þorleifsson og ólafur Jónsson, sem m.a. sagði, að Fé- y Framhald á bls. 23. í GÆR var þíðviðri um nær allt land, hiti 2 til 6 stig um hádegið víðast hvar. Þó var ira stiga frost á Egilsstöðum g 7 í Möðrudal. í Vestur-Evrópu er heldur it, hiti yfirleitt nálægt írostmarki. — í Frakklandi, Belgíu og Suður-Þýzkalandi snjóaði, eins og sjá má á kort- inu. Lægðin suðaustur af Hvarfi er á leið norðaustur á Græn- landshafið og má búast við sunnanátt af henni hér á landi í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.