Morgunblaðið - 03.01.1963, Blaðsíða 24
f
Lögreglan beitti táragasi gegn
óróaseggjum í miðbænum
TÖLUVERÐ ÓLÆTI urðu í mið
bænum á gamlárskvöld og beitti
lögreglan að lokum táragasi til
þess að dreifa nokkrum hundruð-
um unglinga, sem létu ófriðlega
umhverfis lögreglustöðina. Var
það laust fyrir kl. 2 á nýársnótt.
Voru þrjár litlar táragassprengj-
ur sprengdar samtímis beggja
vegna Xögreglustöðvarinnar, í
Austurstræti og Hafnarstræti, en
síðan stuggaði sveit lögreglu-
þjóna, sem búin var kylfum, við
skaranum. Ekki kom þó til þess
að beita þyrfti kylfunum. ölvun
var mjög mikil, tugir manna tekn
ir úr umferð og lögreglan var
hvað eftir annað kvödd til þess
að skakka leikinn í heimahúsum.
Þá bar mikið á ölvun unglinga.
í miðbænum sáust jafnvel 13—14
ára unglingar, sem voru all-
drukknir. Töluvert var um smá-
slys á fólki, bæði vegna hálku,
flugelda og kínverja, en umferð-
arslys urðu engin.
í viðtali við Mbl. í gær sagði
Erlingur Pálsson, yfirlögreglu-
þjónn, að mikið annríki hefði ver
ið hjá lögreglunni um áramótin,
þó ekki jafnmikið og daginn fyrir
Þorláksmessu, þegar verzanir
voru opnar til miðnættis og um-
ferðin hvað mest. Tiltölulega fátt
fólk hefði verið á ferli í mið-
bænum, því brennurnar, sem
voru um 100 víðsvegar um bæinn,
drógu að sér þúsundir manna,
því veður var með eindæmum
gott. Fór allt vel fram þar og um
ferðin gekk snurðulaust og voru
lögregluþjónar þá víða við um-
ferðarstjórn. Áramótadansleikir
fóru líka friðsamlega fram. Ó-
hætt er að segja, að lögreglan
hafi haft í mörg horn að líta.
Það var laust fyrir miðnætti,
að unglingar fóru að safnast sam
an í miðbænum og bar þar fyrst
og fremst á ölvun, en einnig var
sprengt mikið af kínverjum. Tók
lögreglan kínverja af mörgum
strákum, sem voru yfirheyrðir og
síðan fluttir heim til sín. Einn
var með 400 kínverja á sér, en
hann játaði að hafa þá selt og
sprengt 1.600 stykki. Var hér um
smyglvarning að ræða.
Upp úr miðnætti var þarna í
miðbænum fjöldi unglinga, á að
gizka 200 eða rúmlega það, í
grennd við lögreglustöðina, mest
Lögregluþjónn við einn af
stöðumælunum, sem eyðilagðir
voru.
£ Austurstræti. Þetta voru piltar,
flestir á aldrinum 12—17 ára, og
voru þeir með ólæti á götunni.
Gluggar voru brotnir í fimm
verzlunum við Austurstræti og
sex stöðumælar eyðilagðir, en lög
reglan hafði hendur í hári margra
sökudólganna strax eftir að verkn
aðirnir voru framdir.
Margir vegfarendur svo og þeir,
sem óku um miðbæinn, urðu fyr
ir óþægindum vegna ólátaseggja
á götunni, bæði vegna kínverj-
anna — og svo urðu víða stymp-
ingar. í eitt sinn réðist ungur mað
ur á friðsaman vegfaranda með
barsmíð og tóku lögregluþjónar
árásarmanninn þegar í stað, en
hann er lögreglunni gamalkunn
ugur.
Þegar lögregluþjónar færðu
manninn til lögreglustöðvarinnar
gerði mannfjöldi á götunni aðsúg
að lögreglunni sem stuggaði fólk
inu frá sér. Var þröng í götunum
næst lögreglustöðinni og voru
Framhald á bls. 11
AKRANESI, 2. janúar. — KI.
10 í morgun komust allir í
vígahug í Sementsverksmiðj-
unni. Óboðinn gestur hafði
þotið inn fyrir verksmiðju-
múrana, þótt vel víggirt sé.
Gesturinn valdi loftleiðina,
því hér var fálki á ferð. Fyrstu
fómardýrin valdi hann sér úr
dúfnahúsi á sementsgeymi nr.
1.
Fálkinn er göfugur fugl, hugrakkur og stoltur, eins og sjá má
af Akranesfálkanum, því að þótt hann sé í fangelsi er hann
hnarreistur og nennir varla að hafa fyrir því að horfa á ljós-
myndarann.
Slegizt við fálka
áAkranesi
Handsamaður, en sleppt i dag
Fálkinn stútaði 6—7 dúfum. Varð nú verkfall yfir alla
Eina dúfuna drap hann þann- línuna hjá starfsfólki verk-
ig að hann sló af henni haus- smiðjunnar og fjaðrafok með
inn á fluginu. þvilíkum býsnum að dimmdi í
Myndin var tekin í gær, þegar verið var að skipta um rúðu í
verzl. Jóns Brynjólfssonar í Austurstræti. — Sú verzlun var
meðal þeirra, sem urðu fyrir barðinu á óróaseggjunum á gaml
árskvöld.
Eggert
Stefánsson
látinn
EGGERT Stefánsson söngvari
lézt suður á ítalíu í bænum
Schio, sem er skammt frá Fen-
eyjum, laugardaginn 29. desem-
ber. Ekki er enn vitað fyllilega,
hvernig dauða hans bar að hönd-
um, en talið er, að hann hafi
orðið bráðkvaddur.
Eggert heitínn og kona hans,
Lelia, née Cazzola Crespi, urðu
bæði veik um miðjan sl. desem-
ber. Fékk hún hjartaslag, en
Eggert heilablæðingu og varð
blindur í tvo daga. Fóru þau
saman í sjúkrahús. Þetta var í
fjórða skipti á undanförnum
þremur árum, sem Eggert heit-
inn fékk heilablæðingu, og í eitt
skiptið varð hann blindur um
Eggert Stefánsson
stutt skeið. Þau hjón náðu sér
eftir þessi áföll og voru komin
heim í bústað þeirra í Schio,
fæðingarstað frú Leliu. Ætluðu
þau að koma heim til íslands í
febrúar.
Áramóíaspilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna
Ljósm.: Magnús Oddsson
lofti. Margir brugðu hart við
til varnar saklausum dúfunum,
en sóknharðastur var Svavar
Elíasson.
Hann kleif upp 35*metra há
an sementsgeyminn og henti
sér yfir fálkann, sem hafði
flækzt í búrnetT dáfnanna, en
sá var ekki á að láta sig.
Fálkinn velti sér á bakið
eins og skot og læsti klónum
í jakka Svavars, sem greip
haustaki á fálkanum.
Síðan hefur fálkinn verið til
sýnis í einum glugga verk-
smiðjunnar. Hann verður í
varðhaldi í nótt, en sleppt í
fyrramálið út á loftsins víðu
vegu. — Oddur.
Sjúklingar flutt
ir í nýjasta
Landakotsspítala
MIÐVIKUDAGINN 2. jan. voru
sjúklingar fluttir úr gamla Landa
kotsspítalanum (St. Jósefs spít-
ala) í nýjasta sjúkrahúsið, sem
stendur á bak við það gamla
á horni Ægisgötu og Túngötu.
Nokkrir sjúklingar urðu eftir i
hinum gamla, þ.e. fólk, sem kom
ið hefur í þessari viku. Einnig
verður tekið á móti einhverjum
sjúklingum fram eftir árinu i
gamla sjúkrahúsinu, því að hörg
ull er á sjúkravistum og margir á
biðlista. í apríl verður gamli
spítalinn annað hvort rifinn á
lóðinni eða seldur í burtu.
Vetrarvertíð
hafin í Eyjum
VESTMANNAEYJUM, 2. jan.: —
Vetrarvertíðin er hafin hér og
fóru þrír bátar, Stígandi, Júlía
og Gísli Johnsen, til róðra í dag
með línu. — Bj. Guðm.
Aramótaspilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja
vík verður haldið í kvöld í
tveimur samkomuhúsum. Vel
er til þeirra vandað að venju,
og er búizt við miklu fjöl-
menni eins og undanfarin ár.
Spilakvöldið verður haldið
bæði í Sjálfstæðishúsinu og á
Hótel Borg. Á fyrri staðnum
flytur Bjarni Bencdiktsson, dóms
málaráðherra, ávarp, en á hin-
um síðarnefnda Gunnar Thor-
oddsen, fjármálaráðherra. Spiluð
verður félagsvist og mjög glæsi-
leg verðlaun veitt. — Frægt
spánskt dansaratríó mun
skemmta gestum með dansi. Að
lokum verður dansað.
Kópavogur
Sj ál fstæ ð iskve nn afél agið Edda
í Kópavogi heldur jólatrés-
skemimtun fyrir börn í félags-
heimili Kópavogis laugardaginn 5
janúar. Ball fyrir unglinga verð-
ur í Sjálfstæðishúsinu, Borgar-
holtsbraut 6 um kvöldið. — Að-
göngutmiðar á barnaballið verða
seldir í Sj ál fs tæð ishús inu í kvölid
og næstu kvöld milld 8 og 10.