Morgunblaðið - 24.11.1962, Qupperneq 24
f RÉTTASIMAB MBL.
— eftir loknn —
Erlendar fréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
/ Kaupmannahöfn
MeS hverri Faxa-flugferð til K.-
hafnar kemur MBL. samdægurs i
Aviskiosken, i Hovedbanegárden
„Stjórn“ ASÍ „kjörin"
KI>. að g-anga tólf í gærkvöldi var kosið til hinnar svokölluðu
„stjórnar“ ASÍ næstu tvö árin. Jón Sigurðsson lýsti >vi yfir fyrir
hönd sexmenninganna, sem gáfu út yfirlýsinguna í fyrradag um
að þeir teldu gjörðir þingsins eftir að fulltrúum LÍV var mein-
aður atkvæðisréttur ólöglegar, að þeir myndu engan þátt eiga
í væntanlegu stjómarkjöri, sem væri ólögmætt.
Eðvarð Sigurðsson lýsti því
næst uppástungum kjörnefndar.
Urðu allir „sjálfkjörnir“, sem
nefndin stakk upp á, því að eng-
inn varð til mótframboða.
1 hinni svonefndu „stjórn"
eiga þessir sæti: „Formaður“:
Hannibal Valdimarsson. „Ritari“:
Jón Snorri Þorleifsson. Aðrir
„miðstjórnarmeðlimir": Snorri
Jónsson, Helgi S. Guðmundsson,
Margrét Auðunsdóttir, Sveinn
Gamalíelsson, Einar Ögmundsson
og Óðinn Rögnvaldsson. Fjórir
varamenn voru settir í „stjórn“
þessa: Benedikt Davíðsson, Hulda
Ottesen, Markús Stefánsson og
Páll Eyjólfsson. Það vakti at-
hygli, að einn þeirra varamanna,
er „meirihlutinn" stakk upp á,
Markús Stefánsson, er fulltrúi
LÍV.
Þá var stungið upp á þessum
í „sambandsstjórnir‘‘ fyrir fjórð
ungana, varamenn í svigum: Fyr
ir Vestfirði Karvel Pálmason og
Bjarni H. Finnbogason (Pétur
Hjólbarðar
sprungu í
lendingu
KeflavJkurflugvelli, 23. nóv.
>AÐ óhapp varð kl. 16 í dag,
er ein af DC 6 fflugvélum Loft-
leiða var að æfa lendingar á
Kefiavikurfflugvelli, að báðir
hjólbarðar fflugvélarinnar á
vinstri hjólasaimstæðu sprungu.
Flugvélin staðnæmdist á flug-
brautinni, og urðu ekíki á henni
frekari skemmdir. Plugfbrautin
mun verða lokuð, þangað til
viðgerð hefur farið fram á flug-
vélinni. .Þetta mun þó ekkert
tefja ffluigumferð um völlinn, þar
sem flugbraut 07-26, sem lokuð
heifur verið sl. ár vegna við-
gerðar, var tekin í notkun eftir
hádegi í dag. — B.Þ.
Hjól valt á glugga
Á SJÖUNDA tímanum í gær-
kvöldi ók vörubifreið niður
Digraneslhæð að norðanverðu.
Þegar hann var kominn nokkuð
niður brekkuna brotnaði hásingar
stútur á öðru afturhjóli, með
þeim afleiðingum, að tvöfalt aft
urhjólið skoppaði undan honum.
Lá leið hjólsins síðan að glugga
kjallaraíbúðar, að Ásbraut 5, og
fór glugginn í mél. Ekki fór hjól
ið samt inn um gluggann.
Loftleiðir
l sænska
sjónvarpinu
í KVÖLD munu koma hingað
með flugvél Loftleiða að
minnsta kosti tveir sjónvarps
menn frá sænska sjónvarpinu.
Erindi þeirra hingað stendur
í sambandi við SAS—Lotleiða
málið. Munu þeir taka hér sjón
varpsfréttamynd af starfsemi
Loftleiða. Ennfremur koma
hingað um helgina þrír sænsk
ir fréttamenn, í þeim tilgangi
að kynna sér starfsemi Loft-
leiða hér.
1 fyrrakvöld var fluttur í
norska útvarpinu í fréttaauka
viðtal, sem fréttamaður norska
útvarpsins hér hefur átt við
Sigurð Magnússon.
Pétursson og Jón Magnússon).
Fyrir Norðurland: Björn Jónsson
og Valdimar Sigtryggsson (Gunn
ar Jóhannsson og Sigurður Jó-
hannsson). Fyrir Austfirði: Sig-
finnur Karlsson og Guðmundur
Björnsson (Davíð Vigfússon og
Hrafn' Sveinbjarnarson). Fyrir
Suðurland: Sigurður Stefánsson
og Herdís Ólafsdóttir (Björgvin
Si'gurðsson og Óskar Jónsson).
Stungið var upp á tveimur endur
skoðendum og einum til vara,
þeim Guðjóni Jónssyni, Hilmari
Jónssyni og Jóni B. Guðammds-
syni. Hilmiar Jónsson skoraðist
eindregið undan ,ykjöri“, en
Björn Jónsson, sem stýrði þing-
inu, virtist ekki taka það til
greina.
Togaramenn hafa sennilega
höggvið á sæsímastrenginn
VERIÐ er nú að leggja seinustu
hönd á þann hluta sæsímastrengs
ins til N-Ameríku, sem liggur
frá Nýfundnalandi til Græn-
lands. Kom í Ijós, að á einum
stað var strengurinn slitinn, og
á fjórum stöðum þar í nánd
hafði hann orðið fyrir hnjaski.
Verið er nú að prófa strenginn
frá Grænlandi til Islands.
Tvö sæsímaskip, Neptun og
Lord Kelvin, hafa að undan-
förnu unnið að viðgerð og síðan
að mælingum á sæsímastrengn-
um milli Nýfundnalands og
Grænlands. Kom í ljós, að
strengurinn var á einum stað
slitinn í sundur og hafði orðið.
fyrir hnjaski á fjórum stöðum á
svipuðum slóðum. Lítur einna
helzt út fyrir, að togari hafi tek-
ið strenginn með sér upp í vörp-
unni, en úkipverjar síðan höggvið
á strenginn til að losna við hann.
Útilokað mun vera, að togari
geti slitið strenginn með vörp-
unni, því hann er svo léttur, að
Aðalfundi
Óðins f restað
Áður auglýstum _ aðalfundi
málfundafélagsins Óðins hefur
verið frestað um óákveðinn tima
hann kemur fyrr upp, tjáði Jón
Skúlason, yf irverkfræðingur
Landssímans, Morgunblaðinu í
gær. Ennfremur eru engar líkur
fyrir því, að hafís hafi klippt
strenginn, vegna þess hve hann
liggur sunnarlega.
Það hefur komið fyrir áður,
að togarar fái sæsímastreng upp
með vörpunni, og viðbrögð tog-
aramanna munu þá oftast vera
á þá leið, að höggva á strenginn.
Fjórir róa
frá Flateyri
FLATEYRI, 23. nóv. — Héðan
eru nú gerðir út fjórir bátar.
Aflinn hefur verið misjafn, eða-
frá þremur og hálfri lest upp í
rúmar átta lestir. í fyrradag
lestaði Tröllafoss hér skreið,
saltfisk og fiskimjöl frá þremur
fiskverkunarstöðvum. Er þetta í
fyrsta skipti, sem skipið kemur
hér, og auk þess stærsta skip,
sem hér hefur komið að bryggju.
Undanfarið hefur veður verið
milt, og snjó tekið mikið upp.
Vegir eru orðnir vel færir inn-
an fjarðar, og enn fremur er
fært yfir Gemlufallsheiði í Dýra-
firði. — Kristján.
Kennedy ræöir við
ráðgjafa um Kúbu
Fundur Kennedys og Macmillans boðaður
Hyannisport, New Yor<k, 23. nóv.
— AP-NTB.
KENNEDY, Bandaríkjaforseti,
átti í dag viðræður við nokkra
af fulltrúum öryggisnefndar
Bandaríkjanna. Komu fulltrúarn
ir flugleiðis frá New York.
Einn nefndarmanna, John Mc-
cloy, sagði eftir viðræðurnar, að
forsetanum hefðu verið fluttar
fréttir af gangi Kúbumálsins.
Tiltkynnt var í New York í dag
að varautanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, V. Kuznetsov, hefði
skýrt frá því við fréttamenn, að
lögð hefði verið fram við Banda
ríkin formleg samningaáætlun
um endanlega lausn Kúbudeil-
unnar.
Þá tilkynnti blaðafulltrúi
Kennedys í dag, að sennilega
myndu þeir Maomillan, forsæt-
isráðiherra Breta, og Kennedy
koma saman til fundar á næst-
unni. Ekki vildi blaðafulltrúinn
neitt um það segja nánar, hvar
eða hvenær fundiurinn yrði hald-
inn. Hins vegar taldd hann lík-
legt, að umræðuefnið yrði al-
þjóðamál, þar á meðal Kúbu-
deilan.
Viðgerð á strengnum er nú
lokið, og verið er að mæla hann.
^.ord Kelvin vinnur nú að því að
athuga strenginn milli Græn-
lands og íslands.
Allharður árekst-
ur í Flóanum
KLUKKAN hálf sex í gærkvöldi
varð all harður árekstur skammt
austan við Selfoss. Vörubifreið
ók austur frá þorpinu og mætti
Dodge Weapon bifreið á brú, er
var heldur í þrengra lagi, með
þeim afleiðingum að bifreiðarnar
skullu saman. Engin slys urðu á
fólki, en hliðin fór úr Dodge-bif-
reiðinni.
Kirkjukvöld í
Kristskirkju
í TILEFNI af almenna kirkju-
þingþinginu í Róm verður haldið
kirkjukvöld í Kristskirkju í
Landakoti sunnudaginn 26. nóv-
emiber n.ik. kl. 6 eftir hádegi.
Öllum er heimill aðgangur.
Lúðrasveitin Svan-
ur fer í skóla-
tónleikaför
Lúðrasveitin Svanur fer nú
aðra skólatónleikaför sína aust-
ur fyrir fjall. Fyrri tónleikarnir
voru haidnir að Hlíðadalsskóla
í ölfusi, en að þessu sinni verða
þeir að Laugardagsskóla n.k.
sunnudag. Hljómsveitin mun leit
ast við að velja verkefni við bæfi
skólafólksins. Hljómsiveitin hef-
ur nú starfað í 32 ár. Starfandi
félagar hljómsveitarinnar eru nú
26. Stjórnandi hljánmsveitarinnar
er Jón G. Þórarinsson.
— Ég mun sjá í hundsaugum
allra annarra eiginmanna hug
arlétti við að nýr fangi er orr-
inn hluthafi í smán þeirra.
Rúrik Haraldsson við upptöku
á síðasta hluta af Menn og
ofurmennj. Nánari frásögn er
á 3. sáðu. (Ljósm. Sv. Þ.)
r
Arnesingar ánægð
ir með skóg-
ræktarmál
Selfossi, 23. nóv.
í HAUST keypti Skógrækt rik
isins hluta af jörðinni Ásólfs-
stöðum í Þjórsárdal. Það land,
sem keypt befur verið, er skóg-
lendi Ásólfsstaða. í náinni fram
tíð mun skógræktin planta þarna
barrtrjám og er það von manna
hér eystra að þarna rísi í fram-
tíðinni nytjaskógur. Skógræktar
menn hér í Árnessýslu eru mjög
ánægðir með skipan þessara
mála. — Ó. J,
Bazarmunir
Hring sins sýndir
KVENFÉLAGIÐ HTÍmgurinn
hefur gluggasýningu í daig og
á mongun í verzluninni Álafosa
í Bankastræti. Sýndir eru baz-
armunir, sem seldir verða sunnu
daginn 2. des. í Pósthiússtræti 9
(Almennum tryggingum). —
Ágóði renmur óskiptur í Barna
spítalasjóð.
Togarasala
TOGARINN Surprise seldi !
Cux hafen í gær 138 lestir fyrir
98.343 mörk.
Varðarkaffi
l Valhöll
i dag
kl. 3—5 siðdegis
1800 tn.
í kasti
Akranesi, 23. nóv.
AGÆTT veiðiveður er nú á
síldarmiðunum undan Jökli.
Fregn flaug fyrir um það í
dag, að síldin þar væri komin
upp á 8 faðma dýpi. Guð-
mundur Þórðarson fékk 1800
tunnur í einu kasti.
30 gagnfræðaskólanemend-
ur hér í bæ unnu í dag við að
skipa freðsíld út í Selfoss.
— Oddur.