Morgunblaðið - 13.12.1962, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 13. des. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
17
Jóhanna E. Briem
FRÚ JÓHANNA Eggertsdóttir
Briem, ekkja séra Einars Páls-
sonar frá Reykholti, andaðist 4.
desember sl. að heimili yngsta
sonar síns, Vilhjálms bónda að
Laugarbökkum í Ölfusi.
Hún var fædd að Hjaltastöð-
um í Skagafirði 2. febrúar 1872
og var yngst barna hinna þjóð-
kunnu sýslumannshjóna Eggerts
Gunnlaugssonar Briems og Ingi-
bjargar Eiríksdóttur sýslumanns
Sverrissonar, en þau hjón voru
mjög barnmörg. Var frú Jóhanna
19. barn þeirra og hið 13. sem
upp komst, en öll urðu þau
systkin þjóðkunn og þóttu bera
menningu æskuheimilis síns fag-
urt vitni.
Eggert sýslumaður lét af emb-
setti 1884 fyrir aldurs sakir, þá
73 ára gamall, og fluttust þau
hjón til Reykjavíkur með yngstu
börn sín. Naut frú Jóhanna hér
ágætrar menntunar, en að móð-
ur sinni látinni tók hún við
stjórn heimilisins og þótti farast
það myndarlega, því að heimilið
var allstórt. Auk fjölskyldunnar
bjuggu þar nokkrir skólapiltar,
og einn þeirra var Einar Páls-
son (f. 1868). Tókust brátt með
þeim ástir, og 27. júlí 1893 gengu
þau að eigast. Var Einar þá ný-
vígður, hafði fengið veitingu
fyrir Hálsi í Fnjóskadal, og settu
þau þar bú saman. Var þeirra
mjög saknað, er þau fluttust það-
on 1904, er séra Einari var veitt-
ur Gaulverjabær, enda hafði
þeim vel farnazt þar og orðið
gott til vina. 1 Gaulverjabæ
bjuggu þau til 1908, er séra Ein-
ori var veitt Reykholt, en þar
bjuggu þau sín beztu ár og voru
jafnan síðan kennd við þann
stað. Séra Einar var búhöldur
mikill og einkar sýnt um alla
verkstjórn. Lét húsfreyjan þar
eigi sinn hlut eftir sem að lík-
um lætur, enda þótti öllum gott
hjá þeim að vera.
Reykholti þjónaði séra Einar
til vors 1930 en lét þá af emb-
setti, og fluttust þau hjónin til
Ingibjargar Eyfells, elztu dóttur
Sinnar. En séra Einar gerðist
féhirðir Söfnunarsjóðs íslands og
ainnti því starfi á meðan heilsan
leyfði um 10 ára skeið, en þá tók
hann að þjást af sjóndepru og
varð loks óvinnufær. Fluttust
þau þá að Laugarbökkum til
yngsta sonarins, og þar andaðist
séra Einar 1951.
Einar prestur var hámenntað-
ur maður, og var einkum kunn-
áttu hans í erlendum tungum
við brugðið. Hann var ákaflega
fróður og viðlesinn og söngvinn
mjög, enda listaskrifari á nótur.
Var það mál manna, að hann
væri hið mesta göfugmenni.
Þeim frú Jóhönnu varð sjö
barna auðið, og líkjast þau for-
eldrum sínum að mannkostum.
Næst-elzta son sinn, Gunnlaug
Briem guðfræðing, misstu þau
ungan 1929, og varð hann öllum
kunnugum harmdauði, enda fá-
gætur drengskaparmaður. Hafði
hann um langt skeið verið fyrir
búi foreldra sinna.
Elztur barna þeirra er Eggert,
héraðslæknir í Borgarnesi,
kvæntur Magneu Jónsdóttur, og
eiga þau 7 börn. Næst er Ingi-
björg, húsfreyja í Reykjavík,
kona Eyjólfs Eyfells málara, og
eiga þau 4 börn, þá Svanbjörg,
ekkja Arna Björns Björnssonar
gullsmíðameistara og kaup-
manns í Reykjavík, eignuðust
4 börn, þá Valgerður húsfreyja,
kona Stefáns bónda ólafssonar í
Kalmanstungu, eiga 3 börn, þá
Páll, forstjóri Stillis í Reykjavík,
kvæntur Gyðu Sigurðardóttur,
eiga einn son, og loks Vilhjálm-
ur, bóndi að Laugarbökkum,
kvæntur Jórunni Guðmunds-
dóttur, eiga 5 börn.
Frú Jóhanna átti hið fegursta
ævikvöld í hópi sinna mörgu af-
komenda og vina. Hún hafði í
vöggugjöf hlotið það, sem for-
feður vorir kölluðu byrði hina
beztu, en það var mannvit og
drengskapur. Fölnaði hvorugt,
þótt aldur færðist yfir, enda
hlotnaðist henni það hlutskipti,
sem íslendingar hafa jafnan bezt
talið, að hafa heilindi sitt og án
við löst að lifa.
Bjarni Guðmundsson.
Loftpressa á bíl
með vökvakrana til leigu.
Vélsmiðjan Kyndill
Sími 32778.
velja það bezta til jólanna!
Jarðarberjasulta
A Bl. ávaxtasulta
Hindber j asulta
Bláberja- og
sveskjusulta
Ananas- og appelsínu-marmelaði.
3 teg. ávaxtahlaup
4 teg. saft
4 teg. íssósur
Tómatsósa
Efnagerðin Valur hf.
Sími 19795.
Tvær starfsstúlkur óskast
til aðstoðar í eldhúsi frá 5. janúar.
MÖTUNEYTI SKÓLANNA, Laugarvatni.
Upplýsingar í síma 9, Laugarvatni.
SPEGLAR - SPEGLAR
Speglar í TEAK-römmum fyrirliggjandi.
Margar stærðir og gerðir.
Ennfremur:
Baðspeglar, Handspeglar,
Rakspeglar, Veggspeglar.
Einnig margskonar smærri speglar í miklu og
fjölbreyttu úrvali.
Hentugar jólagjafir.
SPEGLABÚÐIIM
VerzSunarfólk
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur efnir til félags-
fundar í Iðnó í kvöld, fimmtudaginn 13. desember
kl. 9. —
Rætt verður um framkomna tillögu um lengingu af-
greiðslutíma verzlana.
Verzlunarfólk er hvatt til að mæta vel og stund-
víslega.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Laugavegi 15.
Sími 1-96-35.
Atvinnuflugmenn
Framhalds aðalfundur Lífeyrissjóðs atvinnuflug-
manna verður haldinn föstudaginn 14. þ. m. í
Tjarnarcafé, uppi, kl. 20:30.
Stjórnin
Skrifstofuherbergi til leigu
4 samliggjandi herbergi, ca. 57 ferm. til leigu í
Miðbænum. Hentug fyrir skrifstofur. Upplýsingar í
síma 16057 daglega frá kl. 10—12 f.h.
PROGRESS
Hárþurrkurnar
eftirspurðu, eru komnar. —
Glæsileg jólagjöf til konunnar
eða unnustunnar.
/»/« m-M-tr.
VESTURGÖTUZ
UUGAVKI10
ÖÍMI 20300
HIJDSOIM - perlonsokkarnir
sem ekki fellur lykkja á, komnir aftur.
Með góðri meðferð er hér um að ríeða
margra vikna sokka.
Tösku & hanzkabúðin
Skólavörðustig.