Morgunblaðið - 19.12.1962, Page 1

Morgunblaðið - 19.12.1962, Page 1
24 síður Sigurður E. Hlíðar látinn Siigurður E. Hlíðar, fyrrver- andi yfirdýralaaknir og ailiþing- ismaður, lézt í Landaikotsspít- ailanum í gær, 77 ára að aldiri. Hafði hann um nokkurt skeið kennt þess sjiikdóms, sem nú hef ur leitt hann til dauða. Sigurður E. Hlíðar var hinn menkasti og mætasti maður, landskunniur fyrir störf sín og afskipti af landsmálum. Sigurður E. Hlíðar var fædd- ur í apríi 1885 í Hafnarfirði, sonur Einars organleikara og tré smiðs þar Einarssonar og Sig- ríðar Jónsdóttur. Hann lauk 4. bekkjar prófi í Lærða skólanum 1904 en dýralæiknisprófi í Kaup- mannahöfn 1910. Var hann síð- ar skipaður dýralæiknir norðan- lands en yfirdýralæknir og dýra læknir í Reykjavík 1943. Aliþing- ismaður Akureyrar varð hann 1937 og lengi síðan. Hann sat einnig í bæjarstjórn. Sigurður E. Hlíðar var vel lát- inn rnaður arf öllum og vinmarg- ur. Hann var vinsæll forysitu- maður, enda farsæll bæði setn yfirdýralæknir og stjórnmála- maður. Vélbáturinn Gullþór hvarf úr höfninni í Höfnum í fyrrinótt og fannst brotinn í fjörunni á milli Básenda og Stafness daginn eftir. — Sjá frétt á bls. 23. Stórgjafir til „kaupa“ á föngum Castros Miami, Florida, 18. des. — (AP) — Lögfræðingurinn James B. Dono van frá New York fór í gær flug leiðis frá Miami til Havana á Kúbu til að ganga endanlega frá samningum um „kaup“ á 1113 föngum fyrir matvæli og lyf. — Fangar þessir voru teknir við mis heppnaða innrásartilraun kúb- anskra flóttamanna í april 1961. í gær var frá því skýrt að Fidel Castro hafi fallizt á að láta þá lausa fyrir skipsfarm af lyfjum og bamafæðu. Eftir að fréttin um að Castro hafi samþykkt að selja fangana barst út, tóku lyfjasendingar að 6treyma til stöðva flóttamanna í Miami. Flugfélagið Trans Worid Airlines skýrði frá því að ein af flugvélum félagsins hafi verið tekin á leigu til að flytja 15 lest ir aí lyfjum fré New York til Miami. Auk þess hafa flugvélar verið fengnar til að flytja 14 lest Frumvarp um al- maimavarnir lög frá Alþingi. Á FUNDI efri deildar Alþingis á mánudag var frumvarp ríkis- etjórnarinnar um almannavarnir eamþykkt sem lög frá Alþingi. ir frá St. Louis og 9% lest frá Los Angeles til Miami. - XXX --- Bandaríski Rauði krossinn hef- ur þegar tekið skip á leigu til að flytja ly£in og matvælin til Kúbu, og í dag tilkynnti Ray Adiel, forstjóri Empress of Baha mas skipafélagsins að Rauði krossinn hafi þegið boð félags- ins um að lána eitt af skipum þess endurgjaldslaust til að flytja fangana til Florida. stæðis Angola New York, 18. des. (NTB) ALLSHERJARÞING SÞ sam þykkti í dag að fela Öryggis- ráðinu að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að knýja Portú gal til að láta af nýlendu- stjórn í Angola og sjá um að þetta Afríkuríki fái nú þegar sjálfstæði. Er Öryggisráðinu heimilt að grípa til refsiað- gerða, ef nauðsyn krefur. Til- lafa þessa efnis var sam- þykkt á Allsherjarþinginu með 57 atkvæðum gegn 14. Átján ríki sáu hjá, en full- trúar 21 ríkis voru fjarver- andi. Flutningslönd tillögunnar voru Alsír, Arabíska sambandslýðveld ið, Eþíópía, Ghana, Guinea, Ind- land, Júgóslavía, Kambódía, Madagaskar, Malí, Sýrland, Tanganyika og Túnis. * Skömmu eftir að tillagan hafði verið samþykkt, féllst Vasco Garin, aðalfulltrúi Portú- gal hjá SÞ, á tillögu Bandarikj- anna um að heimila fulltrúum samtakanna að fara til Angola og Mosambique til að kynna sér ástandið í nýlendunum. Hafa fulltrúar Portúgal hingað til þverneitað að fallast á slíkt eft- irlit. Nú féllst Garin á að einn fulltrúi færi til hvorrar nýlendu, og fá þeir algjört ferðafrelsi í löndunum. Ríkisreikningur- inn 1961 afgreidd- ur frá Alþingi Á FUNDI sínum í gær samþykkti neðri deild frumvarp til staðfest- ingar ríkisreikningnum 1961 sem lög frá Alþingi. Þá var frá neðri deild samþykkt sem lög frá Al- þingi frumvarp um skemmtcUia- skattsviðauka 1963. Þá var afgreitt sem lög frum- varp um framlengingu á Vipr. gjaldi á búvöruverð bænda, sem renni til húss bændasamtakanna við Hagatorg. Urðu allmiklar um ræður um það mál og skoðanir skiptar. Verður þess nánar getið síðar hér í Mbl. Viðrællum frestað í Genf fram yfir hátíðir Genf, 18. des. (NTB). ARTHUR Dean, fulltrúi Banda- ríkjanna á Afvopnunarráðstefn- unni í Genf, notaði sér í dag af ósamhljóða fregnum frá Svíþjóð um að sprengd hafi verið kjarn- orkusprengja 1 Sovétríkjunum um síðustu helgi til að undir- strika kröfur Bandaríkjanna um tæknilegar viðræður um vísinda- legar hliðar væntanlegs samn- ings um tilraunabann. Sagði Dean að sænsku fregnunum bæri ekki saman um það bvort um kjarn- orkutilraun hafi verið að ræða, jarðskjálfta eða eitthvað annað. Washington, 18. des. (NTB) Bandaríska kjarnorku- málanefndin tilkynnti í kvöld að Sovétríkin hafi í dag sprengt tvær kjarn- orkusprengjur í gufuhvolf- inu. — Dean benti á þetta dæmi um leið og hann skoraði á Sovét- ríkin að fallast á tillögu Breta um fund alþjóðlegrar nefndar vísindamanna til að rannsaka gildi sjálfvirkra eftirlitsstöðva til að fylgjast með kjarnorkuspreng ingum. Hafa Sovétríkin lagt til að í stað mannaðra eftirlits- stöðva, verði þremur sjálfvirkum stöðvum, svonefndum „svörtum kössurn" komið fyrir í Sovét- ríkjunum. Að fundi loknum spurðu frétta menn Tsarapkin, fulltrúa Sovét- ríkjanna á ráðstefnunni, hvort rétt væri að Sovétríkin ætluðu að hætta tilraunum sínum frá og með 1. janúar nk. Svaraði full- trúinn því til að Rússar vildu ekki að tilraunum yrði haldið áfram, en þeir væru neyddir til að halda áfram meðan aðrir gerðu það. Var þetta síðasti fund ur nefndarinnar fyrir hátíðir. Kennedy fagnaö í Nassau Viðræðurnar hef jast í dag Nassau, Bahamaeyjum, 18. des. — (NTB-AP) — KENNEDY Bandaríkjafor- seti kom í dag flugieiðis til Nassau, þar sem opinberar viðræður hans og Macmill- ans, forsætisráðherra Bret- lands, hefjast á morgun. — Munu viðræður þeirra snúast bæði um ágreining Breta og Bandaríkjamanna og sundur- lyndi kommúnistaríkjanna. — Helztu málin verða sennilega krafa Breta um að fá Skybolt- eldflaugar frá Bandaríkjun- um, hugsjónaágreiningur Kín verja og Rússa, og líkurnar, ef einhverjar eru, fyrir hættri sambúð Sovétríkjanna og V esturveldanna. Af hálfu Breta taka þátt í við- ræðunum, auk Macmillans, Home lávarður, utanríkisráðherra, Dun can Sandys samveldismálaráð- herra og Peter Thorneycroft varnarmálaráðherra. Frá Banda- ríkjunum komu með Kennedy, þeir Robert McNamara varnar- málaráðherra og George Bell að- stoðarutanríkisráðherra. Fyrir- hugað var að Dean Rusk utan- ríkisráðherra tæki þátt í viðræð- unum, en hann gat ekki komið því við vegna anna. Þegar fundur þeirra Macmill- ans og Kennedys var fyrst á- kveðinn, var fyrirhugað að aðal- umræðuefnið yrði ástandið í heiminum að lokinni Kúbudeil- unni. En risið hefur mikil deila milli Breta og Bandaríkjamanna út af fyrirhuguðum kaupum Breta á Skybolt-eldflaugum í Bandaríkjunum. Bretar halda því fram að kjarnorkuvarnir þeirra byggist að miklu leyti á eld- flaugum þessum, en Bandaríkja- menn vilja helzt hætta við smíði flauganna, sem þeir segja að verði bæði dýrar og tæknilega gallaðar. 16. fundur Macmillans Þegar flugvél Kennedys lenti á flugvellinum við Nassau, voru brezkti ráðherrarnir mættir þar til að taka á móti forsetanum og fylgdarliði hans, og heiðursvörð- ur stóð við landgang flugvélar- innar. Auk þess hyllti fjöldi á- horfenda Kennedy forseta á flug- vellinum. Mucmillan bauð forsetann vel- kominn til Nassau, og kvaðst vona að viðræður þeirra yrðu árangursríkar. Sagði Macmillan að þetta yrði 16. fundurinn, sem hann hefur átt ,með forseta Bandaríkjanna eftir að hann tók við embætti forsætisráðherra í ársbyrjun 1957. Taldi hann að allir þessir fundir hafi verið Framh, á bls. 23 SÞ kref jast sjálf-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.