Morgunblaðið - 24.11.1962, Page 13

Morgunblaðið - 24.11.1962, Page 13
Laugardagur 24. nóv. 1962 MORGVNBLAÐ1Ð 13 Björn Jónsson ritstjóri — 50 ára " Fæddur 8. október 1846, Dáinn 24. nóveraber 1912. Islenzkra jökla liátign yfir livarmi beiðrík og stórfeld lýsti af enni og brúnum, logandi eldur byltist dýpst f barmi, bjarmanum sló á fjölda af huldum rúnum. Harðfylginn var hann hverju réttu máli, hjartað hans mótað gull i kærleiksbáli. G. G. BJÖRN Jónsson deildi; hann deildi hart og oít, hliðraði sér ekki hjá að deila þegar hann taldi sannleik og réttlæti krefjast þess, en vakti á hinn bóginn ekki ýfingar að tilefnislausu. Uim Björn Jónsson var deilt og á hann var deilt — deilt á 'hann harkalegar og af meiri kergju en á nokkurn mann annan hér á landi. Um hann má ætla að enn um sinn verði deilt, því mörg iverða jafnan sjónarmiðin. En um það muni aldrei framar verða deilt af nokkru viti að mikil- menni var hann. Það er óum- deilanlegt. Og seint mun nafn hans mást af spjöldum sögunnar; svo djúp spor mankaði hann þar með orðum sinum og athöfnum. Og aldrei mun hann geta liðið (þeim úr minni sem hann þekktu af eigin raun. Má segja að hann afsannaði algildi hins enska orð- taks, að ,,no man is a hero to his valet“ (enginn er garpur í augum vikadrengs síns); fáir hiúsbændur voru svo virtir, eða jafnvel elskaðir, af þjónum sín- urn og undirmönnum. Sennilega var hann strangur húsbóndi, en alltaf nærgætirm og alltaf rétt- sýnn. ,,Hann atyrti aldrei starfs- íólk sitt, hvað sem okkur varð ó; það kom aldrei fyrir“, sagði maður er lengi hafði verið í hans jþjónustu, mætur maður og grand var, en þó þannig um hann hátt að, að ærið oft mun hann hafa þurfti á að hanlda umiburðarlyndi og langlundargeði húsbónda síns. Bennilegt þykir mér að hann hafi stundum verið þurr og hrjúf- ur, enda þótt sjálfur kynntist ég ekki þeirri hlið skapgerðar hans —aldrei öðru en frábærri hlýju og góðvild, allt frá fyrsta degi. IÞeir sem nú eru undir miðj- um aldri, munu enga grein geta gert sér fyrir því, hvílíkt seið- magn fylgdi nafni þessa manns jþegar það var nefnt fyrir hálfri öld. Lifandi söguþekking okkar tflestra og söguskilningur eru mestmegnis bundin við reynslu- minni okkar sjálfra. Mjög fáir eru gæddir þeirri gáfu að þeir sjái atburði og persónur sög- unnar Ijóslifandi fyrir sér. En við, sem vorum fulltíða fólk í Œteykjavík síðustu viku nóvem- (bertmánaðar 1912, getum ekki gleymt því, hversu okkar litla höfuðborg með sína tólf þúsund Sbúa drúpti þá. Öll þjóðin laut þá höfði. „krjúpið í lotning hneigið öldung hárum“, bauð skáldið. Þjóðin gerði það án nokkurrar skipunnar. Síðan hefi ég ekki séð bæinn drúpa svo við lát nokkurs eins manns, nema ef vera skyldi Haralds Níelssonar annars geðmikils en veglynds Ibardagamanns, sem venslaður var Birni Jónssyni og andlega mjöig skyldur honum, þó að eng um blóðböndum væru þeir tengd ir. Of mikil væri gleymskan ef við minntumst dkki Bjöms Jóns- sonar í dag, á hálfrar aldar dán- ■Lrafmæli hans. Og einkanlega Iværi það óiviðurkvæmilegt ef |það blað, sem varð arftaki fsa- foldar, léti daginn þegjandi fram hjá sér fara. Enginn mundi vænta þess, að I einni blaðagrein yrði gerð til- raun til þess að segja æfisögu Björns Jónssonar. Um það efni verður að vísa til þess, er þegar hefir verið skráð. Þar er einkum um þrent að ræða: Æfiágrip hans eftir Einar H. Kvaran í Andvara 1913; Minningarrit Bjöms Jóns- sonar sama ár (eftir marga höf- unda); og loks fslendingasögu Magnúsar Jónssonar, tímabilið 1871—1903, þar sem merkilega skýra mynd af manninum er að finna og greinargóða frásögn af störfum hans í rnjög stuttu máli. Æfisagan eftir Einar H. Kvaran er endurprentuð í Merkum ís- lendingum Þorkels Jóhannesson- ar, 2. bindi, og í ráði mun að hún verði endurprentuð á ný innan skamms. ísafold stofnaði Bjöm sumarið 1874, þá nýkominn heim frá ó- loknu háskólanámi í Kaupmanna höfn. En þangað hvarf hann aft- ur áður en mörg ár liði og höfðu þá aðrir ritsjórnina á hendi, að- allega þeir Grímur Thomsen og Eiríkur Briem, unz hann kom heim alkominn 1883. Varð hún þá skjótt í höndum hans áhrifa- mesta blað landsins, enda þótt þá væru líka önnur blöð stór- merk og mikilsvirt, eins og Þjóð- ólfur undir ritstjórn þeirra Þor- leifs Jónssonar og Hannesar Þor- steinssonar, er báðir vom stór- gáfaðir menn, miklir alvömmenn og ágætavel menntaðir, Fjall- konan í höndum Valdimars Ás- mundssonar, og miklu síðar Lög- rétta Þorsteins Gíslasonar, svo að nefnd séu nokkur hin helztu þó að einnig væru önnur harla merk. Enn jukust vinsældir henn ar og áhrif, er Björn fékk Einar Hjörleifsson til að hverfa frá Lögbergi, í Winnipeg, flytjast heim og gerast meðritsjóri ísa- foldar. Blaðið var efalaust skemmtilegast þau árin sem þeir stóðu báðir að þvtí. Einar gaf því þann léttleika sem nokkuð hafði skort á áður. Annars verður ekki sagt að blaðið væri nokkru sinni þung- lamalegt í höndum Björns. Það aflaði því hylli að hann var snillingur að velja sögur í það og ekki síður snillingur að þýða þær. Hann var einn hinn mesti þýðari sem við höfum átt á ó- bundið mál, og það fyrsta sem prentað var frá hans hendi, var þýðing á franskri smésögu. Hún kom neðanmáls í Baldri Jóns Ólafssonar 1869, m-eðan þeir vom enn báðir í skóla (og Jón þó víst nokkuð lausbeizlaður við námið). Sjálf er sagan ekki stór- feld, en ákemmtilegt æfintýri, sem strax vekur forvitni lesar- ans og heldur honum föstum tök um allt til enda. En mál Björns er þá þegar hreint og meitlað. Vegna þess að þarna em upp- tökin að ritferli Björns Jónsson- ar, ber að endurprenta þessa litlu sögu, enda líkindi til að svo verði gert í vetur. Má og hér ge<ta þess, að hið síðasta, sem ritað var hans penna, var einnig þýðing — á smásögu eftir Selmu Lagerlöf. Blaðamennsku Björns er prýði lega lýst í bók Magnúsar Jóns- sonar. í stjórnmálum. þeim er að deilmálum urðu, fór hann að jafnaði hægt á stað og hógvær- lega, en sótti í sig veðrið og varð eftir því harðskeytari sem ófrið- aröldurnar risu hærra og and- staðan varð hvassari. Fengu mót stöðumennirnir tíðum þung högg af þeim bjarnarhrammi sem hann þá reiddi. Varla mun mega staðhæfa að þá væri ávalt gætt fullrar sanngirni, og vitaskuld var það ekki endilega víst að hans málstaður væri betri, því ekki var hann óskeikull fremur en nokkur annar dauðlegur mað- ur. Hitt mun ohætt að fullyrða að aldrei hafi hann gegn betri vitund haldið fram röngu máli. Milkill málafylgjumaður var hann, en um slíka menn vill það oftast bera við að í viðlögum þyki þeim sem takmarkið rétt- læti ráðin, enda þótt ráðin séu máske ekki í fyllsta samræmi við strangar kröfur siðgæðisins. Ekki væri það nema mannlegt að slíkt kynni að hafa komið fyrir í málflutningi Björns Jóns- sonar. Mér þætti það ofur eðli- legt, nærri því sjálfsagt, en þekki ekki dæmi þess. En þó að hann væri harður og óvæginn í sennum sínum. var það með fádæmum hve sáttfús hann var og hve heiftrækni var honum fjarlæg. Hún var ómjúk á báðar hliðar sennan sem varð á milli hans og Eiríks Magnússon- ar, vegna skoðanmunar é banka- málum: Þar fóru á báðar hliðar saman gáfumar og geðríkið, og Eiríkur þó vanstilltari en Björn, sem vel kunni að stilla sitt mikla skap. Báðir voru þeir miklir mætismenn. Vinslit þau, er af þessu leiddi, vöruðu lengi og hafa þó víst báðir harmað þau. Har- aldur Níelsson, sem var beggja vinur og feáðum venzlaður, hefir sagt frá því, að þegar Björn var í Lund'únum örfáum árum fyrir dauða sinn, símaði hann Eirífci og mæltist til að mega heimsækja hann. Svarið kom um hæl: „Vertu velko.minn, hvort held- ur er að degi eða nóttu“. Það hefir áreiðanlega hvorugur þess- ara miklu tilfinninigamanna ver- ið óhrærður þegar þeir hittust — í síðatsa sinn hérna megin grafar. Síðasta vorið sem Björn lifði, og ég var að fara til Eng- lands, fékk ég sönnun fyrir því, hve kær Eiríkur var honum og hvílík't traust hann bar til hans. En frá atvikum er ebki ástæða til að greina nánar hér. Mikilmenni ala aldrei með sér heift eða eru langrækin. Lang- ræknin er einkenni dusilmenna. Það eru stórmennin sem veg- lyndi hafa til þess að fyrirgefa mótaðgerðir, jafnvel þótt stórar séu. Og manndómsmaður er sá sem tekur frumkvæðið og rétt- ir fram höndin til sátta eftir að í odda hefir sborist. Svo gera ekki vesalmennin. Björn Jónsson sat á Alþingi 1879, fulltrúi Strandamanna. en líklega hafa honum ekki alls- kostar fallið þingstörfin, því al- drei síðan fékkst hann til að gefa kost á sér til framlboðs, þar til í hinni miklu orrahríð um sam- bandslaga-frumvarpið („upp- kastið“) 1908. Þá var hann í kjöri í Barðastrandarsýslu á móti ágætum héraðshöfðingja og vin- sælum og var kosinn með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða. Aftur kusu Barðstrendingar hann á þing 1911, og enn með miklum atkvæðamun, en nú var heilsa hans svo þorrin að hann gat lítið setið á þinginu 1912. Enda þótt Björn lyki stúdents prófi vorið 1869. fór hann ekki til Hafnar fyrr en haustið 1870, til þess að nema lögfræði. Þar varð hann skjótt handgenginn Jóni Sigurðssyni, og hefir enda efalítið verið búinn að kynnast honu-m eitthvað hér heima, því að hann var í rauninni skjólstæð ingur síra Ólafs E. Johnsens á Stað á Reykjanesi, sem fermt hafði hann, þá uppgötvað hans óvenjulegu hæfileika, fengið því framgengt að hann yrði settur til mennta, sjálfur að nakkru leyti kennt honum undir skóla og á annan hátt veitt honum stuðning. Unni Björn mjög þess- um velgerðamanni sinum og gaf yngri syni sínum nafn hans. Jóni Sigurssyni duldist ekki hvað í hinum unga manni fejó. þar á meðal að hann væri „laglegur að semja“ (rita). En „laglegur' táknaði þá „laginn“, og þvi er það, að þegar bæjarfulltrúar Akureyrar leggj a til að fengin sé lagleg stúlka til þess að kenna þar skrift í barnaskólanum, þá hafa þeir góðu menn ekki svo Björn Jónsson mjög í huga fríðleika hennar, heldur hitt, að hún sé hand'lag- in. Svo eindregið fannst Jóni Sigurðssyni til um Björn Jóns- son og hæfileifca hans að í bréfi til Steingríms Thorsteinssons segir hann skýrum orðum að Björn þyki honum vænlegastur til þjóðarleiðtoga í stjórnmálum En Steingrímur þótti honurn fremstur Sbáldanna, og hafði þar a.mtk. að því leyti rétt fyrir sér að Steingrímur orti það ætt- jarðarkvæði sem efalaust orkaði meiru til þess að efla með þjóð- inni hugsjón Jóns Sigurðssonar heldur en öll hin samnanlögð. Áhrif „Vorhvatar" urðu alveg einstæð, og það kvæði elskuðu fslendingar á nítjándu öld áreið- anlega meir en nokkurt annað bvæði. Ekki þarf að efa að fyrir frum tovæði Jóns hafi það verið að Björn ritaði hálfþrítugur hina frægu ritgerð sdna „Um lagaskóla á íslandi“, sem prentuð var í næstsíðasta árgangi Nýrra félags- rita og vel má kalla snildarveik. Hún varð það vopnabúr sem segja mátti að sótt væru í öll rök í baráttunni fyrir framgangi œná'lsins unz skólinn loks var stofnaður 1908. Og Mklega átti hann úrslitalþátt í því, að há- skólalögin sluppu í gegn á þing- inu 1909, enda þótt frumvarpið væri frá hendi Hannesar Haf- steins. Björn Jónsson var alla tíð frömuður- mennta og menn- ingar. Þannig var útgáfustarf- semi hans merfcileg og á þeirrar tíðar mælikvarða allmikil. Tíma- ritið Iðunni stofnaði hann í fé- lagi við þá Jón Ólafsson og Stein 'grím Thorsteinsson og var for- leggjarinn. Komu út sjö allvæn bindi. Iðunn mátti heita valin að efni, eins og vænta mátti, slíikir menn sem að henni stóðu. Fer ekki hjá þvií að fyrr eða síðar verði gerð af henni ljósprentuð útgáfa. því hún er enn eins fersk og hún var er hún fyrst kom út, á árunuim 1884—89. Að sögn Jóns Ólafssonar lagfærði Björn málið á ýmsu því, er í ritinu birt- ist, einkum þýðingum, og þar sem merkið -f stendur á eftir fangamarki þýðandans, táknar iþað að Björn hafði lagfært málið Ekkert íslenzkt tímarit hefir kvatt lífið með sMkum svana- söng sem Iðunn, þvi að henni lýfcur á kórsöng hertekinna kvenna í „Ifigeníu í Táris“, eftir Euripides, „Skarfur, sem á kletti klakar“, í þýðingu Gríms Thom- sens, einu hinu undursamlegasta tregaljóði á íslenzka tungu. Frábæran drengskap og höfð- ingskap sýndi Björn Jónsson ýmsum snauðum mönnum og um- Itoamulltlum ter hon-um vintust líklegir til góðra verka. Að hon- um látnum sagði Jón Ólafsson skemmtiiega og fagra sögu af þvá, hvernig það atvikaðist að Björn gaf út kvæði Guðmundar Guðmundssonar, „Guðbjörg í E>al“ (1902,), sem ekki er þó unnt að kalla neitt afbragð. Frásögn Jóns er ítarleg, en ekkert orð í henni verður rengt, því að bæði var Guðmundur sjálfur til frá- sagnar og sömuleiðis frú Elisa bet Sveinsdóttir, kona Bijörns, sem vel gat um þetta borið. Sama árið gaf hann út kvæðasafn Guð- mundar Friðjónssonar, „Úr heimahögum“, en þá mun Guð- mundur ekki hafa átt margra bosta völ um forleggjara, og átti það raunar aldrei. æfina út, þó að nú sé svo komið að ekki er. Þeir menn, sem á veraldar- vísu mæla, munu kalla að Sí- mon Dalaskáld væri auðnuleys- ingi. Þó er það ærið vafasamt að um hans daga hafi nokkur mað- ur glatt eins mörg hjörtu í þessu landi sem hann. Slíkt var máske ekki mikil auðna. „Hann hefir glatt marga sá maður, og hryggt fáa“. sagði ei-tt sinn sá merki maður, síra Þorvaldur Jakobs- son, er tilrætt varð um Indriða Einarsson, sem þá var enn á lífi. Mér skildist að með þessu væri hann að segja, að ekki hefði Ind- riði til einskis lifað. „Símon Dala sldáld var merkilegur maður“, sagði Brynleifur Tobíasson er þekt hafði hann svo lengi sem hann mundi eftir sér. og sannar lega varð niðurstaðan sú sama hjá Magnúsi prófessor Jónssyni, er hann flutti útvarpserindi á aldarafmæli þessa síðasta farand skálds þjóðarinnar. Ætli ekki að Björn Jónsson hafi verið sá þriðji er svona leit á? Altaf átti Símon athvarf hjá honum, hverniig sem hann var fyrirkallaður. Hér er í bænum gagnmerkur maður og mikils virtur, Húnvetningur kom inn nokkuð yfir sjötugt, sem sagt hefir mér frá því, að vor eitt (líklega um lokin) var hann bér, þá unglingur, með öðrum sjó- mönnum niðri á svínastíu, og þó ekki til þess að drekka, þvi hann hefir alla æfi verið bindindds- maður á áfengi. Símon Dala- skáld var þar, og náttúrlega fuil- ur. Þetta hafði Björn Jónsson frétt, og kom gagngert niður á svínastíu, tók Símon út með sér Og fór með hann heim til sín. Finnst ykkur, Iesendur góðir þessi mikli maður smækka af þessu tiltæki, eða finnst ykfcur kannske hann stæfcka af þvi? Ég bið etoki um svar. En mig lang ar tii að mega spyrja annarar spurningar: Getið þið hugsað ykkur smámenni gera þetta? Nei, Björn Jónsson var sízt af öllu smámenni, og hann hugis- aði aldrei kotungslega. Síðasta orrahríð hans var gegn vegintim sem þá var verið að byrja að leggja þvert yfir Reykjavikur- tjörn — meðan leiðin frá lækn- um upp að Skólavörðu þótti enn all-langur vegur. Honum skildist ósköp vel að bak við það fyrir- hugaða mannvirki voru kotungs sálir. Lengd Tjarnarinnar frá norðri til suðurs er lítil þegar hún er borin saman við lengd- ina á Serpentine í hjarta Lund- únaborgar, og þó hefir engum komið til hugar að leggja veg eða brú yfir það vatn. Nú sér hvert mannsbarn í Reykjavík að þarna átti aldrei að gera veg og skemma með honum þessa bæj- arprýði. Vegurinn verður ein- hverntíma numinn brott, enda man ég ekki betur en að Gunnar Thoroddsen, alinn upp á bakka Tjarnarinnar, hefði orð á því í borgarstjóratíð sinni að veginn bæri að hreinsa burt. í lifanda Mfi beið Björn Jónsson ósigur í Framh. á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.