Morgunblaðið - 03.01.1963, Side 1
24 siftur
U Thant kveður frekari við-
ræður við Tshombe um
Katangamálið gagnslausar
%
5 þyrlur skotnar
niður i S-Viet Nam
Harðir bardagar
Saigon 2. jan. (NTB-AP)
HARÐIR bardagar geisuðu í dag
í nágrenni Saigon, höfuðborgar
S—Viet Nam, millí skæruliða
MYNDIN sýnir tvo af öft-
ustu vögnum jáimbrautarlest-
ar sem gengur frá Liverpool
til Birmingham í Englandi, eft
ir að hún hafði rekizt á lest,
sem var á leið frá Glasgow
til London. 18 menn létu lífið
og 60 særðust í árekstrinum,
sem varð á annan jóladag.
Voru allir þeir, sem biðu bana
og saétöust í þeim tveimur
vögniun Liverpool-Birming-
ham lestarinnar, sem sjást á
myndinni. |
362 létust í
umferðar-
slysum í USA
New York, 2. jan. —
Dagana 29., 30. og 31. des. og 1.
janúar létu 362 menn lífið af
völdum umferðaslysa i Bandaríkj
unum. Hafa dauðaslys þar í landi
um áramót aldrei verið færri frá
því að hafin var nákvæm skrán-
ing á þeim 1946. 84 Bandaríkja-
menn létu lífið í eldsvoðum um
áramótin og 127 í ýmsum slysum.
geisa í landinu
kommúnista, Viet Cong, og her-
manna stjórnarinnar. Skærulið-
arnir skutu fimm þyrlur banda-
rískra hernaðarráðunauta, sem
flugu yfir vígstöðvarnar. Banda
rískur hershöfðingi, sem var í
einni þyrlunni lét lífið og 3 aðr-
ir, sem voru með flugvélunum
særðust. Þyrlurnar, sem flugu
yfir vígstöðvarnar voru alls átta,
þremur þeirra tókst að lenda og
fluttu þær særða hermcnn til
Saigon.
Það voru skæruliðar komm-
únist, sem hófu hernaðaraðgerðir
um 64 km. suðvestur af Saigon
fyrir nokkrum dögum og þar
er enn barizt af hörku. Herma
fregnir, að mannfall sé mikið í
liðum beggja. Sl. föstudag réð-
ust skæruliðar á her stjórnarinn
ar um 104 km norðaustur af
Saigon og þar eru einnig blóðug
ir bardagar^
Eins og kunnugt er hefur her
stjórnar Ngo Dinh Diems lengi
átt í höggi við skæruliða komm-<
únista í S-Viet Nam. Hafa Banda
ríkin sent fjölda hernaðarráðu-
nauta til landsins til þess að leið
beina stjórnarhernum. Einnig eru
margar bandarískar þyrlur í S-
Viet Nam og eru þær notaðar til
flutninga á hermönnum og vist-
um.
12 látast í
ónn er barizt í Katanga og sækja sveitir
SÞ til borgarinnar Jadotville þar sem
Tshombe hefur aðsetur
New York, Leopoldville, 2. jan. (NTB-AP)
• U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti því
yfir í dag, að hann teldi áframhaldandi viðræður Tshombes og
Adoula um sameiningu Katanga við aðra hluta Kongó gagnslausar,
þar sem þegar hefði náðst samkomulag um öll meiriháttar atriði.
• Viðræður SÞ og Katangastjórnar um vopnahlé sagði U
Thant einnig gagnslausar, því að Tshombe hefði svo oft svikið
vopnahlétsamninga. Taldi hann þessi svik Tshombes geta bent til
þess, að hann hefði ekki lengur vald á Katangaher.
• Tshombe, sem nú er staddur í borginni Jadotville fyrir
norðvestan Elizabethville, sagði í dag í tilkynningu, sem hann sendi
erlendum sendimönnum i Elizabethville, að hann væri enn sam-
þykkur tillögum U Thants um sameiningu Katanga við aðra hluta
Kongó. —
• Skoraði Tshombe á U Thant að beita sér fyrir því að hafn-
ar yrðu viðræður Katangastjórnar og einhvers fulltrúa SÞ, sem
ekki hefði tekið þátt í aðgerðunum í Katanga.
Viðræður gagnslausar.
Talsmaður U Thants í aðal-
stöðvum SÞ í New York sagði í
dag, að U Thant hygðist ekki
beita sér fyrir áframhaldandi við
ræðum Tshombes fylkisstjóra
Katanga og Adoula forsætisráð-
herra sambandsstjórnarinnar í
Leopoldville, um sameiningu Kat
anga við aðra hluta Kongó. Teldi
U Thant slíkar viðræður gagns-
lausar, þar sem Adoula og
Tshombe hefðu þegar náð sam-
komulagi um allt nema nokkur
tæknileg atriði varðandi samein
inguna. U Thant er þeirra skoð-
unar, að endurteknar viðræður
Tshombe og Adoula muni aðeins
leiða til þess, að síðustu atburðir
í Katanga endurtaki sig.
Talsmaðurinn sagði, að U Thant
teldi, að vopnahléssamningar
milli Katangastjórnar og Sam-
einuðu þjóðanna væru einnig
gagnslausir. Tshombe hefði oft
svikið slíka samninga og gætu
svik hans að undanförnu bent til
þess, að hann væri að missa
stjórn á hernum.
Tshombe vill viðræður.
Tshombe, fylkisstjóri Katanga
er nú staddur í borginni Jadot-
ville norðvestur af Elizabethville.
í dag sendi hann erlendum sendi
mönnum í Elizabethville tilkynn
ingu. Sagði í henni, að hann
styddi enn áætlun U Thants, fram
kvæmdastjóra SÞ um sarrieiningu
Katanga við aðra hluta Kongó.
Sagðist hann skora á U Thant,
að koma því til leiðar, að við-
ræður hæfust hið bráðasta milli
Katangastjórnar og einhvers þess
fulltrúa SÞ, sem ekki hefði tekið
þátt í aðgerðunum í fylkinu.
Vill ræðismenn til fylgdar.
Tshombe flúði frá Elizabeth-
ville til Norður-Rhodesíu sl. laug
ardag og bað um hæli, sem póli-
tískur flóttamaður. Var honum
veitt það, en skömmu síðar hélt
Tshombe aftur til Katanga og þá
til Jadotville um 200 km norð-
vestur af Elizabethville. Samein'
uðu þjóðirnar hafa nú tilkynnt
Tshombe, að honum sé heimilt að
koma aftur til Elizabethville, en
hann segist ekki muni gera það
nema ræðismenn Breta, Banda-
ríkjamanna og Frakka, komi til
móts við hann til Jadotville og
fylgi honum til Elizabethville til
þess að tryggja það, að honum
verði ekki rænt. Bretar höfðu þeg
ar samþykkt að senda ræðismann
Framhald á bls. 9
Kairó 2. jan. (NTB)
Iðnaðarmálaráðherra Alsír
skýrði frá því á fundi með
fréttamönnum í dag, að Nass
er forseti Egyptalands hefði
þegið boð um að koma í op-
inbera heknsókn til Alsír 5.
júlí n.k.
sprengmgu
í DAG varð mikil sprenging i
verksmiðju í ríkinu Indíana í
Bandaríkjunum. Létu að minnsta
kosti 12 verkamenn lífið af völd
um sprengarinnar og 47 særðust.
Verksmiðjan gereyðilagðist og
lögreglan telur, að það hafi verið
gufuketill, sem sprakk.
*
Islenzk skipskista fund-
in á Tristan da Cunha
Rannsóknarleiðangur rakst á hana á eyði-
eyjunni, en enginn veit, hvernig hún er
þangað komin
í DANSKA vikuritinu „Fam-
ilie Journal“, hefur að undan-
förnu birzt greinaflokkur um
eyjuna Tristan da Cunha,
sem verst varð úti í náttúru-
hamförum á sínum tíma, og
skýrt hefur verið frá.
Nýlega var gerður út leið-
angur til eyjarinnar, til að att-
huga, hvort hugsanlegt væri
fyrir íbúana að setjast þar
aftur að. Þeir hafa verið í
Bretlandi, síðan þeir urðu að
yfirgefa eyjuna, en hafa unað
hag sínum þar illa.
Með í förinni voru tveir
Framhald á bls. 9