Morgunblaðið - 03.01.1963, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 3. janúar 1963
MORGUWBLAÐIÐ
21
Endurnýjun skirteina fyrir seinni helming kennslutímabilsins ( 4 mánuði) fer
fram í Skátaheimilinu í dag fimmtud. 3. jan. og á morgun föstud. 4. jan.
frá kl. 3—6 e.h. báða dagana.
ATH.: Innritun nýrra nemenda (byrjendur) fer fram í næstu viku.
Leitið upplýsingar hjá oss.
Sisíi oT. xSofínsen
Túngötu 7 — Símar 16647 og 12747.
— Avarp
íorseta íslands
Framhald af bls. 6.
hefir að miklu leyti týnzt, en
sjálft lífið hefir bjargazt og
varðveizt í skráðri sögu, bók-
menntum, héraðsstjórn og á Al-
þingi. Þetta er sú staðreynd, sem
útlendum mönnum er helzt kunn
ugt um vora þjóð, óg mun varð-
veita orðstír hennar, ef vel er á
haldið. Á þessu hvílir öryggi ís-
lands, langri og samfeldri sögu,
virðing annarra þjóða, góðu ná-
grenni, og skilningi vor sjálfra á
utanríkismálum. Sá skilningur
er oss nauðsynlegur og engin of-
ætlun. Enginn stóð Snorra Sturlu
syni framar á hans tíma í stjórn-
málasögu. Um það ber „Heims-
kringla“ vitni. Heimskringlan er
nú að vísu stærri, en fréttir þó
allar fljótteknari fyrir þegn og
þingmann.
Þinghelgin er mikil og rík, og
þó stendur jafnan nokkur styr
um störf Alþingis. Er það að
vonum um þá stofnun, sem sker
úr um helztu hagsmuna- og hug-
sjónamál þjóðarinnar. Nú standa
kosningar fyrir dyrum um næstu
sólstöður á sumri, og mun sú
barátta að sjálfsögðu setja sinn
blæ á þjóðlífið á næstu misseri
hækkandi sólar. Enginn fárast
um það, þó að sjóði á keipum
undir kosningar. Kosningar eru
kappsigling og áróður. Það er
hinn sífelldi stormbelgingur heil-
langt kjörtímabilið, sem er þreyt
andi fyrir þjóðina, Og mætti
vafalaust spara á þeim lið ríf-
lega, frá því sem verið hefir um
langt skeið. En hvað sem því líð-
ur, þá óskum vér öll, að kom-
andi kosningar verði þjóðinni til
heilla, og að sú stjórn, sem þar
eftir fer með völd megi sem bezt
njóta sín, og þjóðin hennar.
Almennar kosningar og stjórn
arskipti samnkvæmt úrslitum
þeirra, er ein mesta framtíð síð-
ari tíma í þjóðfélagsmálum. Vér
lítum með hrylling til þeirra
tíma, þegar menn voru líflátnir
fyrir hugsun sína og skoðanir, og
stjórnarskipti fóru fram með af-
töku þeirra, sem ósigur höfðu
beðið. Vér fögnum breyttum
hugsunarhætti og vaxandi mann
úð í skjóli þingræðis Og lýð-
ræðis. Vér gleðjumst af hinum
mrgu góðu og hollu minningum,
sem saga vor hefir varðveitt, og
lítum vonglaðir fram í tímann í
því trausti, að íslendingum megi
auðnast, að verða fyrirmyndar-
þjóð um manndóm, menning og
góða sambúð, inn á við og út á
við.
Guð gefi oss öllum gott ár.
Frá dansskóla Hermanns Ragnars
Þetta eru reiknivélarnar, sem svo margir spyrja um.
Venjulega fyrirliggjandi átta gerðir af samlagn-
ingar- og margföldunarvélum.
Verð frá kr. 5145.00.
Höfum einnig mjög hentuga búðarkassa sem eru
byggðir fyrir Odhner vélar. — Verð kr. 1768.00.
o PHNER
ODHNER
reiknivélar
reiknivélar
við allra hæfi.
mun lesta á eftirfarandi höfnum:
Kristiansands um 16. janúar 1963;
Malmö um 18. janúar 1963;
Hamborg um 21. janúar 1963;
Grimsby um 23. janúar 1963.
M.S. DÍSARFELL
Viðskipfaáhugi
Ungur maður með mikinn áhuga á verzlun og við-
skiptum, einkum þeirri hlið, er snertir veltuaukn-
ingu, þ.e.a.s. sölu, auglýsingar o. s. frv. óskar eftir
traustri og vel launaðri atvinnu. Tilboð merkt:
„Verzlunarskólastúdent — 3871“ sendist Mbl. fyrir
n.k. helgi.
Voktmaiui óskost
Bifreiðastöð Steindórs
Upplýsingar milli kl. 6—8 síðdegis.
Eldhússfúlka óskast
nú þegar.
Sfúkrahúsið SéBheimar
Upplýsingar hjá ráðskonunni.
Verzliinurhúsnæði
Til leigu á góðum stað. Tilboð sendist á afgreiðslu
blaðsins fyrir 6. jan. 1962 merkt: „Verzlunar-
húsnæði — 3883“.
Leiklistarskóli
á vegum Leikfélags Hafnarfjarðar mun taka til
starfa á næstunni. Upplýsingar gefur formaður fé-
lagsins í síma 51467 kl. 3—4 1 dag og föstudag.
(jle&ilecjt
Þakka viðskiptin á árinu, sem er að líða.
ÚTVARPSVIÐGERÐIN
Langholtsvegi 176. — Sími 35310.
Verkomenn óskost strnx
Almenna byggingafélagið
Borgartúni 7 — Sími 17490.