Morgunblaðið - 13.12.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.12.1962, Blaðsíða 10
10 r MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 13. des. 1962 TeUaúngin er gerð eftír lýsingu Uffe Jensen, skipstjóra á Bulbjerg, á þvi, hvernig stálbáturinn valt skyndiiega á hliðina. Sjóhæfni sfálbáta þykir ekki örugg MIKIL skrif hafa verið i dönsku blöðunum undanfarn- ar vikur um sjóihæfni stál- báta og slys sem hafa orðið á þeim á þessu ári. Rannsókn hefur verið fyrirskipuð á sjó- hæfni þeirra. Á þessu ári hafa danskir stálbátar lent í sjö sjóslys- um. Hinn 16. febrúar hvarf bát- urinn Torövig frá Hirtshals sporlaust í hafið. Sex menn fórust með honum og hefur aldrei spurzt til báts né á- hafnar. Hinn 17. febrúar hvolfdi Karna Schröder frá Esbjerg í miklum sjógangi. Fimm fórust með bátnum. Brak rak í nokkra daga á vesturströnd Jótlands. Hinn 17. febrúar fórst þriðji stálbáturinn. Það var Lorentz Nielsen frá Hirtshals. Þrír af áhöfninni fórust, en tveim var bjargað af fleka 32 tímum síðar . Hinn 7. nóvember sökk Nina Nordfisk frá Skagen í stormi við Noregsstrendur. Sökk báturinn 5 m‘ín;tum eft- ir að hann fékk hnút á sig. Þrír fórust og þrem var bjarg að. Nina Nordfisk var stærsti stálbátur Dana. Hinn 18. nóvember valt Nilan frá Esbjerg á hliðina, eftir að hafa fengið á sig hnút í slæmu veðri. Áhöfn- in fór í bátana, en flakið var á floti í tvo sólarhringa áð- ur en það sökk í hafið. Hinn 8. desember varð á- höfnin að yfirgefa Jette Marie frá Esbjerg. Leki kom að bátn um í stafni hans. Einum og hálfum sólaihxing síðar sökk báturinn. Hinn 8. desember valt Bul- bjerg frá Hirtshals skyndilega Nákvæm líkön af stálbátum verða reynd í vatnsþró til að reyna þan við mismunandi aðstæður. Myndin sýnir líkan, sem oltið hefur á hliðina, eins og hinir raunverulegu stál- bátar hafa gert áður en þeir sukku. á hliðina. Báturinn var við akkeri og riðu á hann tveir hnútar. Fimm minútum síðar tók báturinn að rétta sig við faægt og Sígandi. Þannig hljóðar raunasagan. Það er ekki að undra, þó<tt Dönum lítist ekki á blikuna og hafi fyrirskipað rannsókn á sjóhæfni stálbátanna. Enda eru þeir 90 talsins í fiskiskipa flotanum. Ef til vill getur skipstjór- inn á Bulbjerg, Uffe Jensen, hjálpað til að leysa gátuna um hin tíðu slys á stálbátun- um. Uffe Jensen var í stýridhúsi Bulbjerg, þegar báturinn fékk hnútinn á sig og lagðist á hlið ina. — Við vorum öruggir um, sagði skipstjórinn, að tæki báturinn á sig sjó aftur sykki Uffe Jensen hefur lýst sig reiðulbúinn til að fara aftur út með Bulbjerg, en hann er samt faxinn að finna til nokk urs öryggisleysis. — Ég veit ekki favers vegna Buibjerg lagðist é hliðina og ég veit ekki favers vegna hann rétti sig við aftur. En það er klárt, að eitthvað er ekki eins og það á að vera. Ég hef ekki viljað viðurkenna það til þessa, en eftir ferðina á laug- ardag er ég ekki í vafa leng- ur. Það er eitthvað að bátn- um, sagði Uffe Jensen. Bulbjerg var byggður í Hollandi að nokkru, en lokið við smíðina í Danmörku. Tveir hinna sokknu stálbáta voru einnig smíðaðir í hollenskum og dönskum skipasmíðastöðv- um, tveir eingöngu í Dan- mörku og tveir í Hollandi. Erik Kristensen, skipstjóri á Esbjergbátnum Nilan, sem sökk 18. nóv., lýsti yfir því, að þrátt fyrir slysið hefði hann mikla trú á stálbátun- um og sjófaæfni þeirra. Hann kvaðst treysta stálinu . Rannsókn í Dan- hann samstundis. — En báturinn rétti sig við eftir 4—5 mínútur. Við höfð- um 300 kassa af fiski, sem hlaðið var í botn bátsins, svo ekki faefði átt að vera neitt í ólagi með jafnvægið. vegna 7 slysa í ár Eftir síðustu stálbétaslysin keypti Kristensen nýjan bát, Helsing, sem er byggður úr tré. Danska skipaeftirlitið hefur fyrir nokkru hafið rannsóknir á sjóhæfni stálbáta. Svo und- arlega vildi til, að einn af þeim bátum, sem hafði ver- ið skoðaður og nota átti við rannsóknirnar, Jette Marie, sökk í desemberbyrjun. Leki kom að bátnum á sama hátt og getur hennt venjulega trébáta. Skipaeftirlitið faefur lýst yfir því, að ekkert athuga vert hafi fundizt við sjóhæfni Jette Marie. Danska skipaeftirlitið hefur ekki enn gengið frá áætlun- um sínum varðandi rannsókn- ir á stálbáturium. Það verð- ur að gera eftir því sem þeir koma til faafnar faver af öðr- um. í rannsóknarstöð skipaeft- irlitsins í Lyngby verða not- uð nákvæm 1-íkön af stáibát- um, sem höfð verða í stórri vatngþró til tilrauna á sjó- hæfni bátanna við mismun- andi aðstæður (sjá mynd). Skipaeftirlitið varar við því, að menn láti móðursýki ná tökum á sér vegna stál- bátanna. Það bendir á, að Höllend- ingar hafi varla byggt 600 stál báta, ef sjóhæfni þeirra væri í rauninni langt fyrir neðan allar hellur. 1 miklum öldugangi fylgja trébátarnir öldunum, en stálbátarnir brjótast í gegn um þær vegna þunga síns, eins og teikningin sýnir. Vandaðar kommóður hentugar til jólagjafa. Hrrotan, húsgagnaverzlun Þórsgötu 1. — Sími 20820. Vinna óskast Ábyggilegur maður óskar eftir aukavinnu eftir kl. 6 á daginn og um helgar, t.d. við iðnað, innheimtu, akstur o.fl. Upplýsingar í síma 10634. Oddgeir Þorkels- son, Asi, Carðahr. F. 27. 5. 1880 — D. 16. 11. 1962 Kveðja frá Sigurði Rúnari Jónassyni Hér skiljast lífsins leiðir og 1-ausninn himnesk breiðir sín blóm að beði þínu með bænar orði mínu. Þig leiddi herrans hendi þinn hugur gott mér kenndi mín hönd í hendi þinni * var heij á barnsleið minni. Nú fagrar þakkir færi þér fóstri minn hjartkæri, þín ljós mér lifa og skína og lýsa vegi mína. L. S. Ráðskona óskast að mötuneyti á Suðurnesjum. Ágætt húsnæði. Tilboð merkt: „Reglusöm — 3990“ sendist á afgr. Mbl. fyrir 18. desember. Við Ægissíðu eru til sölu 5 herb. efri hæð og rishæð í sama húsL • Málflutningsstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Austurstræti 9. — Símar 14400 og 20480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.